Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003
DV
53
Tilvera
Æft fyrir tónleikana
Fjölbreytni er alls ráöandi í lagavalinu á tónleikunum.
Svanurinn meö vortónleika:
Lúðrablástur og líflegur félagsskapur
Lúðrasveitin Svanur heldur ár-
lega vortónleika sína í Loftkastalan-
um 9. apríl næstkomandi kl. 20.
„Það er mjög gaman aö vera í lúðra-
sveit. Þetta er skemmtilegur hópur
og jafnframt gott félagsstarf," segir
Guðný Jónsdóttir, meðlimur í Svan-
inum, en hún situr einnig í stjóm.
Markmið sveitarinnar er að vera í
fararbroddi slíkra sveita og vera í
senn góð viðbót í menningarflóru
borgarinnar og skemmtilegur fé-
lagsskapur fyrir fólk á öllum aldri.
Svanurinn var stofnaður árið 1930
og í dag em félagar um fjörutíu og
eru þeir á aldrinum 18 til 35 ára.
Tónleikar og árshátíð
„Það er nóg að gera þessa stund-
ina. Viö erum nýbúin að halda árs-
hátíð. Síðan eru tónleikamir í apríl
auðvitað stóra málið,“ segir Guðný.
Um efnisskána segir hún að þar
verði meðal annars verk eins og
Westem Pictures, Os Pássaros do
Brasil. Highlights from Exodus og
Czardas.
„Einnig verður einn meðlimur
Svansins með einleik; Ella Vala Ár-
mannsdóttir og spilar homakonsert
Flautuleikarinn
Guöný Jónsdóttir er flautuleikari í
Svaninum auk þess sem hún situr í
stjórn hljómsveitarinnar.
eftir Mozart. Svo er stjórnandinn
okkar, Haraldur Ámi Haraldsson,
að láta af störfum eftir 10 ára starf
og hann verður að sjálfsögðu heiör-
aður með viðeigandi hætti,“ segir
Guðný.
Hljómsveitin tekur einnig að sér
að spila við hin ýmsu tilefni.
„Það hefur verið minna umleikis
að undanfomu en annars er starf-
semin nokkuð jöfn,“ segir Guðný.
„Það eru auðvitað alltaf fastir dagar
eins og 1. maí og 17. júní. Annars er
alltaf mest aö gera á sumrin og um
jólin. Svo eru líka opinberar heim-
sóknir og þess háttar."
Ekki mikil athygli
Guðný segir að lúðrasveitir al-
mennt fái ekki mikla athygli á ís-
landi.
„Við þurfum auðvitað líka að
vera dugleg við að auglýsa okkur og
láta vita af okkur. Erlendis fá lúðra-
sveitir mikla virðingu og athygli.
Þetta vantar eiginlega hérna,“
segir Guðný sem hefur verið í sveit-
inni í fiögur ár og spilar á þver-
flautu.
„Ég er utan af landi,“ segir hún
„en þegar ég kom í bæinn til að fara
í háskóla byrjaði ég í Svaninum.
Við æfum alltaf fast einu sinni í
viku. Mér finnst þetta æðilslega
gaman enda er þetta hress og
skemmtilegur hópur.“ -gfv
Myndbönd/DVD
The Ballad of Ramblin’ Jack - iririr
Þjóðsagnapersóna
Það eru ekki margir hér á landi sem þekkja þjóðlaga-
og kántrísöngvarann Jack Elliott, eða Ramblin’ Jack,
sem Johnny Cash segir að sé sá söngvari sem hafi víöast
farið, eignast flesta vini og sungið flesta söngva og Arlo
Guthrie segir að það væri enginn Bob Dylan ef Ramblin’
Jack hefði ekki verið til. í The Ballad of Ramblin’ Jack,
merkilegri og góðri heimildamynd, kynnumst við vel tón-
listarmanni sem oftar en einu sinni stóð á þröskuldi
frægarinnar. Eirðarleysi og meðfætt kæruleysi gerði þaö
að verkum að hann spilaði sig ávallt út í hom. Það er
með augum dóttur hans, Aiyana Elliott, sem leikstýrir
kvikmyndinni og fylgir föður sínum eftir, sem við kynnumst skemmtilegum
manni sem allir vilja vingast við og um leið manni sem heldur sig í fjarlægð
við sina nánustu. Dóttirin er ekki aðeins að kynna okkur tónlistarmanninn
Jack Elliott heldur er hún sjálf að reyna að ná sambandi við föður sinn.
Jack Elliott byrjaði ungur að ferðast með gítarinn og munnhörpuna. Og
sögulega séð er hann að flestra mati sá sem brúar bilið milli Woodys Gut-
hries og Bobs Dylans. Hann var náinn vinur Guthries, spilaði meö honum
og var við dánarbeö hans. Þegar Bob Dylan var ungur og undir áhrifum frá
Guthrie tók hann Jack Elliott sem fyrirmynd þegar kom að því að stíga á
svið og það leynir sér ekki að Elliott hefur ekki síður áhrif á Dylan en Gut-
hrie. Jack Elliott hefur gefið út margar plötur og næst frægðinni komst hann
í Englandi en þar var hann fjögur ár seint á sjötta áratugnum. Jack vildi
frekar snúa heim heldur en fylgja eftir velgengni í Evrópu og hélt áfram
ferðalagi sínu um þver og endilöng Bandaríkin -HK
Útgefandi: Myndform. Gefin út á myndbandi. Leikstjóri: Aiyana Elliott. Bandaríkin,
2000. Lengd: 112 mín. Bönnuð börnum innan 12 ára.
Fogbound - ★★
Margt býp í pokunni
í upphafi Fogbound fylgjumst við með hjónum og besta
vini þeirra á ferð í svissnesku Ölpunum. Mikil þoka kemur
í veg fyrir að þau geti haldið ferð sinni áfram. Drungalegt
umhverfi og þokan gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn
og við gætum verið í upphafi á sakamálatrylli, sérstaklega
þegar það er haft í huga að leikstjórinn kýs að koma inn
hræðslu hjá persónum sínum. Þessi sýn verður að engu
þegar fyrsta afturhvarf til fortíðarinnar á sér stað en þá
erum við komin á herragarð á átjándu öld þar sem við fylgj-
umst með þróun mála hjá aðalsmanni sem hefur átt tvíbura
með einni vinnukonunni. Ákveður hann að ala annað barnið í auðlegð en hitt
í fátækt. Þegar komið er aftur í þokuna fara málin að skýrast og ljóst er að í
uppsiglingu er erótískur þríhyrningur. Reynslusögur koma og með hverri sög-
unni verður spennan meiri þeirra í millum.
Hollenski leikstjórinn Ate de Jong gefur mikið fyrir stílinn og fer oftar en
ekki fram úr sér í þeim efnum. Því verður ekki neitað að mörg atriðin eru út-
litslega flott en um leið innantóm. Það er viss dýpt í sögunni og persónurnar
eru flóknar. í stað þess að leggja áherslu á þessi atriði flakkar Jong með mynd-
ina í tíma og rúmi svo úr verður torræð kvikmynd sem með meiri aga hefði
getað orðið góður sálfræðitryllir. -HK
Útgefandl: Sam-myndbönd. Gefin út á myndbandi. Leikstjóri: Ate de Jong. Hol-
land/England, 2002. Lengd: 94 mín. Bönnuð börnum Innan 16 ára. Leikarar: Luke
Berry, Ben Daniels og Olga Brady.
Nemendurnlr 7. HH og 7. SBG í Njarðvíkurskóla í heimsókn á DV
Björgvin Pétur, Elsa Björk, Fjóla, Hafdís, Hermann, Hugi, Jóhann Baldur,
Kristinn, Krístín Ingibjörg, Kristófer Viktor, Nína Rún, Ósk, Steinunn Mist,
Sunna Sigríöur, Vignir Þór, Davíö Freyr, Drífa Þöll, Eyrún, Heiöa Hrönn, ísak
Berg, Jökull, Margrét Lára, Sara Björg, Ævar Már.
Samkeppnishæfni
Akureyri 11. apríl 2003
'fU
13:20
cn
ö)
(ö
73
14:00
Skráning
Ávarp
Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
LEED verlcefni OECD - byggðamál
- valkostir og möguleikar
Alejandro Aurrecoechea,
sérfraeðingur, byggðadeild, OECD
Byggðaklasar í Evrópu
- rannsóknir, niðurstöður, valkostir
Elisabet Hauge, sérfræðingur, EIM,
Business & Policy Research, Holland
Samkeppnishæfni landa
- staða íslands
Fiona J. M Paua,
World Economic Forum,
Davos, Sviss
15:30 Kaffi
Þátttaka á ráðstefnuna tilkynnist
til iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins
í síma, 545-8500
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Verkefnisstjórn um byggðaþróun við Eyjafjörð
Iðntæknistofnun fslands
m.
14:40
kynningarfulltrúi Akureyrarbæjar
Þróun finnsku byggðaáætlunarinnar
Kaisa Láhteenmáki-Smith,
sérfræðingur, NORDREGIO
Samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar
á Eyjafjarðarsvæðinu
Karl Friðriksson, framkvæmdarstjóri
Iðntæknistofnunar, Reykjavik
Áherslur og stefna Akureyrar
Knstjan Þ. Júbusson,
bæjarstjóri, Akurevri
Sjónamiið fyrirtækja
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri
Utgerdarfeíag Akurevringa
Verkefnisstjórn um byggðaþróun
við Eyjafjörð - samantekt og niðurstðður
Sigmundur Ernir Rúnarssort ritsöór: DV
og formaðu: Ve’kefnisstiómar
Ráðstefnuslit