Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2002, Qupperneq 26
26
ÞRJBÐUIMínSCaffiRÆGMSífi 2002
Rafpóstur: dvsport@dv.is
- keppni í hverju orði
Guðjón vill bætur
Guðjón Þórðarson ætlar að fara í mál
við Stoke vegna vangoldinna bónus-
greiðslna sem hann telur sig eiga rétt á í
kjölfar þess að Stoke tókst að komast upp
í 1. deild í vor áður en Guðjón var rekinn
frá félaginu.
Lögfræðingur Guðjóns sendi í gær út yf-
irlýsingu þar sem fram kom að Guðjón
hefði ekki komist að samkomulagi við for-
ráðamenn Stoke um greiðslu og því væri
honum nauðugur einn sá kostur að sækja
rétt sinn fyrir dómstólum eftir að honum
var sagt upp án þess að nokkur ástæða
væri gefin fyrir uppsögninni. -ósk
SÍMA
DEILÐIN
Staðan:
Fylkir 14 9 3 2 27-16 30
KR 14 8 4 2 21-14 28
Grindavík 14 6 4 4 23-20 22
KA 14 5 5 4 14-13 20
FH 14 4 5 5 22-23 17
ÍA 14 4 4 6 23-21 16
Keflavík 14 3 7 4 19-24 16
ÍBV 14 3 4 7 14-17 13
Fram 14 3 4 7 18-24 13
Þór, Ak. 14 3 4 7 20-29 13
Markahæstir:
Sævar Þór Gíslason, Fylki.......12
Jóhann Þórhallsson, Þór, Ak......9
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR . . 9
Grétar Hjartarson, Grindavik .... 8
Bjarki Gunnlaugsson, ÍA..........7
Gunnar H. Þorvaldsson, ÍBV.......6
Adolf Sveinsson, Keflavík........5
Hjörtur Hjartarson, lA ..........5
Jónas G. Garðarsson, FH ..........5
Óli S. Flóventsson, Grindavík .... 5
Sigurvin Ólafsson, KR............5
Steingrímur Jóhannesson, Fylki . . 5
Orri Freyr Óskarsson, Þór, Ak. ... 4
Þorbjöm Atli Sveinsson, Fram ... 4
Næstu leikir:
15. umferð
ÍBV-Þór......lau. 24. ág. kl. 14.00
Grindavík-Fylkir sun. 25. ág. kl. 18.00
KA-FH........sun. 25. ág. kl. 18.00
Keflavik-ÍA . . . sun. 25. ág. kl. 18.00
Fram-KR......mán. 26. ág. kl. 19.15
16. umferð
ÍA-Fram.......lau. 31. ág. kl. 14.00
FH-Keflavík .. sun. 1. sept. ki. 18.00
Grindavík-KA . sun. 1. sept. kl. 18.00
Þór, Ak.-Fylkir mán. 2. sept. ki. 18.00
KR-ÍBV .....mán. 2. sept. kl. 18.00
[Xf l. DEHD KVINNA
Úrslitakeppnin:
Fvrri lelkur undanúrslita
Haukar-Fjarðabyggð.........2-0
1- 0 Anna Margrét Gunnarsdóttir . 6.
2- 0 Pála Marie Einarsdóttir .... 14.
Gul-Rautt spjald: Aðalheiður
Sigfúsdóttir, Haukum, á 56. minútu.
Liðin sömdu um að báðir leikirnir
færu fram á Eskifirði í gær og í dag.
Leikurinn í gær telst vera
heimaleikur Hauka en heimaleikur
Fjarðabyggðar fer fram í kvöld
klukkan 17.
Þjálfaraskipti hjá ÍR:
Guðmundur er
hættur - Ólafur
tekur við
Guðmundur Torfason hefur
látið af störfum sem þjálfari 1.
deildarliðs ÍR í knattspymu sem
situr á botni 1. deildarinnar og
hefur tapað þremur leikjum í
röð og aðeins skorað eitt mark í
síðustu fimm leikjum.
Við starfi Guðmundar tekur
Ólafur Jóhannesson sem áður
hefur þjálfað Skailagrím og FH í
efstu deild. Fyrsti leikur hans
með ÍR er gegn Stjörnunni á úti-
velli á fóstudagskvöld.
Brotthvarf Guðmundar er
samkomulag hans og stjórnar-
innar hjá ÍR en Guðmundur tók
við ÍR-liðinu haustið 2000. Sum-
arið 2001 endaði liðið í 8. sæti og
undir hans stjóm vann ÍR aðeins
sjö af 32 leikjum. -ÓÓJ
Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV, eftir tapið gegn Fylki i gær:
Erum í skítamálum
„Það er áframhaldandi barátta
fram undan, við vorum í sömu stöðu
í fyrra en við tekur nýr leikur á
laugardaginn. Það er ekkert laun-
ungarmál að við erum í skítamálum
i deildinni og það er náttúrlega Ijóst
að við erum ákaflega daufir fram á
við þegar Tómas Ingi er ekki með og
við fengum engin almennileg færi i
kvöld. Fótboltalega séð var þetta
slakur leikur af hálfu beggja liða.
Við vorum þungir eftir Evrópuleik-
inn þar sem við spiluðum mun bet-
ur og ég er ekki ánægður með mína
Sævar Þór Gíslason, Fylki, og Hlynur
Stefánsson, ÍBV, í einni af mörgum
tæklingum í gærkvöld. DV-mynd E.ÓI.
menn í kvöld,“ sagði Njáll Eiðsson,
þjálfari ÍBV, í leikslok.
Taugatitringur í mönnum
„Það má segja að við höfum aldrei
komist almennilega í gang, þökk sé
Eyjamönnum sem gáfust aldrei upp.
Það tekur náttúrlega einhvem tima
fyrir nýja menn að slipa sig inn en
maður kemur í manns stað og Jón
B. og Hreiðar stóðu sig vel,“ sagði
Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari
Fylkis. „Það er vissulega taugatitr-
ingur í mönnum, það er mikið um-
tal og læti í kringum lokabaráttuna
sem gekk ekki vel í fyrra en við náð-
um að sigra og það er það sem skipt-
ir máli.“ -vig
Fylkir-ÍBV 1-0 (0-0)
1-0 Sævar Þór Glslason (64., skot úr markteig eftir fyrirgjöf frá Bimi Viðari).
Fylkir (4-3-3)
Kjartan Sturluson .......3
Hreiðar Bjarnason........3
Valur Fannar Gíslason ... 3
Þórhallur Dan Jóhannesson 4
Gunnar Þór Pétursson .... 3
Sverrir Sverrisson.......2
Finnur Kolbeinsson.......2
Jón B. Hermannsson.......2
Sævar Þór Gíslason ......2
Steingrímur Jóhannesson . -
(12. Bjöm V. Ásbjörnsson . 4)
Theódór Óskarsson .......2
(77. Kristinn Tómasson ... -)
Gul spiöld:
Hlynur (36.),
Bjamólfur (37.),
Unnar (63.),
7), ÍBV
Páll (67.),
IBV (4-3-3)
Birkir Kristinsson ....
Unnar Hólm Ólafsson .
(87. Olgeir Sigurðsson .
Hlynur Stefánsson
Páll Hjarðar ,
Hjalti Jóhannesson ......2
(70. Kjartan Antonsson ... 2)
Bjamólfur Lárusson ......2
Atli Jóhannsson..........2
Andri Ólafsson ..........2
Ingi Sigurðsson..........4
Gunnar H. Þorvaldsson ... 3
Bjamir Geir Viðarsson ... 1
(60. Kevin Barr .........2)
Finnur Kolbeinsson:
Meistaraheppni?
„Ég er sáttur við úrslitin en
ekki leikinn. Þetta var stremb-
inn leikur, leikmenn ÍBV vörð-
ust vel og gáfu fá færi á sér. Við
vorum lengi í gang og spiluðum
ekkert sérstaklega og það er
klárt að við þurfum að rífa okk-
ur upp fyrir næsta leik,“ sagði
Finnur Kolbeinsson, fyrirliði
Fylkismanna, í samtali við DV-
Sport í leikslok.
Á sama tíma í fyrra var lið
Fylkis í svipaðri stöðu og í ár en
gáfu eftir á lokasprettinum og
misstu af meistaratitlinum.
Finnur segir að þaö muni ekki
koma fyrir aftur. „Það var eitt-
hvað með okkur i kvöld en hvort
það var meistaraheppni eða eitt-
hvað annað; það get ég ekkert
sagt til um.“ -vig
Rauð spiöld
Enginn
Skot (a mark):
15 (2)-5 (2)
Horn:
9-2
Aukaspyrnur:
28-16
Rangstöður:
3-3
Varin skot:
Kjartan 1
- Birkir 1
Gæði leiks:
Dómari: Eyjólfur Ólafsson
(4).
Ahorfendur: 1432.
Maður leiksins hja DV-Sporti:
Þórhallur Dan Jóhannsson, Fylki
'
*r
eftir 1-0 signr á Eyjamönnum í hreint arfaslökum leik í gærkvöld
Hún var ekki rismikil knatt-
spyrnan sem var boðið upp á í Ár-
bænum í gærkvöld þegar lið ÍBV
sótti Fylkismenn heim. Fyrri hálf-
leikur einkenndist af óheyrilega lé-
legum samleik milli leikmanna
beggja liða, feilsendingar voru í fyr-
irrúmi og sofandaháttur allsráð-
andi.
Fylkismenn urðu fyrir áfálli strax
á 11. mínútu leiksins þegar Stein-
grímur Jóhannesson varð fyrir
meiðslum og var borinn af leikvell-
inum og er talið aö Steingrímur sé
jafnvel ökklabrotinn.
Lítil sem engin færi litu dagsins
ljós í fyrri hálfleik og það var ekki
fyrr en á 30. mínútu sem að veruleg
hætta skapaðist. Þá var það Ingi
Sigurðsson sem átti góða rispu upp
hægri kantinn og gaf fyrir mark
Fylkis. Þar var mættur Finnur Kol-
beinsson sem átti glæsilegan skalla
i þverslá eigin marks.
Eyjólfur skástur
„Það er engu líkara en Eyjamenn
vilji falla og Fylkismenn vilji ekki
titilinn," heyrðist sagt í hálfleik á
leiknum í gær og eftir að Eyjólfur
Ólafsson, dómari og besti maður
vallarins enn sem komið var, flaut-
aði til leiks í seinni hálfleik virtist
allt benda til áframhaldandi leið-
inda. Fylkismenn náðu þó fljótlega
undirtökunum og náðu samt sem
áður aðeins að skapa sér léleg hálf-
færi.
Sigurmark Sævars Þórs
Þaö var síðan á 64. mínútu sem
markamaskínan Sævar Þór Gísla-
son, sem hafði ekki sést i leiknum,
skoraði eina mark leiksins. Birkir
Kristinsson misreiknaði þá send-
ingu Bjöms Viðars Ásbjömssonar
og Sævar kom boltanum í netið með
miklu harðfylgi. Pressa ÍBV í blá-
lokin bar ekki árangur og ljóst var
að Fylkismenn vora komnir á topp-
inn.
Það er ljóst að bæði lið spiluðu
langt undir getu í gærkvöld. Liðs-
menn ÍBV vora grófir og virtust á
köflum hugsa meira um manninn
en boltann. Ingi Sigurðsson var sá
eini sem sýndi sitt rétta andlit en
aðrir vora slakir. Fylkismenn áttu
þama sennilega sinn lélegasta leik á
tímabilinu og Hrafnkels Helgasonar
og Ómars Valdimarssonar var
greinilega sárt saknað. Þórhallur
Dan var traustur í vöminni og
Bjöm Viðar var frískur eftir að hafa
komið inn á fyrir Steingrím.
Athygli vakti lélegur leikur Sæv-
ars þórs en hann sannaöi mikilvægi
sitt fyrir liðið með því að skora sig-
urmarkið sem var hans tólfta á
tímabilinu. Sævar Þór hefur nú
þriggja marka forystu í baráttunni
um gidlskóinn. -vig