Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Blaðsíða 15
15
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003
PV__________________________________________________________________________________________________Menning
Dælan gengur
■ Gömul hefð er fyrir því
aö fyrirtæki og stofnanir
minnist merkisafmæla
með því að láta rita sögu
sína. Stundum eru þessi rit
lítið annað en myndskreytt
forstjóra- og stjórnar-
mannatöl en þegar best
tekst upp verða til athyglis-
verð rit í hag- og félags-
sögu. Eitt af þeim fyrirtækjum sem gáfu út
sögu sína á síðasta ári var Olís, Olíuverslun
íslands, eða BP eins og það var lengi kallað í
daglegu tali. Þetta er mikil bók, um 550 síður,
í stóru, fallegu broti og glæsilega mynd-
skreytt.
Afmælisriti Olís hefur verið valið hið tví-
ræða heiti Þeir létu dæluna ganga enda víða í
textanum vísað til munnlegra frásagna
snjallra sagnamanna sem hafa frá mörgu að
segja. Auk munnlegra heimilda hefur höfund-
ur leitað fanga í skjalasafni Olís, svo og bók-
um, blöðum og tímaritum. Hér er mikið efni
dregið saman en úrvinnslan orkar því miður
tvímælis þvi mikið vantar á að textinn sé
nógu vel unninn. Hann er víða hrár og sam-
hengi innan kafla stundum ábótavant. Inn á
milli koma langir útúrdúrar sem vandséð er
að skipti máli fyrir frásögnina og hefðu mátt
vera styttri. Sem dæmi má nefna langan pistil
um viðskilnað Héðins Valdimarssonar við Al-
þýðuflokkinn. Um það mál er eðlilegt að fjalla
en því hefði mátt gera skil í talsvert styttra
máli en hér er gert. Fleiri dæmi mætti nefna,
svo sem ýmsar klausur úr starfsmannablaði
fyrirtækisins, Dælunni. Slikt efni er prýöilegt
til að lífga upp á texta og tekst höfundi oft vel
til í þeim efnum en fulllangt er gengið þegar
birtar eru blaðsíða eftir blaðsíðu af fyrirtæk-
isbröndurum og aulahúmor frá sjötta áratugn-
um.
I fyrsta hluta bókarinnar er Héðinn Valdi-
marsson fyrirferðarmikill enda lífið og sálin í
Gamli og nýi tíminn
Bensínskúrinn í Ánanaustum og nýja þjónustustööin fjær. Mynd úr bókinni.
fyrirtækinu fyrstu tvo áratugina. Margt er vel
gert í þeim hluta bókarinnar, svo sem þegar
sagt er frá þeim vandræðum sem hann lenti í
vegna tvíþættrar stöðu sinnar sem forstjóri
stórfyrirtækis og verkalýðsleiðtogi. Gott
dæmi um það eru hin hrikalegu stéttaátök á
Suðumesjum 1931 en þá missti BP viðskipti
við atvinnurekendur á svæðinu vegna stuðn-
ings Dagsbrúnar og Héðins við verkfallsmenn.
Líka vantar mikið á að heimildavinnsla
höfundar sé viðunandi. Það er fullkomlega
eðlilegt í afmælisriti sem þessu að sjónarmið-
um Olís sé gert hátt undir höfði en að snið-
ganga viðhorf annarra og láta duga að skýra
atburði með tilvísunum í orð manna mörgum
áratugum eftir að þeir gerðust er ekki sæm-
andi. Dæmi um slíkt er afgreiðsla Fjárhags-
ráðs á umsóknum BP um byggingarleyfi eftir
seinna stríð. Því er haldið blákalt fram að al-
þýðuflokksmenn hafi komið í veg fyrir að leyf-
ið fengist til að hefna sín á Héðni og Önundur
Ásgeirsson borinn fyrir því. Höfundi, hefði
verið í lófa lagið að kanna hvað ráðinu gekk
til með neituninni með því að leita í frum-
heimildir sem varðveittar eru á Þjóðskjala-
safni, og fleiri dæmi um slíkt mætti nefna.
Engin sérstök heimildaskrá er í
ritinu en heimilda yfirleitt getið í
aftanmálsgreinum. Stundum er
óljóst hvar óprentaðar heimildir er
að finna, hvort þær eru í opinberum
skjalasöfnum eða skjalasafni Olís, og
í annað stað hvort heimild hefur
veriö gefin út eða ekki. Hafa til
dæmis endurminningar Aðalsteins
Guðmundssonar, sem virðast for-
vitnilegar ef marka má þau brot sem
notuð eru í texta bókarinnar, ein-
hvem tíma verið gefnar út? Einnig
hefði verið fengur að fá sérstaka
skrá yflr heimildamenn, svo og
hvenær viðtöl við þá voru tekin.
Aðalkostur bókarinnar er hið
ríkulega myndefni sem þar er að
flnna. Myndimar segja ekki bara
sögu Olís heldur eru þær líka mikil-
væg heimild um félags-, byggöa- og
verkmenningarsögu. Áhugamenn
um samgöngusögu eiga væntanlega
eftir að nýta þetta efni rækilega því
þar eru miklar upplýsingar um bila-
eign landsmanna. Það er því óneit-
anlega bagalegt að engin myndaskrá
er í bókinni. í eftirmála kemur fram
aö flestar þeirra eru í eigu Olís en einnig hef-
ur verið leitað fanga hjá Þjóðminjasafni og
öðrum ljósmyndasöfnum; hvað er hvar er
ósagt látið.
Þeir létu dæluna ganga er metnaðarfullt
verk sem mikið hefur verið í lagt en því miö-
ur eru slíkir annmarkar á bókinni að hún
verður lesendum að minna gagni en efni
stóðu til.
Guðmundur J. Guðmundsson
Hallur Hallsson. Þeir létu dæluna ganga. Saga Olís í
75 ár - 1927-2002. Reykjavík 2002.
SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR
Vínartónleíkar
Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands
Hljómsveitarstjóri:
Peter Guth
Einsöngvari:
Garðar Thór Cortes
Sun. 12. jan. kl. 21.00
Lau. 18. jan. kl. 21.00
Fös. 24. jan. kl. 21.00, uppseR
Fös. 31. jan. kl. 21.00
Miöasalan I Iðnó er opin frá 10-16
alla virka daga, 14-17 um helgar og
frá kl. 19 sýningardaga. Pantanir I
s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru
seldar 4 dögum fyrir sýningar.
Einleikari:
Lucero Tena
Föstudaginn 10. janúar
kl. 19.30 uppselt
Laugardaginn 11. janúar
kl. 17.00 (uppselt)
Föstudagskvöldið ao. janúar kl. 20
Stórtónleikar Rótarý
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópran,
Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Jónas
Ingimundarson píanóleikari flytja einsöngs-
og samsöngslög, íslensk og erlend sönglög,
söngleikjatónlist og óperumúsík.
Aðeins fyrir Rótarýfélaga.
Sunnudagur 12. janúar kt. 20
TlBRÁ: Tvö píanó og
slagverkshópurinn Benda
Píanóleikaramir Hrefna Eggertsdóttir og
Jóhannes Andreassen og slagverkshópurinn
Benda leika verk eftir Britten, Cage og Bartok.
Verð kr. 1.500/1.200.
9
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
í IÐNÓ
Síðdegissýning
Sun. 12. jan. kl. 15.00
Sun. 19. jan. kl. 15.00
Hin smyrjandi jómfrú
Naerandi leiksýning fyrir iíkama og sól.
Sýnt íIðnó:
Kvöldsýning
Lau. 11. jan. kl. 20.00
Sun. 19. jan. kl. 20.00
„71/ að kóróna herlegheitin er boðið upp
á Ijúffengt smurbrauð fyrir sýningu og
þv( óhœtt lofa þeim sem taka allan
pakkann nœrandi kvöldstund fyrir sál og
l(kama.“ H.F., DV
BORGARLEIKHÚSIÐ
Lcikfélag Reykjavikur
STÓRA SVIÐ
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og KarlAgúst Úlfsson
Forsýning í kvöld, 10/1, kr. 1.500
Frumsýning lau. 11/1, UPPSELT
2. sýn su. 12/1, gul kort, UPPSELT
Aukasýning þri. 14/1, UPPSELT
3. sýn. fö. 17/1 kl. 20, rauð kort
4. sýn. lau. 18/1 kl. 20, græn kort
5. sýn. fó. 24/1 kl. 20. blá kort
Lau. 25/1 kl. 20
Fö. 31/1 kl. 20
Lau. 1/2 kl. 20
SÖLUMAÐUR DEYR
e. Arthur Miller
Su. 19/1 kl. 20
Su. 26/1 kl. 20
Fi. 30/1 kl. 20
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
HONKl UÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles ogAnthony Drewe
Gamansöngleikurfyrir allafjölskylduna.
Su. 12/1 kl. 14
Su. 19/1 kl. 14
Su. 26/1 kl. 14__________________
NÝJA SVIÐ
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
Frekar erótískt leiktrit íprem páttum
e. Gabor Rassov
Lau. 11/1 kl. 20
Fö. 17/1 kl. 20
Lau. 25/1 kl. 20
Fö. 31/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
KVETCH eftir Steven Berkojf
i SAMSTARFI VIÐ Á SENUNNI
Lau. 18/1 kl. 21
Su. 26/1 kl. 21
Ath. breyttan sýningartíma
ÞRIÐJA HÆÐIN
HERPINGUR eftirAuðiHaralds
HINN FULLKOMNI MAÐUR
eftir Mikael Torfason
f samstarfi VIÐ DRAUMASMIÐJUNA
í kvöld kl. 20
SÍÐASTA SÝNING
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OGJÚLÍA e. Shakespeare
f SAMSTARFI VIO VESTURPORT
Fö. 10/1 kl. 20
Mi. 15/1 kl. 20
Lau. 18/1 kl. 19
ALLIR í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsid i
fylgd með forráðamönnum.
(Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.)