Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Síða 28
52
_______________MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003
Tilvera ÐV
101 kvikmyndahátíð:
Bíóveísla fpam yfb* páska
Kvikmyndaunnendum ætti ekki
að leiðast fram yfir páska. Næst-
komandi fimmtudag hefst 101 kvik-
myndahátíð í Regnboganum og mun
hún standa í rúmar þrjár vikur.
Þrettán kvikmyndir verða á boðstól-
um, nýjar úrvalsmyndir, sem marg-
ar hverjar hafa vakið mikla athygli
á síðustu misseram, má þar nefna
heimildarmyndina Bowling For Col-
umbine, sem fékk óskarsverðlaunin
á dögunum. Verður hún opnunar-
mynd hátíðarinnar, 10. apríl. Mynd-
irnar koma frá öllum heimshomum
og er víst að allir ættu að fá eitthvað
sem vekur áhuga. Hér fer á eftir
stutt yfirlit yfir myndimar. Eins og
áður segir verður hátíðin í Regnbog-
anum, sem hefur fengið andlitslyft-
ingu, bíósalirnir verið teknir í gegn
og nú síðast anddyri og salur.
Bowling for Columbine
Margverðlaunuð heimildarmynd
eftir einn skæðasta gagnrýnanda
samtímans, Michael Moore. Bowl-
ing for Columbine er eldfim og hug-
vekjandi þar sem íjallað hér um
skotvopnaeign Bandaríkjamanna,
vopnastýringu og hugsanleg tengsl
milli tíðna ofbeldisglæpa og morða
og þess hve auðvelt er að verða sér
út um byssur. Moore er afar gagn-
rýninn á bandarískt þjóðfélag, hann
á auðvelt með að koma skoðunum
sínum á framfæri og kímnigáfan
hans leynir sér ekki. Hér bregður
hann sér í hlutverk spyrils en er
jafnframt höfundur handrits, leik-
stjóri og framleiðandi.
Eyrnagöt
Nýjung
Framþróun í eyrnagatagerð
Rakarstofan s
Klapparstíg |
Sími 551 3010 |
tlmSsiitsn I sl*a 5t0 2525
JÉ ItXlSVJIP: SUí 2 150-153,
vinmnsstöiur lausardasinn
secou aft - vm nuuuftntiM 5. apríl
V V 2) 2) S) ®38)
* Jókertölup vlkunnar
[JJ 5 5 7 4
uarrm
fttltat á
raMnðijn
Rabbit Froof Fence
Ung blökkukona flýr vinnubúöir og heldur heim á leið um langan veg.
El crimen del padre amaro
E1 crimen del padre amaro eða
Glæpur fóðurs Amaro er mexíkósk
kvikmynd. Var hún tilnefnd til ósk-
arsverðlaunanna sem besta erlenda
kvikmyndin. Leikstjóri er Carlos
Carrera.
í Myndinni leikur Gael García
Bemal séra Amaro, ungan prest
sem er sendur til lítillar kirkju í Los
Reyes í Mexíkó, til aðstoðar hinum
aldna séra Benito, sem er afar virt-
ur í þessu litla samfélagi. Séra
Amaro kynnist ungri stúlku, hinni
gullfallegu Amelíu. Hún fellur fyrir
unga prestinum en trúin vefst fyrir
henni. Amelía fetar í fótspor móður
sinnar sem hefur átt í áralöngu ást-
arsambandi við séra Benito.
Spider
Spider er nýjasta kvikmynd Dav-
id Cronenbergs. Var hún frumsýnd
á Kvikmyndahátíðinni í Cannes í
fyrra. Sem fyrr er David Cronen-
berg á slóðum sem fáir hafa áður
farið og fjallar myndin um mann,
sem eftir að hafa verið vitlaus í
orðsins fyllstu merkingu, fær vitið
aftur. Móðir hans kallar hann
Spider en Dennis Clegg heitir hann
og býr á heimili fyrir geðtruflaða í
London. Hann hefur verið geðklofi
frá unga aldri. Helstu leikarar eru
Ralph Fiennes, Gabriel Byme og
Natasha Richardson.
The Good Girl
í Góðu stelpunni sýnir Jennifer
Aniston að hún er meira en „vinur“.
Hefur hún fengið mjög góða dóma
fyrir leik sinn. Leikur hún óham-
ingjusama eiginkonu sem lifir fá-
brotnu lífi í smábæ í Bandaríkjun-
um. Líf hennar flækist svo um mun-
ar þegar hún hefur ástarsamband
við ungan mann sem heldur að
hann sé Holden Caulfield úr Catcher
in the Rye (Bjargvætturinn í gras-
inu).
Leikstjóri er Miguel Arteta og
auk Aniston leika í The Good Girl,
Jake Gyllenhaal, John C. Reilly og
Tim Blake Nelson.
Rabbit Proof Fence
Rabbit Proof Fence (Kanínunetið)
er önnur tveggja úrvalsmynda, sem
ástralski leikstjórinn Philip Noyce
skilaði frá sér á síðasta ári. Hin er
The Quiet American. Hefur Kanínu-
netið fengið mjög góðar viðtökur og
fengið verðlaun. Meðal annars var
hún valin besta ástralska kvik-
myndin á síðasta ári. Myndin er
byggð á sannsögulegum atburðum
og fjallar um Molly Craig, unga
blökkukonu í Ástralíu, sem flýr
ásamt yngri systur sinni og frænku
frá vinnubúðum. Vinnubúðimar
eru reknar af yfirvöldum til þess að
þjálfa blökkufólk sem verkamenn
ogg koma þeim betur inn í samfélag
hvítra. . Óþekktir leikarar era í
stærstu hlutverkunum, en Kenneth
Brannagh fer einnig með hlutverk í
myndinni
28 Days Later
Eftir að hafa farið flatt á The
Beach kemur breski leikstjórinn,
Danny Boyle, sterkur inn með vís-
indatryllinn 28 Days Later.
Bráðsmitandi vírus sleppur frá
breskri rannsóknarstofu. Hann
berst á milli manna með blóði, smit-
aðir brjálast og myrða allt sem á
vegi þeirra verður! Innan 28 daga
eru örfáir Bretar eftir ósmitaðir og
reyna þeir að berjast fyrir framtíð
sinni. En vírusinn er ekki það eina
sem ógnar tilvera þeirra. í helstu
hlutverkum eru Cillian Murphy,
Naomie Harris, Megan Burns,
Brendan Gleeson og Christopher
Eccleston. Breska kvikmyndatíma-
ritið Empire valdi 28 Days Later
The Good Girl
Jennifer Aniston hefur fengiö góöa
dóma fyrir leik sinn í hlutverki óham-
ingusamrar eiginkonu.
sem bestu bresku kvikmynd ársins.
Comedian
Comedian er heimildarkvikmynd
um Jerry Seinfield þar sem koma
fram margir þekktir leikarar og
skemmtikraftar. Er myndin um það
hvort það sé líf fyrir Jerry Seinfield
eftir að hætt var að gera hina vin-
sælu Seinfeld sjónvarpsseríu. í upp-
hafi er Jerry Seinfeld ekki af baki
dottinn. Hann hefst handa við að
vinna nýtt efni sem uppistandari og
fær félaga sinn í lið með sér. í
myndinni er fylgst með þeim
skemmta í litlum klúbbum víðs veg-
ar um Bandaríkin. Auk þess eru
málin rædd við menn í sömu stétt,
meðal annars þá Jay Leno, Bill Cos-
by, Chris Rock, Ray Romano og
fleiri.
Bowling For Columbine
Michael Moore er vígategur meö
byssu í annarri hendi og sjónvarps-
tökuvélina í hinni.
Elsker dig for evigt
Ég elska þig að eilífu er nýjasta
danska dogme myndin. Fjallar um
trúlofað par sem lendir í gríðarleg-
um erfiðleikum þegar maðurinn lam-
ast í bílslysi og konan verður ást-
fangin af manni konunnar sem olli
árekstrinum. Leikstjóri myndarinn-
ar er Susanne Bier, sem leikstýrði
Den eneste ene fyrir nokkrum árum.
í helstu hlutverjkum Nikolaj Lie
Kaas, Mads Mikkalelsen, Paprika
Steen og Sonja Richter.
Heaven
Heaven, sem Tom Tykwer (Run
Lola Run) leikstýrir er gerð eftir
handriti sem Krzysztof Kielslowski
hafði skrifað stuttu áður en hann
lést. Segir myndin frá Philippa
Paccard sem er afar vonsvikinn
vegna ófullnægjandi rannsóknar
ítöisku lögreglunnar á dauðsfalli
eiginmanns hennar sem lést af völd-
um eiturlyfja. í örvæntingu kemur
hún sprengju fyrir hjá eiturlyfjasal-
anum sem leiöir til dauða fjögra
saklausra fórnarlamba. Hún er
handtekin fyrir hryðjuverk sín en
túlkurinn trúir á sakleysi hennar og
leitar leiða til að frelsa hana. í aðal-
hlutverkum eru Cate Blanchett,
Giovanni Ribisi.
Pinocchio
Gosi er fyrsta kvikmyndin sem
Roberto Benigni gerir eftir La Vita é
Bella. Benigni sem leikstýrir mynd-
inni og leikur aðalhlutverkið lagði
bæði mikla peninga og mikinn
metnað í myndina. Þegar hún var
frumsýnd á Ítalíu í fyrra hafði eng-
in ítölsk kvikmynd verið sýnd í jaf-
an mörgum kvikmyndasölum í einu
og sló hún aðsóknarmet. Aðsóknin
að henni hefur ekki verið jafn mikil
í öðrum löndum. Auk Benigni leika
í Gosa eiginkona hans Nicoletta
Braschi, Carlo Giuffré og Peppe
Barra.
Naqoyqatsi
Naqoyqatsi er ný teikni-
mynd/stríðsmynd/heimildarmynd í
leikstjóm Godfrey Reggio. Þetta er
lokamyndin í „qatsi“ þríleik Reggi-
os, sem meðal annars eru frægar
fyrir magnaða tónlist Phillips Glass.
í myndinni er hversdagslegum veru-
leika breytt með nýjustu tækni. Út-
koman er gerólík. Heimurinn lýtur
ekki lengur lögmálum náttúrannar
heldur er honum stjómað af tækni,
sýndarveruleika og gerfigreind.
Gamle mænd i nye biler
Gamlir karlar í nýjrnn bílum er
skemmtileg dönsk kvikmynd sem er
í ætt við I Kina spser de hunde. Ger-
ist áður en atburðarás þeirrar kvik-
myndar hófst. Hinsta ósk Monks er
að Harald fóstursonur hans finni
son hans, Ludvig. Það er hægara
sagt en gert því Ludvig afþlánar
fangelsisvist í Svíþjóð. Kokkamir
Peter & Martin, freista þess að
frelsa hann með óvæntum afleiðing-
um. Leikstjóri er Lasse Spang Olsen
og í helstu hlutverkum eru Nikolaj
Lie Kaas, Kim Bodnia og Torkel Pet-
ersson.
Klassfesten
Klassfesten er ný sænsk gaman-
mynd sem leikstýrt er af Mans
Herngren. Aðalpersónan er Magnus
Edkvist, 35 ára gamall maður sem
er í nöp við endurfundi gamalla
skólafélaga og forðast því slíkar
samkomur eins og heitan eldinn.
Samt sem áður þiggur hann slíkt
boð þegar gamli bekkurinn hans
ætlar að hittast. En hann hefur sín-
ar ástæður - það er möguleiki á að
gamla skólaástin mæti á staðinn.
Mikael Almqvist og Inday Ba leika
aðlhlutverkin.
-HK