Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2002, Síða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002
Tilvera I
MYND SVERRIR HARÐARSON
Noröan sól og sunnan tungl
Lágnætti. Máninn hefur tyllt sér andartak á pýramídann Víkurhyrnu í Héöinsfiröi sem rís úr hvítri lágþoku. Myndin er
tekin af Víkurbyröu í 800 metra hæö, suöuryfir mynni Víkurdals. Sér inn eftir Héöinsfiröi. Þvert fyrir botn dalsins var
farin Botnaleiö - sem lá milli Siglufjaröar og Ólafsfjaröar.
Fjallið mitt - 9. hluti
Odáinsakur og
hugverk skaparans
Bíófréttir
HELGIN ÍS.-IS. AGUST
ALLAR UPPHÆÐIR I ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA.
SÆTI FYRRI VIKA TTTILL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÓLDI BÍÓSALA
O 1 XXX 22.111 83.963 3388
© 2 Signs 19.362 150.513 3344
o _ Blue Crush 14.169 14.169 3002
o 3 Spy Kids 2: 11.520 45.608 3307
o 4 Goldmember 8.729 183.897 3113
o 8 My Big Fat Greek Wedding 5.700 52.777 1060
o 5 Blood Work 4.807 15.310 2525
o 7 Road To Perdition 3.800 90.302 1914
o 6 The Master of Disguise 3.163 30.288 2137
© The Adventures of Pluto Nash 2.182 2.182 2320
© 10 Stuart Little 2 1.946 57.073 1714
© 9 Martin Lawrence Live: Runteldat 1.662 15.981 774
0 _ Possession 1.575 1.575 270
© 11 Men in Biack II 1.003 188.504 1223
© _ The Good Girl 840 1.160 60
0 14 The Bourne Identity 684 115.901 494
0 15 Minority Report 564 129.115 506
0 17 Space Station 552 20.289 61
0 19 Lilo & Stich 502 139.487 619
0 13 The Country Bears 408 15.365 516
Vinsælustu myndirnar í Bandaríkjunum:
í öldugangi
á Hawaii
- rætt við Valgarð Egilsson
„Fjöll hafa eilífan styrk svo að
varla þarf neitt átak þeim til aðstoðar.
I Landnámu er getið um, minnir mig,
niu landnámsmenn sem dóu í fjallið,
kusu það við leiðarlok, svo virtu þeir
fjallið. í Egyptalandi þurftu faraóar að
byggja sér pýramídafjöll til að deyja í.
En í minni æsku liföu menn sig í fjöll-
in. Það var út með Eyjafirði að aust-
an,“ segir Valgarður Egilsson læknir,
rithöfundur og varaforseti Ferðafé-
lags íslands. „Þú baðst mig að segja
frá „fjallinu mínu“. Við sögðum ekki
fjallið mitt, því að enginn átti fjöll.
Það var einungis hægt að verða vitni
að þeirra tilveru. Það var alveg nóg.
Helgidómur fjallanna heima fólst í
svip þeirra, hálfmennskum og þó af
heimi hálftrölla; og gott fyrir ævi smá-
stráks; aldrei mun ég sjá hærri fjöll."
Hiröingjarnir viö úthafiö
„Yfir bæjunum í Höfðahverfi aust-
an Eyjafiarðar var Blámannshattur á
Skessuhrygg, og Hnjúkarnir horfðu
fram yfir þetta hverf, eins og sagt
var,“ heldur Valgarður áfram frásögn
sinni. „En allan sjónhringinn voru
fiallabyggingar og umluktu það inn-
haf sem Eyjafiörður heitir, opið til út-
hafs. Þar í norðvestur var mikilvæg-
asta fiallahöllin Hvanndalabjörgin,
yst sem sást að heiman, vestanverðu
að mynni Eyjafiarðar, utan við Ólafs-
fiörð. Fjallveggur 600 metra úr sjó
með alvöru í svip og dul sögunnar
geymda, traustasti veðurviti okkar. Ef
að setti þoku í björgin, þá vissum við
að hann var kominn á norðaustan úti
á hafinu, og skammt að bíða þess að
áttin næði inn til okkar. Þá þurfti að
hafa gætur á hjörðinni, við vorum
hirðingjar við úthafið, áttum margt
sameiginlegt með hirðingjunum í
Biblíunni. Tókum líka mark á stjörn-
um.“
Valgarður kveðst minnast þess að í
Hnjúkunum yfir Höfðahverfi hafi sést
svipir bændanna sem í nánd bjuggu.
Og aftur öfugt. í klettum Hléskóga-
hnjúksins hafi hann séð svip föður
sins. Lækjarfarvegur framan í Blá-
mannshnjúk hafi myndað bros Sverr-
is á Lómatjöm. Blágrýtisbeltin yfir
Skarði í Dalsmynni hafi tekið form af
ennisrúnum gömlu bændanna, Jóns
ömmubróður síns og Jóhanns langafa
síns Bessasonar. Herðalag bænda hafi
sést í öxlum fialla. „Það tekur blágrýt-
isfólk tíma að samþykkja móbergs-
fiöU,“ segir Valgarður.
Meiri átök í hjörtum manna
í Hvanndalabjargi eru, að sögn Val-
garðs, lögin mörg og geyma jarðfræði
fimmtán miUjón ára. Þá hafi verið
gosvirkni vestan blágrýtisskjaldar
TröUaskagans en færðist fyrir sex tU
sjö miUjón ámm austur í Þingeyjar-
DV-MYND HARI
Læknir, skáld og náttúruskrásetjari
„Mikiö hefur gengiö á i djúpum jarö-
ar þá en mikiu meiri átök þó síöar,
í hjörtum mannanna uppi á yfirboröi
jaröarinnar. Afkoma fólksins var háö
veöri og Hvanndalabjörgin sögöu fyr-
ir um veöur, “ segir Valgaröur.
sýslur. „Mikið hefur gengið á i djúp-
um jarðar þá en miklu meiri átök þó
síöar, i hjörtum mannanna uppi á yf-
irborði jarðarinnar. Afkoma fólksins
var háð veðri og Hvanndalabjörgin
sögðu fyrir um veður."
Upp á Blámannshatt kveðst Val-
garður oft hafa farið sem strákur.
Ýmsar leiðir megi þar velja um,
skemmtUegust sé leiðin upp
Lómatjamarhnjúk. „En ég var orðinn
fuUorðinn maður þegar ég fyrst fór
Hvanndalabjarg. Af bjarginu sér
furðulönd í norðvestur yfir Hvann-
dali, þar er allt bratt. Óskar Finnsson
á Ólafsfirði fylgdi okkur út á bjarg. Úr
Fossdal er allbrött hlíðin upp á
Hvanndalabjarg, þó vel geng. Heldur
þótti manni hátt að horfa af barmi
Skötugjár og beint niður í sjóinn.
Skyldu menn fara gætUega. Uppi yfir
hábrún bjargsins er flái, nefndur Flag-
ið, þaðan skerst Flaggjá sex hundruð
metra beint niður. Þegar komið er á
vesturkant sér yfir Sýrdal, þar er að-
eins ein hamraskor fær niður; fönn
situr þar fram eftir sumri og þarf að
vara sig á henni.Úr Sýrdal er yfir fiaU-
kamb aö fara, þá er komið í Selskál og
áfram niður í hina eiginlegu Hvann-
dali.“
Lifgrös í varpa á Ódáinsakri
Á Hvanndölum var búið tU 1896 .
og var víst afskekktasti mannabústað-
ur við Norður-Atlantshaf," segir Val-
garður. „Þama er dalverpi skorið út
miUi bjarga, vestanmegin dalsins er
fiaUið Hvanndalabyrða, yst við Héð-
insfiörð. Fyrir gafli dalsins er Víkur-
byrða; yfir hana var helst farið tU
annarra mannabyggða, þá i liðlega 800
m hæð, ekki mjög torfær leið að
sumri en snjóflóðahætta er þar á vetr-
um.“
Að sögn Valgarðs er saga Hvann-
dala „... ýmist með undrum eða teikn-
um,“ eins og hann kemst að orði. „Það
uxu lífgrös í varpa þar sem bærinn
stóð, á Ódáinsakri, og náði þar enginn
að deyja. Var þá bærinn fluttur út á
bakkana. Hér bjuggu landkönnuðir,
fóru í leiðangur tU Kolbeinseyjar að
áeggjan Guðbrands Hólabiskups. Héð-
an var Rauðskinna, galdrarit Gott-
skálks grimma biskups; Loftur missti
takið á bókinni fyrir vanstiUingu
sína, Galdra-Loftur kaUaður. Héðins-
fiarðar-Skotta mun einnig eiga ættir
hingað. í Sýrdalsvogum lentu þrjár
skipshafnir upp í bjargið 1783. Og
margir þekkja söguna af húsfreyjunni
í Málmeý sem gekk í Hvanndalabjörg
og var „krossi vígð komin í bland við
tröllin" eins og Jón Helgason kvað í
Áföngum. - Undarleg er saga Guðrún-
ar Þórarinsdóttur, hinnar ungu hús-
freyju. Það varð eldiviðarfátt á
Hvanndölum og drapst eldurinn.
Þetta var að vetrarlagi, bóndinn í há-
karlalegum, Guðrún langt gengin með
þriðja barn þeirra. Guðrún leggur -
eins og hún var á sig komin - inn
Hvanndalaskriður og fiörur. Þetta var
aldrei farið á vetrum - og tók árs-
gamla dóttur sina á herðar sér. Mátti
ekki tæpara standa er hún óð forvað-
ana og lentu þær mæðgur á kaf fyrir
þann dýpsta en þó tókst móðurinni að
stjaka sér úr kafinu í land Héðins-
fiarðarmegin."
Pýramídi og hvít lágþoka
Með bjarma í augum minnist Val-
garður sinnar fyrstu ferðar í Hvann-
dali, sem hann fór fyrir nokkrum
árum snemmsumars í félagsskap
þeirra Sigurðar G. Tómassonar og
Sverris Harðarsonar.
„Við fórum bjargið en til baka upp
úr botni Hvanndala, svokallað Vest-
aravik og komum á egg Víkurbyrðu. í
800 metra hæð klukkan tólf á hjörtu
miðnætti, en andspænis okkur og í
sömu hæð handan Víkurdals stóð
pýramídi, Víkurhyma, upp úr hvítri
lágþoku. Það var norðan sól en sunn-
an tungl og tók máninn sér andartaks
hvíld á toppi pýramídans. Það náðist
mynd af þessu hugverki skaparans.
Það var þetta fiall sem ég varð að
segja ykkur frá. Ég ætla ekki að klífa
þaö, mér nægir að hafa orðið vitni að
tilveru þess,“ segir Valgarður Egils-
son að síðustu.
-sbs
Engin stór kvikmynd var frum-
sýnd um síðustu helgi og átti hasar-
myndin XXX, þar sem Vin Diesel
þykir fara kostum sem íþróttaofur-
menni sem gerist njósnari, hægt um
vik með að halda efsta sætinu. í
öðru sæti er svo hin magnaða Signs,
sem leikstýrt er af M. Night
Shyamalan (The Sixth Sense) en
hún verður frumsýnd hér á landi 30.
ágúst. 1 þriðja sætinu er svo ný
kvikmynd, Blue Crush, sem er img-
lingamynd og fiallar um Anne
Marie, sem býr á Hawaii. Hún er
brimbrettakappi og kemst ekkert
annað að í lífi hennar en sjórinn og
brimbrettið þar til hún kynnist fót-
boltehetjunni Matt Tolland. Er ekki
nóg með að hún fer að skjálfa í
hnjáliðum þegar hún mætir honum,
heldur hefur fer hún að missa ball-
ansinn á brimbrettinu eftir að hún
kynnist honum.
Vinsæiustu myndbömdtn
Blue Crush
Ein fyrir unglingana þar sem brim-
brettaíþróttin kemur mikið viö sögu.
Vert er að benda á myndina í
sjötta sætinu, My Big Fat Greek
Wedding, sem búinn er að vera á
listanum í rúma fióra mánuði og er
enn að hækka sig. Líftími hennar
var ekki mjög langur hér á landi
enda má segja að hún höfði meira
og minna til minnihlutahópa í
Bandaríkjunum. -HK
Stórrán í Vegas
Hin skemmtilega sakamálamynd,
Ocean’s Eleven leysir snilldarverkið
Lord of the Rings af hólmi í fyrsta
sæti myndbandalistans. Ocean’s El-
even er endurgerð kvikmyndar frá
1960 þar sem aðalhlutverkin léku
meðlimir klíku sem gekk undir nafn-
inu „Rat Pack“. Henni var stjórnað af
Frank Sinatra og að sjálfsögðu lék
hann aðalhlutverkið. Nú er það Geor-
ge Clooney sem fer með sama hlut-
verk. Myndin segir frá krimmanum
Danny Ocean sem nýkominn er úr fang-
Ocean's Eleven
George Clooney og Matt Damon í
hlutverkum sínum.
elsi. Hann er þó ekkert
að hugsa um að snúa
blaðinu við heldur setur
stefnuna á stórrán í Las
Vegas. Hann fær til liðs
við sig tíu menn sem
starfa á sömu línu og
stefnan er tekin á pen-
ingahirslu þar sem
stærstu spilavítin í Las
Vegas geyma arð sinn.
Þetta ætlar hann að
gera nóttina sem hnefa-
leikakeppni fer fram í
bænum. Þar keppa eng-
ir aðrir en Lennox Lew-
is og einhver sem heitir
Klitschko. Suma félaga
Dannys fer þó að gruna
að eitthvað persónulegt
sé í sambandi við ránið
þegar þeir komast að
því að eigandi eins
spilavítisins er i tygjum
við fyrrum eiginkonu
Dannys. -HK
VIKAN 12.-1S. ÁGUST
FYHRI VIKUR
SÆTl VIKA TITILL (DREIFINGARAÐIU) ÁUSTA
© 2 Ocean’s Eleven isam myndböndi 3
© 1 The Lord of the Rings (myndform) 2
© 3 Not Another Teen Movie (skífan) 4
o 7 13 Ghosts (SKÍFAN) 2
© 4 The Count of Monte Cristo (myndformi 6
© 6 Domestic Disburbance (háskólabíó) 9
© _ Crossroads (Sam myndbönd) 1
Ö _ Monsters, Inc. <sam myndbönd) 1
© 5 Joy Rlde (skífan) 5
0 20 Eliing (SAM MYNDBÖND) 2
© 13 1 Am Sam (myndform) 9
í 0 11 The Princess Diaries isam myndbönd) 8
.0 8 Spy Game (sam myndbönd) 10
I 0 _ Donnie Darko (góðar stundir) 1
0 14 Gosford Park (myndfporm) 3
0 _ Mean Machine isam myndbönd) 1
! 0 10 Amélie isam myndbönd) 4
! © 12 Black Hawk Down (myndform) 8
; © 19 Bubble Boy <sam myndbönd) 3
i 0 _ Repll-Kate (sam myndbönd) 7