Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Blaðsíða 4
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003
Fréttir
Sóttvarnardeild verður
starfhæf á klukkutíma
berist hin bráöa lungnabólga hingað til lands
íslensk heilbrigöisyfirvöld hafa
sett sig í viðbragðsstöðu vegna
lungnabólgufaraldursins sem nú
geisar. Verður hægt að gera
sjúkradeild starfhæfa á klukku-
stund berist hin bráöa veira til
landsins. Sóttvarnardeild var sett
upp á Landspítala fyrir nær
tveimur árum síðan, en það var
ótti við miltisbrand sem flýtti
framkvæmdum á þeim tíma. Útbú-
ið var sérstakt loftræstikerfi sem
síar út sérstaka meinvalda áður
en loftinu er sleppt út. Veirur geta
ekki borist yfir á aðrar deildir
sjúkrahússins og sýkt hjúkrunar-
lið og sjúklinga.
Alþjóða heilbrigðismálastofnun-
in hefur gefið út tilkynningu þar
sem kemur fram að hún mælist til
þess að allir ferðamenn fresti ferð-
um sínum til Hong Kong og Gu-
angdonghéraðs í Suður-Kína
nema brýn ástæða sé til þess. Til-
mælin eru tímabundin og verða
endurmetin í ljósi þróunar farald-
urs alvarlegrar bráðrar lungna-
bólgu á þessum svæðum. Þessi til-
mæli kunna einnig að beinast að
öðrum svæðum í heiminum síðar.
Reglugerð breytt
Jón Kristjáns-
son heilbrigðis-
ráðherra undir-
ritaði fyrir helg-
ina reglugerð
um skýrslugerð
vegna smitsjúk-
dóma. Um er að
ræða breytingu
á reglugerð nr.
129/1999 og með
breytingunni er
bráð lungnabólga felld í þann
flokk sjúkdóma sem eru tilkynn-
ingarskyldir. Reglugerðin er sett á
grundvelli sóttvarnalaga frá 1997.
Hvatt er til þess að menn kynni
sér nánar hvað felst í breyting-
Jón
Kristjánsson.
unni og fylgist með upplýsingum
um þróun mála á heimasíðu land-
læknisembættisins: www.landla-
eknir.is.
Tilfelli í flestum heimsálfum
Haraldur
Briem sóttvam-
arlæknir segir
að tilfelli bráðr-
ar lungnabólgu
hafi greinst um
allan heim.
„Ástandið virð-
ist vera alvarlég-
asf í Guangdong-
héraði í Kína og
Hong Kong en
síðan hefur bráða lungnabólgan
breiðst út víða og tilfelli komið
upp í flestum heimsálfum. Tilfell-
in sem hafa greinst í Evrópu hafa
sem betur fer ekki breiðst út.“ Að
sögn Haraldar hafa margir starfs-
menn spítala og ættingjar þeirra
Haraldur
Briem.
sýkst vegna sjúkdómstilfella sem
komið hafa upp í Toronto í
Kanada.
„Sem betur fer er ekki vitað um
neinn íslending sem sýkst hefur
til þessa. Enginn hefur greinst
með veikina á Norðurlöndunum
en verið er að skoða nokkra ein-
staklinga í Svíþjóð og Finnlandi
sem eru með grunsamleg sjúk-
dómseinkenni én eru þó ekki lík-
legir tií að hafa. sýkst af bráðri
lungnabólgu.“ Haraldur segir að
menn geri sér ekki enn grein fyr-
ir hvað sjúkdómurinn komi til
með að verða alvarlegur. „Hugs-
anlega er þetta faraldur sem
hjaðnar fljótlega eða hann heldur
áfram aö dreifast og orðið mikið
vandamál. Það virðist vera búið
að koma í veg fyrir útbreiðslu
sjúkdómsins í Víetnam og það
eykur á bjartsýni manna um að
stöðva megi útbreiðslu hans.“
-Kip
Veðurklúbburinn á Dalbæ:
Apríl verður
kaldari en mars
Árið 1963 hegðaði veðrið sér
svipað og það sem af er 2003: smá-
föl í febrúar, mars var alveg snjó-
laus en ekki svona hlýr eins og
núna, en 9. apríl 1963 gerði hann
góðan hvell, snjóaði af og til í heila
viku og þegar upp var staðið var
mikill snjór kominn. í maí og júní
var veðrið þokkalegt en í júlí grán-
aöi í fjöll i nokkur skipti, segja veð-
urspámenn Dalbæjar á Dalvík þeg-
ar þeir spá í veðrið í apríl.
Tunglið kviknaði 1. apríl kl 19.19,
í vestri. Það er spuming hvað tungl
sem kviknar á þessum gabbdegi
gerir. Góður bóndi norðlenskur
sagði að tungl sem kviknuðu á
þriðjudegi væru annaðhvort verstu
eða bestu tungl - ekkert þar á milli.
Og þá er bara að sjá hvemig hann
tekur tunglinu næstu daga.
Það kemur til með að snjóa í apr-
íl og segja klúbbfélagar að við eig-
um inni snjókomu og það bara tals-
vert mikla. Sumir eru að gæla við
að það veröi skíðafæri norðanlands
um páskana, aðrir klúbbfélagar eru
varkárari og leggja ekki í að spá
slíku vegna þess hve veðrið hefur
verið imdarlegt að undanfömu.
Klúbbfélagar telja samt líklegt að
norðlægar áttir verði meira viðloð-
andi heldur en upp á síðkastið og
apríl verður kaldari en mars. Þess
utan veröur hið ágætasta veður og
líklegt að sólin láti sjái sig um
páskana og ekki bara einn dag.
Sumardagurinn fyrsti er 24. apríl
og eins og flestir vita skiptir máli
hvenig veðrið er þá og einnig fyrsta
sunnudag í sumri. Gott er líka að
fylgjast með háttalagi þrastanna. Ef
þeir hópast heim að húsum getum
við átt von á því að vorið sé ekki al-
veg komið. Eins er það með hrossa-
gaukinn. Hnegg hans boðar gott en
sumir telja að það skipti máli úr
hvaða átt hneggið heyrist fyrst.-hiá
Soffia linna valin
Ungfrú Austurland
Sofíía Tinna Hjörvarsdóttir, 18 ára
gömul Egilsstaðamær, var á laugar-
dagskvöld krýnd titlinum ungfrú
Austurland 2003 í Egilssbúð í Nes-
kaupstað. Sjö stúlkur kepptu um tit-
ilinn að þessu sinni. Æsa Skeggja-
dóttir, tvítug Hornafjarðarmær, var
valin besta ljósmyndafyrirsætan og
Netstúlka local.is.
Margrét Jóna Þórarinsdóttir, 19
ára Fáskrúðsfirðingur, var valin
Orublustúlka keppninnar auk þess
sem hún var valin vinsælasta stúlk-
an.
Bæði Soffia Tinna og Æsa munu
taka þátt í lokakeppninni sem fram
fer í Reykjavík þar sem Ungfrú ís-
land verður valin.
Soffía Tinna fluttist 7 ára að aldri
til Egilsstaða frá Ólafsvík. Hún á
einn eldri bróöur. Foreldrar hennar
eru Þóra Vilbergsdóttir og Hjörvar
O. Jensson. Soffía Tinna stundar
nám á félagsfræðibraut við Mennta-
skólann á Egilsstöðum og mun ljúka
námi næstu jól. Hún þjálfar auk þess
fimleika og vinnur í söluskála KHB.
Soffía Tinna var sæl en þreytt er
DV hitti hana að máli á sunnudag-
inn. „Mér líður ósköp vel, síminn
hefur ekki stoppað og vinirnir ýmist
hringja eða senda sms. Þetta var
mjög gaman og keppnin var glæsi-
leg,“ sagði Soffia.
Hvað varðar framtíðina segist
Soffía ætla að halda sínu striki og
ljúka sínu námi við ME og síðan er
stefnan sett á Spán þar sem hún
hyggst leggja fyrir sig nám í ariki-
tektúr, auk þess sem spænskan heill-
ar. Hún er nú þegar farin að leggja
grunninn að því en hún leggur
stund á spænsku í fjamámi. Soffia
hefur nú þegar kynnst fyrirsætu-
störfunum, hefur m.a. leikið í aug-
lýsingum fyrir Saga film. -HEB
Sú fegursta fyrir austan
Soffía Tinna er aöfluttur Austfiringur, komin frá Ólafsvík. Hún var sæl en
þreytt eftir keppnina á laugardag.
Lífdísill tekinn í notkun
Guöni Ágústsson landbúnaöarráö-
herra ásamt Siv Friöleifsdóttur um-
hverfisráöherra viö Kjötmjölsverk-
smiöjuna í Árborg. Guöni dælir líf-
dísil á bíl Mjóikurbús Flóamanna.
Umhverfísráðuneytið styrkir tilraunir
með lífdísil fyrir bíla sem er unninn
úr sláturúrgangi; dýrafitu. Eldsneytið
lífdísill var formlega tekiö í notkun í
þessari tilraun.
Hótel Örk í Hveragerði:
Maður brenndist
í gufubaði
Maður brenndist illa á fótum
þegar hann hugðist fara í gufu-
baö á Hótel Örk í Hveragerði síð-
degis á laugardaginn. í baðklefan-
um var pollur af brennheitu
vatni og virðist niðurfallið hafa
verið stíflað, eða a.m.k. ekki haft
undan. í gær höfðu engar skýr-
ingar fengist á því af hverju vatn-
ið var svo heitt. Maðurinn var
lagður inn á lýtalækningadeild
Landspítala - háskólasjúkrahúss
en mun ekki vera hættulega
brenndur. Það mun þó taka hann
nokkrar vikur að ná fullum bata.
-GG
Bankaránið í Hafnarfirði:
Nítján ára piltur
úrskurðaðurí
gæsluvarðhald
Gæsluvarðhaldsúrskurður til
11. april var kveðinn upp í Héraðs-
dómi Reykjaness sl. laugardag yfir
nítján ára pilti sem grunaður er
um vopnað rán í Sparisjóði Hafn-
arfjarðar, Reykjavíkurvegi 66 í
Hafnarfirði, þann 1. apríl sl.
Sautján ára stúlku sem handtek-
in var i tengslum við rannsókn
málsins hefur verið sleppt. Rann-
sókninni miðar vel að sögn lög-
reglunnar í Hafnarfirði en við
hana hefur lögregla notið aðstoðar
tæknirannsóknarstofu ríkislög-
reglustjórans, sem og lögregluliða
um allt land. Þá hefur
almenningur veitt fjölmargar
vísbendingar sem nýst hafa lög-
reglunni við rannsóknina. -GG
Mengun hafsins:
VIII alþjóðlega
skrifstofu hér
Ríkisstjórnin vinnur að því í
viðræðum við fjölmörg önnur
lönd að skrifstofa Sameinuðu þjóð-
anna fyrir úttektir á mengun hafs-
ins verði á íslandi. Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra telur
góðar líkur á því að skrifstofan
verði hérlendis vegna þess að ís-
lendingar hafi haft forgöngu um
málið frá upphafi, m.a. beitt sér
fyrir samþykkt um það á alþjóða-
ráðstefnunni í Jóhannesarborg og
hérlendis hefur verið haldinn al-
þjóðlegur fundur um málið og rík-
isstjórnin hefur þegar lagt í fagleg-
an undirbúning og kostnað til að
fá skrifstofuna hingað og hefur
verið leiðandi á alþjóðavettvangi
hvað varðar varnir gegn mengun
sjávar.
Fleiri ríki hafa lagt áherslu á að
fá skrifstofuna til sín. -GG