Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Blaðsíða 8
BÍlar
8
Laugardagur 26. apríl 2003
Vetnísvæðíngin hafin:
Þrír vetnisknúnir strætis-
vagnar hefja akstur í ágúst
Tímamót urðu í orkumálum
sumardaginn fyrsta er iðnaðarráð-
herra, Valgerður Sverrisdóttir,
dældi 1 kg af eldsneyti á
vetnisknúna bifreið, þá fyrstu sem
ekið er um götur hérlendis, knú-
inni slíkri orku, og jafnframt sú
fyrsta í heiminum. Vetnið er
framleitt á staðnum með rafgrein-
ingu en stöðin er sú fyrsta sinnar
tegundar í heiminum, til húsa við
Selectstöðina við Vesturlandsveg í
Reykjavík. Opnun stöðvarinnar er
hluti svokallaðs ECTOS-strætis-
vagnaverkefnis, sem Nýorka er í
forsvari fyrir, og er verkefnið
styrkt af framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins. Verkefninu var
hrint af stokkunum til að kanna
kosti vetnis sem vistvæns orku-
gjafa framtíðarinnar. íslensk
NýOrka var stofnuð 1999 af
VistOrku hf., sem er samvinnu-
vettvangur íslenskra orkufyrir-
tækja og rannsóknarstofnana.
Hana eiga Nýsköpunarsjóður, ís-
lensk stjórnvöld, Landsvirkjun,
Orkuveita Reykjavíkur, Áburðar-
verksmiðjan, Háskóli íslands,
Hitaveita Suðurnesja, Iðntækni-
stofnun og Aflvaki. Á móti 51%
hlut VistOrku eiga erlendu fyrir-
tækin DaimlerChrysler, Norsk
Hydro og Shell Hydrogen hvert
um sig 16,33% hlut í íslenskri
NýOrku. Um 8 milljónum króna
hefur verið varið til rannsókna á
verkefninu.
„Opnun þessarar vetnisstöðvar
er söguleg stund og eitt skref í átt
til vetnissamfélags hérlendis, sem
og á heimsvísu. Þetta er í sam-
ræmi við þá stefnu stjórnvalda að
efla og styðja nýtingu innlendra
endurnýjanlegra orkulinda. Ekk-
ert á sér stað án draums og við
verðum að trúa á drauma um
betri heim, markmið og framfarir
eins og hér er orðin staðreynd.
Verkefnið í sumar með strætis-
vagnana þrjá frá DaimlerChrysler
er prófraun á það að gera ísland
að raunverulegu vetnissamfélagi.
Þeir verða í tilraunaakstri í tvö
ár. Þessi áfangi sem nú næst með
opnun þessarar stöðvar er því
mjög mikilvægur," sagði Valgerð-
ur Sverrisdóttir iðnaðarráðherra.
Varaformaður framkvæmda-
nefndar SHELL, Jeroen van der
Veer, var einnig mjög bjartsýnn
við opnun stöðvarinnar og taldi
mikla möguleika fólgna í vetni
sem orkugjafa framtíðarinnar.
Vetni væri skref í áttina að sjálf-
SMÁRÉTTINGAR
Emr-öLO oa fuótleq réttínsaþjónusta
%
%
X
Er bíllinn dældaður?
Fjarlægjum dæidir - lagfærum á staðnum
• Lægrí viðgeröarkostnaóur
* Engín fytííefni
* Engín tökkun
• Gerum föst verðtilboð
Þú hríngir - við komum 898 4644 • 895 4644
V/agnhöföa G - 110 Reykjavík
Sími 577 6090 - Fax 577 G095
Eigum til vatnskassa/bensíntanka
og miðstöðvar, ásamt aukamiðstöðvum
ætluðum bifreiðum/bátum og vinnuvélum.
Einnig intercoolera í vörubila og vinnuvélar.
bærri orkugjöf en reynsla fengist
ekki fyrr en stöð á borð við þessa
sem opnuð var í Reykjavík hefði
verið rekin um tíma. Bílaframleið-
endur um allan heim hafa sýnt
þessu verkefni mikinn áhuga en
talið er að 12 til 15 vetnisstöðvar
þurfi við hringveg 1 til þess að
hægt sé að komast hann á vetnis-
bíl. Ein áfylling ætti að duga
a.m.k. til aksturs austur í Vík í
Mýrdal.
í tengslum við opnunina var
síðan haldin ráðstefna á Hótel
Nordica í Reykjavík, „Making
Hydrogen Available to the
Public“, eða „Hvernig vetni getur
orðið aðgengilegt fyrir almenn-
ing“. Þar var Bragi Árnason, pró-
fessor í efnafræði við raunvísinda-
deild Háskóla íslands, sæmdur
fyrstu heiðursverðlaunum ís-
lenskrar NýOrku. Um 30 ár eru
liðin síðan Bragi setti fyrst fram
hugmyndir um nýtingu vetnis í
stað bensíns og olíu sem orkumið-
ils.
Nýting innlendra orkugjafa
til framleiðsiu eldsneytis
í júlí 1997 skipaði iðnaðar- og
viðskiptaráðherra nefnd til að
fjalla um möguleika á nýtingu
innlendra orkugjafa, sérstaklega
með tilliti til þróunar á notkun
óhefðbundinna orkubera, eins og
t.d. vetnis og metanóls. Formaður
var Hjálmar Árnason alþingis-
maður. Nefndin átti m.a. að við-
halda hagrænni úttekt á hag-
kvæmni innlendrar eldsneytis-
framleiðslu; að þeir innlendir og
erlendir aðilar sem sýnt hafa
áhuga á frekari framvindu um-
ræddra mála sameinist um félags-
stofnun til þess að fylgja málum
eftir; að fylgst yrði með þróun
mengunarskatta, svo sem koltví-
sýringsskatta, og stefnt að hlið-
stæðri tilfærslu skattlagningar
hérlendis; að vistvæn ökutæki
nytu tímabundins skattalegs hag-
ræðis, svo sem með aftiámi vöru-
gjalds og þungaskatts, og að mót-
uð yrði stefna um notkun vist-
vænna ökutækja hjá hinu opin-
bera, hvort sem er ríki eða sveit-
arfélögum og stofnunum þeirra,
og einkafyrirtæki hvött til hins
sama. Áhugi erlendra aðila á sam-
starfi við íslendinga um rann-
sóknir og tækniþróun á sviði vetn-
ismála hefur stóraukist aö undan-
förnu. Nefndin hefur lokið störf-
um og gefið út skýrslu á vegum
iðnaðarráðuneytisins þar sem
m.a. var hvatt til þess að hafið
yrði samstarf við innlenda og er-
lenda aðila og ísland boðið fram
sem tilraunavettvangur. Niður-
staða þess var stofnun íslenskrar
NýOrku, en framkvæmdastjóri
fyrirtækisins er Jón Björn Skúla-
son.
opið : virka daga 08-18
laugardaga : 10-14
Borðinn ldipptur
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, klippir á borða eftir að liafa dælt 1 kg af vetni á fyrsta vetnisbílinn
sem kom fra Daimler/Chrysler. Henni til aðstoðar eru Jón Björn Skúlason forstjóri NýOrku á hægri hönd og
Þorsteinn I. Sigfússon.
DV-Mvndir Hari
UMFELGUN
Hjólbarðaverkstæði
Skeifan 5
Sími: 553 5777