Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Page 10
10
Laugardagur 26. aprÍl 2003
EHZl Bílar
Stór smábíll
með gott veggrip
Kostir: Hátt undir bílinn, farangursrými, langdrœgi fjar-
lœsingar, frábœrt veggrip
-Gallar: Fremur stutt á milli pedala, 2. gír nálœgt sœti
eöa lœri ökumanns, veghljóð.
Hyundai Getz, nýjasti bíllinn frá Hyunda
sem Bifreiðar & landbúnaðarvélar eru nú að
kynna, er í raun stór smábíll - 3,810 metrar að
lengd. Helstu keppinaútar hans eru Renault
Clio, sem er 3,773 metrar, Toyota Yaris, 3,615
metrar, og VW Polo, 3,897 metrar. Innanrými er
mjög gott, hæð framsæta má stilla og eins halla
baksins sem styður vel við mjóbakið; nokkuð
sem allir óska en njóta því miður ekki í öllum
tegundum bifreiða. Aftursætin byggjast á svo-
kallaðri 40/60-skiptingu sem þýðir að hægt er
að leggja þau saman og fella fram að framsæt-
um. Þannig
nýtist Getz-inn
ágætlega til
flutninga, þó
éngra stórflutn-
inga. Farang-
ursrými er eðli
málsins sam-
kvæmt ekki
mikið en því
fylgir hilla sem
er auðsetjanleg
í og getur veriö
hentug þegar
farangur þolir
illa að honum
sé mikið stafl-
að. Þokkalega
fer um full-
orðna aftur í -
hnén ekki al-
veg fram í
framsæti en
heldur þröngt
þegar framsæti
er í öftustu
stöðu. Aftur-
rúða er auk
þess fremur há
og kollurinn
ekki alveg uppi
í toppi þótt
maður halli sér
aftur á bak.
Höfuðpúðar eru auk þess stillanlegir, bæði
frammi og aftur í, sem er mikill kostur á löng-
um akstri. Þessar staðreyndir slá mjög á þá til-
finningu að verið sé að aka í smábíl, auk þess
sem það veldur því að útsýni er mjög gott úr
bílnum enda framrúða mjög stór. Þessi bíll
hlýtur að verða góöur kostur fyrir unga fólkið,
er með skemmtilegt útlit og vegna verðsins
gæti hann sem best þjónað hlutverki aukabíls
fyrir heimilið hjá þeim sem þess æskja og geta.
Látlaus innrétting
Innrétting er mjög látlaus og laus við allan
íburð og öll stjórntæki í þægilegri seilingarfjar-
lægð fyrir ökumann. Mælar eru notalegir
áhorfs og gefa upplýsingar um það sem skiptir
máli, s.s. hraða, snúningshraða vélar, bensín-
notkun, hitastig úti o.fl. Bíllinn er með Zenon-
ljós - þægindi sem prýða æ fleiri bíla, en ekki
með sjálfvirkan regnskynjara á framrúðu -
nokkuð sem ég sakna ekki, kannski vegna þess
að ég er ekki vanur slíkum lúxus. Hann er þó
ekki laus við lúxus. T.d. er vasi aftan á fram-
sæti og snagi þar ofan við sem t.d. getur verið
hentugt að henga plastpoka á með einhverju lít-
ilræði, en snaginn þolir þó ekki mikið „hlass“.
Getz-inn er mjög lipur í akstri, hefur mjög
gott veggrip og stóðst prófið alveg þokkalega á
þröngum malarvegi, sem og á malbikuðum,
þröngum vegi. Bíllinn er meö 1,3 lítra 4ra
strokka vél, sem er alveg nóg fyrir þessa stærð
bíla, og auðvitað er það kostur hversu sparneyt-
inn hann er.
Snarminnkandi bilanatíðni
Hyundai var með eina allra lægstu tíðni bil-
ana í könnun Consumer Reports, tímariti
bandarísku neytendasamtakanna, á 25 mismun-
andi bílategundum. Þar með hefur þessi suður-
kóreski bílaframleiðandi blandað sér í toppbar-
áttuna um lægstu bilanatíðnina sem þykir at-
hyglisvert í ljós þess að fyrir 10 árum var
Hyundai meðal þeirra slökustu. Hyundai deildi
öðru sætinu með Honda, þar sem báðir fram-
leiðendur voru með 11 bilanir á hverja 100 bíla.
Þetta er langbesti árangur Hyundai til þessa en
hann varð í 12. sæti í síðustu könnun með 24
bilanir. í fyrsta sæti var Toyota með 10 bilanir
á hverja 100 bíla og í því þriðja Subaru með 13.
Könnunin náði til bíla af árgerð 2002 og reynd-
ist meðalbilanatíðnin vera 18 á hverja 100 bíla.
Þetta meðaltal hefur þá lækkað úr 21 bilun á
HYUNDAI GETZ
Vél:
1,3 lítra bensínvél
Rúmtak:
1341 rúmsentímetrar
Ventlar:
16
Þjöppun:
9,5:1
Gírkassi:
5 qíra beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: MacPherson, vökvademparar
Fjöðrun aftan:___________________Gasdemparar
Bremsur:
Diskar/diskar, ABS
Dekkjastærð:
175/65 R14 82T
YTR! TOLUR:
Lengd/breidd/hæð:
3810/1665/1490 mm
Hjólahaf/veghæð:
2455/135 mm
Beygjuradíus:
10 metrar
INNRI TOLUR:
Farþegar m. ökumanni:
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða:
4/4
Farangursrými:
987 lítrar
HAGKV/EMNI:
Eyðsla á 100 km:
6,2 litrar
Eldsneytisgeymir:
45 lítrar
Ábyrgð/ryðvörn:
3/8 ár
Verð:
1.150.000 kr.
Umboð:
B&L
Staðalbúnaður: Fjarstýrðarsamlæsingar, mjög lang-
dræqar; ABS-hemlar; 4 loftpúðar.
SAMANBURÐARTOLUR:
Hestöfl/sn.:
82
Snúningsvægi/sn.:
119 Nm/3200
Hröðun 0-100 km:
11,5 sek.
Hámarkshraði:
Eigin þyngd:
160 km/klst.
1043 kq
Heildarþyngd:
1500 kq
U| Rýini fyrir fullorðna er ekki mikið aftur í en
alls ekki óþægilegt.
□ Nokkuð hátt er undir bílinn, ljós áferðarfal-
leg og skemintilega innfelld að neðan.
Q Stílhrein innrétting og aðgengi bílstjóra að
mæluin og stjórntækjum gott og þægilegt.
U Getz er með 82 hestafla vél sein er nægilegur
kraftur fvrir svo lítinn bíl.
U l'.kki stórt geymslurými en með niðurfellingu
aftursæta má stækka það upp í 987 lítra.