Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2002, Side 22
22
_________________________________________________FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002
Tilvera X>V
Taking Sides
★★★
Sekur eða
saklaus?
Kvikmyndir hafa
verið gerðar um
Niimberg-réttar-
höldin. Þar var rétt-
að yflr foringjum
Hitlers. Ekki hefur
eins mikið verið
fjallað um réttar-
höldin sem voru yflr óbreyttum borg-
urum. Einn þeirra manna sem þá voru
teknir fyrir var hljómsveitarstjórhm
Dr. Wilhelm Furtwángler, sem var
einn fremsti hljómsveitarstjóri Evrópu,
dáður af öllum, þar á meðal nasistum.
Þegar Taking Sides hefst er kominn til
Evrópu liðsforinginn Steve Amold
(Harvey Keitel) sem á að stjóma yflr-
heyrslum yflr Furtwangler (Stellan
Skarsgárd). Amold telur að allir sem
hafi komið nálægt nasistum séu sekir
og er ákveðmn í að sanna að
Furtwángler hafl verið nasisti. Þegar
hvert vitnið á fætur öðm segir
Furtwángler hafa verið á móti nasist-
um verður Amold enn ákveðnari og
segist skuli negla þennan hljómsveitar-
stjóra.
Taking Sides er byggð á leikriti og
þvi mikið um samtöl. Sérstaklega em
áhrifamiklar yfirheyrslur Amolds yfir
Furtwángler. Það er rbnma þar sem
hvorugur fer með sigur. Leikur Har-
veys Keitels og Stellans Skarsgárds er
magnaður. Skarsgárd sýnir mikinn
listamann sem reynir að halda stolti
sínu þrátt fyrir að vera niðurlægður
hvað eftir annað og í leik Keitels sést
vel Ameríkumaður sem er ekki réttur
maður í sitt embætti. Hann er einangr-
aður í samfélagi sem hann skilur ekki.
Ungverski leikstjórinn Iztván Zzabó
(Mephisto, Sunshine) leikstýrir mynd-
inni og tekst það sem erfiðast er, að
koma henni úr viðjum leiksviðsins.-HK
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Iztván
Zzabó. Frakkland/Þýskaland/England,
2001. Lengd: 110 min. Leikarar: Harvey
Keitel, Stellan Skarsgárd, Moritz
Bleibtreu og Birgit Minichmayer. Bönnuö
börnum innan 12 ára.
An American Rhapsody
★★★
Tveggja heima
sýn
Það er einnig ung-
verskur leiksþóri,
Eva Gardos, sem leik-
stýrir An American
Rhapsody sem eins og
Taking Sides er byggð
á sönnum atburðum.
Myndin er fjölskyldu-
drama þar sem áhersla er lögð á þá miklu
gjá sem var milli austurs og vesturs þeg-
ar jámtjaldið var sem þéttast.
Við fylgjumst með ungverskri tjöl-
skyldu sem verður að flýja land vegna
skoðana sinna árið 1950. Þetta eru hjón
og dóttir þeirra. Vegna hættunnar við
flóttann urðu þau að skilja yngsta bam-
ið, nýfædda dóttur, eftir. Fjölskyldan
kemst til Bandarikjanna þar sem nýtt líf
bytjar. Litla stúlkan sem eftir varð elst
upp hjá ungversku alþýðufólki í sex ár
þar til loks raunverulegir foreldrar
hennar ná að koma henni til Bandaríkj-
anna. Litla telpan þekkir þau ekki sem
fóður og móður og skilur ekki af hveiju
hún var tekin. Hún aðlagast þó fljótt
ameríska draumnum en tekur loforð af
fóður sínum að þegar hún óski eftir
leyfl hann henni að fara til Ungveija:
lands. Þetta loforð biður hún hann að
efha þegar hún er flmmtán ára gömul og
hefur lent í alvarlegum átökum við
móður sína: „Ég veit ekki hver ég er og
ég veit ekki hvar ég á heima," segir hún
við fóður sinn.
An American Rhapsody er áhrifamik-
il og vel gerð kvikmynd. Hún er að vísu
nokkuð sundurlaus í byijun en eftir því
sem líður á myndina verður hún sterk-
ari, sérstaklega þegar sú litla er komin
á unglingsaldur.
Útgefandl: Myndform. Lelkstjóri: Eva Gar-
dos. Bandaríkin/Ungverjaland 2001. Lengd:
103 mtn. Lelkarar: Natassja Kinski, Scarlet
Johansson, Tony Goldwyn og Mae Whitman.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
í gærkvöld:
Irafár, Eyvi og
Stebbi Sál
Það var mikið um að vera í bæj-
arlífinu í gærkvöld, margir tónleik-
ar og uppákomur. Ljósmyndari DV
leit inn í Borgarleikhúsið og á Hard
Rock Café. í Borgarleikhúsinu var
hljómsveitin írafár að halda útgáfu-
tónleika þar sem aðdáendur hljóm-
sveitarinnar fjölmenntu. Hljóm-
sveitin getur verið stolt í dag því
plata hennar, Allt sem ég sé, er sölu-
hlæsta platan nú, eins og sjá má á
öðrum stað í blaðinu þar sem listi
yfir mest seldu plötumar er birtur.
Á listanum er einnig ný plata Eyj-
ólfs Kristjánssonar, Engan Jazz hér.
Eyfi var þó ekki með útgáfutónleika
í gær heldur var hann ásamt Stefáni
Hilmarssyni á Hard Rock þar sem
þeir afhentu við hátíðlega athöfn
fatnað þann sem þeir voru í þegar
Eyvl og Stebbi
Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Krist-
jánsson komu meö fatnaö sinn sem
þeir klæddust í Eurovision og afhentu
Hard Rock Café hann til geymslu.
þeir sungu lagið Nína í Eurovision-
keppninni. -HK
DV-MYNDIR E.ÓL.
Söngkona á svlðl
Birgitta Haukdal skartaöi sínu fegursta þegar hún sté á sviö í Borgarleikhús-
inu og söng af mikilli innlifun.
Nemendur Langholtsskóla í helmsókn hjá DV
Ari Þór Gunnarsson, Arnar Þór Sævarsson, Auöun Ágúst Hjörleifsson, Árni
Pétur Árnason, Daníel Fernandes Ólafsson, Davíö Elvar Másson, Einar
Sveinn Kristjánsson, Eydís Ósk Hilmarsdóttir, Grímur Gunnarsson, Hafdís
Tinna Pétursdóttir, Heiörún Snædís Kristinsdóttir, íris Telma Ólafsdóttir, Jak-
ob Már Þorsteinsson, Karl Emil Karlsson, Magdalena V. Ivanova, Magnús
Stefán Sigurösson, Pétur Heide Pétursson, Sól Hilmarsdóttir, Veronika Krist-
ín Jónasdóttir, Ölvir Freyr Guömundsson, Örn Ingi Guönason. Kennari Sigrún
Gestsdóttir.
Eyvi í símaklefa
Andrea Róberts var á Hard Rock
Café og tók viötali viö Eyjólf Krist-
jánsson í símaklefanum sem þar er.
Fjör á Hard Rock
Júlli Sig, Ómar Stef, Óöinn og Krist-
ján Páll voru á Hard Rock og heyröu
Eyva og Stebba taka lagiö
Ungir aödáendur
Þessar tvær vinkonur, sem heita
Rakel Inga Guömundsdóttir og Sara
Rut Ragnarsdóttir, voru mættar til
aö hlusta á uppáhaldshljómsveit
sína.
Auga fyrir auga
Á morgun mun Leikfélag Vest-
mannaeyja frumsýna Auga fyrir
auga eftir William Mastrosimone í
þýðingu Jóns Sævars Baldvinsson-
ar. Leikstjóm er í höndum Andrés-
ar Sigurvinssonar. Leikritið hefur
aðeins verið sett upp einu sinni
áður hér á landi, þaö var á Húsavík
árið 1996.
Auga fyrir auga flallar um þrjár
stúlkur sem búa saman. Þær fá í
heimsókn náunga sem hefur allt
annað en gott í huga. Verkið tekur
á ofbeldi í ýmsum myndum og vek-
ur upp spurningar um hvernig við
bregðumst við sem manneskjur ef
að okkur er vegið. Meðal annars er
velt upp þeirri spumingu hvort við
getum gengið svo langt að taka lög-
in í okkar hendur.
í þvi samfélagi sem við lifum í í dag
verður ofbeldi meira og meira áber-
andi og því munu grunnskólamir í
Vestmannaeyjum í samstarfi við Leik-
félagið nota þetta leikverk sem grunn
að lífsleikniverkefhi í 9. og 10. bekk.
Leikararnir í verkinu eru Sigríð-
ur Difjá Magnúsdóttir, Júlíus Inga-
son, Ásta Steinunn Ástþórsdóttir og
Guðný Kristjánsdóttir.
estrogen
Portrottmyndir cftk 3 konur
Estrogenflæöi
Samsýning þriggja listakvenna
verður opnuð á morgun, laugardag, á
Sólon í Bankastræti. Það eru þær Sol-
veig Rolfsdóttir, Elínborg Hákonar-
dóttir og Helga Ágústsdóttir sem sýna
allar portrettmyndir, þó að nálgun
þeirra á þeim sé með ólíkum hætti.
Sýningin ber yfirskriftina Estrogen,
en nafnið undirstrikar enn frekar það
mikla kvennaflæði sem mun umlykja
veggi Sólons á næstu vikum.
Vörður í nýjum sal
Sigríður Gísladóttir opnar mál-
verkasýningu í nýjum sal að Hverf-
isgötu 39 í Reykjavík á morgun,
laugardaginn 30. nóvember, kl.
16.00. Hún nefnir hana Vörður og
gefur þessa skýringu: Elstu vörður
sem getið er á íslandi (í Landnámu)
voru til að merkja einn ákveðinn
stað. - Til minningar um hetjudáð -
Til að vísa veg og til að fremja gald-
ur. Vörður voru notaðar sem sólar-
klukkur og siglingamerki. Þær af-
mörkuðu ítök jarða, kirkna og
klaustra, voru landamerki og jafn-
vel pósthús. Nú notum við GPS-
tæki. Dugmiklir unglingar reistu
vörður sér til dægrastyttingar af at-
hafnaþrá og sköpunargleði. Beina-
kerlingar voru heiti á stærri vörð-
um. Talið er gæfumerki að halda
vörðum við.“
Sigríður útskrifaðist úr málara-
deild 1993 frá MHl og hefur unnið
að myndlist meira og minna siðan.
Bæjarbíó:
Málarinn og
sálmurinn hans
um litinn
Um helgina heflast sýningar á kvik-
myndum í Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Fyrstu þrjár sýningamar verða á
myndum sem tengdar eru Hafnarfirði
þanrig að þær voru teknar þar að ein-
hverju eða öllu leyti qg leikarar eru
margir Hafiifirðingar. Á morgun verð-
ur sýnd Málarinn og sálmurinn hans
um litinn, laugardaginn 7. desember
Mávahlátur eftir Ágúst Guðmundsson
og laugardaginn 14. desember Punkt-
ur, punktur, komma, strik eftir Þor-
stein Jónsson. Sýningar eru kl. 16.00.
Býöur upp á
hönnun og list
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir
býður gestum og gangandi að koma
í heimsókn á vinnustofu sína Studio
Subbu í Hamraborg 1 í Kópavogi á
morgun, laugardag, milli kl. 13 og 18
og byrja aðventuna á að skoða
hönnun og list.
Eftir að hafa lokið námi við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
fór Kristín í framhaldsnám við Dan-
marks Design skólann í Kaup-
mannahöfn með aðaláherslu á
hönnun á nytjahlutum í gler, leir og
postulín. Nú hefur hún komið sér
vel fyrir á vinnustofunni sem er
hönnuð fyrir þau verkefni sem hún
er að vinna að þessa dagana.
Kristín Sigfríður er meðlimur í
Meistara Jakob, Skólavörðustíg 5,
ásamt tíu öðrum listamönnum sem
vinna í ýmsa miðla, s.s. grafík, mál-
un, textíl, skúlptúr og leir.
Lífið, tíminn og
eilífðin
Sýning á olíumálverkum Aðalheið-
ar Valgeirsdóttur verður opnuð í and-
dyri Hallgrímskirkju í Reykjavík á
sunnudaginn, 1. desember. Verkin eru
unnin sérstaklega fyrir sýninguna
sem er á vegum Listvinafélags Hall-
grímskirkju. Viðfangsefnið er lífið,
tíminn og eilífðin. Aðalheiður hefur
haldið nokkrar einkasýningar, síðast
í Listasafni Kópavogs 2001 og tekið
þátt í flölda samsýninga hér á landi og
erlendis. Sýningin verður opnuð kl.
12.15 að lokinni messu.