Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2003, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2003, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 agasm I>V — Árínu eldri Þuriöur Pálsdóttir söngkona er 76 ára ll. mars. Hún er ein frægasta söngdúfa landsins bæði sem ein- söngvari og hefur verið söng- kennari í áratugi. Þá hefur hún mikið komið að félagsmálum, var lengi í Þjóðleikhúsráði og starfaði í Sjálfstæðisflokknum. Kristjana Vagnsdóttir, húsmóðir á Þingeyri, er 72 ára 8. mars. Vagns- systumar í kauptúninu við Dýrafjörð eru nokkrar og vel kunnar. Þær leggja orð í belg í ýmsum málum - og tíð- um heyrast á öldum ljósvakans kveðjur frá þeim og óskalög. Július Haf- stein, fyrrver- andi borgar- fulltrúi, er 56 ára 6. mars. Hann er af hinni kunnu sýslumanns- ætt frá Húsa- vík, var í nokkur ár borgarfulltrúi og í framvarðarsveit íþróttahreyf- ingarinnar. Hefur komið að mörgu öðru, var m.a. fram- kvæmdastjóri Kristnihátíðar á Þingvöllum. Signý Páls- dóttir leik- kona er 53 ára 11. mars. Á sínum ferli hefur hún all- víða komið við, en leiklist alltaf verið rauði þráður- inn. Verið leikhússtjóri, en síð- ustu ár menningarstjóri Reykjavíkurborgar en borgin er aflvaki margs í kúnstinni í höfuöstað landsins. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur á Borg á Mýr- um, er 49 ára 10. mars. Hann hefur verið sálnahirðir Borgnesinga í allmörg ár og um skeið biskupsritari. Lang- afabam sr. Áma prests á Stóra-Hrauni og bróðir Þórólfs borgarstjóra og áður Tal-stjóra. Karl Eskil Pálsson, fréttamaður RÚV á Akur- eyri, er 46 ára 6. mars. Hann er Sigl- firðingur að upplagi og bjó þar lengi, stússaðist m.a. 1 verslunar- rekstri. Fór svo að starfa við fjölmiðlun og segir okkur tíð- indi af mannlífi og móral norð- an heiða. Páll Ket- ilsson, rit- stjóri Víkur- frétta í Kefla- vík, er 41 árs 7. mars. Hann hefur lengi gefið út víðlesnasta blaðið suður með sjó - og er núna einnig far- inn að hasla sér völl með út- gáfu í Firðinum. Hann er mik- ill goifari - og fimur með kylf- ur og hvítar kúlur. Marta Nordal leik- kona er 33 ára 12. mars. Hún hefur starfað við öll þrjú atvinnu- leikhús landsins. í vetur hefur hún leikið i Sölumaður deyr í Borgarleikhúsinu og Jóni Oddi og Jóni Bjama sem er sýnt í Þjóðleikhúsinu. Páll Magnússon, aðstoðarm. iðnaðarráð- herra, er 32 ára 12. mars. Guðfræði las hann í Há- skólanum - og kemur ef til vill með kristilegt sjónar- hom inn í pólítík. Hann er í 2. sæti á iista Framsóknarflokks í Suðvesturkjördæmi - og verð- ur væntanlega orðinn þing- maður í vor. Nafn: Jarþrúður Ásmunds- dóttir. Aldur: 26 ára, fæddist á Húsavík en er uppalin í Reykjavfk. Maki og börn: Viggó Ás- geirsson. Hann er sagnfræði- menntaður og forstöðumaður vefdeildar Búnaðarbanka ís- lands. Menntun og starf: Ég er á þriðja ári í viðskiptafræði Helstu áhugamál og hvað gerir þú í frístundum: Það er náttúrlega námið og að gera góðan Háskóla betri. í frítímanum spila ég Risk og fer í gönguferðir með vinum mínum. Þar nefni ég til dæm- is Esjuna og Hengilssvæðið. Uppáhaldsmatur: Mér finnst ítalskur matur mjög góður. Svo er nautasteik alltaf góð. Uppáhaldsdrykkur: Vatn - það er engu líkt. Fallegasti staður á Is- landi: Snæfellsjökull, ég er ættuð af því svæði og finnst það mjög heillandi. Var einnig í sveit á þessum slóð- um sem stelpa og það hefur sín áhrif á þetta val mitt. Uppáhaldsstaður erlend- is: Miklagljúfur í Bandaríkj- unum. Hef gengið niður á botn þess. Gangan var strembin en upplifunin stór- kostleg. Með hvaða liði heldur þú í íþróttum: Horfi ekki á „Mér finnst ítalskur matur mjög góður. Svo er nautasteik alltaf góð,“ segir Jarþrúður Ásmundsdóttir. Hún er leiðtogi Vöku í Háskóla Islands sem vann sigur í stúdentaráðskosningnum á dögunum. Magasín-mynd ÞOK Gleðinni má mað ur aldrei tapa - segir Jarþrúöur Ásmundsdóttir, leiótogi Vöku íþróttir og ekkert lið er í eftirlæti hjá mér. Hins vegar bjó ég nokkur ár í Vesturbænum og því komst maður ekki hjá því að smitast af stemning- unni gagnvart KR sem er svo sterk i þeim borgar- hluta. Hvaða bók ertu með á náttborðinu: Það er sama bókin og var fyrir kosningabaráttuna. Það er LoveStar eftir Andra Snæ Magnason. Nú er törnin afstaðin og þá ætla ég að ljúka við bókina. Eftlrlætisrithöfundur: Ætli það sé ekki Andri Snser í augnablikinu. Eftirlætistónlistarmaður: Það er Miles Davis, sígildur og kemur alltaf með réttu stemninguna með lögum sínum. Fylgjandi eða andvíg ríkisstjórninni: Bæði og. Maður getur ekki verið fylgjandi öllum í þeim málum. Hvaða þjóðþrifamál á íslandi er brýnast að bæta úr: Ég myndi vilja sjá frekari skattalækk- anir. Hvernig eru þín ráð til þess að krydda hvunndagsleikann: Ég geri mér dagamun. Ég reyni að gera þá eitthvað skemmtilegt eins og að fara út og hitta skemmtilegt fólk. Hvað ætlaðir þú að gera þegar þú yrðir stór: Einu sinni ætlaði ég mér að verða flugmaður. Ég var mjög upptekin af þvi þegar ég var ung. Síðan varð viðskiptafræðin ofan á. Hver er tilgangur lífsins: Að halda í gleðina. Maður má aldrei tapa henni. -lrb Snaigé er snjall kostur »> Kælimiöill: R600a Kælivél: Danfoss, fl. Orkuflokkur: „A" Hávabi: 40 db(A)re 2pw Glerhillur Smjör- og ostahólf Tekur 2ja lítra flöskur í hurb 2 grænmetis- og ávaxtaskúffur Sterkur og sparneytinn Lágvær og laglegur : m Snainé RF-360 SnaiqeRF 315 Snaige RF-310 Snaige RF 300 Snaige RF-270 Snaige C 290 Snaige C-140 SnaigeR-130 191x60x60 cm 225+90 Itr. 69.900,- stgr. 173x60x60 cm 229+61 Itr. 58.900,- stgr. (stál 69.900,-) 173x60x60 cm 192+92 Itr. 59.900,- stgr. (stál 79.900,-) 163x60x60 cm 161+90 Itr. 58.900,- stgr. 145x60x60 cm 170+61 Itr. 49.900,- stgr. (stál 68.900,-) Snaigé KÆLI- OG FRYSTISKAPAR Ný sending ÓTRÚLEGA ÓDÝR ... 145x60x60 cm 85x56x60 cm 85x56x60 cm 145x60x60 cm 275 Itr. kælir 127 Itr. kælir 81+17 Itr. 196 Itr. frystir 39.900,- stgr. 28.900,- stgr. 29.900,- stgr. 48.900,- stgr. 85x56x60 cm 85 Itr. frystir 33.900,- stgr. #Frifonn ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - S(MI: 562 1500 Snaig'é / / / HAGÆÐASKAPAR A OTRULEGA HAGSTÆÐU VERÐI Þaö borgar sig ab versla í Fríform 0PIÐ: mánud.-föstud. 9-18 laugardaga 10-15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.