Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 Fréttir Skoðanakönnun DV um samband forsetans og Dorrit Moussaieff: Tæp 70% telja tímabært að Ólafur kvænist Dorrit Þriggja ára svigrúm Forsetinn greindi frá sambandi sínu og Dorritar í september 1999 og baö þá þjóð sína um „tilfinningalegt svigrúm" eins og hann komst aö oröi. Tæplega 7 af hverjum 10 Kjósendum landsins svara því játandi þegar spurt er hvort tímabært sé að Ólafur Ragn- ar Grímsson, forseti íslands, kvænist heitkonu sinni, Dorrit Moussaieff. Könnun DV var gerð í gærkvöld. Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt milli höfuðborgarsvæðis og lands- byggðar sem og kynja. Hringt var í fólk eftir símaskrá og spurt: Finnst þér tímabært að ðlafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, kvænist Dorrit Moussaieff? Af öllu úrtakinu svöruðu 47 prósent spurningunni ját- andi, 22,2 prósent sögðu nei, 26,3 pró- sent voru óákveð- in og 4,5 prósent neituðu að svara. Afstöðu til spurn- ingarinnar tóku því 69,2 prósent úrtaksins. Sé aðeins litið til þeirra sem af- stöðu tóku svöruðu 68 prósent spurn- ingunni játandi en 32 prósent neit- andi. Ekki er munur á þeim sem tóku af- stöðu í hópi karla annars vegar og kvenna hins vegar. Fleiri konur en karlar sem afstöðu tóku svöruðu spurningunni játandi eða 71,2 prósent á móti 64,7 prósentum karlanna. Ekki var marktækur munur á afstöðu fólks eftir búsetu utan hvað fleiri íbúar höf- uðbogarsvæðisins tóku afstöðu til spumingarinnar eða 75 á móti 65 pró- sentum. Tilfinningalegt svigrúm DV spyr þessarar spumingar nú þegar rúm þrjú ár eru liðin síðan Ólafur Ragnar bað þjóðina um tilfinn- ingalegt svigrúm. Það var í kjölfar fyrstu fréttar um ástir hans og Dor- rit sem birtist á forsíðu DV. For- setinn lýsti því síðan yfir í sjón- varpsviðtali 23. september 1999 að hann hefði eignast vinkonu og óskaði eftir því að þjóðin veitti sér tilfinn- ingalegt svigrúm Já - 68% til að þróa með sér tilfinningar gagn- vart annarri konu samfara óbreyttri ást sinni á Guðrúnu Katrínu Þor- bergsdóttur sem hafði látist tæpu ári áður. Ástin hélt áfram að blómstra og í lok maí 2000 var boðað til blaöa- mannafundar á Bessastöðum og þar tilkynntu Ólafur Ragnar og Dorrit um trúlofun sina. Síðastliðin þrjú ár hefur Dorrit fylgt Ólafi Ragnari í opinberum ferð- um bæði hér heima og erlendis, nú síðast í opinberri heimsókn forsetans til Húnavatnssýslu og við opnun verk- smiðju Balkanpharma i Búlgaríu. Þá er ónefndur fjöldi opinberra athafna hér heima. Er ekki óvarlegt að full- yrða að Dorrit sé orðin óaðskiljanleg- ur hluti af ímynd forsetans enda vel tekið hvar sem þau fara. Fólk hlynnt sambandinu í könnun DV í október 1999 var yf- irgnæfandi meirihluti aðspurðra, um 90 prósent, hlynntur sambandi þeirra Dorrit og Ólafs Ragnars Grímssonar og rúm 78% þjóðarinnar vildu sjá hana i stól forsetafrúar á Bessastöð- um. f könnun DV ári síðar, í október 2000, voru enn fleiri sáttir við sam- bandið eða 95 prósent. -hlh Er tímabært að Olafur kvænist Dorrit? Nei - 32% Arthur Bogason gagnrýnir harðlega mæliaðferðir Hafró: Segir togararallið handónýta mælistiku - nauðsynlegt til samanburðarrannsókna, segir Jóhann Sigurjónsson Frá aðalfundi Landssambands smábátaútgerða Hörö gagnrýni er á aöferöafræöi Hafrannsóknastofnunar varöandi stofnmæl- ingar á þorski. Forsvarsmenn samtakanna telja sér í lagi aö svokallaö togararall gefi alranga mynd af ástandinu í hafinu. Varhugavert hús á Grettisgötunni Við Grettisgötu 45A, á horni Grettis- götu og Vitastígs, stendur hús sem ekki er neitt augnayndi enda hefur það sýni- lega ekki verið málað áratugum saman. Húsið getur verið stórhættulegt fyrir vegfarendur þar sem þakkantur þess er mjög illa farinn og úr honum hafa dott- ið stórir steypuhlunkar. Þórður Búason, yfirverkfræðingur hjá byggingafulltrúa, segir að fyrsta skrefið sé aö vekja athygli húseigenda á hættuástandinu og ef þeir sinna því ekki er þeim sendur svokallaður birt- ingarpóstur, sem lögreglan tekur yfir- leitt að sér að koma til viðkomandi. Ef I harðbakkann slær eru starfsmenn áhaldahúss bæjarins sendir á vettvang strax ef málið þolir ekki bið, annars er beðið samþykktar borgarstjórnar. -GG Tófa veldur búsifjum: Leggst á f é og nagar granir Tófa hefur verið aðgangshörð í Hrútafirði í haust og hefur valdið búsifjum. Á bænum Bálkastöðum fór hún í tvær lifandi afvelta ær og nag- aði þær svo að innyfli lágu úti. Þá beit hún tvö lömb heimundir bæ með þeim afleiðingum að aflífa varð annað þeirra. í birtingu nú á miðvikudaginn þeg- ar bændur á bænum Bálkastaðir voru að reka fé inn af heimatúnum fannst svo nýbitið lamb að blóö draup. Við nánari athugun kom í ljós að tófan hafði nagað mestallt hold framan af grönum lambsins. Einar Bjarki Sigurjónsson tófubani lá tvisvar við rolluhræin og náði tófu i hvort skipti en lömbin voru bitin eft- ir það svo dýrbíturinn illræmdi lifir enn og hættan er enn til staðar. -sbs „Ég tel eins og margir aðrir að togar- arall Hafrannsóknastofnunar sem mæli- stika til að mæla stærð þorskstofnsins sé handónýt," segir Arthur Bogason, formaður Lands- sambands smábáta- útgerða, en aðal- fundur samtak- anna hófst á Grand Hótel í Reykjavík í gærmorgun. Jó- hann Sigurjónsson, forstjóri Hafrann- sóknastofnunar, segir gagnrýni á togararallið ekki nýja af nálinni. Hún sé þó stundum á nokkrum mis- skilningi byggð. Arthur Boaga- son sagði í samtali við DV að fiskiríið sem verið hefur hjá smábátunum uppi á grunninu væri með þeim fádæmum að það sýni ljóslega að togararallið gefur alranga mynd af ástandi þorskstofhsins. „Meðalafli á línu er langt umfram það sem nokkurn tíma hefur heyrst. Slíkar aflatölur geta eingöngu orðið til ef gifurlegt magn af fiski er undir. Þetta er bara ekki í nokkru samræmi við togararallið. Það er búið að vera ótrúlegt fiskirí á mjög stóru hafsvæði uppi á grunninu. Yfir þessu sjá stórútgerðarmenn svo ofsjón- um í staðinn fyrir að gleðjast yfir góð- um feng.“ Brugðist við breyttum aðstæðum Jóhann Sigurjónsson segir togararall- ið vera staðlaða aðferð og mjög mikil- væga til samanburðarrannsókna milli ára. Þar er sömu aðferðum beitt við veiðar á sömu togslóðum ár eftir ár. „Við erum þó með mælistöðvar jafnt á grunnslóð sem djúpslóð. Við teljum okkur því vera að mæla út um allt út- breiðslusvæði þorsksins. Hins vegar er það rétt að meginþyngdin í gagnasöfn- uninni varðandi togararallið er kannski ekki upp í harðalandi. Togararallið er bara eitt af fjölmörgum þáttum okkar á rannsóknum á þorskstofninum. Þetta er samt mikilvægur þáttur með tilliti til mælinga á nýliðun í stofninum. Við erum líka með netarall sem að sjálf- sögðu fer inn á grunnslóðina og beinist sérstaklega að hrygningarfiskinum. Það kann þó að vera að útbreiðsla þorsksins hafi eitthvað verið að breytast nú á allra síðustu árum og misserum. Það er mun meira af ungfiski nú en oft áður og við erum að fá upp nokkra miðlungssterka árganga." Jóhann segir að þá sé verið að athuga með útvíkkun á reglubundnum mæling- um á grunnslóð. Þar geta menn t.d. nýtt sér reglubundnar mælingar á rækju sem eru samanburðarhæfar milli ára. Þá hafi humarathuganir úti fyrir Suður- landi verið útvikkaðar með rannsóknir á flatfiski í huga og vera kunni að það verði líka yfirfært í rannsóknir á þorski. Þannig sé stofnunin að bregðast við hugsanlegum breyttum aðstæðum í hafmu. - Hvað með þá gagnrýni á hringnóta- veiðar sem smábátasjómenn hafa komið með og Guömundur Kjæmested, fyrrum skipherra Gæslunnar, benti á í vikunni? Hann sagði þessar veiðar hafa verið að þróast út í hreinar togveiðar allt upp að fjöruborði. „Við höfum heyrt fullyrðingar i þessa veru og höfum að undanfómu verið að skoða þetta sérstaklega. í framhaldinu munum við gera tillögur til sjávarút- vegsráðuneytisins ef þurfa þykir,“ segir Jóhann Siguijónsson. -HKr. Arthur Bogason. *s* 'Mm Jóhann Slgurjónsson. Kaupir í Grindavík Hraðfrystihús Eskifjaröar hefur keypt sjávarútvegsfyrirtækin Hóp ehf. og Strýthól ehf. í Grindavík. Elfar Að- alsteinsson, forstjóri Hraðfrystihúss- ins, segir við Mbl. að markmið fyrir- tækisins með kaupunum sé að efla reksturinn. Heimaslátruð folöld Lögreglan í Borgamesi lagði hald á tvö heimaslátruð folöld, samtals um 200 kg, sem fúndust í bifreið á Holtavörðu- heiði í gær. Hafði hlutuðum skrokkun- um verið raðað í farþegasæti bílsins. Var kjötinu eytt. Milljónir í markaðsstarf Samgönguráðherra segir að i fjár- lagafhunvarpi næsta árs sé gert ráð fyrir aö eyða tæpum 700 milljónum króna í markaðsstarf fyrir ferðaþjón- ustuna á íslandi. Fundar um löggæslu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri mun í næstu viku eiga fund með Sólveigu Pétursdótt- ur dómsmálaráð- herra um löggæslu í Reykjavík. Borgar- stjóri hefúr sagt að framlög til löggæslu í Reykjavík hafi nánast staðið í stað síðustu ár þrátt fyr- ir fjölgun íbúa og hærri tíðni afbrota. Mbl. sagði frá. Dæmdur fyrir ofbeldi Héraðsdómur Reykjavikur hefur dæmt karlmann um fertugt i eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðs- bundið, og greiðslu 433 þúsund króna í miskabætur fyrir alvarlega líkamsárás gegn þáverandi eiginkonu sinni á heimili þeirra. Hafa ekki efni á löggum Lögreglustjórinn á Hólmavik segir að embættið á Hólmavík ráði ekki við að greiða tveimur lögreglumönum á þess vegum laun eftir nýja kjarasamn- inga lögreglumanna frá í fyrra. Mun lögreglustjórinn funda með dómsmála- ráðherra vegna málsins. Mbl. greindi frá. Uggur unglækna Félag ungra lækna lýsir þungum áhyggjum vegna þróunar mála í heim- Oislækningum á íslandi, segir að fáir ungfr læknar sjái það sem spennandi kost að leggja í sémám í heimilislækn- ingum. -hlh í frétt DV í gær um verðkönnun í fjórum verslunum uröu mistök við út- reikning á verði kóladrykks. Lítraverð í meðfylgjandi töflu var því rangt. Hið rétta er að lægsta lítraverð á kóladrykk var í Bónus, 66 krónur. Þá kom Nettó með 79 krónur, Europris með 82 krón- ur og loks Krónan með 84 krónur. Ekki gert að hækka Ofsagt var í DV-Magasín í gær að Halldóri Guðbjamasyni, nú forstjóra Visa, hefði verið gert að hætta sem bankastjóri Landsbankans árið 1998 í kjölfar umdeildra laxveiði- og risnu- mála sem þá komu upp. Hið rétta er að bankastjóramir þrír hættu allir störf- um en skýrsla Ríkisendurskoðunar um málið hreinsaði Halldór hins vegar af ásökunum í sambandi við þetta mál. Beðist er velvirðingar á þessu. I> •±+A\ helgarblaö Pólitíkin ræður I Helgarblaði DV á morgim er rætt við Loga Bergmann Eiðsson, varafrétta- stjóra RÚV, um pólitíska stjórn út- varpsráðs sem Logi telur vinna gegn stofnuninni. Logi segir frá oki kynþokkans og dellun- um í lífi sínu. í blaöinu er einnig úttekt á kyn- þokka landsmanna, viðtal við Selmu Bjömsdóttur, Ara Alexander, Óttar Felix Hauksson og rætt er við Ólaf Maríusson, aldraðan kaup- mann sem seldi föt fyrir málverk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.