Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Blaðsíða 17
 16 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 DV Utgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aóalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiósla, áskrift: Skaftahlíó 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjaids. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Lœkkun vaxta í áttunda skiptið á þessu ári hefur Seðlabankinn ákveðið að lækka stýri- |§§ vexti og í þetta sinn um 0,3% frá og með komandi þriðjudegi. Frá áramót- um hefur bankinn lækkað vexti um 3,3% og um 4,6% síðustu 18 mánuði. Að öðru óbreyttu má reikna með að vextir haldi áfram að lækka á komandi mánuðum. Þróun verðlags að undanförnu hefur verið i takt við vænt- ingar Seðlabankans sem hægt en örugglega hefur haldið áfram á braut vaxtalækkunar. Aukinn slaki á vinnumarkaði hefur ýtt enn frekar undir vaxtalækkun en atvinnuleysi hefur verið að aukast hér á landi síðustu mánuði. Þá er ljóst að hagvöxtur á næsta ári verður nokkuð minni en reiknað var með og því enn frekari forsendur fyrir lægri vöxtum. Stjórnun peningamála hefur verið skynsamleg þó DV hafi haldið því fram að Seðlabankinn hafi tekið of seint við sér við lækkun vaxta. Alltaf er hægt að deila um það hversu mikið og hversu hratt lækka eigi vexti. Lægri vextir gefa fyrirtækjum hins vegar aukið svigrúm til framsóknar og eru ein besta kjara- bót sem skuldsett heimili landsins eiga völ á. Þegar saman fer aðhaldssöm peningamálastjórn og hófsemd viö stjórnun ríkis- fjármála er von til þess að íslenskum þjóðarbúskap vegni vel. Fjárlagafrumvarp Geirs H. Haarde fjármálaráðherra fyrir kom- andi ár er sett fram af hyggjuviti og meira aðhaldi en búast hefði mátt við. Eina hættan er sú að þingmenn - í aðdraganda kosninga - vinni skemmdarverk á frumvarpinu með fjáraustri í gæluverkefni. Mistök sjálfstceðismanna Sjálfstæðismenn í Suðvesturkjördæmi hafa ákveðið að halda ekki prófkjör til að velja frambjóðendur fyrir komandi alþing- iskosningar. Engin málefnaleg rök eru fyrir þeirri ákvörðun. Hitt er greinilegt að verið er að slá skjaldborg um sitjandi þing- menn kjördæmisins og ekkert hefur komið fram um endurnýj- un á framboðslista. Auðvitað kunna þær aðstæður að skapast að rétt sé að halda ekki prófkjör. Þannig kann það að vera auðveldara að tryggja endumýjun - sækja nýja liðsmenn með nýjar hugmyndir - á framboðslista með beinni uppstillingu og án prófkjörs. Rökin gegn prófkjöri verða hins vegar ekki sett fram vegna löngunar þeirra sem í forystu eru til að vernda sitjandi þingmenn og tryggja óbreytt ástand. Prófkjör hafa alla tíð verið umdeild, enda aöeins ein aðferð af mörgum fyrir félaga í stjórnmálaflokki til að velja sér fram- bjóðendur fyrir kosningar. Prófkjör hafa hins vegar yfirleitt reynst sjálfstæðismönnum á Reykjanesi vel, en langflestir íbú- ar hins nýja suðvesturkjördæmis tilheyrðu áður Reykjaneskjör- dæmi. Fyrir kosningar til Alþingis árið 1999 var haldið gríðar- lega fjölmennt prófkjör sem sýndi þann kraft sem í Sjálfstæðis- flokknum getur búið. Sá kraftur verður ekki leystur úr læðingi að þessu sinni. Hagstœð viðskipti íslendingar töpuðu vissulega illi- lega fyrir Skotum í landsleik þjóð- anna í knattspyrnu um síðustu helgi, en samt sem áður uppskárum við ríf- lega. Um 2.500 Skotar sóttu landið heim í tilefni af landsleiknum og má ætla að tekjur íslendinga af þeim hafi ekki verið undir 180 milljónum króna, eins og greint var frá hér í DV síðastliðinn þriðjudag.. Þannig geta íþróttir skipt verulegu máli og augljóst að skyn- samlegt er fyrir fyrirtæki að fjárfesta enn frekar í íslensku af- reksfólki. Uppskeran gæti orðið ríkuleg eins og dæmin sanna. Óli Björn Kárason & 17 H>V Skoðun Er þetta stöðugleikinn, Davíð? Ásgeir Friðgeirsson ritstjóri og frambjóöandi Kjallari Davíð Oddsson lagði þunga áherslu á stöðug- leika efnahags í kosning- unum 1999. Hann hvatti almenning til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn þar sem honum væri einum treystandi til að viðhalda því stöðuga ástandi sem verið hafði í efnahagsmál- um á árunum þar á undan. Davíð hvatti fólk til að taka ekkert mark á Össuri Skarphéðinssyni sem benti á blikur á lofti sem birtust í vaxandi viðskiptahalla. Niðurstöður kosninganna voru þær að kjósendur tóku frekar mark á Davíð en Össuri. Því miður - getum við núna sagt. Þróun mála á því kjörtímabili sem senn er á enda staðfesta ábyrg við- vörunarorð Össurar. Já, því miður fyrir íslenskt viðskiptalíf, því miður fyrir greiðendur húsnæðislána og þvi miður fyrir islenskan almenning. Fyrirheit og efndir Mikilvægt er að halda til haga hvernig fyrirheit Davíðs um stöðug- leika hafa verið efnd. Hér skulu fá- einir mælikvarðar lagðir á þróun efnahagsmála frá því kosið var um stöðugleikann vorið 1999. Skoðum fyrst þróun raungengis íslensku krónunnar. Genginu var haldið uppi af stjórn- völdum fram til ársins 2000. Styrking krónunnar í árslok 1999 var blekking sem gerði niöursveifluna árið 2001 enn dýpri. Sú jákvæða fjármuna- Breytingar á raungengi krónunnar 1999 - 2002 Ársfjórdungar greiðslubyrði einstak- linga og fyrirtækja þá rífur efnahagsstjóm- un af þessu tagi upp almennt neysluverð enda hefur verðbólgan sveiflast upp og niður á kjörtímabilinu. Það er mikilvægt að halda þessum stað- reyndum til haga því kjósendur hljóta að krefja Davíð Oddsson, forsætis- og efnahags- málaráðherra, svara: „Efnahagssveiflumar voru heimatilbúnar - dráttur- inn á að leiðrétta skrán- ingu krónunnar voru mis- tök við stjómun efnahags- mála sem forsœtisráðherra ber ábyrgð á.“ Er þetta stöðugleikinn, Davíð, sem þú gafst fyrirheit um 1999? Sá þáttur efnahagsmála sem varla nokkuð hef- ur sveiflast á kjörtimabilinu eru vextir - þeir hafa bara hækkað. Heimatilbúin efnahagslægð Sannleikurinn er sá að sveiflur þessar voru ekki nema að litlum hluta vegna ytri aöstæöna. Stjóm- völd geta ekki kennt um aflabresti og efnahagssveiflan á Vesturlöndum skýrir aðeins hluta þess óstöðugleika sem hér hefur verið. Þessar sveiflur voru heimatilbúnar - dráttin-inn á að leiðrétta skráningu krónunnar voru mistök við stjómun efnahagsmála sem forsætisráðherra ber ábyrgð á. Flestir þeir sem reka heimili eða fyrirtæki vita hvaða áhrif þessar sveiflur hafa á viðkvæman rekstur. Þeir velta trúlega vöngum núna yfir því hver fyrirheit Davíðs verða í kosningunum í vor. Og þeir munu ef- ast um efndirnar. myndun sem var í landinu fram til ársins 2000, sem átti að stórum hluta skýringu að leita í erlendum lántök- um og olli þenslu þessara ára, var til komin vegna gengisblekkingar. Þróun viðskiptajöfnuðar kjörtíma- bilsins og greiðslujöfnuðar, sem sýn- ir beinar fjárfestingar, sýnir sama óstöðugleika. Sveiflur viðskiptjöfn- uðar nema 20-25 milljörðum króna - niður og upp aftur á 12 til 18 mánuð- um og beinar fjárfestingar sveiflast um 5 til 15 milljarða á milli árshelm- inga. Vextir hafa bara hækkað Fyrir utan þau áhrif sem sveiflur sem þessar hafa á vexti og lána- Greldslu 10.000 -| jöfnudur -beinar fjárfestingar 1999 - 2002 J 5 000 A A A ;g -5.000 - 5 -10.000- —VWv— -15.000 - Ársfjórðungar Offramboð á Þjóðviljaritstjórum Asgeir Hannes H ® Eiríksson verslunarmaður Nýr hópur mannkynsfrels- ara er aö kveðja sér hljóös í stjórnmálum landsins meö ritninguna í annarri hendi og Þjóðvilj- ann í hinni. Hver ritstjóri Þjóðviljans á fætur öðr- um boðar komu sína og endurkomu á framboðslista Samfylkingar í Reykja- vík og sér ekki fyrir endann á því fiam- boði eða offramboði. Að vísu fer Svavar Gestsson enn þá huldu höfði um lendur NATÓ-rikja og Ámi Bergmann hefur öðrum hnöppum að hneppa á hjólhest- inum sínum heima fyrir. Veturinn leiðir í ljós hvort ritstjór- amir hyggjast frelsa þjóðina með gott orð á vör og Karl Marx í hjarta eða Kommúnistaávarpið á vör og guðspjöll- in glósuð á mannsjettuna. Sinnaskipti gamalla Sovétíslendinga innan um kristilegu kærleiksblómin vekja alltént vangaveltur bæði fyrir og eptir predik- un. Grjótkast og Gullrassar Lætur Flokkur Þjóðviljaritstjóra sér nægja að setjast á Alþingi eða grýta þeir þinghúsið f leiðinni eins og í gamla daga? Lætur Flokkur Þjóðviljaritstjóra útgáfústyrkiim frá Alþingi duga eða fá þeir áfram Rússagullið fiá Moskvu eins og í gamla daga? Gefúr Flokkur Þjóð- viljaritstjóra flokknum sinum mismun- inn á þingfararkaupi og lægsta Dags- brúnartaxta eins og í gamla daga eða halda þeir áfram að venda sínu kvæði í kross? Þegar Brynjólfúr Bjamason eldri settist á þing fyrir Kommúnistaflokk- inn sem seinna breiddi yfir nafn og númer og varð Sósíalistaflokkur og síð- ar Alþýðubandalag, en er núna bara Samfýlking með nýrri kennitölu, slógu „íslendingar hafa einstakt langlundargeð þegar öfgafólk á í hlut og sérstaklega vinstri öfgafólk ... Fyrirgefningin er hjartað í kristilegu uppeldi íslensku þjóðar- innar og vísast að bœði prestar og biskupar landsins sjái í gegnum fingur sér og signi allan hópinn sýni Þjóðviljaritstjórar þjóð sinni iðrunarvott fyrir jólin. “ félagar Brynjólfs saman í ný sunnu- dagaföt handa karlinum. Flokkur Þjóð- viljaritstjóra er hins vegar sem klipptur úr Kirkjuritinu. íslenski kommúnistaflokkurinn tók sig alvarlega allt fram á okkar daga þó hann yrði bæði munaðarlaus og verk- efnalaus við fall Berlínarmúrsins. Rit- stjórar Þjóðviljans lögðu sig fram um að koma íslensku þjóðinni undir ráð- stjóm Sovétríkjanna og er hvert tölu- blað fagur vitnisburður um þá þjóðholl- ustu. Fjöldi Islendinga hefúr heimsótt nýftjáls ríki Austur-Evrópu og þeim rennur kalt vatn á milli skinns og hör- unds við þá tilhugsun að draumar Sov- étíslendinganna á ÞjóðvOjanum hefðu getað ræst á íslandi. Veraldarlán íslendinga er ekki bara fólgið í vamarsamstarfi NATÓ-ríkj- anna og öðrum vettvangi friðar heldur fyrst og fremst að kirkjudeildir Vestur- Evrópu stóðu alla tíð vörð um kristi- legu gildin í hverju landi svo ásælni kommúnista féll í grýttan jarðveg. Kratar og kvaldir klárar Sérstök ástæða er til aö óska kjós- endum úr Alþýðuflokknum, sem enn þá hýrast í Samfylkingunni, til hamingju með liðsaukann. Hvar eru ritstjórar Al- þýðublaðsins til húsa í dag þegar erfða- fjandinn, Þjóðvilji, er klæddur og kom- inn á ról með guðshjálp og sérstakri guðshjálparstofhun? Sú var tíðin að Al- þýðublaöið hélt úti frægu happdrætti og krossgátu og Steinn Steinarr orti soltinn og klæðlaus í blaðið enda var fátt um kirkjulegt hjálpræði hjá Sovétíslendingum í þá daga þegar kbmmar hétu kommar en ekki Sam- fylking og kratar voru kratar. I dag eiga kratar ekki bót fyrir boruna á sér frek- ar en mann í borgarstjóm og aðeins ör- fáa menn á þingi. - Svo er komið flokki Jóns Baldvinssonar, Héðins, Jóhönnu Egilsdóttur, Vilmundar og Hannibals. En þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur og kratar halda áfram að elta skottið á Samfylkingunni sem er ekki á þeirra vegum heldur orðin happ- drætti eða krossgáta í Þjóðviljanum endurboma. Svo sem vér og fyrirgefum..! íslendingar hafa einstakt langlundar- geð þegar öfgafólk á í hlut og sérstak- lega vinstri öfgafólk. Sovétíslendingar hafa notið þeirrar gæfu landsmanna þótt aldrei hafi Þjóðviijaritstjórar beðið Islendinga forláts á því að hafa viljað kviksetja þjóðina í gúlagi Sovétsins. Fyrirgefiiingin er hjartað í kristOegu uppeldi íslensku þjóðarinnar og vísast að bæði prestar og biskupar landsins sjái í gegn um fingur sér og signi allan hópinn sýni ÞjóðvOjaritstjórar þjóð sinni iðrunarvott fyrir jólin. sandkorn@dv.is Enn harðlífi á Hálifaxvef Netflakkarar flögra gjaman vítt og breitt um heimasíður á „Internet- inu“ og kennir þar margra grasa. Fyrir nokkrum misserum þótti afia I vega mörgum íslenskumælandi Netnördum æöi gaman að klikka á heimasíðu Skessuhorns þar sem gat að líta allskemmtOegar fótboltalýsingar á svokölluðum Halifaxvef. Voru þar oft teknar góðar risp- ur upp báða kanta og miðju í senn og skorað oftar en augu á festi svo tuðruræfillinn steinlá i netinu. Var þá sama hvort Halifaxar fóru halloka eða ekki, alltaf stóð Halifaxvefurinn keOcur með sínum mönnum. Síðan 9. mars í vetur hefur þó aðeins mátt lesa um tómt harðlífi á Hýrumel. Þar sem sagt var frá ómaklegum sigri Skrúbbs (Shrewsbury), 3 -0, á heimaveUi þeirra, Hýru- mel (Gay Meadow), gegn Föxum (Halifax). Frá þvi þessi leikur fór fram hafa Netflakkarar ekki geta glaðst yfir frekari tíðindum af hinum fræknu Föxum. Velta þeir nú fyrir sér hvort á heimaslóðum vefsins í borgfirskum sveitum sé étið eintómt skyr, því ekki er annað séð en harðlífið standi enn... Ummæli ESB gætir hagsmuna „Það er ljóst að þjóðir í miklu sam- starfi á mjög mörgum sviðum eins og í Evrópusambandinu eru líklegar tO að taka meira tiUit hver tU annarrar heldur en tU þjóða sem eru fyrir utan slikt náið samstarf. Það að ESB sé hart i horn að taka í samningavið- ræðum við önnur ríki, eins og ísland, sýnir einungis að ESB gætir vel hagsmuna aðUdar- ríkja sinna. Þaö hlýtur að vera eitthvað sem við mynd- um vUja ef við göngum 1 ESB.“ Ágúst Ólafur Ágústsson á heimasíöu sinni. Foreldrar kenni börnunum „Agaleysi í skólum getur vissulega verið vandamál, en lagasetning um að böm eigi að hlýða foreldrum sín- um breytir engu þar um. Það yrði aðeins skólabókar- Berjast brœður Vægi Breiðafjarðarferjunnar Baldurs fyrir ferðaþjón- ustu í Barðastrandarsýslu er mikið. Þetta segir í áliti Ferðamálafélags Barðastrandarsýslu tU nefndar sem skipuð var tU aö meta framtíðarþörf á siglingum ferj- unnar. Virðist sem Ferðamála- félagið hyggist lýsa yfir stríði við Einar Odd Kristjánsson al- þingismann og Þórólf Hall- dórsson, sýslu- mann á Patreks- firði, sem báðir eru harðir baráttumenn fyrir bættum vegasamgöngum um Barðaströnd og Reykhólasveit. Báðir vUja þeir fóma ferjunni Baldri gegn því að kraft- ur verði settur í uppbyggingu vega meö heilsárssam- göngur landleiðina í huga. Fróölegt verður því að fylgj- ast með framvindunni og hvort Vestfirðingar muni, líkt og í svo mörgum öörum málum, berast hér nmbyrðis á banaspjótum... jflfiiaÉBÉwisiattl dæmi um lög sem enginn gæti framfylgt, enda er það foreldra að kenna bömum að hlýða en ekki þingsins." Úr leiöara Morgunblaösins Auðveldast að jórtra „Niðurstaða heimsmyndar nútímans er annaðhvort sú að láta allt flæða þangað tO aUt verður jafn slétt og feUt eða draga í efa þá hugmyndafræði að aUt skipti jafn miklu máli. Fyrri niðurstaðan myndi líklega leiða mann út í tóma nautnahyggju og maður gæti jórtrað eins og belja það sem eftir er áhyggjulaus um það sem kemur og fer, vitandi það að maður verður aUtaf sadd- ur og sæU. Síðari möguleikinn brýtur í bága við þá pólitísku rétthugsun að það megi möndla með aUa skapaða hluti og aUir megi segja hvað sem þeim finnst með hverjum þeim hætti sem þeim þóknast. Slík af- staða skUar þeim sem hana taka líklega engu nema erfiðleikum og andstreymi þannig að auðveldara er auðvitað bara að jórtra." Hreinn Hreinsson á Kreml.is Kostar krónu of lítið Sigríöur Ásthildur Andersen lögfræöingur. Veröhugmyndir manna eru æöi misjafnar. Þaö sem einum finnst sann- gjarnt verð kann öörum að finnast hreinasta okur. Þetta er auðvitað eðli- legt, enda þarfir manna ólíkar. Jafnvel getur sami maður metið hluti á mis- jafnan hátt á mismunandi tíma. Þegar hins vegar skýtur upp koU- inum hjá sumum sú hugmynd að verð geti beinlínis verið of lágt hlýt- ur maður að hrökkva við. Hvað er það sem fær menn tU að sjá ofsjón- um yfir of lágu verði? Og það jafnvel menn sem virðast vilja berjast gegn of háu verði. Þeir sem þykjast vita hvað hlut- irnir kosta kaUa það vist undirverð- lagningu þegar verðið er of lágt að þeirra mati. En undir hveiju skyldi verðið vera? Jú, undir kostnaði þess að framleiða vöruna, segja þeir, en útskýra aldrei í framhaldinu hvað það er sem ræður framleiðslukostn- aði vöru. Þeir gefa sér það hins veg- ar að það sé framleiðslukostnaður sem ráði endanlegu verði vöru. Því er þó ekki þannig varið. Það eru auðvitaö væntingar neytenda, það hvað þeir eru tObúnir tU að borga, sem ræður endanlegu verði vöru. I þessari grein er annars ekki ætlunin að færa rök fyrir eðlUegri skUningi manna á þessu atriði, held- ur hitt að velta því upp hverra hags- muni verið sé að verja með umræðu um hið svokaUaða undirverð. Hverjir eru hagsmunir neytenda? Neytendum á víst að stafa mikU hætta af því ef vörur eru seldar und- ir kostnaðarverði. Hættan er sögð vera sú að fyrirtæki sem selur vör- ur of ódýrt boli með þeim hætti öðr- um fyrirtækjum út af markaðinum, en hækki um leið verð hjá sér. Neyt- endur séu því ekki að græða tO langs tíma. Menn ganga jafnvel svo langt að leggja tU að hið opinbera grípi inn í slíka háttsemi ef hún finnst meðal fyrirtækja sem njóta markaðsráðandi stöðu. Þessi rök standast engan vegin nánari skoðun, þó ekki væri nema vegna þess að þau eru ekki einu sinni söguleg. Þannig eru engin dæmi um það að fyrirtæki, þótt markaðsráðandi sé, hafi náð einok- un á markaði með þessum hætti. Ekkert fyrirtæki leikur sér tU lengd- ar að því að gefa frá sér vörur i þeim tUgangi einum að útOoka sam- keppni. Fyrirtæki hafa kannski bol- magn tO að gera slíkt einu sinni, en eftir það yrði slík hegðun fyrirsjáan- leg og samkeppnin myndi hæglega mæta henni. Neytendur hafa hins „Neytendur hafa hins vegar ekkert nema ávinning af undirboði, jafnvel þótt aðeins tímabundið sé. Það þekkja nú íslendingar afar vel. “ - Á ódýrum bóka- markaði. vegar ekkert nema ávinning af und- irboði, jafnvel þótt aðeins tímabund- ið sé. Það þekkja nú íslendingar afar vel. Hagsmunir samkeppnisaðila Það liggur í augum uppi aö þeir sem ekki hafa hag af undirboðum fyrirtækis eru keppinautamir. TO- gangur undirboða er jú að laða að fleiri neytendur og það gerist gjam- an á kostnað annarra á markaðin- um. Undirboð er nefnUega eitt tæki í samkeppninni. Þess vegna er það þeim fyrirtækjum sem standast ekki samanburðinn mikið kappsmál að koma óorði á undirboð annarra og gagnrýna ríkið fyrir að herða ekki aðgerðir gegn undirboði. En það gera þau með sína eigin hagsmuni í huga en ekki hagsmuni samkeppn- innar sem slíka, og því síöur með hagsmuni neytenda i huga. Þvert á móti þá er það einmitt samkeppnin sjálf sem menn vUja stöðva þegar þeir vilja banna undirboð. Gagnrýni fyrirtækja á undirboð getur þó átt rétt á sér í vissum tU- vikum. Það er tO dæmis óþolandi þegar ríkisfyrirtæki tekur upp á því, á kostnað skattgreiðenda, að veita afslætti á þjónustu eða vömm sem einkaaðUar hafa atvinnu af að selja. Þetta geta rOcisfyrirtæki gert, enda þurfa þau ekki að sæta mark- aðslögmálum. Auðvitað er eina lausnin sú að ríkið dragi sig af sam- keppnismarkaði. - En þangað tO það gerist er sjálfsagt að ríkið millifæri ekki fé úr vasa eins skattgreiðenda í vasa annarra með undirboði. Eiga fleiri hagsmuna að gæta? Fyrir utan þá fjölmörgu opinberu starfsmenn sem beinlínis hafa af þvi atvinnu að rannsaka undirverðið svokaUaða og kynda undir ranghug- myndum í þeún efnum, þá hafa stjórnmálamenn löngum gert sér gott úr því að etja saman ýmsum greinum atvinnulífisins eða fyrir- tækjum og neytendum. Um leið vara þeir sig þó jafnan á því að halda sjálfum sér utan viö samsæriskenn- ingar sínar. - En kenningin um slæmar afleiðingar of lágs verðs er auðvitað of gott tækifæri fyrir þá sem hafa haldið uppi háum toUum og sköttum, tU að láta sér það úr greipum ganga. 4-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.