Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2002, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002
DV
Fréttir
Alcoa vill nýja
þjóðveginn burtu
- vegarlagning „álbrautarinnar“ komin í biðstööu
Álbraut gæti allt eins orðið nafn-
ið á nýjum þjóðvegi milli Reyðar-
fjarðar og Eskiíjarðar. Vegurinn
átti að liggja nánast um hlaðið á
væntanlegu álveri bandaríska álris-
ans Alcoa. Bandaríkjamennimir
hafa nú gert athugasemd við vegar-
lagninguna - fmnst að vegurinn sé
allt of nærri þeirri lóð sem ætluð er
undir álver. Verkkaupi er Vega-
gerðin og hún hefur nú óskað eftir
því við vélaverktakann, Mylluna hf.
á Egilsstöðum, að hluti verksins
verði settur i bið til næsta vors. Þar
er um að ræða 2 kílómetra kafla
vegarins sem liggur fram hjá álvers-
lóðinni en leiðin milli „tvíburabæj-
anna“ er 15 kílómetrar.
Unnar Elísson, framkvæmda-
stjóri Myllunnar, staðfesti það í gær
að verkkaupi hefði óskað eftir að
framkvæmd yrði frestað um sinn.
Nýi þjóðvegurinn er beinn og breið-
ur frá Reyðarfirði út fyrir Hólma-
DV-MYNDIR GUÐMUNDUR PORSTEINSSON
Albrautin
Þjóövegur milli tvíburabæjanna Reyöarfjaröar og Eskifjaröar kemur án efa til
meö aö fá nafn sem minnir á áliö.
Blautt fyrir vegageröarmenn
Vegageröarmenn hafa upplifað erfitt sumar sem seinkar framkvæmdum. Hér
er unniö aö Álbrautinni svoköiiuöu í leöjunni viö Reyöarfjörö.
háls, að álverslóðinni, 8 metra
breiður vegur, lagður malbiki. Þeg-
ar komið er inn fyrir álverið liggur
mjórri vegur til Eskifjarðar.
Vegurinn frá Sómastöðum að
Hólmahálsi var afar leiðinleg hindrun
á tiltölulega góöri akstursleið en með
nýjum vegi verða þar miklar og góðar
breytingar.
Lítið sumar hefur enn verið á Aust-
fjörðum. Austfirski sumarhitinn hef-
ur látið biða eftir sér og oft verið frek-
ar vætusamt. Vætan hefur að sjálf-
sögðu slæm áhrif á framkvæmdir eins
og vegagerð og sagði Unnar það vissu-
lega rétt. Hann segir það þó aðal-
ástæðu seinkana á þessari fram-
kvæmd sem margir bíða eftir vera
þessa ósk verkkaupa um frestun fram-
kvæmda á kafla vegarins. -GÞ/JBP
Nýtt hlutafélag stofnað um sútunarverksmiðju á Akureyri:
Skinnaiðnaði tryggð framtíð
-75 milljona krona hlutafé - Akureyrarbær styður nýtt félag
Búið er að stofna nýtt 75 millj-
óna króna hlutafélag um rekstur
sútunarverksmiðjunnar Skinna-
iðnaðar á Akureyri. Landsbank-
inn hefur rekið fyrirtækið í tæpt
ár frá því að rekstur félagsins var
gerður upp í fyrrahaust og var þá
öllum starfsmönnum sagt upp.
Síðan voru nokkrir tugir endur-
ráðnir en nú starfa um 65 manns
hjá fyrirtækinu.
Ormarr Örlygsson, fram-
kvæmdastjóri Skinnaiðnaöar, seg-
ir að nokkrir lykilstarfsmenn,
Landsbankinn og Akureyrarbær
standi á bak við nýja félagiö.
Rekstur félags Landsbankans hafi
verið skammtímalausn en nú séu
nýir tímar fram undan og horf-
urnar betri en um skeið.
„Fyrirtækið hefur, að undan-
skildu hrúninu sem varð í grein-
inni upp úr 1997, staðið sig vel og
við metum það svo aö markaðs-
málin séu komin í eðlilegt horf.
Við forum af stað með nánast eng-
ar skuldir og teljum að þetta geti
orðið heilbrigt og gott félag. Það
byggist þó allt á því að við fáum
nægt hráefni. Það er mikil sam-
keppni með gærur en útlitið er
gott fyrir haustiö," segir Ormarr.
Framkvæmdastjóri Skinnaiðn-
aðar segir að fyrirtækið hafi notið
þeirrar gæfu aö halda þeim lykil-
starfsmönnum sem þurft hafi til
og öllum starfsmönnum verði boð-
ið að kaupa bréf í nýja félaginu.
Iðnaðurinn byggist mjög á hand-
verki og sérþekkingu og sé mikill
MYND BÞ
Nýlr tímar
Ormarr Örlygsson, framkvæmda-
stjóri Skinnaiönaöar, er bjartsýnn á
framtíö Skinnaiönaöar eftir nokkra
óvissu undanfariö.
auður i starfsmannaliði Skinna-
iðnaðar. Mestur hluti útflutnings
Skinnaiðnaðar fer til Ítalíu.
Gengið samkvæmt áætlun
Jónína Lindal hjá eignarhalds-
félaginu Hömlum, sem er í eigu
Landsbankans, staðfesti að nýtt fé-
lag myndi taka við rekstrinum á
næstu dögum. Hún sagði rekstur-
inn hafa gengið samkvæmt áætl-
un frá því að Landsbankinn hefði
tekið við honum.
Ekki náðist í Kristján Þór Júlí-
usson, bæjarstjóra á Akureyri, en
samkvæmt upplýsingum DV ligg-
ur ekki fyrir að fullu í hverju að-
koma bæjarins að nýja rekstrarfé-
laginu mun felast. -BÞ
Hundruð þúsunda króna tjón á Hauknum:
Mannlegur
harmleikur
- segir framkvæmdastjori Norðursiglingar
„Þetta er mannlegur harmleikur
sem mun fara sína leið fyrir dóm-
stólum,“ sagði Hörður Sigurbjam-
arson, framkvæmdastjóri Norður-
siglingar ehf., í samtali við DV í
gær.
Hörður var staddur úti á sjó á
hvalaskoðunarbátnum Hauknum,
með fjölda ferðamanna, en Haukur
rakst á bryggju um helgina í Húsa-
víkurhöfn og varð fyrir tjóni sem
metið er á um 500.000-700.000
krónur. Hörður og félagar hafa í
samráði við Siglingastofnun fram-
kvæmt bráöabirgðaviðgerð þannig
að hægt er að nýta bátinn til fulls
í skoðunarferðir uns hann fer í
klössun í haust. 36 farþegar voru
um borð í bátnum þegar óhappið
varð en skipstjóri bátsins er grun-
aður um ölvun og hefur verið sagt
upp störfum í kjölfar atviksins.
Um er að ræða afleysingarskip-
stjóra sem starfað hefur hjá Norð-
ursiglingu með hléum frá upphafi
og hefur hann reynst fyrirtækinu
sérlega vel fram til þessa, aö sögn
Harðar. Bátar Norðursiglingar
hafa farið hátt í 4000 sjóferðir á
Skjálfanda og aldrei áður hefur
ámóta mál komið upp og segist
Hörður líta atvikið mjög alvarleg-
um augum. -BÞ
DVTHYND E.ÓL
Seglin þanln í Hafnarfjaröarhöfn
Áhugafólk um skútusiglingar naut blíðunnar í Hafnarfiröi í gær.
Sigiinganámskeiö eru nú í fullum gangi og var tignarlegt aö fytgjast meö
unga fólkinu sigia segium þöndum um höfnina.
Árneskirkja á Ströndum.
Árneshreppur:
Stefnt að lausn
prestsmálsins
sem fyrst
Mál sr. Jóns ísleifssonar, prests i Ár-
neshreppi á Ströndum, er i biðstöðu, en
viðræður hafa verið í gangi milli lög-
fræðings hans og Biskupsstofu.
Á fostudag neitaði prestur því form-
lega að fara að tilmælum biskups um
starfslokasamning og situr því áfram
sem fastast. Hann hafnar einnig skrif-
legum athugasemdum 80 sóknarbama
sinna um störf sín. Séra Halldór Reyn-
isson, blaðafúlltrúi Biskupsstofú, segir
að viðræður hafi farið fram við Harald
Blöndal, lögmann Jóns. Segir hann að
Haraldur hafi óskað eftir því að fa frest
til að afla gagna í málinu. Halldór seg-
ir að samt sé stefiit að þvi að leysa
þetta deilumál Jóns við söfhuðinn sem
fýrst og helst nú fyrir haustið. Málið á
sér, eins og fleiri slík, nokkuð langan
aðdraganda og lýtur að verulegri óá-
nægju safiiaðarins með embættisstörf
Jóns undanfarin ár. Jón býr hins vegar
að æviráðningarsamningi sem prestur
og þar virðist hnífúrinn standa í kúnni
varðandi tilfærslu hans í starfi. -HKr.
Samfylkingin:
Kosningaslagur-
inn að hefjast
Framkvæmdastjórn Samfylking-
arinnar samþykkti á fundi sínum sl.
miðvikudag að beina því til kjör-
dæmisráða flokksins að framboðs-
listar fyrir alþingiskosningar verði
tilbúnir ekki síðar en 1. desember
nk. Þá leggur stjómin til að val
frambjóöenda fari fram í þremur
þrepum.
Samþykkt framkvæmdastjómar-
innar er svohljóðandi: „Fram-
kvæmdastjóm samþykkir að beina
því tO kjördæmisráða að þau ákveði á
fundum sínum í ágúst að gengið verði
formlega af þeirra hálfu frá samþykki
á framboðslistum vegna alþingiskosn-
inga eigi síðar en helgina 30. nóvem-
ber til 1. desember nk.“ -BÞ
Húsavík:
Ölvaður stal bíl
Héraðsdómur Norðurlcmds eystra
hefur dæmt 19 ára Húsvíking til að
greiða 100.000 kr. sekt eftir að hann
stal bíl ölvaður og ók milli húsa í
bænum. Þá var maðurinn sviptur
ökuréttindum i 12 mánuði.
Brotið átti sér stað í fýrra og fyrir
dómi viðurkenndi maðurinn brot sín
samkvæmt ákæru. Hann mældist með
1,51 alkóhól í blóðinu og hefur áöur
komið við sögu lögreglu. -BÞ
Truflaði mein-
dýraeyða
Annasamt var hjá lögreglunni í
Reykjavík um helgina. Meðal ann-
,ars þurftu tveir meindýraeyðar
hjálp lögreglu þegar þeir voru að
eyða geitungabúum í garði í mið-
borg Reykjavíkur um miðnætti að-
faranótt laugardags. Þeir stóðu uppi
í stiga og notuðu klóróform við
verkið. Forvitinn vegfarandi kom
þá að og fór upp í annan stigann til
að trufla mennina við vinnu sína.
Meindýraeyðarnir reyndu að reka
manninn í burtu svo að hann truflaði
ekki og andaði ekki að sér klóróform-
inu en hann var á öðru máli og lét sér
ekki segjast og endaði þetta með átök-
um á milli þeirra. Lögreglan segir að
geitungamir hafi hins vegar ekki lát-
ið á sér kræla á meðan. Maðurinn var
fjarlægður. -ss