Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Page 13
13
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003________________________________________
X>v Útlönd
Lokaoppustan um höfuöbopg-
ina Bagdad hófst í mopgun
Talsmenn bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins í Pentagon sögðu í
morgun að lokaorrustan um höfuð-
borgina Bagdad væri hafin en þá réð-
ust bandarískar hersveitir inn í borg-
ina á um 65 skriðdrekum og 45 bryn-
vörðum ökutækjum og hertóku
nokkrar byggingar í hjarta borgarinn-
ar. Þar á meðal voru húsnæði upplýs-
ingamálaráðuneytisins, forsetahaúir
og nokkrar aðrar lykObyggingar í
miðborginni.
Innrásin hófst þegar í dögun og
veittu írakar töluverða mótspyrnu í
upphafi. Munu að minnsta kosti fimm
bandarískir hermenn hafa fallið þegar
hersveitimar nálguðust miðborgina
en þá varð bryndreki þeirra fyrir árás
íraskrar stórskotaliðssveitar.
Að sögn talsmanna bandaríska
hersins voru þrjár hallir Saddams for-
seta herteknar í innrásinni og þar á
meðal Lýðveldishöllin í hjarta borgar-
innar en þar hafði bandaríski fáninn
Lýðveldishöllin herteklnn
Bandarískar hersveitir hertóku nokkar lykilbyggingar í hjarta höfubborgarinnar
Bagdad í morgun og þar á meöal Lýbveldishöllina þar sem bandaríski
fáninnn var dreginn ab húni.
þegar verið dreginn að húni í stað
þess íraska að sögn fréttamanna, sem
fylgdust með innrásinni, en þeir
höíðu fengið leyfi til þess að fara inn
í höllina strax eftir að hermenn höfðu
gengið úr skugga um að höllin væri
yfirgefin.
Að sögn sjónarvotta heyrðust
sprengingar og skothríð utan hallar-
innar fyrst eftir hertökuna en eftir öfl-
uga þyrluárás mun hafa dregið úr
mótspymunni. Irakar héldu þó öllum
mikilvægum brúm yfir ána Tigrís í
nágrenninu, nema Senek-brúnni sem
Bandaríkjamenn höfðu náð á sitt vald
en samkvæmt óstaðfestum fréttum
höfðu írakar í morgun sprengt upp
tvær brýr á ánni Diyala.
Á sama tíma hafa breskar her-
sveitir haldið áfram aðgerðum í
olíuborginni Basra í suðurhluta
landsins en í morgun var ráðist til
atlögu í suðurhluta borgarinnar
eftir harða bardaga í gær.
Bush og Blair
Ræöa íraksmál á fundi í dag.
Bush og Blair reyna aö
finna leifl til sátta
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti og Tony Blair, helsti banda-
maður hans i Íraksstríðinu, hitt-
ast á Norður-írlandi í dag til að
reyna að finna leiðir til að jafna
ágreining við Evrópuþjóðir um
hlutverk Sameinuðu þjóðanna í
uppbyggingarstarfinu í írak.
Bandarískir embættismenn
hafa hafnað því að SÞ gegni þar
mikilvægu hlutverki. Þeir segja
að Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra hafi fært miklar
fórnir á vígvellinum og ættu þess
vegna rétt á að ráða ferðinni.
Blair er sammála öðrum Evr-
ópuleiðtogum um að Öryggisráðið
eigi að samþykkja uppbyggingar-
starfið sem fram undan er.
REUTERSMYND
Lýöveldisverölr gefast upp í Bagdad
Þrír menn, sem bandarískir landgönguliöar segja ab séu íraskir lýöveldisveröir í borgaralegum klæöum, rétta upp
hendurnar í uppgjöf viö mikilvæga brú í úthverfi Bagdad í morgun. Bandarískar hersveitir náöu aöalhöll Saddams
Husseins Iraksforseta á sitt vald í morgun og komust enn fremur inn í aöra höll hans í höfuöborginni.
Efnavopna-Ali
Frændi Saddams og einn mesti böö-
ull íraksstjórnar féll í Basra.
Líkifl af efnavopna-Ali
er fumflfl í Basra
Ali Hassan al-Majid, sem
stjórnarandstæðingar í írak köll-
uðu efnavopna-Ali, lét lífið á
laugardag þegar flugskeytum var
skotið á hús hans í Basra í sunn-
anverðu írak.
Ali, sem var frændi Saddams
Husseins forseta og einhver mesti
svíðingurinn í stjórn hans, hlaut
viðurnefni sitt fyrir að stjórna
efnavopnaárás sem varð þúsund-
um Kúrda að bana árið 1988.
Andrew Jackson, major í
breska hernum, sagði ÁP frétta-
stofunni í morgun að lík Alis
væri fundið, svo og lík lífvarðar
hans og yfirmanns írösku leyni-
þjónustunnar í Basra.
Saddam hafði falið frænda að
stjórna vörnum gegn innrásarlið-
inu í sunnanverðu landinu.
Mannréttindasamtök höfðu
krafist þess að Ali yrði handtek-
inn fyrir stríðsglæpi.
Tæplega púsund borg-
arar drepnir í Kongó
Sameinuðu þjóðunum hafa
borist upplýsingar um að nærri
eitt þúsund óbreyttir borgarar í
norðausturhluta Kongólýðveldis-
ins hafi verið drepnir með sveðj-
um og byssum í síðustu viku og
líkin sett í íjöldagrafir. Þar voru
að verki vopnaðar sveitir ætt-
bálkamanna.
„Rannsóknarsveit SÞ heyrði að
966 manns hefðu verið drepnir.
Þeir fundu 20 fjöldagrafir og
heimsóttu 49 alvarlega særðra á
sjúkrahús," sagði Hamadoun
Touré, talsmaður sendinefndar
SÞ í Kongó, við fréttamenn.
Sjónarvottar sögðu að víga-
mennirnir hefðu ráðist á bæinn
Drodro og fjölda nálægra þorpa á
fimmtudag. Ekki er ljóst hverjir
árásarmennirnir voru en ætt-
bálkaerjur hafa orðið þúsundum
manna að bana á undanfórnum
þremur árum.
Leigctn í þínu hverfí
0.5 Itr Coca-Cola
og grilluð samloka