Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2003, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003
M.
agasm
Á ekki garð sjálfur
Töluverða athygli hefur vakið í Bretlandi að nýr umsjón-
armaður þáttar um garðyrkju á bresku sjónvarpsstöðinni
BBC 2 á ekki garð sjálfur.
Þessi staðreynd hefur vakið upp umræður þess efnis
hvort umsjónarmaðurinn sé hæfur til að stjóma þættinum.
Sjálfur segist hann í stakk búinn til að takast á við verkefn-
ið og ef hann nái að veröa mjög vinsæll sjónvarpsmaður sé
aldrei aö vita nema hann geti keypt sér einbýlishús meö
stórum garði. Umsjónarmaðurinn, hinn 35 ára Chris Coll-
ins, hefur starfað sem garðyrkjumaður í 18 ár.
Andstæðingunum úthýst
Ákveðinn ungur Dani, sem rekur pitsustað í dönskum ferða-
mannabæ, hefur ákveðið að banna Frökkum og Þjóðverjum að-
gang að veitingastað sínum. Þetta gerir Daninn vegna afstöðu
Frakka og Þjóðveija til hugsanlegst stríös í írak en sem kunn-
ugt hafa þessar tvær þjóðir lagst hart gegn fyrirhuguðum árás-
um Bandarikjamanna á írak. Reyndar fara Frakkar heldur verr
út úr þessu banni Danans því þeir eru að hans sögn komnir í
„ævilangt bann“ vegna afstöðu þeirra til Bandaríkjanna. Það
kemur í ljós þegar ferðamenn taka að streyma til Danmerkur
upp úr páskum hvort Daninn verður af miklum viðskiptum.
Sex í 27 tíma leikriti
Leikrit sem ber nafniö „Sex“ hefur vakið mikið umtal í
spænskum fjölmiðlum. Leikritið stendur yfir samfleytt í 27
klukkustundir og geta áhorfendur gengið út og inn að vild
á meðan á maraþonsýningunni stendur.
Ekkert hlé er gert á sýningu leikritsins sem stendur yfir
frá klukkan átta á laugardagskvöldi og lýkur klukkan ellefu
á sunnudagskvöldi. Leikarar eru fjórir, tveir karlmenn og
tvær konur. Leikararnir sofa og borða og það sem fer mest
fyrir brjóstið á gagnrýnendum er að leikararnir njóta raun-
verulegs kynlífs sem væru þeir heima hjá sér.
Helqarblaö
Skemmtilegheit
og svartir listar
í Helgarblaði DV verður meðal
annars rætt viö Kolbein Ketils-
son óperusöngvara en hann syng-
ur um þessar mundir titilhlut-
verkiö í óperunni Don Carlos í
Konunglegu dönsku ópenmni í
Kaupmannahöfn. Jóhann Bach-
mann hefur barið húðir í Skíta-
móral og írafári, auk þess sem
hann er unnusti Birgittu Hauk-
dal. í viðtali viö Helgarblað DV
segir hann meðal annars frá
skrautlegum bransanum.
í Helgarblaðinu verður fjallað
um svörtu listana i Bandaríkjun-
um sem útiloka 1000 manns frá
því að feröast með flugvélum.
Fjallað veröur um drykkju-
venjur James Bond og litið yfir
ógeðfelldan feril raðmorðingjans
Charles Manson.
DV spurði í skoðanakönnun
fyrr I vikunni um hver væri
skemmtilegasti maður íslands.
Úrslitin verða birt í Helgarblað-
inu. Einnig mega lesendur eiga
von á óvæntiun og áhugaverðum
greinum um fréttir líðandi
stundu.
Listakonan. „Fyrir svo utan að hafa gaman af því aö gera myndir af gömlum húsum er ég nú farln að leggja mig
eftir að gera tepokamyndir af vitum,“ segir Þórdís Þórðar á Eyrarbakka hér í viðtalinu. Magasín-mynd NH
Listakona á Eyrarbakka málar á tepoka:
húsin í mynd-
grisjupokum
Gömlu
um á
„Möguleikamir í listinni eru nán-
ast ótæmandi og sjálfsagt eru ekki
margir sem hafa reynt fyrir sér í
því að mála á tepoka. Vinkona mín
hér á Eyrarbakka, Inga Lára Bald-
vinsdóttir, er mikil tedrykkjukona.
Var það upphaflega hún sem kom
mér á sporið með að nota grisjupok-
ana og mála á þá en þaðhefur kom-
iö svona skemmtilega út,“ segir Þór-
dís Þórðar listakona á Eyrarbakka
en hún sýndi verk sín i Reykjavík á
dögunum.
Hlutföllin eru vandaverk
Innan í ramma og á svörtum
pappír eru tepokamyndir Þórdísar
sem er fjórir cm sinnum sex cm á
stærð. „Mér finnst sérstaklega gam-
an að mála gömul hús og nægar eru
fyrirmyndimar hér á Eyrarbakka.
Aldamótahús eru hér á hverju strái
og eru í raun aðalsmerki byggðar-
lagsins,“ segir Þórdís.
Við hverja mynd eru svo spak-
mæli sem hæfa myndefninu og and-
blæ þess. „Starfsfólk nokkurra kaffi-
húsa hefur verið að safna tepokun-
um saman fyrir mig, sem ég síðan
spretti upp, þurrka og strauja að
lokum,“ segir Þórdís sem málar
myndir sínar með pastellitum.
Hún segist - eins og kemur fram
hér að ofan - einkum leggja sig eft-
ir myndum af húsum, blómum og
fuglum og oft sé vandaverk að það
takist vel þegar hlutfóllin frá veru-
leika í mynd smækka svo mjög. Oft-
ast takist þetta hins vegar vel og séu
ánægðir listunnendur þar besti
vitnisburðurinn.
Vitar eru rómantískir
í samstarfi við Katrínu Ósk Þor-
geirsdóttur listakonu er Þórdís með
vinnustofu í frystihúsinu á Stokks-
eyri. Þar hafa fleiri listamenn raun-
ar eignast samastað, svo sem Elvar
. Guðni Þórðarson listmálari. Á síð-
asta ári gerði hann listaverkið
Brennið þið, vitar, sem er til minn-
ingar um Pál ísólfsson. Var það af-
hjúpað á síðasta ári og hefur vakið
athygli.
„Fyrir svo utan að hafa gaman af
þvi að gera myndir af gömlum hús-
um er ég nú farinn að leggja mig eft-
ir að gera tepokamyndir af vitum.
Nýlega gaf Siglingastofnun út
myndabók með öllum vitum lands-
ins og eftir fyrirmyndum þaðan hef
ég gert myndir af Knarrarós-, Garö-
skaga-, Grímseyjar- og Svörtulofta-
vita, svo ég nefni nú einhverja. Satt
að segja finnst mér vitar alltaf mjög
rómantiskir, þessir ljósgjafar á út-
nesjum landsins, og sjálf þekki ég
svo vel ljós þeirra eftir að hafa búið
lengi í litlu sjávarplássi," sagði Þór-
dís Þórðar, listakona á Eyrarbakka,
að siðustu.
-sbs