Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Side 29
MÁNUDAGUR 17. MARS 2003
DV
Tilvera
53
Oöur til oöa iþrótta-
íprottamyndir eru áber-
andi. „Hann er íþróttaóð-
ur,“ segir Jóna og sýnir
ýmis tákn í teppinu sem
hún undirstrikar það
með. Hún tengir það
teppi líka við Skutuls-
flörð með ýmsum hætti,
húsunum á eyrinni, hafi
og fiskum, fjöilum og
jarðgöngum, auk sumar-
húss systkinanna. Kant-
urinn utan um eitt teppið
heitir líka Á ferð um
Vestfirði og þar er höfðað
til litanna í umhverfinu.
Sum teppin eru alveg
tvöföld þannig að það er
sama hvort borðið snýr
fram, það er listaverk
báðum megin. En hag-
leikur Jónu birtist ekki
bara í saumaskapnum heldur líka
í tréfígúrum, fuglum og styttum.
Hún kveðst hafa byrjað að skera
út 1998 er hún fór á námskeið hjá
Guðmundi Magnússyni. „Ég hef
gaman af þessu og ef mig langar
að gefa eitthvað sérstakt þá gríp
ég í þetta.“ segir hún.
Á ganginum eru teppi barna-
barnanna, ólík eftir áhugamálum,
kynferði og aldri. Þar er lika teppi
sem Jóna kallar Vegferð og það er
Fuglar
Jóna gerir sér far um aö láta tréö halda náttúru-
legri gerö aö mestu.
hen,ni sérlega kært því bútamir
eru flestir úr fatnaði af fjölskyld-
unni. Jafnvel ástvinir sem komnir
eru til betri heima eiga þar sitt
minningarhorn. Leggingar mynda
líka ákveðna ramma í verkinu.
Jóna gefur skýringar á þeim. „Það
verða þáttaskil af og til sem ævin
rammast inn í,“ segir hún. Hún
sér sjálfa sig vera á seinni hlutan-
um og er því komin út í lillaða
tóna í lokin. -Gun
mannsins
Teppiö var afmælisgjöf til
bróöur listakonunnar og
ber í sér mörg tákn um
sögu hans og uppruna.
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda
að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og
með 15. mars 2003, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5.
mars 2003 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið
hafa í eindaga til og með 15. mars 2003 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og
virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, afengisgjaldi, launaskatti,
bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi
þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu
söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagialdi,
virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum asamt
skráningargjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda,
vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af
ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum,
skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á
ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi,
fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna,
eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna
heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald,
þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð
aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstoruhúsnæði, ofgreiddar
barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir
vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði,
sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér
verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500
kr. fyrir hvert fjárnam. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af
heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur
hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu
tryggingagjalds, __ vörugjald_, afdreginn fjármagnstekjuskatt og
virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari
fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt
eiga von á að skráningarnumer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari
fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar
gildir ekki t þessum tilvikum.
Reykjavík, 17. mars 2003.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfírði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Buðardal
Sýslumaðurinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Olafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum