Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 17. MARS 2003
THfc'fy
Fréttir
Þorvaldur Gylfason um stööu íslands:
Landlæg óhagkvæmni
Þótt landsframleiðsla á mann á
íslandi sé með því mesta sem
þekkist í heiminum hrapar þjóðin
langt niður listann þegar litið er á
landsframleiðslu á hverja vinnu-
stund. Þetta er meðal þess sem
fram kom í fyrirlestri Þorvaldar
Gylfasonar, prófessors í hagfræði,
á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins.
Þorvaldur benti á að mun
hærra hlutfall íslensku þjóðarinn-
ar er á vinnumarkaði hér en að
meðaltali í ríkjum OECD. Hlutfall-
ið er yfir 80% hér en um það bil
65% að meðaltali í OECD-ríkjun-
um. Mestu munar um að miklu
fleiri konur eru úti á vinnumark-
aðnum hér en annars staöar. Við
þetta bætist svo að meðalstarfs-
maðurinn vinnur mun fleiri
stundir á ári á íslandi en í mörg-
um öðrum ríkjum, svo sem í Nor-
egi, Frakklandi, Svíþjóð og Bret-
Hálfíslensk kona
mypt á Flópída
Tæplega fertug íslensk-banda-
rísk kona var myrt af fyrrverandi
bandarískum eiginmanni sínum á
heimili sínu í Pensacola á Flórída
á föstudagsmorgun. Sextán ára
sonur hennar, sem á íslenskan
föður, fékk stungusár en komst
undan morðingjanum. Skaut árás-
armaðurinn piltinn í bakið þegar
hann ætlaði að sækja hjálp. Hann
komst inn í verslun þar nærri og
var svo fluttur þaðan með sjúkra-
bíl á sjúkrahús. Sonurinn komst
til meðvitundar á sjúkrahúsinu og
gat gefið lögreglu greinargóða lýs-
ingu á árásarmanninum sem
leiddi til handtöku á fyrrverandi
eiginmanni móður hans.
Drengurinn er á batavegi en
stjúpfaðir hans hefur margoft ver-
ið handtekinn vegna heimilisof-
beldis. Konan fékk nálgunarbann
á manninn í fyrra en lögskilnaður
þeirra gekk í gildi í nóvember.
Konan flutti frá íslandi til Banda-
ríkjanna ásamt syni sínum fyrir
um áratug, eftir skilnað við fóður
drengsins. Samkvæmt fréttum
Bylgjunnar hóf hún sambúð og
giftist Bandaríkjamanni sem sýndi
henni ofbeldi og slitu þau samvist-
um. Áreitni mannsins hélt þó
áfram og síðast í nóvember var
hann kæröur fyrir að bregða hnífi
á háls hennar. Hann var loks
dæmdur í nálgunarbann sem
hann rauf á fóstudag. Þá réðst
hann inn á heimili konunnar,
vopnaður byssu, og skaut hana til
bana. Sonur hennar komst út úr
íbúðinni og ætlaði að sækja hjálp
þegar árásarmaðurinn skaut hann
í bakið þannig að hann særðist al-
varlega. íslenskur faðir drengsins
mun nú á leið til Bandaríkjanna.
-HKr.
Landsframleiðsla á mann 2002
liBanciarikiadoHarar á verðlagi 1999)
Jf&njar
Bsksföfi'?;!,'
■ MannauðuP
. Skuldir
, Vinna _
landi, en álíka margar þó og í
Bandaríkjunum.
Þess vegna er óhagstætt fyrir ís-
land að bera saman framleiðslu á
hverja vinnustund þótt fram-
leiösla á mann sé mikil. Af þessu
dregur Þorvaldur þá ályktun að
óhagkvæmni sé hér landlægt
vandamál.
í erindi hans kom fram að mun
færri eiga að baki menntun á há-
skólastigi á íslandi en í löndum
Evrópusambandsins eða OECD-
ríkjanna að meðaltali. Og hlutfall
háskólamenntaðra er næstum því
tvisvar sinnum hærra í Banda-
ríkjunum samkvæmt tölum frá
1998. -ÓTG
UV-IVtTINU C.VM MKtllNi.UUI IIK
Lagt upp
Hér leggja menn upp í göngu yfir Hellisheiöi, oft mæta skátarnir verri veörum á þeirri leiö þegar þeir sinna björgunar-
störfum. í þetta sinn mætti þeim nánast vornótt.
Hjálparsveit skáta safnar fyrir nýrri bifreið:
Gengu í 28 klukkustundir með „sjúkling" á sjúkrabörum
Á fóstudagskvöldið héldu félag-
ar í Hjálparsveit skáta í Hvera-
gerði af stað í langan göngutúr.
Þetta var þó ekki skemmtiganga,
heldur var verið að safna fyrir
nýrri bifreið fyrir sveitina. Félag-
arnir hittust fyrir utan Eden og
hófu þaðan gönguna við byssuskot
og með kyndilbera í fararbroddi.
Meira en 30 hjálparsveitarmenn
gengu og nokkrir skiptust á að
bera ímyndaðan sjúkling yfir Hell-
Stuttar fréttir
isheiði og sem leið liggur að um-
boði Toyota í Kópavogi. Þar beið
þeirra splunkunýr björgunarjeppi,
sem þeir hafa þegar fest kaup á,
en enn vantar fjármagn til þess að
jeppinn verði alfarið þeirra. Aðrar
bifreiðir í eigu sveitarinnar eru
tvær og komnar nokkuð til ára
sinna.
Að sögn Ásgeirs Guðnasonar,
eins af framtaksmönnunum, gekk
ferðin vel og voru þeir á undan
áætlun. Veðrið var með besta móti
og engum varð meint af. Hjálpar-
sveitin hefur þegar fest kaup á bif-
reiðinni og var henni ekið til
Hveragerðis eftir stutta viðkomu
hjá Toyota. Hjálparsveitin hefur
unnið gífurlega góð verk á undan-
förnum árum og aðstoðað fólk við
ýmis veðurskilyrði, á Hellisheiði
og víðar, þegar illa hefur viðrað
og fólk í ýmsum vanda.
-EH
Hert gæsla á Keflavíkurflugvelli
Eftirlit á Keflavíkurflugvelli var
hert til muna í liðinni viku eftir
að fregnir bárust frá Interpol þess
efnis að einn þriggja meintra
morðinga Zorans Djindjics væri á
leið til Islands.
anum Áslandi í Hafnarfirði hefur
ritað bæjaryfirvöldum bréf og ósk-
að eftir því að bærinn taki yfir
rekstur skólans. Skólastjóri og að-
stoðarskólaskjóri hafa báðir sagt
upp störfum. RÚV greindi frá.
Framboð
óháðra, sem Krist-
ján Pálsson leiðir í
Suðurkjördæmi,
fær listabókstafinn
T á kjörseðli í
komandi kosning-
um.
Kristjan fær T
Júlía flutt á slysadeild
Bæpinn taki yfir pekstup Nína Dögg Filippusdóttir, sem
Foreldrafélag barna í leikskól- leikur Júlíu í verki Vesturports í
Borgarleikhúsi, var flutt á slysa-
deild Landspítalans eftir að hún
féll fram af sviðinu á laugardags-
kvöld. Um hálf klukkustund var
eftir af sýningunni þegar óhappið
varð. Nína Dögg tognaði illa á
handlegg.
Fpamsókn bætip viö sig
Framsókn mælist með 13,5%
fylgi, Vinstrihreyfingin - grænt
framboð með 9%, Sjálfstæðisflokk-
urinn með 36,9% fylgi, Samfylk-
ingin með 35,2% og Frjálslyndir
með 4,7% fylgi samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Framsókn hefur bætt við sig um
3,8% frá síðustu könnun - á kostn-
að Vg.
-aþ
DV-MYND EINAR ÖLAFSSON
Utvarpsmenn Strandamanna
Hér má sjá ýmsa starfsmenn Út-
varps Stranda aö störfum - ekta
fréttastofustemning.
Útvapp Stpandip,
góöan dag!
„Útvarp Strandir! Útvarp
Strandir! í dag er mánudagurinn
17. mars og klukkan er átta á
þessum Drottins degi. í dag er
suðlæg átt og gola, fremur milt
veður og vorið skammt fram und-
an.“ Svona gætu fyrstu orð Út-
varps Stranda hljómað eftir 9 ára
Þyrnirósarsvefn.
Útvarp Strandir var á sínum
tíma einstakt fyrirbrigði. Nem-
endaútvarp með fullt af töluðu
máli, fræðsluþáttum um ketti og
fleiri dýrategundir. Vakti vandað-
ur og þroskaður flutningur nem-
enda mikla athygli í dagblöðum
og víðar.
Nú er vonast til að sama
stemning myndist og að allt
Húnaflóasvæðið bergmáli af gáfu-
legum umræðum og geislandi
tónlist frá Drangsnesi. -E.Ó.
Samskip:
Hpeiðpa um
sig í Kína
Samskip hafa opnað umboðs-
skrifstofu í Suður-Kóreu og í
næsta mánuði verða opnaðar tvær
umboðsskrifstofur félagsins í Kína.
Starfsemi þeirra mun fyrst og
fremst snúast um fiskflutninga um
víða veröld og er enn eitt skrefið í
að styrkja og efla þjónustu Sam-
skipa við sjávarútveginn á heims-
vísu. Telur félagið áríðandi vegna
mikilvægis og stærðar þessara
markaða að reka eigin skrifstofur
þar.
Samskip opnuðu skrifstofu fé-
lagsins í Pusan í Kóreu þann 1.
mars sl. og er félagið nú þegar
komið með stóra samninga um
verulegt flutningsmagn. Er áætluð
ársvelta félagsins þar á fyrsta
starfsári um 600 milljónir ís-
lenskra króna. í næsta mánuði
verða opnaðar söluskrifstofur
Samskipa í Dalian og í Qingdao í
Kína. Er gert ráð fyrir að tveir
starfsmenn verði í Dalian og einn
í Qingdao. Verkefni skrifstofanna
munu fyrst og fremst snúast um
flutning á hráefni til vinnsluhúsa í
Kína og Taílandi og flutning á
fullunnum afurðum til Evrópu,
Bandaríkjanna og Japans. Skrif-
stofan i Pusan gegnir mikilvægu
hlutverki í þessu ferli því stór
hluti hráefnisins fer í gegnum
Pusanhöfn. Samskip í Pusan starfa
sem flutningsmiðlari en sérstaða
félagsins liggur í yfirgripsmikilli
þekkingu á markaðnum ,-GG
Hiá níkislögpegtaistjópa
í frétt á bls. 6 í DV á laugardag
um meðferð á máli er snýst um
gjaldþrot Thermo Plus kom fram
misskilningur varðandi skipan
ákæruvaldsins. í fréttirmi var
greint frá því að „Ríkissaksóknari“
hefði nú til meðferðar erindi vegna
gjaldþrots kælitækjaframleiðandans
Thermo Plus í Reykjanesbæ sem
tekið var til gjaldþrotaskipta mánu-
daginn 10. apríl 2001 og rætt var
við Jón H. Snorrason vegna þess.
Hið rétta er að Jón H. Snorrason er
saksóknari hjá ríkislögreglustjóra
en ekki ríkissaksóknari og málið er
því formlega til meðferðar hjá rík-
islögreglustjóra. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
-HKr