Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2002, Qupperneq 21
21
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002
DV Tilvera
Plant 54 ára
Rokkhetjur eldast
eins og annað fólk. í
dag á einn þekktasti
rokksöngvari sög-
unnar, Robert Plant,
afmæli. Plant var
framherji frægustu
þungarokksveitar
ailra tíma, Led Zepp-
elin. Plant var funmtán ára gamall
þegar hannn hóf feril sinn í klúbbum
víðs vegar um Bretland. Þá var hann
fyrst og fremst að syngja blús. 1968
bauð Jimmi Page honum að gerast
meðlimur í Led Zeppelin og rokkið
eignaðist fljótlega eftir það ný goð.
Tvíburarnír (2.
-v :
Gildir fyrir miðvikudaginn 21. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-l8. febr.i:
. Þú færð einkennilegar
* fréttir af fjarlægum
vini þínum og þær
gætu valdið þér
áhyggjum sem reynast þó
alveg ástæðulausar.
Fiskarnir (19. febr,-20. marsl:
Þú kemst að því hve
Imikilvægt það er að
halda góðu sambandi
við þína nánustu.
Félagslífið er með liflegra móti.
Happatölur þínar eru 7, 25 og 37.
Hrúturinn (21. mars-19. anrib:
. Greiðvikni er einn af
'eiginleikum þínum.
Gættu þess að vera
_ ekki misnotaður. Það
er alltaf til nóg af fólki sem vill
notfæra sér aðra.
Nautið (20. april-20, mail:
Gamall draumur þinn
, virðist um það bil að
rætast. Þetta verður
á margvíslegan hátt
sérstakur gleðidagur hjá þér.
Happatölur þínar eru 7,11 og 34.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníl:
Fjölskyldumeðlimur
’’angrar þig eitthvað
í dag og þú ættir að
reyna að leiða hann
hjá þér. Forðastu allar deilur.
Happatölur þínar eru 13, 33 og 38.
Krabblnn (22. iúní-22. iúií):
Þú færð fréttir sem
| gera að verkum að
' þú verður að breyta
áætlunum þínum
lítillega. Það er þó ekkert sem
kemur að sök.
Uónlð (23. iúlí- 22. áaúsú:
, Velgengni þinni virð-
' ast engin takmörk
sett. Allt sem þú
tekur þér fyrir
hendur heppnast. Það er ekki
laust við að ýmsum þyki nóg um.
Mevian (23. áeúst-22. sept.i:
i\» Þér finnst þú mæta
miklu mótlæti þessa
^^VjLdagana en það gæti
' r einungis stafað af því
að þú ert svartsýnn.
Happatölur þínar eru 2, 3 og 30.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
J Vertu bjartsýnn því
nú fer að rofa til í
\f fjármálunum. Þú
r f upplifir eitthvað
óvenjulegt í kvöld og ýmislegt
kemur þér á óvart.
Sporðdreklnn (24. okt.-2i. nóv.l:
. Það er ekki auðvelt að
V gera þér til hæfls i
kjjdag því að þú býst við
of miklu. Fólk finnur
til vanmáttar gagnvart þér og
forðast þig.
Bogmaðurinn (22. nðv.-2l. des.l:
|Rómantíkin kemur við
'sögu í dag og þú átt
mjög ánægjulegan
dag með ástvini.
Vinir þinir eru þér ofarlega
í huga í kvöld.
Steingeltln (22. des.-19. ian.l:
Hvort sem sem þú
hyggvu' á ferðalag eða
einhvers konar mann-
fagnað skaltu ekki
búást við of miklu. Þá er hætt við
að þú verðir fyrir vonbrigðiun.
Aðalatriðið að læra
merkjamál hundsins
- segja hundaþjálfararnir Inga, Ali, Dolores og Sheila
Maður lifandi
1W.1 1 r*"| f* * Kolbrún
Fræknar ilugrreyjur
Þær Inga Þórlaug Robertsdóttir
og bresku konurnar Ali Rowbot-
ham, Dolores Palmer og Sheila
Harper eiga sameiginlegt áhugamál.
Það er að efla skilning mUli tegund-
anna hunds og manns og bæta sam-
skiptin þeirra í milli. Koma upp
góðum venjum og í veg fyrir slæm-
ar. „Við leggjum áherslu á að kenna
fólki að umgangast hundana sína
þannig að öllum sé til ánægju," seg-
ir Inga Þórlaug hundaþjálfari. Hún
segir aðferðina ekki felast í að temja
hundinn þannig að hann hlýði öll-
um skipunum heldur að skilja lik-
amstjáningu hans og læra af henni.
„Við þurfum ekki alltaf að vera með
100% stjórn á hundinum," segir
hún.
Að skilja merkjamálið
Áli, Dolores og Sheila hafa unnið
saman við hundaþjálfun á Englandi
í 15 ár og telja sig hafa náð 99.9% ár-
angri. Þau hafa tekið á sjöunda
hundrað flækingshunda í fóstur,
endurhæft þá og komið þeim fyrir á
nýjum heimilum. Dolores hjálpar
fötluðu fólki til að þjálfa eigin
hunda, ná i blaðið, taka úr þvotta-
vélinni, hjálpa því að klæða sig, ná
í símann, búa um rúmin og fara
með því í bæinn. Þær segjast alltaf
hafa verið á „mjúku línunni" en
styrkst í henni til muna þegar þær
kynntust hinni norsku Turid Ruga-
as. Hún hefur þróað sérstaka þjálf-
unaraðferð sem hún kynnir nú úti
um allan heim og vinnur sífellt
fleiri á sitt band. „Turid komst að
því að hundar nota merkjamál sín á
milli. Á því máli segir hann til
dæmis: „Nú líður mér illa, ég er
stressaður, þú ert að ganga of langt,
ég er hræddur." Til að byggja upp
sina framtíð með hundinum þarf
maðurinn að skifja þetta merkja-
mál,“ segir Sheila.
Kenna með umbun
Öll vinna þeirra stallsystra hefur
breyst mikið eftir að þær áttuðu sig
á hvaða áhrif stress getur haft á
hunda. Hvemig hægt er að róa þá
og sjá til þess að þeim líði vel. „Við
verðum að forðast aðstæöur sem
stressa hundana okkar,“ segja þær
og taka sem dæmi að ef hundurinn
DV-MYNÐ HARl
Hundaþjálfarar
„ Við leggium áherslu á aö kenna fólki aö umgangast hundana sína þannig aö öllum sé til ánægju,“ segja þærAli,
Dolores, Sheila og Inga Þórlaug.
sé hræddur við bíla þá beri að forö-
ast að fara með hann þangað sem
bílaumferðin er mest. „Það eru
ótrúlega mörg hegðunarvandamál
sem sléttast út þegar þessi lykill er
fundinn," segja þær. En hvemig eig-
um við að fá hundinn til að skilja
okkur? „Við kennum honum með
því að verðlauna hann fyrir allt sem
hann gerir vel og byggjum þannig
upp jákvæða reynslu. í stað þess að
skamma hann fyrir að gelta á aðra
hunda tökum við hann út úr að-
stæðunum sem stressa hann og
breytum hegðun hans með því að
umbuna honum fyrir að vera róleg-
ur og horfa á aðra hunda. Allt end-
ar þetta á því að hundarnir geta
gengiö lausir saman,“ segir Ali af
sannfæringarkrafti.
Ekki aö búa til hund
Inga Þórlaug tekur líka fram að
hundategundir séu margar og ólík-
ar. „íslenski fjárhundurinn er gerð-
ur til að reka kindur og fylgja hesta-
mönnum og svo em aðrar tegundir
sem henta ekkert fyrir það. Þetta
verður fólk að kynna sér áður en
það fær sér seppa. Við megum ekki
reyna að búa eitthvað til úr hundin-
um sem hann er ekki,“ segir hún.
Alla hunda segir hún þó eiga það
sameiginlegt að þurfa aöstoð til að
læra að lifa í okkar heimi en ekki
eingöngu á okkar forsendum heldur
líka þeirra. „Ef valdabarátta er í
gangi gerist oft eitthvað slærnt,"
segir hún.
„Ég er vanur að ferðast
fullur," sagði maðurinn sem
réðst á flugfreyju í Flug-
leiðavél og þóttist þarmeð
vera búinn að skýra málið.
Sumir hafa svo einfalda
heimsmynd.
Of oft er litið á starf flug-
freyja sem puntudúkku-
starf. Þær hafl ekkert annað
að gera í vinnutímanum en
að tipla um flugvélina og
bera bakka og þurfl hvorki
að búa yfir viti né snarræði.
Þetta er mikill viðsnúning-
ur á staðreyndum. Flug-
freyjur era ein hæfileikarík-
asta stétt landsins, virðast
þola allt og geta leyst öll
vandamál.
Fjórum sinnum á þessu
ári hef ég stigið úpp í flug-
vél. Engin fýllibytta meðal
farþega en samt reyndi á flug-
freyjru-nar. Grátandi ungbam fór
ósegjanlega í taugarnar á flnni
konu sem sat nærri. Hún kallaði
á flugreyju og krafðist þess að
vera færð úr sæti sinu. Ég tók
hennar sæti. Grátur imgbarna er
ekki eitt af þvi sem kemur mér úr
jafnvægi. Það tók hins vegar á að
hlusta á nöldur konimnar sem
hamdi ekki hneykslun sína og
horfði ásökunaraugum á flug-
freyjur, rétt eins og þær bæru
ábyrgð á gráti bamsins. Þeim
tókst að starfa eftir þeirri reglu að
viðskiptavinurinn hefði ætíð á
réttu að standa og róleg fram-
koma þeirra yfirvann loks reiði
konunnar.
Enn var grátandi barn í næstu
vél sem ég steig upp í. Nokkrir
farþegar horfðu önugir á móður-
ina sem glataði ró sinni og fór að
hasta á barnið. Þar gerði hún
slæm mistök. Fátt gerir
börn óöruggari en að sjá for-
eldra sina missa tök á að-
stæðum. Barnið herti ópin.
Augnaráð farþega urðu
grimmari. Örvænting greip
móðurina. Hún tók um axlir
barnsins og sagði verstu
setningu sem hún hefði get-
að sagt: „Sjáðu, það eru allir
að horfa á þig.“ Skerandi óp
barst frá barninu. Það var
ekki fyrr en flugfreyja kom
með dót til barnsins að nota-
leg þögn komst á. Flugfreyj-
ur era sennilega uppeldis-
fræðingar í eðli sínu.
Seinkun varð á flugi
næstu vélar. Óánægjumuld-
ur barst úr hverju horni.
Allir vildu fá skýringar hjá
flugfreyjum og engu var lík-
ara en þær væra taldar bera
ábyrgðina. Sem þær gerðu alls
ekki. Allan tímann héldu þær
brosinu og glötuðu ekki yfirveg-
un. Ég hugsaði með mér hversu
gott það væri að geta hagað sér
eins og flugfreyja alla daga ársins.
Þá hefði maður loks öðlast full-
komnun.