Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Síða 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003
TH-'Kjr
REUTER&MVND
Erfltt á sjúkrahúsunum
Lyfjaskortur er farínn aö gera vart
vi'0 sig á sjúkrahúsum í Bagdad.
Vanað viö ófremdar-
ástandi í Bagdad
Hjálparstofnanir Sameinuðu
þjóðanna hafa varað við ófremd-
arástandi í heilbrigðismálum i
írösku höfuðborginni Bagdad þar
sem fimm milljónir manna búa.
Sjúkrahús eru yfirfull af særðu
fólki og innviöir borgarinnar eru
farnir að láta á sjá eftir látlausar
sprengjuárásir Bandaríkjamanna.
„Við eigum von á að heilsufars-
ástandið eigi eftir að versna til
muna á næstu dögum vegna dag-
legra sprengjuárása sem valda
skemmdum á innviðum og mikill-
ar fjölgunar særðra og fallinna
meðal óbreyttra borgara," sagði
Fadela Chaib, talsmaður Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO), við fréttamenn í Amman
í Jórdaníu.
Starfsfólk sjúkrahúsa í Bagdad
hefur ekki undan við að sinna
sjúkum og særðum og sifellt erf-
iðara er að nálgast lyf þar sem
ekki er hægt að fá nýjar birgðir.
Skotið á rússneska
diplómata á flótta
Rússneski sendiherrann í
Bagdad og fjórir til viðbótar
særðust í gær þegar skotið var á
bílalest rússneskra sendiráðs-
manna og blaðamanna sem voru
að reyna að flýja borgina.
Bandaríski herinn segist ekki
hafa verið meö neina menn á
þeim slóðum þar sem árásin var
gerð. Rússneskur sjónvarpsfrétta-
maður, sem var í bílalestinni,
sagði að hún hefði orðið á milli
þegar íraskir og bandarískir her-
menn skiptust á skotum.
Rússar segja að bandaríski ut-
anríkisráðherrann hafi hringt og
harmað atvikið.
Drekinn grýttur
Þrettán ára drengur
skotinn til bana
Þrettán ára gamall drengur og
tuttugu ára gamall maður, báðir
palestínskir, létu lífið þegar ísra-
elsk hersveit réðst inn í Al-Mag-
hazi-flóttamannabúðirnar á Gaza-
svæðinu snemma í gærmorgun.
Að sögn talsmanna ísraelshers
var tilgangurinn með innrásinni
að elta uppi grunaða hryðjuverka-
menn og munu að minnsta kost 35
hafa verið handteknir í búðunum,
þar af fjórir Hamas-liðar.
Palestínskir byssumenn veittu
innrásarliðinu harða mótspyrnu
en að sögn talsmanna hersins var
drengurinn skotinn eftir að hafa
hent bensínsprengju að hermönn-
unum.
SARS-vírusinn:
lilkynnt um fjölda nýnna
smitdlfella um helgina
SARS-flensan eða faraldur heil-
kennis alvarlegrar bráðrar lungna-
bólgu, HABL, eins og það er kallað á
íslensku, heldur áfram að breiðast út
og í gær var tala smitaðra í öllum
heiminum að nálgast 2600 og þar af
allt að 95 látnir.
í Kína, þar sem flestir hafa smitast
og 53 látist, var þó aðeins vitað um tvö
ný tiifelli í gær en þar hafa alls kom-
ið upp 1268 smittilfelii svo vitað sé,
flest i Guangdong-héraði, þar sem
talið er að virusinn eigi upptök sín.
I höfuðborginni Peking var bygg-
ingu, sem hýsir skrifstofur fjölda
sendiráða og ýmissa alþjóðasamtaka,
lokað og sótthreinsuð eftir að finnsk-
ur fulltrúi Vinnumálastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, ILO, hafði heimsótt
bygginguna fyrir helgina rétt áður en
hann lést úr flensunni á spítala í Pek-
ing í gær.
Maðurinn, sem hét Pekka Aro og
var 53 ára, var í heimsókn i Peking á
vegum ILO, sem hefur aðsetur í Genf,
Smlthættan er mlkil.
og er hann fyrsti erlendi borgarinn
sem látist hefur úr flensunni í Kína.
í Hong Kong, þar sem útbreiðsla
flensunnar hefur verið hvað mest að
undanfórnu, var tilkynnt um 42 ný
smittilfelli um helgina og er tala smit-
aðra þá komin í 842 en þar af eru 22
látnir.
Á meðal þeirra sem veiktust um
helgina er dr. Fung Hung, aðalfram-
kvæmdastjóri Prins og Wales-sjúkra-
hússins í borginni, en áður hafði dr.
William Ho, yflrmaður sjúkrahús-
mála í Hong Kong, greinst SARS-smit-
aður.
1 Kanada var tilkynnt um flmm ný
smit um helgina en þar eru smittilfell-
in orðin alls 179 sem er það mesta ut-
an Asíu en þar hefur vírusinn alls
dregið níu manns til dauða.
Annars staðar í heiminum var m.a.
tilkynnt um fjöldasmit á einu sjúkra-
húsi í Singapúr, þar sem grunur
leikur á að allt að tuttugu hafi smit-
ast, flmmtán ný tilfelli í Banda-
ríkjunum, tvö í Tævan og eitt í Bret-
landi.
Þá lék grunar á að þrjú böm, sem
nýkomin voru í sumarleyfi til Ástra-
líu frá Kanada, hefðu smitast.
REUTERSMYND
Drengur lelkur við dáta
Breski ofurstinn Hugh Blacman úr Skosku Dragoon vöröunum brá í gær á leik viö ungan íraskan dreng i borginni
Basra i sunnanveröu írak. Breskar hersveitir héldu inn í borgina, þá næststærstu í írak, í gær.
Arabar óttast aö Bandaríkjamenn flýti sér ekkert frá írak:
Hejmamenn ekkl tHbúnir aö taka
við stjórninni nsestu sex mánuði
Paul Wolfowitz, aðstoðarland-
varnaráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að það myndi taka
meira en hálft ár að koma á lagg-
imar stjórn heimamanna í írak
eftir að Saddam Hussein forseta
og sfjórn hans hefur verið steypt
af stóli.
Aðspurður sagði Wolfowitz aö
það myndi taka lengri tíma nú að
mynda starfhæfa stjórn en það tók
Kúrda að setja upp sjálfstjórn í
norðanverðu Irak eftir Persaflóa-
stríðið 1991.
„Það tók sex mánuði í norðan-
verðu írak. Staðan nú er flóknari.
Það mun að öllum líkindum taka
lengri tíma,“ sagði ráðherrann í
viðtali við Fox-sjónvarpsstöðina.
REUTERSMYND
Paul Wolfowitz
Næstæösti maöur Pentagons segir
aö þaö taki meira en hálft ár aö
mynda starfhæfa stjórn í írak.
En áður en stjórn heimamanna
tekur við verður írak stjómað af
bráðabirgöastjórn þar sem banda-
ríska landvarnaráðuneytið mun
væntanlega ráða mestu.
Jay Gamer, bandarískur her-
fogingi á eftirlaunum sem á að
leiða bráðabirgðastjórnina að
stríðinu loknu, hefur frestaö
fyrsta fundi sínum með frétta-
mönnum um óákveðinn tíma.
Fundurinn átti að vera í dag. Eng-
in skýring var gefin á frestuninni.
Arabar óttast mjög að Banda-
ríkjamenn muni ekki hverfa frá
írak í bráð. „Bandaríkjamenn
munu ekki hverfa á brott þar sem
þetta er hluti nýlenduáætlunar,"
sagði egypskur leigubílstjóri.
flnnan boðar til lundar í dag
Kofi Annan,
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóð-
anna, hefur boðað
til óformlegs fund-
ar um írak í Ör-
yggisráðinu í dag.
Talsmaður Ann-
ans vildi ekki
greina frá ástæðunni fyrir því að
boðað var til fundarins.
Morðingjar játa
Serbnesk yfirvöld sögðu í gær
að fyrrum liðsmaður leynilögregl-
unnar og félagar í glæpagengi
hefðu gengist við morðinu á Zor-
an Djindjic forsætisráðherra.
Lokaði konuna inni í 20 ár
Danska lögreglan hefur hneppt
63 ára karlmann í gæsluvarðhald
fyrir að hafa lokað blinda eigin-
konu sína inni í 20 ár.
Stuðningurinn aldrei meiri
Stuðningur bresks almennings
við stríðið í írak hefur aldrei ver-
ið meiri, samkvæmt könnun
Daily Telegraph, en fæstir vilja
að Bandaríkjamenn stjómi land-
inu að stríðinu loknu.
Clfl smyglaði herforingja
Bandaríska leyniþjónustan CIA
smyglaði íröskum herforingja,
sem var í stofufangelsi í Dan-
mörku, til Kúveits til að hann
gæti aðstoðað innrásarherina.
Condoleezza til Moskvu
Condo-
leezza Rice,
þjóðarörygg-
isráðgjafi
Bush Banda-
ríkjaforseta,
kom til
Moskvu í
gær til viðræðna við háttsetta
embættismenn. Tilgangur ferðar-
innar er að reyna að lappa upp á
samskipti þjóðanna sem hafa
skaðast vegna ágreinings um
stríðsaðgerðirnar í írak.
Námsmenn í vígahug
Hópur íranskra guðfræðinema
hefur óskað eftir leyfi stjómvalda
til að halda til íraks til að standa
vörð um helgidóma síta múslíma.
Jessica fær heimsókn
Bandaríski her-
maðurinn Jessica
Lynch, sem sér-
sveitir björguðu
úr klóm íraka á
sjúkrahúsi í Nass-
iriya um daginn,
hefur fengið fjöl-
skyldu sína í
heimsókn til her-
sjúkrahúss í Þýskalandi þar sem
hún gekkst undir aðgerð vegna
meiösla sem hún hlaut í bardög-
um við íraka.
Börn brunnu til bana
Eldsvoði í skólahúsi í þorpi í
Síberíu varð 21 barni og kennara
þeirra að bana í morgun.
Eíningarfundur E8B
Leiðtogar Evrópusambandsins
og annarra Evrópuþjóða, svo og
hugsanlega Rússlandsforseta, hitt-
ast í Aþenu 16. apríl til að leggja
á herslu á einingu ríkja álfunnar
þrátt fyrir ágreining um írak.