Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003
21
HANPBOLTI
CflED B P®t2SjÚ
ísland á að komast
í átta liða úrslitin
- segir Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari
Þorbergur Aðalsteinsson er flest-
um handboltaáhugamönnum að
góðu kunnur. Hann lék með landslið-
inu hér á árum áður og varð síðar
landsliðsþjáifari. Þegar heimsmeist-
aramótið var haldið hér á landi 1995
stýrði hann liðinu.
Þorbergur fylgist náið með hand-
boltanum í dag og þá ekki síður
landsliðinu en í fyrra fór hann á Evr-
ópumótið í Svíþjóð til að horfa á
leiki íslenska liðsins í keppninni.
Þorbergur sagði að sér litist vel á
heimsmeistaramótið og teldi að ís-
lenska liðið hefði fulla burði til að ná
öðru sætinu í sínum riðli og ef það
gengi eftir færi liðið líklega með
Túnis og Póllandi í milliriðilinn.
Annars er erfitt að spá í framhaldið
og maður á eftir að sjá hvemig mál-
in þróast þegar fram í sækir.
Meiöslin þaö neikvæöa
- Hvernig hefur þér litist á und-
irbúning liðsins fyrir heimsmeist-
aramótið?
„Uppsetningin á honum var eins
góður og hægt var, leiknir voru al-
vöruleikir og liðið fékk svipaðan
undirbúning fyrir keppnina og önn-
ur lið. Það neikvæða í undirbúningn-
um var að nokkir leikmenn áttu við
meiðsl að stríða og gátu þess vegna
ekki tekið þátt í honum af fullum
krafti. Það er bara ekkert hægt að
ráða við það en segja má einnig að
undirbúningurinn sé með svipuðum
hætti og fyrir Evrópumótið í fyrra.
Þá komu menn frískari inn, engin
átti í meiðslum og þá virtis| léttara
yfir mannskapnum. Núna geíur liðið
spilað sig inn í mótið en það á til-
tölulega tvo létta leiki í byrjun. Ég
hef í sjálfu sér engar áhyggjur af að
liðið standi sig ekki í keppninni. Mér
finnst að liðið eigi og hafi getu til að
komast í 8-liða úrslit en þegar þang-
að er komið gæti róðurinn farið að
þyngjast til muna og þá verður að
fara að spá i spilin upp á nýtt.“
- Hópurinn er nánast sami og i
fyrra en sérðu einhvern mun á
honum samt?
„Mér finnst kannski að varnarleik-
urinn hafi ekki skilað sér nægilega
vel í samanburði við Evrópumótið í
fyrra. Við megum samt ekki gleyma
því að það gekk á ýmsu fyrir mótið í
fyrra en liðinu tókst að slípa sig
saman áður en keppnin hófst. Sigfús
Sigurðsson kom þá inn með afger-
andi hætti en nú hafa smávægileg
meiðsl verið að angra harrn en það
stendur allt til bóta. Núna þekkja
hann allir og liðin munu hafa góðar
gætur á honum og það skiptir miklu
að hann leiki af fullri getu og þá al-
veg sérstaklega í vörninni. Það er
brýnt að hann og Rúnar Sigtryggsson
nái vel saman en samvinna þeirra á
Evrópumótinu var einstök og vó
þungt í framgöngu liðsins, Vegna
meiðsla hefur sóknarleikurinn ekki
flotið eins og vera ber en Guðmund-
ur Guðmundsson hefur enn fremur
komið inn með nýjungar og það tek-
ur tíma fyrir liðið að aðlagast þeim.
Guðjón leikur betur
Mér finnst Guðjón Valur Sigurðs-
son leika betur en í fyrra en Einar
Örn Jónsson hefur ekki náð sér alveg
nógu vel á strik en ég er viss um að
það á eftir að koma. Mér finnst að
gengi liðsins velti töluvert á leik-
stjórnandanum og eins því að Sigfús
leiki á sínum styrk. Patrekur Jó-
hannesson og Ólafur Stefánsson
þurfa að skila heilmikilli vinnu og
það gera þeir ábyggilega, félagarn-
ir.“
- Það er að heyra að þú sért
hvergi banginn fyrir heimsmeist-
aramótið?
„Nei, það er ég ekki. Eins og ég
segi á að liðið að fara beint í 8-liða
úrslit og síðan er það dagsformið á
ákveðnum tímapunkti hvort liðið
smellur inn í fiögurra liða úrslitin.
Ég hef ekki trú á öðru en að liðið
komi til með aö berjast um Ólympíu-
sæti.“
- Kljást sömu þjóðir og áður um
efstu sœtin?
„í fljótu bragði áttar maður sig
ekki alveg á því en það kæmi mér
samt ekki á óvart. Það gætu allt eins
gerst óvæntir hlutir og ég held að
aldrei hafi fleiri þjóðir átt möguleika
á því aö verða heimsmeistarar.
Tími Spánverja kominn
Það má búast við að Danir og Þjóð-
verjar verði framarlega og núverandi
heimsmeistarar Frakka eru alltaf
sterkir. Júgóslavar geta einnig bitið
frá sér og ekki má gleyma Spánverj-
um og aldrei að vita nema þeirra
tími sé kominn. En viö getum sagt
að þeir séu nánast á heimavelli og
óvíst er hvernig Svíunum á eftir að
reiða af.
Ég hef það á tilfinningunni að
þetta geti orðið mjög skemmtilegt
mót. Ég er bjartsýnn á gengi íslenska
liðsins og með eðlilegri vinnu á lið-
inu ekkert að verða að vanbúnaði að
komast í 8-liða úrslit.
Eftir það horfa menn til Ólympíu-
sætis og það hlýtur að vera markmið
liðsins áður flautað verður til leiks.
Mannskapurinn veit alveg upp á hár
út í hvaða vinnu hann er að fara.
Stór hluti leikmanna er búinn að
leika saman frá yngri landsliðum
upp í A-lið og það hlýtur að skipta
máli.
Þetta er reynslumikið lið og það
eru fá lið sem hafa yfir jafnmikilli
reynslu að ráöa. Svíar og Danir eru á
svipuðu reki í þeim samanburði,"
sagði Þorbergur Aðalsteinsson sem
sagðist hafa mikinn áhuga á að fara
á mótið og fylgjast með íslenska lið-
inu en tíminn yrði að leiða í ijós
hvort af því yrði. -JKS
HANDBOLTI J
m\ 0 p®[im!)qæ\S/ ■
Þýski netveöbankinn BetandWin.de
hefur mikla trú á sínum mönnum í
heimsmeistarakeppninni í Portúgal.
Þeir eru með Þjóðverja efsta á blaði í B-
riöli keppninnar með stuðulinn 1,22.
Næstir koma íslendingar með stuðulinn
4,50 og Portúgalar eru þriðju með stuð-
ulinn 5. Þjóðverjamir hafa litla trú á
Grænlendingum, Áströlum og Katar-
mönnum en stuðullinn á þessum lönd-
um er 200 á Grænlandi og Ástralíu og
250 á Katar.
Þeir hafa einnig trú á því að Þjóðverj-
ar fari heim með heimsmeistaratitilinn
í farteskinu því að þegar kemur að því
að spá um heimsmeistarana þá eru Þjóð-
verjar þar efstir á blaði með stuðulinn
3,50. Rússar koma næstir með 4,25 og
Danir þriðju með 4,50. íslendingar eru í
níunda sæti með stuðulinn 25 en í næstu
sætum fyrir neðan tslendinga eru Tún-
is, Egyptaland, Portúgal og Slóvenia.
Spánverjar léku lokaleik sinn fyrir
heimsmeistarakeppnina í Portúgal á
föstudagskvöldið þegar þeir mættu
spænska 1. deildar liöinu Cangas,
hverju Hilmar Þórlindsson leikur með.
Spænska landsliðið fór með sigur af
hólmi, 28-19, eftir að staðan hafði verið
jöfn, 14-14, í hálfleik. Alberto Entrerrios
var markahæstur hjá Spánverjum með
átta mörk og þeir Talant Dujshebaev og
Antonio Ortega Perez skoruðu fjögur
mörk hvor.
Frakkar spiluðu einnig sinn síðasta
leik fyrir HMá íostudagskvöldið þegar
þeir mættu spænska liðinu Pampelune á
Spáni. Frakkar fóru með sigur af hólmi,
30-25, eftir að hafa verið undir 1 hálfleik,
14-11. Linumaðurinn Bertrand Gille var
markahæstur hjá Frökkum með átta
mörk, Daniel Narcisse skoraði fjögur
mörk og þeir Joel Abati, félagi Ólafs
Stefánssoanr og Sigfúsar Sigurðssonar
hjá Magdeburg, og stórskyttan Jerome
Femandez skoruðu þrjú mörk.
Portúgalar, sem leika með Islending-
um i B-riöli HM, unnu auðveldan sigur
á Sádi-Arabíu, 32-24, í síðasta æflnga-
leik sínum fyrir keppnina á föstudags-
kvöldið. Rui Rocha og Victor Tchikoula-
ev skoruðu mest fyrir Portúgala, fimm
mörk hvor, og þeir Filipe Cmz, Luis
Gomes og Álvaro Martins skomðu fjög-
ur mörk hver. Hussain A1 Akhwan var
markahæstur Sádanna með sjö mörk í
leiknum. -ósk
Dómarar frá
smáþjóðum
vandamál
Joachim Boldsen, fyrirliöi
danska landsliðsins í handknatt-
leik, hræöist ekki margt í heims-
meistarakeppninni í Portúgal
nema ef vera skyldi dómarar frá
smærri þjóðum. Hann telur að
Danir myndu klárlega verða
heimsmeistarar ef þeir spiluðu á
heimavelli, bæði vegna stuðn-
ings áhorfenda og dómara sem
eiga það til að snúast á sveif með
heimaliöinu líkt og gerðist í úr-
slitaleik EM í fyrra þar sem
sigrinum var stolið af Þjóðverj-
um að mati Boldsen þegar lög-
legt mark var dæmt af þeim und-
ir lokin og Svíar tryggöu sér sig-
ur.
„Ég held samt að Portúgalar
muni ekki græða á heimavellin-
um þegar kemur að því að deila
út gullinu, þeir eru of lélegir til
þess,“ sagði Boldsen.
Hann segir að dómararnir geti
samt auðveldlega verið áttundi
andstæðingurinn í mótinu.
„Við munum fá dómara frá
litlum og óþekktum löndum í
riðlakeppninni. Það gæti skapað
vandamál því að margir þeirra
hafa varla séð handbolta. Ég sé
fram á að þetta geti orðið sama
vandamál og í heimsmeistara-
keppninni í fótbolta síðastliðið
sumar þegar dómarar frá litlum
löndum með enga hefð eyðilögðu
heilu leikina. Alþjóða hand-
knattleikssambandið vill að
dómaramir komi frá sem flest-
um löndum og þýðir aö nokkrir
vonlausir dómarar fljóta með.
Við skulum bara vona að þeir
verði jafnlélegir fyrir bæði lið,“
sagði Boldsen og bætti við að
það væri í raun aðeins ein leið
til að leysa slík vandamál þegar
þau kæmu upp og það væri að
vera betri en mótherjinn. -ósk
Ólafur líklegur
markakóngur
Þýski landsliðsmarkvörður-
inn Henning Fritz telur Ólaf
Stefánsson vera einn af þeim
fimm leikmönnum sem líklegast-
ir eru til að verða markakóngar
heimsmeistarakeppninnar í
Portúgal. Fritz spilar með þýska
liðinu Kiel og lék áður með Mag-
deburg þannig að hann þekkir
Ólaf vel. Hann segir að Ólafur sé
martröð markvarða því fjöl-
breytileiki hans í skotum sé svo
mikill. Auk Ólafs telur Fritz lík-
legt að Túnisbúinn Shioud Sob-
hi, sem leikur með Montpellier í
Frakklandi, en Fritz segir hann
vera skotfastasta leikmann í
heiminum í dag, Svíinn Stefan
Lövgren, félagi Fritz hjá Kiel,
Frakkinn Jackson Richardson
og Daninn Lars Christiansen,
sem leikur með Flensburg í
Þýskalandi, muni koma til að
berjast um markakóngstitilinn á
HM.
Samkvæmt þýska netveðbank-
anum BetandWin.de þykir Sví-
inn Stefan Lövgren vera likleg-
astur til að verða markakóngur.
í ööru sæti er Ólafur Stefánsson
og i þriðja Daninn Lars Christi-
ansen. Patrekur Jóhannesson er
í tólfta sæti listans. -ósk
Barnastærð: kr. 4.990
Fullorðinsstærð: kr. 5.990