Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2002, Síða 20
20
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára________________________
Einar H. Björnsson,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
90 ára________________________
Margrét Kristinsdóttlr,
Sólheimum 23, Reykjavík.
75 ára________________________
Guöbjörg Magnúsdóttir,
Dalbraut 27, Reykjavík.
Guörún Sumarliöadóttir,
Heiöarhorni 6, Keflavík.
Valgerður Vilhjálmsdóttir,
Heiðarási 24, Reykjavík.
60 árg________________________
Björn Z. Sigurðsson,
Grundarási 3, Reykjavík.
.lóna Egilsdóttir,
Ósabakka 1, Selfossi.
Jónas Georgsson,
Borgarheiöi 33, Hveragerði.
Jónína Ólöf Högnadóttir,
Brunngötu 16, ísafirði.
Vigfús Guðmundsson,
Fáfnisnesi 3, Reykjavík.
50 ára________________________
Ása Jónsdóttir,
Laugarnesvegi 94, Reykjavík.
Dagbjört Sigrún Torfadóttlr,
Völvufelli 46, Reykjavík.
Guömundur Bjarnason,
Granaskjóli 4, Reykjavík.
Gunnlaugur Snorrason,
Gránufélagsgötu 27, Akureyri.
Helga Guöjónsdóttir,
Búhamri 44, Vestmannaeyjum.
Kristín Ágústa Þórðardóttir,
Dalbraut 3, Grindavík.
Sigríöur Olsen,
Arnarási 8, Garðabæ.
Þóröur Adolfsson,
Næfurási 12, Reykjavlk.
40 ára________________________
Eiríkur Sigurösson,
Svalbaröi 4, Hafnarfirði.
Fanney Margrét Jósepsdóttir,
Sóltúni 8, Keflavík.
Jónína Björnsdóttir,
Melasíðu 8d, Akureyri.
Ólafur Ásmundsson,
Laufási, Reykjavík.
Sveinn Steinar Sveinsson,
Bugðulæk 17, Reykjavík.
Vtöir Gunnarsson,
Hamraborg 28, Kópavogi.
1 —1
Aðventu-1 12V Sent f póstkrö ei > ðískrossar 34V sími 431 1464
Smáauglýsingar
DV
550 5000
Krlstrún Karlsdóttir, Litlahvammi 2,
Húsavík, lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík
þriðjud. 26.11.
Edward W. Kruczek lést á sjúkrahúsi í
New Jersey aöfaranótt sunnud. 24.11.
Jarðarförin hefur farið fram.
Stelnar Friöjónsson bifreiðasmiður,
Funafold 71, lést á líknardeild
Landspítaians í Kópavogi þriðjud.
26.11.
Jóhanna Erasmusdóttir frá Háu-Kotey í
Meðallandi, til heimilis I Asparfelli 12,
Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ þriöjud. 26.11.
Guörún Gissurardóttlr frá Drangshlíö,
Kópavogsbraut 1B, sem andaðist á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíö mánud.
18.11., hefur verið jarðsungin í kyrrþey
aö ósk hinnar látnu.
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002
IDV
Áttræður______________________________
Guðmundur Arnaldur Guðnason
sjómaður og múrari á Suðureyri
Guðmundur Amaldur Guðna-
son formaður, Aðalgötu 22, Suður-
eyri við Súgandafjörð, verður átt-
ræður á morgun.
Starfsferill
Guðmundur fæddist að Kvía-
nesi við Súgandaíjörð en flutti
bam að aldri með fjölskyldu sinni
að Botni í sömu sveit og ólst upp
við öll almenn sveitastörf þess
tíma. Engin vélvæðing var á bú-
inu og allt unnið upp á höndina.
Auk búskaparins stundaði faðir
hans sjósókn á árabát sem hann
átti og selveiði. Guðmundur var
kúskur við vegarlagningu um
Botnsdal yfir Botnsheiði til tsa-
fjarðar. Á seinni stríðsárunum
vann hann einnig við námugröft í
surtarbrandsnámu sem rekin var
í fjallmu ofan við Botnsbæina.
Hann réðst 1 skipsrúm á Suður-
eyri ungur að árum og keypti þá
húseignina Aðalgötu 22, Helgahús,
þar sem hann hefur átt heima síð-
an, fyrst í félagi við foreldra sína
en síðan einn, eftir að þau féllu
frá. Lengi var þó aðeins um vetr-
ardvöl þar að ræða því um árabil
var enn stundaður heyskapur í
Botni að summm og aflað vetrar-
forða fyrir þann bústofn sem hann
og foreldrar hans áttu.
Guðmundur var tíðum vélstjóri
og skipstjóri á vertíðarbátum á
Suðureyri og fékkst við rækju-
veiðar í ísafiarðardjúpi meðan
þær voru stundaðar frá Suður-
eyri. Hann var skipstjóri á þeim
bát sem fann rækjuna í Húnaflóa,
sem síðan hefur verið drjúgur at-
vinnuvegur þar við flóann. Hann
eignaðist ungur sína eigin trillu
og stundaði sumur og haust færa-
og línuveiðar á henni.
Seinni árin færði hann sig yfir í
grásleppuveiðar og fékkst við þær
um árabil, oft í félagi við mág
sinn, Leif, og systur sína, Maríu.
Meðfram sjómennskunni fékkst
Guðmundur talsvert við múrverk.
Guðmundur er m.a. höfundur
vörðunnar um Skáldið á Þröm
sem stendur í brekkunni neðan
við Hjallaveginn á Suðureyri.
Guðmundur stóð m.a. að því
ásamt fleirum að koma upp
hörpudiskvinnslu á staðnum sem
starfaði i nokkur ár og víðar hef-
ur hann lagt hönd og huga að
verki, ýmist sem hugmyndasmið-
ur eða beinn þátttakandi. Ásamt
systkinum sínum og bændum í
Botni stóð hann að laxarækt i lóni
sem þau létu gera. Þessi tilraun
stóð um áratugaskeið en loks er
allt baksið virtist ætla að fara að
bera ríkulegan árangur urðu þær
hamfarir af manna völdum við að-
stöðusköpun vegna jarðganga-
gerðar við munnann í dalnum að
aurburður drap allt kvikt í ánni
og lónum, sem þá voru svört af
laxi og eyðilagði allan gróður og
laxafarveg svo sú tilraun fékk
sviplegan enda.
Fjölskylda
Guðmundur er ókvæntur og
bamlaus en hefur ætíð verið í
miklu uppáhaldi hjá systkina-
bömum sínum og afkomendum
þeirra.
Systkini Guðmundar: Sigurður,
f. 11.12. 1914, d. 1959, var kvæntur
Sveinbjörgu Ey-
vindsdóttur, f.
17.4. 1902, d. 9.8.
1959; Guðrún
Pálmfríður, f.
9.9. 1916, d. 28.8.
1997, var gift
Kjartani Ólafs-
syni Sigurðs-
syni, f. 21.9.
1905, d. 25.6.
1956; Þorleifur
Guðfinnur, f.
11.7. 1918, sam-
býliskona hans
er Marianne
Jensen, f. 24.2.
1922; Sveinn, f.
23.11. 1919, var
kvæntur Sigríði
Ágústínu Finn-
bogadóttur, f.
9.8. 1914, d. 4.4.
1997; Jóhannes,
f. 29.9. 1921, d.
18.8. 1990, var
kvæntur Aldísi
Jónu Ásmunds-
dóttur, f. 10.5. 1922; Einar, f. 6.11.
1926, kvæntur Guðnýju Guðna-
dóttur, f. 22.7.1930; Guðni Albert, f.
3.4. 1928, kvæntur Júlíönu Jóns-
dóttur, f. 12.9.1928; Gróa Sigurlilja,
f. 24.11. 1930, gift Páli Guðmunds-
syni, f. 22.7. 1925; María Auður, f.
6.6. 1932, gift Leif Sigurðssyni, f.
22.7. 1929, d. 19.8. 1998; Sólveig Dal-
rós, f. 11.6. 1934, d. 29.4. 1939.
Foreldrar Guðmundar: Guðni
Jón Þorleifsson, f. 25.10. 1887, d.
1.4. 1970, og Albertína Jóhannes-
dóttir, f. 19.9. 1893, d. 2.1. 1989.
Guðmundur Arnaldur tekur á
móti gestum á heimili sínu laug-
ardaginn 30.11.
Ætt
Foreldrar Guðna Jóns voru
Þorleifur Sigurðsson og Gunnjóna
Einarsdóttir.
Foreldrar Albertínu voru
Jóhannes Guðmundsson og
Guðrún Jónsdóttir
Afmælisfagnaðurinn hefst í
verðlaunagarðinum að Aðalgötu
22 kl. 18.00, hvemig sem viðrar.
Fimmtugur
Valgeir Ingi Ólafsson
veitingamaður í Reykjavík
Valgeir Ingi Ólafsson veitinga-
maður, Bláhömrum 21, Reykjavík,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Valgeir Ingi fæddist á Teyginga-
læk í Vestur-Skaftafellssýslu.
Hann sleit bamskónum í foreldra-
húsum þar til leiðin lá til náms,
fyrst í Skógaskóla en þaðan út-
skrifaðist hann með landspróf
miðskóla vorið 1969. Að þvi loknu
lá leiðin í KÍ þaðan sem hann út-
skrifaðist með kennarpróf vorið
1973. Á sumrin á námsárunum
vann hann m.a. við bygginga-
vinnu og brúarvinnu i sinni
heimasveit.
Valgeir Ingi starfaði við
kennslu að námi loknu. Fyrst í
Hafnarfirði og síðan á Kirkjubæj-
arklaustri, samfellt frá árinu
1973-90 og síðan skólaárið 1992-93.
Haustið 1990 hóf Valgeir Ingi
störf sem deildarsérfræðingur í
Kennslumiðstöð Námsgagnastofn-
unnar og starfaði þar til vorsins
1991.1 maí 1991 tók hann að sér að
veita Upplýsingamiðstöð Suður-
lands á Selfossi forstöðu ásamt því
að móta þá starfsemi frá grunni.
Starfaði hann við Upplýsingamið-
stöðina til haustsins 1993 er hann
réðst til Atvinnuþróunarsjóðs
Suðurlands þar sem hann tók að
sér starf ferðamálafulltrúa fyrir
Suðurland sem hann gegndi til
haustsins 1995.
Með kennarastarfinu hefur
hann sinnt ýmsum aukastörfum
allt frá árinu 1974, mest við þjón-
ustustörf á veitingahúsum. Má
þar nefna Veitingahúsið Glæsibæ
og Þórskaffi á árunum 1974-80,
Hótel Valhöll á Þingvöllum sumr-
in 1980-82 en þar vann hann við
þjónustustörf og í gestamóttöku.
Einnig vann hann í gestamóttöku
og á vínstúku Hótels Arkar í
Hveragerði sumarið 1990 og síðan
af og til allt til haustsins 1992. Vet-
urinn 1991 starfaði hann sem bar-
þjónn á ömmu Lú.
Hann var aðstoðarhótelstjóri á
Hótel Eddu á Kirkjubæjarklaustri
sumarið 1985 og 1986 og vann
einnig í sal og við bókhald næstu
sumur á eftir. Hann rak félags-
heimilið Kirkjuhvol á Kirkjubæj-
arklaustri frá haustinu 1982-92,
veitti forstöðu, skipulagði og mót-
aði starfssvið upplýsingaþjónustu
fyrir ferðamenn á Kirkjubæjar-
klaustri sumarið 1983 og 1984 og
síðan aftur sumarið 1989. Á sama
tima annaðist hann einnig umsjón
með tjaldsvæðinu á Kleifum
skammt frá Klaustri. Var hann
auk þess fréttaritari DV á Kirkju-
bæjarklaustri í nokkur ár.
Valgeir Ingi sat í stjórn Ung-
mennafélagsins Ármanns á
Kirkjubæjarklaustri, var formað-
ur leikdeildar félagsins i nokkur
ár, annaðist útgáfu fréttabréfs fyr-
ir Ungmennafélagið Ármann um
nokkum tíma, átti sæti í stjóm
Bandalags íslenskra leikfélaga um
fiöguma ára skeið, átti lengi sæti í
stjóm Ferðamálasamtaka Suður-
lands, þar af sem gjaldkeri sam-
takanna í fimm ár, sat um tíma í
Leiklistarráði og var einnig vara-
fulltrúi Sunnlendinga í Ferða-
málaráði Islands.
í nokkur ár samfellt frá árinu
1991 annaðist hann útgáfu Árbók-
ar Selfosskaupstaðar fyrir sveitar-
félagið. Hann starfaði sem þjón-
ustufulltrúi í Ask-deild Skýrr hf.
1996.
Árið 1995 stofnaði Valgeir Ingi,
ásamt konu sinni, Kristínu Anný,
veitingastaðinn Gullöldina í Graf-
arvogi og hafa þau rekið hann síð-
an.
Fjölskylda
Eiginkona Valgeirs Inga er
Kristín Anný Jónsdóttir, f. 9.6.
1958, veitingamaður. Foreldrar
hennar eru Vigdís Tryggvadóttir,
f. 22.10. 1932, og Jón Guðmunds-
son, f. 26.5. 1925.
Böm Valgeirs Inga frá fyrra
hjónabandi eru Helga Berglind, f.
12.7. 1974; Jón Ómar, f. 23.4. 1991.
Saman eiga Kristín Anný og
Valgeir Ingi: Ólaf Jón f. 30.10.
1994, og Vigdísi Björgu, f. 22.12.1
997.
Fyrir átti Kristín Tómas, f. 6.6.
1987; Önnu Kristínu, f. 11.4. 1979;
Ómar Örn, f. 19.6. 1976.
Systir Valgeirs Inga er Margrét
Ólafsdóttir, f. 13.1. 1954, maður
hennar er Ingi Kristinn Magnús-
son, f. 30.10. 1955.
Foreldrar Valgeirs eru Svein-
björg Ingimundardóttir, f. 2.1.
1931, húsfreyja á Teygingalæk, og
Ólafur Jón Jónsson, f. 2.11. 1927,
bóndi á Teygingalæk, f. 02.11.1927.
í tilefni þessara tímamóta taka
þau hjónin Valgeir Ingi og Kristín
Anný á móti vinum og kunningj-
um á Gullöldinni milli kl. 20.00 og
23.00 á afmælisdaginn 29.11.
Magnús Jónsson
Dr. Magnús Jónsson guðfræðiprófessor fæddist
í Hvammi í Norðurárdal 26. nóvember 1887.
Hann var sonur Jóns Ólafs Magnússonar, prests í
Hvammi, og k.h., SteinunnEU' Þorsteinsdóttur hús-
freyju. Bróðir Magnúsar var Þorsteinn Jónsson rit-
höfundur (Þórir Bergsson).
Magnús lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1907,
cand.phil.-prófi I Kaupmannahöfn 1908 og embættis-
prófi í guðfræði frá Prestaskólanum í Reykjavík
1911. Hann var prestur hjá Vestur-Islendingum í
Kanada 1912-1915, prestur á ísafirði 1915-1917, var
skipaður dósent i guðfræði við Háskóla íslands 1917
og var þar prófessor í guðfræði frá 1928.
Magnús varð alþingismaður Reykvíkinga
1921-1946. Hann fylgdi Sjálfstæðisflokknum frá
stofnun, 1929, og ritaði síðar ágæta samantekt um
fyrstu fimmtán ár hans.
Magnús naut lengst af almennra vinsælda, enda
fríður sýnum, fyrirmannlegur, líflegur og aðlað-
andi, léttur í máli og ljúfur í 'viðmóti. Hann var
flugmælskur, lipur penni og afkastamikill rithöf-
undur. Meðal ritverka hans eru Saga íslendinga og
vandað rit um Hallgrim Pétursson.
Magnús -var atvinnumálaráðherra í minnihluta-
stjóm Ólafs Thors hálft árið 1942 og varð þess vafa-
sama heiðurs aðnjótandi að vera formaður hins al-
ræmda fiárhagsráðs 1947-1953.
Magnús lést i Reykjavík 2. apríl 1958.
Jaröarfarir
Kveðjuathöfn um Sigríöi Árnadóttur,
Grýtubakka 14, Reykjavík, áður húsmóð-
ur á Kluftum, verður í Breiðholtskirkju,
Reykjavík, föstud. 29.11. kl. 13.30. Út-
för hennar verður gerð frá Hrunakirkju,
Hrunamannahreppi, laugard. 30.11. kl.
14.00.
Adda Tryggvadóttir hjúkrunarfræðingur,
Lónabraut 41, Vopnafirði, verður jarð-
sungin frá Vopnafjarðarkirkju föstud.
29.11. og hefst athöfnin kl. 14.00.
Útför Valgerðar Hónnu Guðmundsdóttur
fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugard.
30.11. ki. 14.00.
Jónína Þorgrímsdóttir frá Raufarfelli
veröur jarðsungin frá Eyvindarhólakirkju
laugard. 30.11. kl. 14.00.
Jaröarför Kára Þóris Kárasonar múrara
fer fram frá Garðakirkju, Garðaholti,
þriöjud. 3.12. kl. 15.00.