Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2003, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003
M
agasm
I>V
Draumabíllinrt minn
Nokkuð klassískt mælaborö í BMW. Öllu er
haganlega fyrir komiö og bíllinn lítur ótrúlega vel út
miöaö við aldur.
Ingvar Örn Ingvarsson á glæsilegan sportbíl, BMW M-5.
Bíllinn er árgerð 1990 og því um þrettán ára gamall. Við hitt-
um Ingvar að máli á dögunum og fengum að prófa gripinn.
Bíllinn startar eins og ekkert sé. Maður ýtir niður þéttri
kúplingu og setur i fyrsta.
Bensíngjöfin er pedali sem kemur frá gólfinu. Eins og það
á að vera. Maður heyrir linusexu-vélina urra pínulítið áður
enn maður sleppir kúplingunni. „Einmitt uppáhaldsvélin
min”, hugsaði ég. Kominn af staö. Ekkert hættulegt enn þá.
Fyrsti gírinn búinn og nú botna ég græjuna. Þrátt fyrir
hrottalegt afl er maður nokkuð öruggur við stjórnvölinn.
Stýrið er mjög næmt, ekki of, bara mátulegt. Bensíngjöfin hef-
ur mjög langa inngjöf, og alla leiðina niður í gólf finnur mað-
ur muninn. Hver sentímetri i viðbót bætir við krafti. Þó ég
hafi ekið nokkrum svokölluðum sportbílum hér á landi, hef-
ur enginn þeirra þetta upptak, þetta hljóð. Við 6500 snúninga
er ég kominn með gæsahúð um allt bak, þessir 3,6 lítrar skila
sér alveg. Ég klára hálfa þriðja gírinn, ekki hættir upptakið,
og svo þarf ég að slá af, til að halda í skírteinið. Hvílík sam-
setning. Svakaleg vél, fimm dyra, 315 hross og bamastóll. Það
eina sem er búið að breyta í útliti bílsins miðað við aðra 5XX
BMW er gráa sílsakittið, 2,5” pústið og M5-merkið að aftan.
Allur billinn er í upphaflegu standi, meira að segja felgurn-
ar eru upphaflegar BBS, 17” háar og 8” breiðar felgur að fram-
an og 17” sinnum 9” að aftan.
Handsmíðaður
Það sem meira er. Þessi bíll er handsmíðaður, þeir em það
reyndar ekki lengur. Bíllinn lýsir eiganda sínum vel. Lát-
laust tígrisdýr. Fjölskyldubíll? Ekki gott að segja.
„Þetta er einn af mest praktísku öflugu bílum
sem ég hef keyrt,“ segir Ingvar. En rekst-
urinn? „Þetta er mjög þægilegur
bíll í rekstri. Ég er búinn að
eiga bílinn í tvö ár
og það er
fyrst
núna sem eitthvað bilar, og það er
rúðuþurrkan, og bíllinn er árgerð
1990.“
Með 315 hestöfl er þetta greini-
lega enginn kettlingur. „Það er
svolítið gaman að spyrna við þessa
Vtec og GTI-bíla, þegar maður er
búinn með fyrsta gírinn er maður
kominn það langt frá þeim að mað-
ur nennir ekki að halda áfram,“ segir Ingvar. Eins og sést á
myndunum er þessi bíll að flestu leyti alveg eins og venjuleg-
ur BMW 5XX, svona „sleeper" þ.e. bíll sem er öflugri en hann
virðist vera.
leit að peningum
„Fyrst þegar ég keyrði norður var ég einmitt að segja kon-
unni hvað það væri notalegt að vera á öflugasta bílnum.
Ekkert sértstakt með það nema að fimm mínútum seinna «
mættum við Dodge Viper."
Ingvar leyfði DV-Magasíni
að aka bílnum.
Reyndist
þetta vera
bjam-
Oldungurinn er glæsllegur aö innan og allt úr leöri.
greiði. Undirritaður er nú að leita í öllum krók-
um og kimum í von um að finna pening, bíllinn
^ er nefnilega til sölu. „Já, svona er þetta þegar
nýir fjölskyldumeðlimir eru að bætast í hóp-
inn. Ekki bætir úr skák að við vorum að
kaupa íbúð i miðbænum. Þennan bíl
ætlaði ég mér að eiga alla ævina,
þetta er einn af draumabilunum
rninum," sagði Ingvaf að lokum
-DÞÓ
ar-
BMW
Irillið er mjög fallegt og stílhreint og BMW-merklö
á sínum staö.
Rokkurinn er rosalegur, svokölluö línusexa sem
skilar 315 hestöflum.
E-34
Vél: 3,6 lítra 315 hestöfl
línusexa.
Beinskiptur 5 gíra.
Hröðun: 6,3 í lOOkm/klst.
Þyngd: 1700kg.
Fimm dyra.
Leðursæti, -stýri og -
^girstöng.
Ingvar Örn Ingvarsson á glæsilegan sportbíl -
BMW M5:
„Þetta er mjög þægilegur bíll í i
er búinn aö elga hann i tvó ár og þaoer fyrst núna
rekstri. Eg
núna sem eitt-
hvaö bllar og það er rúöuþurrkan, óg bíllinn er árgerö 1990,“
segir Ingvar Orn Ingvarsson sem stendur hér stoltur hjá BMW
M5-sportbílnum.
Lótlaust
tígrisdýr