Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003
DV
Fréttir
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaöarsambands ís-
lands (RSÍ) stóð af sér vantrausts-
tillögu á aðalfundi Félags ís-
lenskra rafvirkja (FÍR), sem fram
fór síðastliðinn laugardag. FÍR er
stærsta aðildarfélag Rafiðnaðar-
sambandsins. Fullt var út úr dyr-
um og mættu yfír 130 manns á
fundinn.
í upphafi fundar var lýst kjöri
nýrrar stjórnar FÍR og tók Bjöm
Ágúst Sigurjónsson, áður gjald-
keri FÍR, við formennsku af Har-
aldi Jónssyni. Stýröi Bjöm síðan
fundi eins og gert er ráö fyrir i
lögum FÍR. Fjörugar umræður
voru um málefni Rafiðnaðarsam-
bandsins sem m.a. hafa verið í
fréttum DV að undanfómu. Hafa
þær snúist um gjaldþrot
MTV-Menntastofnunar, málshöfð-
un gegn fyrrverandi skólastjóra
Rafiðnaðarskólans fyrir meintan
fjárdrátt, stöðu sjóða RSÍ, m.a.
vinnudeilusjóðs og svartar greiðsl-
ur til starfsmanna og stjórnenda
RSÍ sem vitnað hefur verið um
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hefur þetta reyndar komið í ljós
við endurskoðun reikninga fyrir
síðasta ár og voru af þeim sökum
sendir út nýir launaseðlar til
starfsmanna RSÍ skömmu áður en
framtalsfrestur rann út. Á nýju
seðlunum var búið að telja fram
allar þær greiðslur sem áður hafði
verið látið hjá líða að telja fram til
skatts. Skiptust menn á skoðunum
um málin og haft var á orði að
Frá aðalfundi Félags íslenskra rafvirkja
Mæting hefur sjaldan eöa aldrei verið eins góö og á aöalfundinum á laugardaginn.
Björn Ágúst hafi stýrt sínum
fyrsta fundi sem formaður af mik-
illi röggsemi.
Stóð af sér vantraustið
Þá lagði Páll Valdimarsson, sem
er miðstjórnarmaður í Rafiðnað-
arsambandi íslands, fram tillögu
um að skorað yrði á Guðmund
Gunnarsson, formann RSÍ, að láta
af öllum trúnaðarstörfum fyrir Fé-
lag íslenskra rafvirkja og RSÍ.
Gengið var til atkvæðagreiðslu
um tillöguna og
greiddi 131 at-
kvæði sitt.
Sögðu 78 nei eöa
60%, 42 sögðu já
eða 32% og 11
seðlar voru auð-
ir eða 8%. Var
tillagan því felld
Guðmundur og sýnir að Guð-
Gunnarsson. mundur Gunn-
arsson á trygga
stuðningsmenn innan FÍR.
Formaður RSÍ fór á eftir og
hvatti menn til þess að standa
saman, sama hvorn hópinn þeir
hefðu fyllt. Þing RSÍ verður í
næsta mánuði en þar mun fara
fram kjör nýrrar forystu.
Félag íslenskra rafvirkja er
stærsta einstaka aðildarfélag Raf-
iðnaðarsambands íslands með um
1.300 félagsmenn. Fyrir fram var
ekki búist við öðrum mannabreyt-
ingum en þeim sem til var lagt af
stjórn félagsins. -HKr.
Aöalfundur Félags íslenskra rafvirkja:
Fonmaður RSÍ stóð af
sén vantrauststillögu
Ertu í hrlngnum?
DV heldur áfram aö gleöja lesendur sína meö margvislegum vinningum.
Stúlkan sem hér lendir innan hringsins var í Kringlunni á föstudaginn. Hún
hreppir vænan vinning, 14 tommu sjónvarp frá Sjónvarpsmiöstööinni og
þriggja mánaöa áskrift aö DV. Hægt er aö vitja vinninganna í í DV-húsinu,
Skaftahlíö 24, 105 Reykjavík.
Foreldrar gagnrýna fermingarfræðslugjald:
Mikill kostnaður
vegna ferminga
Kostnaður við fermingar er um-
talsverður fyrir foreldra ferming-
arbarna en fyrir utan öll þau út-
gjöld og tilstand sem femingar-
veislunni fylgir þarf einnig að
greiða sérstakt gjald til kirkjunn-
ar. Það er yfirleitt um 8 þúsund
krónur og á tímum aukinnar fá-
tæktar hefur borið á því að for-
eldrar hafi ekki efni á að greiða
fermingargjaldið.
Greitt fyrir fræðsluna
Samkvæmt upplýsingum frá
Biskupsstofu er umrætt gjald ekki
greiðsla fyrir fermingarathöfnina
sjálfa heldur fræðsluna sem börn-
in hljóta yfir veturinn, ólíkt þvi
sem margir halda. Þessi upphæð
hefur nú verið óbreytt í meira en
áratug.
„Því miður geta kirkjurnar ekki
tekiö þetta gjald á sig sjálfar því
þær hafa einfaldlega ekki efni á
því. Prestar hafa lengi sóst eftir
því að þetta gjald verði fært inn í
laun þeirra en ríkið hefur ekki
samþykkt það enn sem komið er,“
segir Vigfús Þór Ámason, prestur
í Grafarvogssókn.
„Annars er það misskilningur
að með þessu gjaldi sé fólk að
greiða fyrir sjálfa fermingarat-
höfnina. Þetta er fræðslugjald sem
prestamir fá fyrir fermingar-
fræðslima sem stendur frá því í
byrjun september og fram í apríl.
Af þessum rúmu 8 þúsund krón-
um renna svo um 800 krónur í
svokallað kyrtilgjald en það renn-
ur beint til efnalauganna sem
hreinsa fermingarkyrtlana."
Þessi greiðsla er því ekki kaup-
auki presta fyrir að framkvæma
athöfn heldur fræðslugjald fyrir
heilan vetur. Vigfús bendir einnig
á að þegar þetta sé nánar skoðað
nái upphæðin sem prestarnir fá í
sinn hlut ekki upp í hefðbundin
kennslulavm.
Er fátækt að aukast?
„Það era alltaf einhverjir for-
eldrar sem hafa ekki efni á að
greiða þetta og þegar svo ber und-
ir biðjum við þá aö senda okkur
bréf þess efnis. Síðan er gjaldið
einfaldlega fellt niður,“ segir Vig-
fús sem kveðst þó ekki merkja
fjölgun tilfella á milli ára. Mæðra-
styrksnefnd hefur einnig um ára-
bil aðstoðað illa stæða foreldra við
fermingarhald og segir formaður
samtakanna nokkum fjölda leita
til þeirra á hverju ári.
„Við höfum í nokkur ár aðstoð-
að fólk sem á í erfiðleikum við að
halda fermingar," segir Ásgerður
Jóna Flosadóttir, formaður
mæðrastyrksnefhdar.
„Ég hef ekki orðið vör við kvart-
anir vegna kostnaðarins við sjálfa
ferminguna en við höfum hins
vegar aðstoðað fólk við að halda
veislur með því aö gefa því matar-
úttektir í Bónus upp á 25 þúsund
krónur. Það eru yfirleitt um 25-30
fjölskyldur sem leita til okkar á
ári hverju,“ segir Ásgerður og
bætir því við að fátækt hér á landi
sé algengari en almenningur geri
sér grein fyrir. -áb
Umhverfisráöuneytiö:
Styrkir frjáls
félagasamtök
Siv
Friöleifsdóttir.
Umhverfis-
ráðherra hefur
afgreitt styrk-
umsóknir frá
frjálsum félaga-
samtökum á um-
hverfissviði.
Veittir voru al-
mennir rekstrar-
styrkir að upp-
hæð 4,7 milljón-
ir króna og 2,7
milljónir til verkefna á vegum fé-
lagasamtaka. Fjárhagsstuöningur
við frjáls félagasamtök er liður í
viðamiklu samstarfi umhverfis-
ráðuneytisins og frjálsra félaga-
samtaka. Samstarfið byggist á
samstarfsyfirlýsingu sem var und-
irrituð 20. mars 2001 en markmið
samstarfsins er að efla lýðræðis-
lega umræðu um umhverfis- og
náttúruvemd. Alls eiga 13 félaga-
samtök aðild að samstarfsyfirlýs-
ingunni. Auk fjárhagslegs stuðn-
ings felst samstarfið í reglulegum
samráðsfundum þar sem fulltrú-
um félagasamtakanna em kynnt
helstu mál sem unnið er að innan
ráðuneytisins og þau koma sínum
sjónarmiðum á framfæri og kynna
verkefni á sínum vegum.
Dæmi um sérstök verkefni sem
ráðuneytið styður fjárhagslega eru
Vistvemd í verki, Grænfáninn og
LAND-NÁM. Vistvernd í verki er
verkefni sem beinir sjónum sínum
að umhverfismálum heimilinna,
Grænfáninn er alþjóölegt verkeftii
sem snýr að umhverfismálum í
grunnskólum og LAND-NÁM er
verkefni þar sem markmiðið er að
tengja saman uppgræðslustarf
ungmenna og fræðslu um náttúm
og umhverfi. -GG
Klæðning fór af
vegi við Kvísker
Mikið rok var við Kvísker í Ör-
æfum seinni hluta fimmtudags sl.
og fór vindurinn upp í 44 metra í
snörpustu kviðunum. Klæðning
fauk af veginum á kafla á móts
við bæinn Kvísker og tengivagn
flutningabíls fauk út af og
skemmdist mikið. Bíllinn var á
suðurleið með flutning og var
farmur vagnsins léttur. Bíllinn
skemmdist ekki. -JI
Hvalfjörður:
Aðskotahlutur á
miðjum veginum
Nokkuð óvenjulegt umferðaró-
happ varð við Laxá í Hvalfirðin-
um í gær. Stór rafmótor lá á
miðjum veginum og lenti bíll á
honum. Kastaðist þá mótorinn á
annan bíl sem kom úr gagnstæðri
átt og lenti undir honum.
Skemmdist sá bíll mikið og er
óökufær en hinn bíllinn reyndist
óskemmdur. Lögreglan á Blöndu-
ósi telur að rafmótorinn hafi dott-
ið af flutningabíl og reynir nú að
hafa uppi á eigandanum. -EKÁ
íslenskur áburður
til Noregs en norsk-
ur á íslensk tún
Áburðarverksmiðjan hf. gekk
nýlega frá samkomulagi við
norskra aðila um útflutning á ís-
lenskum fjölkornaáburði til Nor-
egs. Um er að ræða 5 mismunandi
gerðir sem era sérblandaðar hér á
landi fyrir norskan landbúnað.
Áburðarverksmiðjan er með þessu
að nýta enn betur vinnslugetu
verksmiðjunnar og hráefnakaup.
Fyrsti skipsfarmur fer utan um
næstu helgi. Hérlendis er á mark-
aði áburður frá Norsk Hydro, sem
er einmitt framleiddur í Noregi og
á eftir að fara á íslensk tún. -NH