Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Page 24
48
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003
íslendingaþættir______________________________________________________________________________________________________PV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_________________________
ííagnar Guðmundsson,
Dvalarheimilinu Höföa, Akranesi.
85 ára_________________________
Ragnar Þór Kjartansson,
Garöarsbraut 35b, Húsavík.
80 ára_________________________
Jóhannes Jóhannesson,
Þórólfsgötu 4a, Borgarnesi.
Kristín Sigmarsdóttir,
Gnoðarvogi 42, Reykjavlk.
75 ára_________________________
Fanney Egilsdóttlr,
■Gullsmára 9, Kópavogi.
Guörún Hafsteinsdóttir,
Bjarkarholti 1, Mosfellsbæ.
Ragna Gestsdóttir,
Lindasíðu 2, Akureyri.
70 ára_________________________
Guðríöur Ragnarsdóttir,
Garðarsbraut 38, Húsavík.
Jón Örn Bogason,
Unnarbraut 28, Seltjarnarnesi.
María Helgadóttir,
Stóru-Ökrum lb, Varmahlíð.
60 ára_________________________
Ása Thurid Nlciasen,
Álfholti 56c, Hafnarfiröi.
SO ára_______________________________
Bjarni Jónsson,
Nönnustíg 12, Hafnarfirði.
Edda Angantýsdóttir,
Smáragötu 18, Vestmannaeyjum.
Engilbert Þorsteinsson,
Jaöarsbraut 27, Akranesi.
Guörún Sóley Guöjónsdóttir,
Melhaga 5, Reykjavík.
Gunnar Már Yngvason,
Hátúni 26, Keflavík.
Hreinn Pétursson,
Hólalandi 24, Stöðvarfiröi.
Kristín Ósk Óskarsdóttir,
iakaseli 27, Reykjavík.
Stefán Einarsson,
Nesbala 22, Seltjarnarnesi.
40 ára______________________________
Elísabet Rafnsdóttir,
Mjósundi 16, Hafnarfirði.
Erna Ólöf Óladóttir,
Borg, Mjóafirði.
Hans Otto Christensen,
Kirkjubraut 26, Höfn.
Hrefna Einarsdóttir,
Fjallalind 113, Kópavogi.
Kolbrún Guöbrandsdóttir,
Ytri-Hjarðardal 2, Flateyri.
Kristín Jóna Guðjónsdóttir,
Suðurbraut 14, Hafnarfirði.
Lllja Jensdóttir,
Brimhólabraut 12, Vestmannaeyjum.
Ólafur Eövarö Rafnsson,
Miðvangi 5, Hafnarfirði.
Ólafur Kjartan Halldórsson,
Lækjarhjalla 36, Kópavogi.
Rúnar Rúnarsson,
Selvogsgrunni 7, Reykjavík.
Stefán Siguröur Georgsson,
Byggðarenda 20, Reykjavík.
Vilhjálmur Vilmundarson,
Uröarbakka 14, Reykjavík.
Þröstur Guðnason,
Klukkubergi 7, Hafnarfiröi.
Smáauglýsingar
DV
550 5000
Fólk í fréttum
Haildór HaHdórsson
starfsmaöur á Reykjalundi og áhugaleikari
HaUdór Halldórsson, starfsmaður
á Reykjalundi og áhugaleikari, var í
athyglisverðu viðtali í síðasta helg-
arblaði DV.
Starfsferill
Halldór fæddist í Reykjavík 16.7.
1963 en ólst upp i Kópavogi. Hann
var í Digranesskóla og Víghóla-
skóla.
Haildór starfaði hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur 1979-89. Hann
hóf þá störf á Reykjalundi þar sem
hann hefur starfað síðan, lengst af á
hjarta- og lungnarannsóknarstofu.
Halldór var félagi í knattspyrnu-
félaginu Augnabliki í Kópavogi um
árabil.
Halldór starfaði með Leikfélagi
Kópavogs 1991. Hann hefur starfað
og leikið með Leikfélagi Mosfells-
sveitar frá 2001 og leikur hlutverk
Þorins í Hobbitanum sem nú er ver-
ið að sýna hjá Leikfélagi Mosfells-
sveitar.
HaUdór var fyrsti íslendingurinn
sem fór i hjarta- og lungnaígræðslu,
1988. AUir landsmenn fylgdust þá
með aðgerðinni og heUsu HaUdórs
næstu vikurnar en aðgerð gekk í
aUa staði mjög vel. Þá fór hann í
nýrnaígræðslu 1998 og hefur ekki
kennt sér meins síðan.
Fjölskylda
Dætur HaUdórs eru Eydís Þuríð-
ur, f. 5.9. 1993; Unnur Aðalheiður, f.
3.1. 1995.
Systkini HaUdórs eru Gróa, f.
28.6. 1953, starfsmaður hjá Múla-
lundi, búsett í Kópavogi, gift Þorkeli
Jóhanni Sigurðssyni prentara og
eiga þau þrjú börn; Bjöm Hermann,
f. 29.6. 1955, rafvirki í Kópavogi,
kvæntur Kristínu Harðardóttur
hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú
börn; Ingibjörg Herdís, f. 25.9. 1957,
sjúkraliði í Reykjavík, gift Óskari
Guðmundssyni fiskkaupmanni og
eiga þau tvö börn; Guðmundur Ólaf-
ur, f. 15.4.1960, rafvirki í Reykjavík,
kvæntur Ólafíu Sigrúnu Helgadótt-
ur og eiga þau fímm börn; Sigurður
Viggó, f. 15.4. 1960, pípulagninga-
maður í Kópavogi, kona hans er
Ingibjörg Ingadóttir og eiga þau
saman einn son auk þess sem hann
á tvö böm frá fyrra hjónabandi og
hún einn son; Sigurjón, f. 2.6. 1966,
geðlæknir i London; Ásgeir, f. 25.1.
1973, rafvirki í Reykjavík, kona
hans er Þrúður Vilhjálmsdóttir og
eiga þau einn son.
Foreldrar Halldórs eru Halldór
Sigurðsson, f. 15.3. 1932, rafvirki í
Kópavogi, og k.h., Guðbjörg Aðal-
heiður Guðmundsdóttir, f. 17.5.1933,
húsmóðir.
Ætt
Faðir Halldórs var Sigurður
Viggó, sjómaður í Reykjavík,
Pálmason, b. i Skálavík, Bjamason-
ar. Móðir Halldórs var Evlalia Gróa
Halldórsdóttir, sjómanns í Bolung-
arvík, Jónssonar, b. í Meirabakka í
Skálavík, bróður Einars, afa Þor-
valds Garðars Kristjánssonar, fyrrv.
alþm. Jón var sonur Jóhannesar, b.
á Blámýmm, Jónssonar. Móðir Jó-
hannesar var Þóra Jónsdóttir
yngra, b. á Laugabóli í Ögurhreppi,
Bárðarsonar, ættfóður Arnardals-
ættar, Illugasonar.
Guðbjörg Aðalheiður er dóttir
Guðmundar Ólafs, verkamanns í
Hafnarfírði, Guðmundssonar, Sig-
urðsonar, b. og kaupfélagsstjóra á
Sveinseyri, Jónssonar, b. í Neðribæ
í Selárdal, bróður Sveins, langafa
Páls Magnússonar hjá íslenskri
erfðagreiningu. Jón var sonur
Ólafs, b. á Kirkjubóli í Skutulsfírði,
bróður Málmfríðar, langömmu
Bjarna, afa Þrastar Árnasonar
skákmeistara. Ólafur var sonur
Guðmundar, b. á Eiði I Hestfírði,
Egilssonar.
Móðir Guðbjargar var Sigríður
Guðbjartsdóttir, b. á Tannanesi í
Tálknafírði, Sigurðssonar og Sól-
veigar Kristjánsdóttur, b. á
Melgraseyri í ísafirði, Jónssonar.
Móðir Kristjáns var Kristín Ás-
geirsdóttir, systir Ásgeirs á Am-
gerðareyri, langafa Margrétar,
ömmu Jóns L. Árnasonar stórmeist-
ara.
Sjötug
Guðmunda J. Helgadóttir
fyrrv. fangavöröur og fyrrv. formaður Sóknar
Guðmunda Jónina Helgadóttir,
fyrrv. fangavörður, Dvergholti 3,
Hafnarfirði, er sjötug í dag.
Starfsferill
Guðmunda fæddist í Haukadal í
Dýrafírði og ólst þar upp. Hún lauk
barnaskólaprófi frá Haukadal og
vann öll almenn störf frá fimmtán
ára aldri þar til hún giftist nítján
ára. Hún stundaði síðar á ævinni
nám við Fangavarðaskóla ríkisins
og lauk þaðan prófum 1993.
Guðmunda starfaði um nokkura
ára skeið á sjúkrahúsum borgarinn-
ar þar til hún var kjörin formaður
Starfsmannafélagsins Sóknar 1973
en hún gegndi því embætti næstu
þrjú árin, eða til 1976. Hún var
fangavörður hjá Lögreglunni í
Reykjavík 1970-2000.
Guðmunda var varaborgarfull-
trúi fyrir Alþýöubandalagið 1974-78,
fulltrúi í Umhverfismálaráði
1974-78, varamaður í Barnavemdar-
nefnd 1978-82, einn af stofnendum
Búseta, sat í stjóm félagsins um ára-
bil og var varaformaður Landssam-
bands Búsetafélaganna.
Fjölskylda
Guðmunda giftist 7.6. 1959 fyrri
manni sínum, Davíð Ágúst Guð-
mundssyni, f. 23.10. 1917, d. 17.4.
1974, húsasmíðameistara. Þau
skildu. Hann var sonur Guðmundar
Helgasonar, húsasmiðameistara í
Reykjavík, og Jakobínu Ásgeirsdótt-
ur húsmóður, lengst af í Reykjavík.
Guðmunda giftist 28.12. 1974
seinni manni sínum, Bjama Bjama-
syni, f. 28.4. 1928, fyrrv. lektor við
KHÍ. Þau skildu. Foreldrar hans
voru Bjarni Jónsson, bóndi í Álfhól-
um í Vestur-Landeyjum, og k.h.,
Pálína Margrét Þorsteinsdóttir hús-
freyja.
Böm Guðmundu og Davíðs eru
Bergljót, f. 24.8. 1952, blaöamaður,
hennar maður er Magnús E. Finns-
son, viðskiptafræðingur og deildar-
stjóri hjá Póst- og fjarskiptastofnun
en Bergljót á þrjú böm frá fyrra
hjónabandi; Ragnheiður Ólafía, f.
28.7. 1954, forvamarfulltrúi hjá VÍS,
hennar maður er Jóhann Óskars-
son, fyrrv. lagerstjóri, og eiga þau
tvo syni; Helgi Jón, f. 18.8. 1955,
verkstjóri hjá BYKO, kona hans er
Margrét Ingólfsdóttir lyfjatæknir og
eiga þau þrjár dætur; María Svein-
fríðm-, f. 26.6. 1957, hjúkrunarfræð-
ingur, hennar maður er Hörður
Harðarson fiskeldisfræðingur og
eiga þau tvo syni; Davið Ágúst, f.
2.2. 1961, kennari í Hafnarfirði og á
hann einn son; Jakobína Valgerður,
f. 13.3. 1963, fararstjóri á Spáni.
Systkini Guðmundu: Andrea, f.
13.11. 1927, fyrrv. sjúkraliöi, hennar
maður var Guðbjartur Sigurgísli
Bergmann Kristjánsson, f. 15.12.
1914, d. 20.6. 1967, bifreiðarstjóri,
eignuðust þau fjögur börn en fyrir
átti Andrea tvö böm; Svavar, f. 18.5.
1931, d. 26.10. 1975, kennari og fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
bamakennara, hans kona var Unn-
ur Bjarnadóttir, f. 17.8. 1927, d. 6.3.
1982, íþróttakennari en fyrir átti
Svavar þrjú börn með Guðrúnu
Guðmundsdóttur sem einnig er lát-
in; Bjami Ólafur, f. 7.5. 1930, d. 9.2.
1983, skipherra hjá Landhelgisgæsl-
unni, hans kona var Hrönn Sveins-
dóttir og eignuðust þau fjögur böm.
Hálfsystir Guðmundu, samfeðra;
Aðalheiður, f. 7.8. 1926, húsmóðir,
hennar maður var Jósef Sigurðsson
innheimtumaður sem er látinn.
Foreldrar Guðmundu voru Helgi
Pálsson, f. 10.11. 1900, d. 2.12. 1981,
lengi kennari í Haukadal og síðar
verkstjóri hjá Sambandinu, og k.h.,
Bergljót Bjarnadóttir, f. 8.7. 1910, d.
1999, húsmóðir. Þau bjuggu í
Haukadal til 1952 er þau fluttu til
Reykjavíkur.
Ætt
Foreldrar Helga voru Páll Sigurð-
ur Jónsson, skipstjóri í Brautarholti
í Haukadal, og k.h., Andrea Andrés-
dóttir húsmóðir.
Foreldrar Bergljótar voru Bjami
Jónatansson, verkamaður á Flat-
eyri, og Stefanía Arngrímsdóttir
húsmóðir.
Guðmunda verður að heiman á
afmælisdaginn.
Viðskiptaþátturinn
Alla virka daga kl. 17-18 eru sérfræöingar Viðskiptablaðsins,
Sigurður Már Jónsson og Hörður Vilberg við hljóðnemann
og taka púlsinn á viöskiptalífi þjóðarinnar.
Þú þarft að hlusta!