Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003
9
Útlönd
, REUTERSMYND
Neyöaraöstoö í írak
Búist er viö gríöarlegri þörf fyrir alls iags neyöparaöstoö viö írösku þjóöina
vegna stríðsátakanna sem nú eru hafin og enginn veit hve veröa löng.
Matvælastofnun SÞ komin í startholurnar:
Búist við gífup-
legri neyð í írak
Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna er þegar farin að skipu-
leggja neyðaraðstoð við írösku
þjóðina, enda þúist við að hörm-
ungamar í írak verði meiri og
kostnaðarsamari en hingað tO hef-
ur þekkst.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, fór fram á það við Öryggisráð-
ið að það veitti honum heimild til
að taka við stjórn sEunvinnuverk-
efnis SÞ og íraks þar sem tekjur af
olíusölu íraka renna til kaupa á
matvælum og lyfjum.
Verkefnið, sem stofnað var til
árið 1996, var að engu gert með
upphafi stríðsátakanna og með
brottfor starfsfólks SÞ. Þar með
hafa um 60 prósent írösku þjóðar-
innar engan aðgang að ferskum
matvælum.
Forstöðumenn matvælaaðstoð-
arinnar, sem er með höfuðstöðvar
sínar í Róm, hafa þungar áhyggjur
af ástandinu. Þeir segja að aðeins
séu til sex vikna birgðir af mat-
vælum í írak.
Skemmur íraka eru svo gott
sem tómar og ef ekki verða send
þangað matvæli hið fyrsta er
hætta á mikilli hungursneyð.
Sameinuðu þjóðirnar hafa til
þessa safnað saman um 30 þúsund
tonnum af matvælum í nágranna-
löndum íraks. Þau duga til að
brauðfæða tvær milljónir manna í
einn mánuð. íbúar íraks eru hins
vegar 26 milljónir.
Flóttamannastofnun SÞ hefur
farið fram á það við nágrannarík-
in að þau haldi landamærum sin-
um opnum fyrir fólk sem leggur á
flótta undan stríðsátökunum. Þá
hvatti Ruud Lubbers, yflrmaður
stofnunarinnar, til þess að rétt-
indi flóttamanna yrðu virt.
Forystuhlutverk
Bandarfejanna aö veði
Þegar var ljóst frá upphafi her-
farar Randaríkjamanna gegn írak
á fimmtudagsmorgun að helsta
takmark hennar er að koma
Saddam Hussein íraksforseta fyrir
kattamef.
Stríðsins verður þó minnst fyrir
meira en það að ná því markmiði
að skipta um stjómarherra í
Bagdad og eyðileggja gjöreyðing-
arvopn sem kunna að leynast enn
í írak.
„Allt veltur á þessu,“ sagði
Zbigniew Brzezinski, sem var ör-
yggismálaráðgjafi Jimmys Carters
í forsetatíð hans.
„Þegar upp er staðið veltrn- for-
ystuhlutverk okkar á þessu.
Saddam er ekki aðalmálið, heldur
hvort Bandaríkin geta veitt upp-
byggilega forystu og á þann hátt
að aðrir beri virðingu fyrir þeim,“
sagði Brzezinski í viðtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina PBS.
Á undanförnum mánuðum
gerðu bandarískir ráðamenn lítið
úr þeim tilgangi sínum að skipta
um stjórnvöld í Bagdad þegar þau
reyndu að afla sér stuðnings inn-
an Sameinuðu þjóðanna við að af-
vopna Saddam. Með árásunum á
fimmtudagsmorgun, sem var beint
gegn forystu íraks, var hins vegar
tekinn af allur vafi um fyrirætlan-
ir ráðamanna i Washington.
REUTERSMYND
Mlkiö veltur á Bush
Mikiö veltur á því hvernig Bush
Bandaríkjaforseti og menþ hans
haga stríösrekstrinum í írak.
„Markmiðið er að skipta um
stjóm í írak og eyðileggja gjöreyð-
ingarvopn íraks,“ sagði háttsettur
embættismaður.
Ef stríðsátökin dragast á lang-
inn og mannfall verður mikið,
þvert á það sem bandarískir ráða-
menn hafa sagt, kann það að hafa
áhrif á skoðanir heimsins á Bush.
ÞJÁLFUNAR OG ÆFINGARPUNKTAR
MATSEÐILL DAGSINS
HReynnc
FRfTT f 3 DAGA HReyfinG
Ef þú hefur ekki æft í Hreyfingu áður en langar til að prófa bjóðum við þér
að koma og æfa frítt í þrjá daga til reynslu gegn framvísun þessa miða.
Hringdu í síma 568-9915 og pantaðu tíma hjá ráðgjafa. Gildir m 1. apríi 2003
MEBL&uJú 'SÍAsJ'
Öfugt við fæðufitu hefur fita sem er að finna í líkama mikilvægu hlutverki að gegna þegar
um líkamleg átök er að ræða. Glýkógenbirgðir tæmast á um tveimur klukkustundum en
fitugeymslur (fitufrumur) geta gefið orku í formi fitusýra í margar klukkustundir án þess að
tæmast. Þau líkamssvæði sem bera mestu fituna senda einnig mest af fitusýrum út í blóðið,
þó svo að þau svæði virðist ekki endilega geyma mestu fituna. Þetta er ástæðan fyrir því að
ekki er hægt að losa sig eingöngu við fitu á ákveðnum stöðum séu þeir bara æfðir nógu
ákaft. Sönnun fyrir þessu sést meðal annars á tennisleikurum. Þegar fitumassi beggja handa
er athugaður kemur í Ijós að hann er sá sami þrátt fyrir að tennisleikarinn sé mun sterkari og
vöðvameiri á þeirri hendi sem hann sveiflar spaðanum með.
Dagur 35
Morgunverður:
Lýsi
LGG+
Kringla, gróf
Smurostur
Fjörmjólk
1 tsk.
65 ml
1 stk.
20 g
1 glas
Hádegisverður: Skyr, rjóma 1 dós
Brauð 1 sneið
Banani 1 stk.
Ávaxtasafi 1 glas
Miðdegisverður: Tekex 2 stk.
Ostur, 17%feitur 2 „ostskerasneiðar
Marmelaði 1 msk.
Epli 1 stk.
Kvöldverður:
Kvöldhressing: Appelsína
Pastaréttur (s.s. „pasta 2000 1 pakki (1 diskur)
í sveppasósu")
1 stk.
Fituríkt fæði er afleitur kostur fyrir íþróttafólk, sem og flesta aðra, en
fituríkt fæði helst í hendur við kolvetnasnautt fæði. Slíkt fæði eykur
til að mynda líkur á niðurbroti prótínríkra vefja (eins og vöðvavefja)
vegna þeirra viðbragða líkamans að afla sér kolvetna (glúkósa) með
niðurbroti amínósýra (byggingarefni prótína). Einnig er vitað að mikil
fituneysla er áhrifaþáttur í hjarta- og æðasjúkdómum og vel þjálfaðir
einstaklingar eru að sjálfsögðu ekki ónæmir fyrir slíkum sjúkdómum.
Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur