Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2002, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002
27
DV
Sport
Bobby Robson, knattspyrnustjóri Newcastle, gat veriö sáttur viö sína menn í gærkvöld en þeir hófu tímabiliö meö
stórigri á West Ham. Reuters
Þokkaleg
útkoma
- segir Geir Þorsteinsson um netsöluna
„Ég get ekki sagt að ég sé beint
ánægður með viðtökumar en þetta
er nýjung, þetta er í fyrsta skipti
sem við reynum þetta og kannski
ekki við öðru að búast,“ sagði Geir
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
KSÍ, spurður um hvemig netsalan
sem boðið var upp á dagana 10. til
17. ágúst hafl gengið. Hátt í 500
manns keyptu sér miða á leikina en
um er að ræða eins konar áskrift að
landsleikjum íslands í haust, sá
fyrsti er nú á morgun gegn Andorra
á LaugardalsveUinum, síðan er ann-
ar vináttuleikur gegn Ungverjum og
loks em tveir síðustu leikimir í til-
boðinu í undankeppni Evrópumóts
landsliða, gegn Skotum og Litháum,
sem fram fara um miðjan október.
Geir var eins og áður sagði ekk-
ert sérlega ánægður með viðtökurn-
ar. „Mínar vonir og vænting£ir voru
að selja um 10% miða í þessari net-
sölu sem hefðu þá verið um 700 mið-
ar. En um 500 tilboð vora seld sem
þýðir 2000 miðar. Þetta er töluvert
minna en það en ég er samt sem
áður alveg þokkalega sáttur við út-
komuna," sagði Geir.
Komiö til að vera
Geir ítrekaði að tUgangurinn með
þessu uppátæki hafi verið að prófa
nýja tækni sem komi tU með að
verða notuð i auknum mæli á kom-
andi árum. „Það er ekkert launung-
armál að í framtíðinni er Ijóst að
sala á einstaka leiki fari inn á far-
veg ekki ósvipuðum þessum,“ sagði
Geir.
Eins og áður sagði er netsölunni
lokið en í gær hófst hefðbundin for-
sala á leikinn gegn Andorra á morg-
un. Hægt er að nálgast miða í nest-
isstöðvum Esso á höfuðborgarsvæð-
inu og rétt er að taka fram að mið-
ar í forsölu eru 500 krónum ódýrari
en við vöUinn. -vig
Enska úrvalsdeildin í gærkvöld:
Stórsigur Newcastle
- tóku West Ham í bakaríið, 4-0, á heimavelli sínum, St. James Park
Bland í noka
Ashley Cole, leikmaður Arsenal og
enska landsliðsins, hefur brugðist
harkalega við ásökunum um að hafa
verið með leikaraskap þegar hann
lenti i samstuði við Aliou Cisse,
leikmann Birmingham, í leik liö-
anna á sunnudaginn. Cisse var rek-
inn af leikveUi fyrir brotið.
„Ég lék hvorki eitt né neitt. Ég er
enginn svindlari og hef aldrei reynt
að ná öðrum leikmanni útaf með
leikaraskap. Aldrei nokkum tím-
ann,“ sagði Cole. Sjónvarpsupptök-
ur frá leiknum bentu tU þess að lítil
sem engin snerting hafi orðið.
Ævisaga Roy Keane ætlar heldur
betur að draga dilk á eftir sér. Nú
síðast er það goðsögnin Kenny Dal-
glish sem fær að kenna á þvi i bók-
inni. Keane segir að hann hafi
hreinlega „klikkast" eftir að Keane
ákvað að sniðganga lið Blackbum,
þar sem Dalglish var þá fram-
kvæmdastjóri, og ganga frekar tU
liðs við Manchester United sem
hann hafði stutt frá bamæsku.
„Enginn kemur svona fram viö
mig. Þú er bölvaður hálfviti og viö
munum fara i mál við þig og taka af
þér hvem einasta eyri sem þú átt.
Enginn abbast upp á Kenny Dalgl-
ish án þess aö fá að kenna á því,“ er
meðal þess sem Dalglish á að hafa
sagt við Keane samkvæmt þvi sem
fram kemur í bókinni. Ljóst þykir
að þetta mál eigi eftir aö draga dilk
á eftir sér eins og margt annað í
bókinni.
Gamla kempan George Best hefur
verið lagður á ný inn á sjúkrahús í
London aðeins þremur vikum eftir
að hafa gegnið undir lifrarígræðslu.
Sýking gerði vart við sig í lifrinni og
er Best á góðum batavegi og ætti að
ná sér fullkomlega.
Sagan endalausa um Damien
Duff, írska landsliðsmanninn hjá
Blacbum, virðist vera að taka enda
eftir að Duff sagði sjálfur að hann
ætli sér að skrifa undir nýjan samn-
ing hjá félaginu á allra næstu dög-
um. Liverpool hafði augastað á
vængmanninum og hafði m.a. boðið
15 miUjónir punda i hann fyrr í
sumar.
„Ég er mjög ánœgður hjá Black-
bum og tel mig hafa þroskast mikið
á þessum tima sem ég hef átt hjá lið-
inu,“ sagði Duff sem átti frábæran
leik fyrir Biackbum í leik gegn
Sunderland um helgina og var hann
valinn maður leiksins í flestum
bresku fjölmiðlanna.
Senol Gunes, þjálfari tyrkneska
landsliösins í knattspymu, hefur
sagt Hakan Sukur, fýrirliða lands-
liðsins, að finna sér félag þar sem
hann eigi fast sæti i byrjunarliðinu,
eUegar missi hann sæti sitt í lands-
liðinu. Sukur, sem stóð sig skelfi-
lega í heimsmeistarakeppninni, er
nú hjá Parma og kemst ekki 1 liðið.
-vig
Newcastle hóf tímabilið af mikl-
um krafti í gærkvöld þegar liðið tók
á móti West Ham í síðasta leik 1.
umferðar ensku úrvalsdeildarinnar.
Newcastle réð ferðinni allan leik-
inn og má segja að þetta hafi verið
leikur kattarins að músinni þótt
það hafi tekiö Newcastle 61 minútu
að brjóta vöm gestanna á bak aftur.
Þá skoraði Lumano Lua Lua með
skoti af stuttu færi eftir að
Jermaine Jenas hafði skallað auka-
spymu Nolberto Solano fyrir fætur
hans. Leikmenn Newcastle gerðu
síðan endanlega út um leikinn með
tveimur mörkum á þremur mínút-
um. Fyrst skoraði Lua Lua aftur, að
þessu sinni með skalla, eftir fyrir-
gjöf frá Solano á 76. mínútu og á 78.
mínútu jók Alan Shearer muninn í
3-0 eftir failegan samleik hjá Lua
Lua og Solano. Solano skoraði síðan
fjórða markið á 86. mínútu eftir fal-
legan samleik við Alan Shearer.
Glæsileg byrjun hjá Newcastle
sem er til alls líklegt í ensku úrvals-
deildinni í vetur. Leikmenn West
Ham hefðu viljað byrja betur. Þeir
eiga enn við það vandamál að stríða
að þeir geta nákvæmlega ekki neitt
á útivöllum og þeir gerðu lítið í gær
til að kollvarpa þeirri kenningu.
Bobby Robson, knattspymustjóri
Newcastle, var mjög ánægður eftir
leikinn og hrósaöi sínum mönnum í
hástert.
„Við áttum erfitt með að opna
vöm þeirra í fyrri hálfleik en það
skal segjast mínum mönnum til
hróss að þeir gáfust ekki upp. I
seinni hálfleik brastu aUar flóðgátt-
ir og þá komu mörkin. Við spUuð-
um frábæran sóknarbolta í seinni
hálfleik en það kemur mér ekki á
óvart. Við erum með mjög góða leik-
menn sem mynda sterka hefld og ég
tel að við eigum eftir að vera sterk-
ari eftir því sem líða tekur á tíma-
bUið,“ sagði Bobby Robson, knatt-
spymustjóri Newcastle. -ósk
Hewitt með
mikla yfirburði
Nýr heimslisti í tennis karla
ver gefinn út í gær. Nær engar
breytingar eru á meðal 10 efstu
manná en samkvæmt listanum
hefúr Ástralinn Lleyton Hewitt
mikla yfirburði í íþróttinni í dag
og er hreinlega búinn að stinga
aðra keppinauta af. Staða tíu
efstu manna lítur annars svona
út, staða í síðustu vUtu í sviga:
1. (1) Lleyton Hewitt (Ástrl.) . 5,2 stig
2. (2) Marat Safin (Rússland) 3,1 stig
3. (3) Tomy Haas (Þýs.) .... 3,0 stig
4. (4) Y. Kafelnikov (Rúss.) . . 2,5 stig
5. (5) Tim Henman (Bretl.) 2,45 stig
6. (6) Andre Agassi (Bandar.) 2,4 stig
7. (7) Juan Ferrero (Spánn) . 2,3 stig
8. (8) Albert Costa (Spánn) . . 2,2 stig
9. (10) Carlos Moya (Spánn) . 2,1 stig
10. (11) Seb. Grosjean (Frakk.) 2,0 stig
-vig
Thomas Christiansen fer mikinn hjá Bochum:
Bláa undrið
- hefur skorað fimm mörk í fyrstu tveimur leikjunum
Thomas Christiansen hefur
tímabilið frábærlega hjá Bochum.
byrjað
Framherjinn Thomas Christi-
ansen hefur heldur betur slegið í
gegn í byrjun leiktíðar i þýsku
knattspymunni. Christiansen,
sem er samheiji Þórðar Guðjóns-
sonar hjá Bochum, hefur skorað
fimm mörk í fyrstu tveimur leikj-
um liðsins og á stærstan þátt í
því að Bochum trónir á toppi
deUdarinnar nú um stundir.
Christiansen, sem er 28 ára
gamaU, er fæddur og uppalinn i
Danmörku en hann á danskan
fóður og spænska móður. Hann
var aðeins 18 ára gamaU þegar
hinn frægi Johan Cruyff, sem þá
var þjálfari Barcelona, kom auga
á hann og fékk hann tU liðs við fé-
lagið. Þar lék hann við góðan
orðstír með B-liði félagsins og
náði meðal annars að komast í U-
21 árs landslið Spánverja þar sem
hann spUaði 16 landsleiki eftir að
hann fékk spænskan ríkisborg-
ararétt.
Hápunkturinn á dvöl hans á
Spáni var hins vegar þegar hann
var valinn í spænska A-landslið-
ið. Hann hefur leikið tvo lands-
leiki fyrir Spán og skorað eitt
mark, gegn Litháen 2. júní 1993.
Hann náði hins vegar ekki að
komast i aðaUið Barcelona og var
lánaður tU Sporting Gijon, Real
Osasuna og Racing Santander aUt
þar tU hann var seldur tU Real
Oviedo árið 1995. Hann lék með
Oviedo tvær leiktíöir, fór þaðan
tU VUlarreal og árið 2000 var
hann seldur tU gríska liðsins
Panionios. Gríska liðið átti í fjár-
hagsvandræðum og þurfti að losa
sig við leikmenn og varð úr að
Christiansen hélt heim tU Dan-
merkur þar sem hann lék fjóra
leiki með Herfölge áður en hann
var seldur tU Bochum sem var þá
í þýsku 2. deUdinni. Hann spUaði
tólf leiki með Bochum tímabUið
2000-2001 og skoraði eitt mark en
það var í fyrra sem hann náði sér
í fyrsta sinn almennUega á strik.
Þá skoraði hann 17 mörk í 30
leikjum og var í lykiUUutverki
þegar Bochum tryggði sér sæti í
þýsku 1. deUdinni á ný.
Það er hins vegar á þessu
keppnistímabUi sem Christiansen
hefur skotist upp á stjörnuhimin-
inn fyrir alvöru og fengið viður-
nefnið „Bláa undrið". Framganga
hans með Bochum hefur verið
með ólíkindum og þessi fimm
mörk sem hann hefur skorað hafa
verið hvert öðru faUegra. Varnar-
menn andstæðinganna eiga ekk-
ert svar við Christiansen sem
sjálfur þakkar þó samherjum sín-
um mörkin fimm.
„Liðið spUar svo mikinn sókn-
arbolta að það er auðvelt að vera
framherji og skora mörk,“ sagði
Thomas Christiansen.
Frank Neururer, þjálfari Boch-
um, hrósar Christiansen í há-
stert.
„Hann er leikinn með knött-
inn, hefur frábæran vinstri fót og
mikinn leikskUning. Hann hefur
ekki átt í vandræðum með að
venjast hraðanum í 1. deUdinni,"
sagði Frank Neururer við þýska
knattspyrnutímaritið Kicker í
síðustu viku. -ósk