Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Blaðsíða 18
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003
Sport
DV
Dakar-rallinu 2003 lauk um helgina í Egyptalandi:
Meistari Masuoka
- bar sigur úr býtum í bílaflokki Dakar-rallsins eftir hörkukeppni við Stephane Peterhansel
DV-Sharm el Sheikh, Egyptalandi:
Japanski ökuþórinn Hiroshi Ma-
suoka og aðstoðarökumaður hans,
Þjóðverjinn Andreas Schulz, á
-á Mitsubishi urðu sigurvegarar í Dak-
ar-rallinu 2003 sem lauk í Sharm E1
Sheikh á sudurodda Sinai-skaga á
sunnudag.
Dakar-rallið er ein erfiðasta akst-
urskeppni sem haldin er í veröld-
inni en ökuleiðin er að stærstum
hluta í eyðimerkursöndum Sahara
og Sinai-skaga. Ökumennimir voru
þvi að vonum bæöi slæptir og úr-
vinda að lokinni keppni i gær, ekki
síst mótorhjólamennimir sem þátt
tóku, en að aka á mótorhjóli á
100-160 km hraða yfir stokka og
steina í steikjandi hita og ryki
meira og minna standandi á hjólinu
300-400 km vegalengd er ekki neitt
létt verk.
DV var á staðnum þegar keppend-
ur komu í mark í næstsíðasta
áfanga keppninnar á laugardag og
einnig þegar keppendur komu í
mark við lok keppninnar. Næstsíð-
asti áfanginn á laugardag, sá sext-
ándi í keppninni, var mjög erfiður
áfangi og í honum réðust úrslitin.
Sérleiðin í þessum áfanga var 365
km löng og torfarin og varasöm í
alla staði. Hún lá frá stað sem nefn-
ist Abu Rish til Sharm E1 Sheikh á
sudurodda Sinai-skaga. Þeir félagar
Masuoka og Schulz voru í raun bún-
ir að tryggja sér sigur og óku því
þessa erfiðu leið af varfæmi og
I komu sjöttu í mark.
Allra síðasta sérleiðin var i raun-
inni ekki neitt neitt miðað við það
sem á undan er gengið, eða aðeins
hringur í eyöimörkinni skammt ut-
an við Sharm E1 Sheik. Hún var því
auðveldur leikur fyrir sigurvegar-
ana og það var rafmögnuð stemning
á verðlaunapallinum þegar þeir Ma-
suoka og Schulz óku upp á pallinn
og stigu út úr bílnum. Þar var þeim
fagnað af samgöngumálaráðherra
Egyptalands og helstu stjómendum
Mitsubishi í Evrópu og fleiri stór-
mennum.
Mitsubishi-liöið hefur staðið sig
aíbragðsvel í þessari keppni. En
heppnin var ekki með þeim öllum
jafnt og á næstsíðustu sérleiðinni
sem áður er nefnd, þá neyddust þeir
Stephane Peterhansel og Jean-Paul
Cottret til að stansa í tvigang vegna
vatnskassaleka sem var ein afleið-
ing árekstrar við stóran stein. í
þeim árekstri eyðilagðist afturhjól
undir Mitsubishi Pajero Evolution
bU Peterhansels. Við þennan árekst-
ur og vegna afleiðinga hans -
viðgerða og hjólaskipta og síðan
vantskassalekans fyrmefnda, urðu
vonir Peterhansels um sigur að
engu, en fram að þeim tíma sem
óhappið varð hafði hann verið í for-
ystu í keppninni frá fyrsta degi
hennar, þann 2. janúar síðastliðinn
í MarseUle í Frakklandi.
Óhappið sem gerði sigurvonir
Peterhansels og Cottrets að engu
varð um 45 km frá enda sérleiðar-
innar umræddu. Hann var þá að
taka fram úr Belganum Stephane
Henrard í geysUegu ryki og sá ekki
steininn. Þetta óhapp er sams konar
og óhapp sem félagi hans i Mitsubis-
hi-liðinu og sigurvegari Dakar-raUs-
ins að þessu sinni, Masuoka, varð
fyrir í sömu keppni árið 2001 og
kostaði hann sigurinn í það skipti.
En í þetta skipti brosti gæfan við
honum en ekki við Peterhansel
félaga hans í Mitsubishi-liðinu.
Unglingalandsmót
UMFI 2003 á ísafirði
-y J
Stjóm Ungmennafélags íslands ákvað um helgina að Unglingalandsmót
UMFÍ 2003 verði haldið í Ísaíjarðarbæ. Mótið verður um verslunarmannahelg-
ina og má búast við á annað þúsund keppendum. Fimm umsóknir bámst um
að fá að halda mótið. Eftir að hafa skoðað aðstæður og fleira varð niðurstaðan
sú að tveir staðir væru áliflegastir, ísafjarðarbær og Dalvíkurbyggð. Það var
síðan umsókn Héraðssambands Vestfirðinga sem varð að lokum hlutskörpust.
Unglingalandsmót UMFÍ 2002 var haldið í Stykkishólmi með 1300 keppend-
um og á milli 6 og 7000 gestum. Stefnt er að því að Unglingalandsmótið í ár
verði fjölbreytt íþrótta- og fjölskylduskemmtun þar sem keppt verður í fjölda
íþróttagreina auk þess sem ýmiss konar menning og fjölbreytt afþreying og
skemmtiatriði verða í boði. -vig
sions
KORFUBOLTI J r
G3 B & ; *IL'
Úrslit á fóstudag:
Philadelphia-Milwaukee . . 95-99
Van Hom 22, Snow 18, Iverson 17,
Skinner 17 - Redd 22, R. Allen 21,
Cassell 12, T. Thomas 11, Kukoc 11.
Boston-Indiana.............98-93
Walker 31, Pierce 31, Bremer 12 - J.
O’Neal 22, A. Harrington 18, B. Miller
13, Mercer 12, R. Miller 11.
New Jersey-Toronto........88-77
Kidd 18, Jefferson 15, Martin 13 -
Peterson 20, A. Davis 11, McCoy 11.
Detroit-New York...........99-82
C. Robinson 22, Hamilton 16, Billups
16, Williamson 15 - S. Anderson 16, K.
Thomas 16, Sprewell 11.
New Orleans-Chicago.......90-83
Wesley 34, Mashburn 16, Magloire 15 -
Rose 21, Marshall 14, E. Robinson 13.
San Antonio-Atlanta .... 106-93
Duncan 27, Parker 19, M. Rose 16,
Ginobili 13 - Terry 21, Abdur-Rahim
17, Ratliff 16, Mohammed 12.
Denver-Cleveland...........97-80
Howard 25, White 23, L. Harrington 11
- Ilgauskas 26, Boozer 16, R. Davis 12.
Phoenix-Dallas...........111-106
Marbury 41. Johnson 20, Marion 16,
Jacobsen 12 - Nash 32, Nowitzki 20,
Finley 13, LaFrentz 11, Van Exel 11.
Houston-LA Lakers.......104-108
Francis 44, Mobley 29, Ming 10 -
O’Neal 31, Bryant 22, Fisher 14, Fox 13.
Seattle-Memphis........ 103-97
Payton 27, Lewis 24, D. Mason 20 - Gasol
21, Wright 21, Gooden 15, Giricek 13.
Golden State-Minnesota . . 107-98
Boykins 28, Jamison 23, Arenas 16 -
Gamett 22, Gill 14, J. Smith 13.
Úrslit á laugardag:
Washington-Philadelphia .. 80-88
Jordan 25, Dixon 19, Haywood 10 -
Iverson 26, Snow 19, Van Hom 17,
McKie 10.
Atlanta-New York ..........92-95
G. Robinson 27, Terry 17, Abdur-
Rahim 14 - Houston 24,
Weatherspoon 12, O. Harrington 12.
Indiana-Detroit ...........88-86
R. Miller 21, Artest 19, B. Miller 19, J.
O’Neal 17 - Billups 21, Hamilton 16,
C. Robinson 12, J. Barry 12.
Miami-Chicago............102-101
M. Allen 23, C. Butler 18, E. Jones 15,
Grant 14, James 14 - J. Rose 30,
Marshall 24, Fizer 16, Crawford 15.
Milwaukee-Boston...........95-97
T. Thomas 22, Cassell 20, R. Allen 13,
Redd 12, E. Johnson 12 - Walker 25,
Pierce 14, K. Brown 14, McCarty 14.
Ctah-Cleveland ............95-78
Harpring 22, Cheaney 13, Malone 12,
KirUenko 12, Padgett 10 - R. Davis 25,
Ugauskas 21, Boozer 14, J. Jones 10.
Portland-Minnesota.......98-104
Wells 32, D. Anderson 19, Sabonis 11
- Gamett 31, Szczerbiak 16, J. Smith
12, R. Strickland 12, Nesterovic 10.
LA Clippers-Sacramento . 112-107
Brand 34, Odom 24, Maggette 21, A.
MiUer 14 - Stojakovic 37, Divac 24,
Webber 22, J. Jackson 10. -ósk
íþróttasamband íslands úthlutar styrkjum til afreksstarfs:
62 milljónir
- renna samtals til sérsambanda. Framlag aldrei verið hærra
Styrkveitingar ÍSÍ til sérsambanda
landsins nema samtals rúmlega 62
milljónum. Aldrei hefur þessi upphæð
verið hærri en nú og má meðal ann-
ars nefna að 22 milljónir af þessum
styrkjum renna til hópíþrótta sem er
aukning frá því sem áður hefur verið.
í tilkynningu frá íþróttasambandi
íslands segir að ástæða fyrir auknu
fjárframlagi sé m.a. aukinn styrkur
Alþingis vegna hópíþrótta, góður
A stuðningur fyrirtækjanna í Ólympíu-
fjölskyldunni, þ.e. íslandsbanka, Visa,
Sjóvá/Almennra, Icelandair og Aust-
urbakka, og bætt staða Afrekssjóðs
vegna aukningar á hagnaði ÍSÍ af
lottósölu, en Afrekssjóður fær 8% af
lottóhagnaði ÍSÍ til ráðstöfunar á
hveiju ári.
- Þá kemur verulegt framlag frá
** Ólympíusamhjálp Alþjóða Ólympiu-
nefndarinnar einnig til góða. Með
þessum fjárframlögum sé grundvöllur
afreksstarfs styrktur verulega.
Fimm í A-flokki
Handknattleikssamband islands
fær hæsta styrkinn af einstökum sér-
samböndum, alls 14,2 milljónir króna.
Karlalandsliðið í handknattleik fær
12,5 miljjónir af því vegna undirbún-
ingsins fyrir heimsmeistaramótið í
Portúgal sem hefst í dag. Knatt-
spymusamband íslands fær 5 milljón-
ir króna og Körfuknattleikssamband-
ið 2,9 milljónir.
Af öðrum sérsambömdum má nefna
að Frjálsiþróttasambandið fær styrki
upp á rúmar 9 milljónir, Sundsam-
bandið rúmar fimm milljónir og Júdó-
sambandið rétt rúmar 4 milljónir. Af
einstökum íþróttamönnum eru það
fimm manns sem fá svokallaðan A-
styrk. Þau eru fijálsíþróttafólkiö Jón
Amar Magnússon, Vala Flosadóttir
og Þórey Edda Elísdóttir, júdómaður-
inn Vemharð Þorleifsson og sund-
maðurinn Örn Arnarson. í næsta
styrktarflokki fyrir neðan em m.a.
sundmaðurinn Jakob Jóhann Sveins-
son og badmintonkonan Sara Jóns-
dóttir.
Ekki nóg
En þrátt fyrir að styrkveitingamar
hafi aldrei verið meiri þá dugir það
ekki til þess að koma til móts við all-
ar óskir sérsambandanna. Samtals
sóttu þau um styrki að upphæð 215
milljónir að þessu sinni.
Viðbótarstyrkjum veröur úthlutað í
vor til þeirra sérsambanda sem senda
íþróttamenn á Smáþjóðaleikana á
Möltú, en ÍSÍ reiknar með að greiða á
milli 60 og 70% af kostnaði vegna þátt-
töku í leikunum. -vig
Jörundur Áki Sveinsson og stúlkurnar hans í kvennalandsliöinu í
knattspyrnu fengu veglegan styrk frá Afrekssjóöi ÍSÍ.