Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Blaðsíða 27
I FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 27 m DV Sport Naumt í Hólminum - Snæfell vann baráttusigur á Tindastóli í átta liða úrslitum bikarkeppninnar Úrvalsdeildarliðin Snæfell og Tinda- stóll áttust við í Stykkishólmi í gær- kvöld í 8 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ og Doritos. Heimamenn fóru með sigur af hólmi, 78-74, eftir hörkuspenn- andi leik. Um það bil 170 manns höíðu lagt leið sína í íþróttamiðstöðina þegar leikur- inn hófst og voru strax með á nótunum þegar Hlynur Bæringsson náði for- skoti fyrir heimamenn með 3ja stiga skorpu. Heldur var stirt leikið af beggja hálfu fyrstu mínútumar, en það rættist úr þegar leikmenn hitnuðu. Hólmarar höfðu frumkvæði, en Króks- arar fylgdu eins og skugginn, mest fyr- ir atbeina Cliftons Cooks. Þegar fjórð- ungur lifði leikhlutans hafði samhent lið heimamanna skapað þeim 9 stiga Nýr Kani til Keflavíkur Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ákveðið að styrkja lið sitt með Bandaríkjamanninum Edmund Saunders og er hann þegar kominn til landsins. Eftir að Damon Johnson fékk ís- lenskt rikisfang um jólin var ljóst að Keflavík gæti fengið sér Banda- ríkjamann eftir áramót en bæði Damon og Kevin Grandberg teljast ekki erlendir leikmenn þar sem þeir hafa fengið íslenskan ríkisborgara- rétt. Saunders kemur frá stórum há- skóla, Cincinnati, sem er einn af þeim allra bestu í Bandaríkjunum og varð t.d. háskólameistari árið 1999. Hann er framherji og er um 202 cm á hæð og þykir öflugur í kringum körfuna, sérstaklega i frá- köstum. Saunders spilaði með og á móti mörgum þeim leikmönnum sem prýða NBA-deildina nú. Hann lék með Richard Hamilton sem leikið hefur með Washington Wizards en er núna hjá Detroit Pistons og Khalid, El-Amin sem lék með Chicago Bulls. Það er því ljóst aö Keflvíkingar verða gríðarlega sterkir það sem eft- ir er tímabils og voru þeir öflugir á pappírunum fyrir. Ríkisborgararéttur gæti þó sett fleiri strik í reikninginn í Inter- sport-deildinni í vetur því Gary Hunter, sem leikur með Njarðvík, er að bíða eftir að fá tyrkneskan rík- isborgararétt í febrúar og því gætu Njarðvíkingar hugsanlega bætt við sig einum Kana fyrir lokabaráttuna í mars. -Ben forystu, með góðri vöm og yfirvegaðri sókn. Annar hluti leiksins hófst með gríðarlegri vamarbaráttu beggja liða. Snæfell náði mest 11 stiga forystu um skeið, en höfðu 10 stig á gestina þegar menn köstuðu mæðinni í hálfleik. En þegar allt verður að leik og sólin ljómar um himinbaug em veðraskilin oft nærri. Stólamir hertu sig upp í þriðja hluta leiks og meiri harka og hraði færðust í leikinn. Skarð varð fyr- ir skildi í heimaliðinu þegar Clifton Bush fékk sina 4. villu eftir rúmlega fjögurra mínútna leik og var skipt út og sat það sem eftir liföi leikhlutans. Cook fór fyrir gestunum, sem söx- uðu forskot lánlítilia Snæfellinga niður jafnt og þétt og jöfnuðu leikinn, 60-60, við lok hans. Við upphaf lokafjórðungs var spennan í húsinu mögnuð og áhorfendur létu vel í sér heyra. Hólmarar náðu naumri forystu en Cook svaraði iðulega að bragði. Það reyndist þó ekki nóg því Snæfell fór með sigur af hólmi, 78-74. Hlynur Bæringsson lék hvað best heimamanna. Clifton lék einnig mjög vel og Jón Ólafur Jónsson átti einnig góðan leik. Clifton Cook átti frábæran leik í liði Tindastóls. Michael Antropov hvarf á köflum. Hattur skal tekinn ofan fyrir norðanmönnum fyrir seigluna og þeir gáfust aldrei upp. „Ég er ánægður með sigur i svona spennuleik. Þetta var ekta bikarleikur og þótt mönnum hafi verið mislagðar hendur í þriðja leikhluta var endirinn góður,“ sagði Báröur Eyþórsson þjálf- ari kampakátur. Aðspurður kvaðst hann vonast eftir að fá heimaleik í undanúrslitunum. „Það eru mikil vonbrigði að detta út. Ég vona að Snæfelli gangi vel. Þeir eru gott lið og eiga alla möguleika í fram- haldinu ef íslendingaliðin á Suðumesj- um kaupa ekki fleiri erlenda leik- rnenn," sagði Kári Marísson, liðsstjóri Tindastóls, eftir leikinn. Stig Snœfells: Jón Ó. Jónsson 18, Hlynur Bæringsson 15, Cliflon Bush 13, Lýður Vignisson 13, Helgi Guðmundsson 10, Sigurbjöm Þórðarson 5, Andrés Heiðars- son 2, Daði Sigurþórsson 2. Stig Tindastóls: Clifton Cook 41, Michail Antropov 10, Einar Ö. Aðalsteinsson 8, Kristinn Friðriksson 7, Axel Kárason 4, Helgi Viggósson 2, Óli Barðdal 2. -HÞ KQRFUBOITI ca b & Úrslit í nótt: New Jersey-Sacraxnento .. 82-118 Collins 11, Harris 11, A. Johnson 11, Kidd 10 - Stojakovic 24, Bibby 23, Webber 19 (11 frák.), J. Jackson 12 (8 frák.), Christie 10 (9 stoðs.). Sacramento Kings batt enda á tíu leikja sigurgöngu New Jersey Nets með ótrúlegum yfirburðasigri á úti- velli í nótt. Sacramento gerði út um leikinn í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 69-41. Ekki skánaði stað- an hjá New Jersey í þriðja leikhluta því að eftir harm var Sacramento með 38 stiga forystu, 96-58. Leik- mönnum New Jersey tókst aö klóra í bakkann í síðasta leikhlutanum en 36 stiga tap á heimavelli var engu að síð- ur staðreynd. Sacramento hefur nú unniö fjóra leiki í röð og engum vafa undirorpið að endurkoma bakvarðar- ins Mike Bibby hefur styrkt liðið verulega. Miklu máli skipti fyrir New Jersey Nets í þessum leik að þeirra besti maður og sennilega besti leik- maður deildarinnar í vetur, Jason Kidd, náði sér engan veginn á strik. Portland-San Antonio .... 87-90 S. Jackson 18, Parker 17, Duncan 12 (12 frák.), Smith 10 - Pippen 19, And- erson 19, Wallace 12, Sabonis 11. Leikstjórnandinn Mark Jackson, sem leikur með Utah Jazz, varð í fyrrinótt þriðji leikmaöurinn í sögu deildarinnar til að ná þeim áfanga að gefa tiu þúsund stoðsendingar á ferl- inum. Jackson átti fimm stoðsending- ar þegar Utah Jazz bar sigurorð af Phoenix Suns, 99-93, á heimavelli og hafði, þegar flautað var til leiksloka, gefið 10.002 stoðsendingar. Þriðja stoðsending Jacksons, sem kom und- ir lok þriöja leikhluta var sú 10.000. og var hann ákaft hylltur af stuðn- ingsmönnum Utah eftir aö hafa náð áfanganum. Næsta verkefni hjá Jackson er að ná hinum fræga Magic Johnson sem gaf 10.141 stoðsendingu á stórkostlegum ferli sínum hjá Los Angeles Lakers. Það veröur hins veg- ar ómögulegt fyrir hann að ná efsta manni á listanum, félaga hans þjá Utah, John Stockton, sem hefur gefið 15.434 stoðsendingar og er enn í fullu fjöri. Kobe Bryant, bakvörður Los Angeles Lakers, hafði i gær fengið flest at- kvæði allra leikmanna NBA-deildar- innar fyrir Stjömuleikinn sem fram fer í Atlanta 9. febrúar næstkomandi. Bryant hefur fengiö rúmlega 1,1 millj- ón atkvæða í netkosningu á nba.com en næstur honum er Vince Carter frá Toronto Raptors sem hefur þó aðeins leikið tíu leiki t vetur. Nýliðinn Yao Ming hjá Houston Rockets er í fjórða sæti yfir flest atkvæði leikmanna og er langefstm- af miöheijum deildar- irmar. Hægt er að kjósa á nba.com fram til 12. janúar en byrjunarliöin í austurdeildinni og vesturdeildirmi verða síðan tilkyrmt 23. janúar. -ósk Batamerki Valsara - ÍR-ingar voru þó of sterkir fyrir þá í gær og eru komnir í undanúrslit bikarsins Stórleikur í Keflavík í kvöld mætast grannarnir Keflavík og Njarðvík í 8-liða úrslit- um bikarkeppni KKÍ og Doritos í Kelfavík og hefst leikurinn kl. 19.15. Liðin hafa tvívegis mæst í vetur og hafa Njarövíkingar farið með sigur af hólmi í báðum leikjunum. Síðast mættust þau á þriðjudaginn í Kelfavík í Intersport-deildinni en þá vann Njarðvík, 80-77. Nokkuð hefur landslagið hjá lið- unum breyst síðan þá þó ekki sé langt um liðið því að eins og fram kemur hér að ofan eru Kelfvíking- ar komnir með bandarískan leik- mann, Edmund Saunders, sem mun að öllum líkindum spila með liðinu í kvöld. Þar munu Keflvík- ingar væntanlega setja met þegar þeir mæta til leiks með þrjá leik- menn sem bornir eru og bamfæddir í Bandaríkjunum en tveir með íslenskt ríkisfang. -ósk ÍR er komið í undanúrslit í Doritosbikarnum með sjö stiga sigri, 90-83, á Val á Hlíðarenda í gærkvöld. Úrslitin réðust í fjórða og síðasta leikhluta þar sem ÍR-ingar skoruðu 38 stig gegn 26 stigum Valsmanna og brást varnarleikur heimamanna algjörlega þegar mest á reyndi eftir að hafa verið frekar góður megnið af leiknum. ÍR-ingar byrjuðu leikinn eins og við mátti búast í 2:3 svæðisvöm og vom heimamenn í miklum vand- ræðum til að byrja með að finna körfuna. Eftir fyrsta leikhluta var staöan 7-19 og allt virtist stefna í ör- uggan sigur gestanna þar sem mik- ill getumunur virtist vera á liðun- um. Mimurinn fór síðan mest í 16 stig í öðrum leikhluta en þá fóm Valsmenn loksins aö bíta frá sér og var munurnn aðeins sex stig í hálf- leik, 34-40. Jason Pryor, nýi erlendi leikmað- ur Vals, fór síðan loksins að láta til sín taka í seinni hálfleik eftir mjög svo slaka frammistöðu í þeim fyrri og skoraði grimmt í þriðja leik- hluta. Þá small vamarleikur Vals einnig saman og þegar þriðji leik- hluti var allur voru Valsmenn fimm stigum yfir, 57-62, og farið að fara um margan ÍR-inginn. Allt annaö ÍR-lið Eggert Garðarsson, þjálfari ÍR, hefur náð að stappa stálinu i sína menn I leikhléinu því ÍR-ingar gerðu 11 fyrstu stigin í fjórða leik- hluta og náði undirtökunum aftur á besta tíma. Þeir létu það ekki nægja heldur gerðu 21 stig gegn aöeins þremur heimamanna í byrjun fjórða leikhluta og gerðu þar með út um leikinn. Eftir það voru ÍR-ingar meira og minna á vítalinunni og tryggðu sér sjö stiga sigur. Mikil breyting er á Valsliðinu og er hún af hinu góða. Hraðaupp- hlaupsvömin er þó eitthvað sem Ágúst Sigurður Björgvinsson, þjálf- ari liðsins, verður að laga því liðið er að fá mörg stig í bakið þar sem menn era seinir aftur i vöm eftir sóknir. Jason Pryor lék sinn annan leik á þeim tveimur sólarhringum sem hann hefur verið á landinu og var vægast sagt arfaslakur í fyrri hálfleik og virtist ekki vera búinn að ná áttum enn þá og leikæfmgin mjög lítil. Hann tók sig taki í seinni hálfleik og gerði 21 stig í hálfleikn- um en betur má ef duga skal. Bama- by Craddock lét lítið fyrir sér fara en er traustur leikmaður og eini leikstjómandi liösins. Hann hefði þó mátt ógna meira sóknarlega. Æg- ir Jónsson og Bjarki Gústafsson vora ágætir og Gylfi Geirsson barð- ist vel og gerði fína hluti. Hjá ÍR var Sigurður Þorvaldsson kominn í byrjunarliðið og skoraði 19 stig. Ómar Sævarsson átti sína kafla en Eugene Christopher og Ei- ríkur Önundarson hafa spilað bet- ur. Christopher steig þó upp í fjórða leikhluta en fram að því hafði harm ekki sést. Stig Vals: Jason Pryor 27 (11 frák., 7 stoðs.), Ægir Jónsson 17, Bjarki Gústafs- son 14, Gylfi Geirsson 12 (8 frák.), Ragn- ar Steinsson 8, Bamaby Craddock 3 (7 stoðs.), Hjörtur Hjartarson 2 (4 varin). Stig lR: Eugene Christopher 27, Siguröur Þorvaldsson 19 (12 frák.), Eiríkur Önund- arson 19 (4 stoðs.), Ómar Sævarsson 14 (13 frák.), Benedikt Pálsson 6, Hreggviöur Magnússon 5 (9 frák.). -Ben ■r m' «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.