Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 Fréttir X>V DV rifjar upp átök um það sem þykir sjálfsagt í dag: Enginn stjórnarand- stæðingur studdi EES - samningurinn sagður færa „atvinnuleysi, fátækt og auðnuleysi“ yfir þjóðina REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 16.05 15.27 Sólarupprás á morgun 11.04 11.10 Síödegisflóö Árdegisflóö á morgun 24.17 00.17 15.39 04.50 íslenskt - Já takk! Ingi Björn Albertsson viröist hér eiga í einhverjum vandræðum meö íslenska neftóbakiö, en hann var einn þriggja stjórnarliöa sem greiddu atkvæöi gegn aöild íslands aö EES. Ekki er vitaö hvort hann baö Guö aö hjálpa Össuri Skarphéðinssyni og öörum stuöningsmönnum málsins en fékk sjálfsagt sjálf- ur að heyra þá góðu bæn viö þetta tækifæri. Atkvæöagrelösla: 12. janúar 1993. Úrsllt: 33 já; 23 nei; 7 sátu hjá; enginn fjarstaddur. Frumvarp lagt fram af: Jóni Baldvini Hannibalssyni utanríkisráöherra (A). Ríkisstjórn: Sjálfstæöisflokks og Al- þýðuflokks, undir forsæti Davíös Oddssonar. Enginn stjómarandstæðingur studdi aðild íslands að Evrópska efnahagssvæðinu þegar atkvæði voru greidd um málið á Alþingi fyr- ir tæpum áratug. 23 voru á móti og þar af sitja 6 enn á þingi: þau Guðni Ágústsson, Jóhann Ársælsson, Kristinn H. Gunnarsson, Margrét Frimannsdóttir, Páll Pétursson og Steingrímur J. Sigfússon. Spyrja má hvort sanngjamt sé að stilla andstæðingum EES-samnings- ins upp við hlið andstæðinga sjáif- sagðra mála á borð viö frjálst út- varp og bjór, en deilur um þau mál hafa verið rifjuð upp í DV í vikunni. Samningurinn var ekki endilega „sjálfsagt mál“ á sinum tíma enda töldu margir lögspekingar vafa leika á að hann stæðist stjómarskrá lýðveldisins. Hins vegar er aligóð, ef ekki algjör, samstaða um það í dag að samningurinn hafi reynst vel og engum dettur í hug að krefjast rift- unar. Þjóðaratkvæöagreiðslu krafist Hvorki fyrr né síðar hefur þing- mál verið rætt jafnlengi í sölum Al- þingis. Orðaskiptin voru hörð og lengi vel talið óvíst að ríkisstjórnin hefði meirihluta á bak við sig. Þó fór það svo að aðeins þrír stjómar- liðar greiddu atkvæði á móti; sjálf- stæðisþingmennirnir Eggert Hauk- dal, Eyjólfur Konráð Jónsson og Ingi Bjöm Albertsson. Vangaveltur voru uppi um hvort stjómarandstæðingar legöu fram vantraustsyfirlýsingu gegn stjóm- inni, ekki síst vegna mjög eindreg- innar kröfu margra þeirra um að málið yrði útkljáð í þjóðaratkvæða- greiðslu. Skoðanakannanir bentu til þess að meirihluti þjóðarinnar tæki undir kröfuna. Vísa Páls Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra bar hitann og þung- ann af málinu. Mörgum þótti hann ganga hart fram. Halldór Ásgríms- son lét Jón Baldvin heyra það og sagði: „Ég tel að margt af því sem hæstvirtur utanríkisráðherra hefur gert og sagt að undanfomu og á liðn- um árum hafi orðið til þess að vekja upp úlfúð í málinu milli Alþingis og ríkisstjómar og jafnframt að vekja upp óþarfa úlfúö i landinu." Gömul íslensk deilui ÞriöJI hluti Páll Pétursson var enn hvassyrt- ari í garð Jóns Baldvins og sakaöi hann um að hafa farið vísvitandi rangt með staðreyndir í útvarpsum- ræðum í trausti þess að fáir myndu heyra villumar hraktar síðar. Páll sagði að í flestum löndum myndi forsætisráðherra biðjast lausnar fyr- ir hönd ráðherra sem þetta gerði og rifjaði í kjölfarið upp þessa bama- gælu: „Lengi hef ég löngun haft / litla Jóni að trúa / þó hann opni aldrei kjaft / öðmvísi en ljúga.“ „Gefum allt fyrir ekkert" Miklar hrakspár vom hafðar uppi. Páll Pétursson sagði samning- inn hættulegan þjóðinni og hann myndi „færa okkur ósjálfstæði, at- vinnuleysi, fátækt og auðnuleysi“, auk þess sem hann væri andstæður stjómarskrá. Kristinn H. Gunnarsson sagði ávinninginn hverfandi miðað við skuldbindingarnar og réttlætti ekki að „opna fiskveiðilögsögu íslend- inga fyrir togaraflota EB.“ Fleiri töldu að fiskimiðin myndu glatast með aðild að EES. Guðni Ágústsson spurði: „Hver hefði trú- að því að ríkisstjórn íslands skrif- aði undir nauðungarsamning gagn- vart fiskveiðilögsögunni þar sem Evrópubandalagið fær allt fyrir ekkert? Hver hefði trúað því í lok landhelgisbaráttunnar að örfáum árum siðar ætti það fyrir þessari þjóð að liggja að opna fyrir fisk- veiðiheimildir til rányrkjuþjóðanna á ný?“ Steingrímur J. setti sjálfstæði þjóðarinnar á oddinn og sagði: „Ég get ekki og hef aldrei getað skilið þau rök að vænlegasta aðferðin til að varðveita sjálfstæöi sitt sé að fóma hluta þess.“ Afstaða Ingibjargar Ýmsar útgáfur hafa heyrst af af- stööu Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur. Hið rétta er að hún sagðist í apríl 1992 telja að EES væri ekki fýsilegur kostur. í ágúst efaðist hún enn en taldi samt að það gæti skap- aö „umtalsverða erfiðleika fyrir smáríki eins og Island aö verða við- skila við þá sem eru fyrir innan virkisveggina." í nóvember sagði Á móti EES: Anna Ólafsdóttir Björnsson (V) Eggert Haukdal (D) Eyjólfur Konráö Jónsson (D) Guðmundur Bjarnason (B) Guðrún Helgadóttir (G) Guöni Ágústsson (B) Hjörleifur Guttormsson (G) Ingi Björn Albertsson (D) Jón Helgason (B) : Jóna Valgeröur Kristjánsdóttir (V) Jóhann Ársælsson (G) Kristín Einarsdóttir (V) Kristinn H. Gunnarsson (G) Kristín Ástgeirsdóttir (V) Margrét Frímannsdóttir (G) Páll Pétursson (B) L Ragnar Arnalds (G) Steingrímur J. Sigfússon (G) Stefán Guðmundsson (B) Steingrímur Hermannsson (B) Svavar Gestsson (G) Ólafur Ragnar Grímsson (G) Ólafur Þ. Þórðarson (B) Þessir sátu hjá: Finnur Ingólfsson (B) Halldór Ásgrímsson (B) Ingibjörg Pálmadóttir (B) Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (V) Jóhannes Geir Sigurgeirsson (B) Jón Kristjánsson (B) Valgerður Sverrisdóttir (B) Nöfn þeirra alþingismanna sem enn sitja á þingi eru í rauöu. hún: „Það er í rauninni vafinn sem er mitt hlutskipti í málinu og verð- ur það kannski alla tíð.“ í desember sagðist hún vera „efnislega sam- mála aðildinni", að gefnum ákveðn- um forsendum, en á endanum fór svo að hún sat hjá við atkvæða- greiðsluna vegna vafa um gildi gagnvart stjórnarskrá og krafna um þjóðaratkvæðagreiðslu. Vart þarf að taka fram að Össur Skarphéðinsson studdi aðild eins og nær allir stjórnarliðar. -ÓTG Vígslubiskupskjör í Hólastifti fram undan: Kona meðal fjögurra vígslubiskupsefna Fjórir prestar sækjast eftir emb- ætti vígslubiskups í Hólastifti en í gærkvöld kynntu prestamir sig á kynningarfundi á Löngumýri í Skagafirði þar sem voru 20 kjör- menn úr Hólastifti. í fyrsta sinn er kona talin eiga góða möguleika á að verða vígslubiskup á íslandi, en það er séra Dalla Þórðardóttir, prófastur á Miklabæ i Skagafirði, en auk hennar eru í hópnum sr. Guðni Þór Ólafsson, prófastur á Melstað í Mið- firði, sr. Jón Aðalsteinn Baldvins- son, sendiráðsprestur í London, og sr. Kristján Valur Ingólfssson, lektor í Reykjavík. Séra Sigurður Guð- mundsson, fyrrverandi vígslubiskup á Hólum, hefur gegnt starftnu um hríð eftir að sr. Bolli Gústavsson lét af störfum vegna heilsubrests. Að sögn sr. Sigurðar Grétars Sig- urðssonar. sóknarprests á Hvamms- tanga sem hafði ásamt sóknarprest- inum á Skagaströnd forgöngu um DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON Frá Hólum Nokkrir prestar úr Hólastifti eru hér samankomnir viö vígslu Auöunarstofu 2001 en þar veröur skrifstofa vígsiuöiskups í framtíöinni. að boða til fundarins, var hann haldinn til að gefa kandídötunum kost á að kynna sig og ræða þau málefni sem viðkomandi munu leggja áherslu á í embættinu. Fluttu kandídatamir um 15 mínútna langa ræðu hver í upphafi fundar og á eft- ir sátu þeir fyrir svörum kjör- manna. Vom umræður mjög já- kvæðar og hreinskiptnar að sögn séra Sigurðar. Vigslubiskupskjör í Hólastifti verður í vetur og mun kjörgögnum verða dreift í þessum mánuði en kosning verður bréflega. Séra Sig- urði var ekki kunnugt um hvenær úrslit í kosningunnni ættu að liggja fyrir. Kjörmenn munu vera 64 sem er talsvert fleira en við síðustu kosningar því Hólastifti var stækk- að til austurs ekki alls fyrir löngu. Það nær nú yfir svæðið frá Djúpa- vogi í austri og vestur í Ámeshrepp á Ströndum. -ÖÞ Lægir í kvöld Suðvestan 8-13. Skýjað og súld eða rigning öðru hverju, einkum vestanlands. Lægir í kvöld. Hiti á bilinu 1 til 9 stig, svalast noröaustan til. Svalast norðaustan til Gengur í suöaustan 8-13 í fyrramálið, en 10-15 og rigning suðvestan- og vestanlands síðdegis. Hiti á bilinu 1 til 9 stig, svalast norðaustan til. Veðriö Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur H'ití 0” til 6“ Vindur: 4-8 mA ’óífca Hiti 0° til 13° Vindun 5-10 m/* >00°0° Hiti 3° til 3° Vindur: 3_8m/s Fremur hæg breytileg átt, skýjaö og rigning eöa slydda meö köflum, einkum noröan til. Kóinandi veöur, hiti 0 til 6 stig. Suðaustan 5-10 m/s og slydda norðan til fyrri part dags, en annars suövestanátt, víöa 8-13 m/s og rigning eöa skúrir. Hitl breytist lítiö. Suövestan 3-8 m/s og skúrir eöa él sunnan- og vestan til, en léttskýjaö noröaustan- og austanlands. Kólnandi veöur. m/s Logn 0-0,2 Andvarí 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinnlngsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 AKUREYRI alskýjaö 6 BERGSSTAÐIR alskýjaö 6 BOLUNGARVÍK úrkoma í gr. 9 EGILSSTAÐIR léttskýjaö 1 KEFLAVÍK þokumóða 7 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 4 RAUFARHÖFN alskýjaö 3 REYKJAVÍK Þokumóöa 7 STÓRHÖFÐI þokumóöa 7 BERGEN skúr 1 HELSINKI léttskýjaö -23 KAUPMANNAHÖFN alskýjaö -2 ÓSLÓ léttskýjað -9 STOKKHÓLMUR -8 ÞÓRSHÖFN skúr 5 ÞRÁNDHEIMUR snjóél -4 ALGARVE heiöskírt 5 AMSTERDAM skýjaö -5 BARCELONA BERLÍN hálfskýjaö 5 CHICAGO alskýjaö -2 DUBLIN skýjaö 4 HALIFAX heiöskírt -8 HAMBORG lágþokublettir -15 FRANKFURT heiðskírt -11 JAN MAYEN úrkoma í gr. -2 LONDON rigning 3 LÚXEMBORG heiösklrt -11 MALLORCA súld 8 MONTREAL alskýjaö -12 NARSSARSSUAQ hálfskýjað 10 NEW YORK alskýjaö 8 ORLANDO skýjaö 13 PARÍS léttskýjaö -8 VÍN snjókoma -8 WASHINGTON hálfskýjaö 7 WINNIPEG ■iKiuiæa! alskýjaö -15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.