Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003
Fréttir
9
DV
um aðUd að Evrópusambandinu en
óvíst væri hvort tækist að ganga í
sambandið ef sú yrði niðurstaðan.
í stefnuræðu sinni fjallaði Ingi-
björg Sólrún um stríðið í írak og
lagði til „að við látum það verða
eitt okkar fyrsta verk í ríkisstjóm
að taka ísland út af lista „hinna
staðfóstu" og „viljugu“.“
Einkarekstur
í stefnuskránni segir að í heil-
brigðisþjónustunni og menntakerf-
inu eigi önnur sjónarmið að ráða
en lögmál markaðarins en hins
vegar eigi að velja rekstrarform
með tilliti til aðstæðna hverju
sinni. Einkarekstur er ekki útilok-
aður en forsenda hans sé að ekki
sé hægt að kaupa sér forgang, þjón-
usta rýrni ekki, kostnaður sjúk-
linga aukist ekki og kostnaður rík-
isins minnki. Þá segir að koma
þurfi böndum á útgjaldaaukningu í
heilbrigðiskerfmu.
Höfðað til íhaldsins
Athygli vakti að Ingibjörg Sól-
rún höfðaði mjög eindregið til kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins í svari
við einni af fyrirspumum flokks-
manna: „Ég er alin upp sjálf í sjálf-
stæðisfjölskyldu og það er mikið af
slíku fólki í mínu baklandi. Ég veit
alveg hvemig svona fólk hugsar,"
sagði Ingibjörg Sólrún. „Ég veit al-
veg að þetta fólk vill sjá aukinn
jöfnuð í samfélaginu og aukið jafn-
rétti. Og þetta fólk á margt hvað
enga samleið með forystu Sjálf-
stæðisflokksins eins og hún er nú
orðin, eins og Ellert B. Schram er
kannski órækasti vitnisburðurinn
rnn. Það er fólk sem [...] að sjálf-
sögðu í þessum kosningum á að
snúa sér til annarrar áttar og þess
vegna á ég mér þann draum
heitastan núna að fólk láti brjóst-
vitið ráða.“ Undir þessi orð tóku
flokksmenn með dynjandi lófataki.
Önnur mál
Margt fleira kom vitanlega fram
á vorþinginu. Þar vom meðal ann-
ars afgreidd drög að sérstökum
áherslum í einstökum málaflokk-
um. Drögin tóku breytingum í
meðferð málefnanefnda en þar sem
ekki hefur verið gengið frá þeim til
birtingar verður að styðjast hér við
upphafleg drög með þessum fyrir-
vara. Oddvitum framboðslistanna
ásamt Ingibjörgu Sólrúnu var á
þinginu falið að ganga endanlega
frá þeim.
í drögunum kemur meðal ann-
ars fram að: fyrir lok næsta kjör-
timabils verði búið að stytta fram-
haldsskólann um eitt ár; sérhver
skólastofa á landinu verði
nettengd; framlög fyrirtækja til há-
skóla og rannsókna verði frádrátt-
arbær frá skatti þannig að um
muni; ísland verði gert að einu
kjördæmi; þingmönnum verði
fækkað og ráðherrar segi tíma-
bundið af sér þingmennsku; endi
verði bundinn á flokkspólitísk ítök
í Ríkisútvarpinu; horfið verði frá
framleiðslutengingu landbúnaðar-
styrkja; tollár á innflutta landbún-
aðarvöru verði lækkaðir; raforku-
verð til garðyrkjubænda verði
lækkað; óheimilt verði að lána
bæði með verðtryggingu og breyti-
legum vöxtum; og óréttlátt ábyrgð-
armannakerfí verði aflagt. -ÓTG
Helstu áherslur
Menntamál
Fjárfesting í menntxm og
mannauði verði aukin verulega.
Skólavist fimm ára barna
verði gjaldfrjáls með sama
hætti og fyrstu ár grunnskól-
ans.
Fyrstu ár grunnskólans verði
nýtt betur, m.a. með áherslu á
sköpun, tungumál og raun-
greinar.
„Nýi framhaldsskólinn":
Samheiti fyrir nýtt og víð-
tækara hlutverk framhalds-
skóla.
Stórfellt átak til að sporna
gegn brottfalli nemenda á fram-
haldsskólastigi.
Rannsóknartengt framhalds-
nám á háskólastigi verði eflt.
Framfærslugrunnur LÍN
verði hækkaður, endurgreiðslu-
byrði lækkuð og ábyrgðar-
mannakvöðinni aflétt.
Skattar og velferö
Persónuafsláttur hækki um
50 þúsund krónur á ári eða ríf-
lega 4 þúsund krónur á mánuði
í tveimur áföngum.
Virðisaukaskattur af matvæl-
um og öðrum vörum sem bera
14% lækki í 7%.
Virðisaukaskattur á tónlist
og ungbarnavörur verði lækk-
aður úr 24,5% í 7%. Bækur beri
engan vsk.
Þremur milljörðum verði var-
ið árlega í hækkun barnabóta.
Ótekjutengdar barnabætur
verði 45 þúsund krónur upp að
18 ára aldri. Frítekjumörk
tekjutengdra bóta verði hækkuð
verulega. Þetta skili barnafjöl-
skyldum að meðaltali 75 þúsund
krónum á ári.
Teknar verði upp viðræður
við samtök á launafólks og at-
vinnulífs og hagsmunasamtök
lífeyrisþega um heildarendur-
skoðun á skatta-, bóta- og al-
mannatryggingakerfinu með
það að markmiði að lækka
skattbyrði fólks með lágar- og
meðaltekjur.
Minnst þremur milljörðum
verði varið til að koma á af-
komutryggingu fyrir lífeyris-
þega og lágtekjufólk.
Stimpil- og þinglýsingargjöld
vegna húsnæðiskaupa verði
felld niður.
Fjórðungur af endurgreiðslu
námslána verði frádráttarbær
frá skatti í 7 ár eftir að námi
lýkur.
600 leiguíbúðir á ári verði
byggðar og keyptar í samráði
við sveitarfélög og almanna-
samtök.
Jafnréttismál
Hlutur kvenna og karla í
stjórnunarstöðum hjá ríkinu
verði jafnaður.
Framkvæmd jafnréttisáætl-
ana í ráðuneytum og stofnunum
verði tryggð.
Launamunur kvenna og karla
í opinberum störfum og at-
vinnulífi verði rannsakaður.
Framkvæmdaáætlun með
tímasettum markmiðum um
jöfnun á kynbundnum launa-
mun verði samþykkt.
DV MYND KALLI
Lokahófiö
Punkturinn var setturyfir i-iö í lokahófi í kosningamiöstöö Samfylkingarinnar í
Lækjargötu.
Sérhver
viðskiptavinur
og allt, sem tengist f jármálum hans, hefur meira
vægi hjá SPV en hjá stórum fjármálastofnunum.
Þjónusta SPV er alhliða og fagleg og byggir á
persónulegri þekkingu á óskum og þörfum hvers
viðskiptavinar.
Við stöndum þétt við bakið á viðskipta-
vinum okkar því velgengni þeirra
skiptir okkur öllu máli. Styrkur okkar
er traust og örugg f jármálaþjónusta
sem þú getur nýtt þér til vaxtar.
Verið velkomin í afgreiðslustaði okkar í
Borgartúni 18, Hraunbæ 119 og Síðumúla 1,
eða fáið upplýsingar f síma 5754100 og
á heimasíðu okkar, sem er www.spv.is
spv
Sparisjóður
vélstjóra
www.spv.is
hjá okkur.