Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2003, Blaðsíða 4
ÍSLENSK VEISLA í HRÓARSKELDU
Alls munu fjórir íslenskir listamenn og
hljómsveitir koma fram á Hróarskelduhá-
tíðinni í Danmörku í sumar. Þetta eru
Björk, Sigur Rós, Ske og Gus Gus og
munu aldrei svo margir Islendingar hafa
komið fram á hátíðinni sama árið. Hátíðin
fer fram dagana 26.-29. júní í sumar. ís-
lendingar hafa jafnan fjölmennt á hátíð
þessa og árið í ár er þar engin undantekn-
ing. Til marks um það eru allir þeir 700
miðar sem Stúdentaferðir höfðu til sölu
uppseldir. Áhugasamir verða því að leita
leiða til að kaupa sér miða erlendis.
Dr. Cunni verður pabbi
Dr. Gunni greindi ífá því á heimasíðu
sinni um síðustu helgi að hann væri að
verða pabbi. Hann og eiginkona hans, sem
hann kallar jafnan Lufsuna á síðunni, eiga
von á bami í september og ku það vera
strákur. Gunni segist ánægður með að eign-
ast strák en vfsar frá tillögum gesta síðunn-
ar um nöfn á drenginn, hann muni að
minnsta kosti ekki verða látinn heita
Pálmi Gunnarsson ... Ahugasamir geta
lesið hugrenningar doktorsins á
www.this.is/drgunni.
Á laugardaginn er svokallaður Free Comic Book Day þar sem myndasögu-
útgefendur og -verslanir ætla að taka höndum saman og gefa milljónir
myndasögubóka. Á íslandi er það verslunin Nexus á Hverfisgötu sem
mun standa fyrir sínu og standa fyrir heljarinnar ráðstefnu þar sem ým-
issa grasa mun kenna.
fiuðveldara að vera
fyndirm a ensku
„Þetta byrjaði í fyrra þegar þó nokkuð margar myndasöguversl-
anir á Vesturlöndunum tóku sig saman og ákváðu að kynna
myndasögugeirann fyrir almenningi," segir Pétur Yngvi Yama-
gata, umsjónarmaður myndasögudeildar Nexus. „Og þar sem
þetta þótti heppnast svo vel í fyrra var ákveðið að endurtaka
leikinn í ár og ætlum við að vera með í fyrsta sinn. Við munum
gefa um 2000 myndasögur en alls eru þetta um 30 titlar.“
Á meðal þeirra bóka sem verða til gefins á laugardag er glæ-
nýtt hefti sem inniheldur samansafn sagna eftir þá Hugleik
Dagsson kvikmyndagagnrýni og Ómar Öm Hauksson, tónlist-
armann í Quarashi.
„Þetta byrjaði allt þegar einn verslunareigandi í New York
ákvað að leggja einn dag undir það að gefa myndasögur í þeim til-
gangi að kynna þessa list sem hefur verið svolítið vanmetið list-
form undanfarin ár, það er að segja hjá öllum nema kvikmynda-
framleiðendum í Hollywood sem keppast um að gera kvikmynd-
ir byggðar á þekktum myndasögum," segir Pétur. „Og tilgangur-
inn er líka að kynna þá breidd sem er í myndasögunum - þetta
eru ekki bara Andrés önd og ofurhetjur, þótt það sé vissulega
með í flórunni líka heldur er til mikið af jaðarmyndasögum sem
eru allt frá því að vera með kolsvartan húmor upp í ævisögur. Það
er okkar ætlun að sýna alla þessa flóru í þeim 3Ö titlum sem við
ætlum að gefa.“
VlNSÆLT BÓKARFORM
Að sögn Péturs hefur myndasagan lifað góðu lífi hér á landi og
seljast vinsælustu titlamir í Nexus í allt að 1000 eintökum. „Þá
eru myndasögudeildimar í bókasöfnunum alltaf mjög vinsælar
og það hefur haft sitt að segja, bæði hér í bænum og út á landi."
En er ekki fólk hrætt við að koma inn í Nexus og smitast af
þessari „nördaveiru“?
„Jú, fólk má kannski alveg vera hrætt. Þetta er mjög grípandi
JÓNSI MEÐ SÓLÓVERKEFNI
Fyrr í mánuðinum greindu aðstandendur
síðunnar www.sigur-ros.co.uk ffá áhuga-
verðum tónleikum þar sem listamaðurinn
Frakkur kæmi fram í fyrsta sinn. I vikunni
gátu þeir ekki setið á sér lengur og sögðu frá
því að þama væri f raun um að ræða Jónsa,
söngvara Sigur Rósar. Þann 16. maí mun
hann, samkvæmt því sem segir á síðunni,
flytja sólóefni sitt á lítilli tónlistarhátíð í
Seattle sem heitir Laurie Anderson’s
150W. Ef rétt reynist mun þetta vera í
fyrsta skipti sem einhver meðlimur hljóm-
sveitarinnar kemur einn fram með eigið
efni.
I
Blend of America í Smáralind
Fjölþjóðafyrirtækið Blend of America
opnar verslun í Smáralind á laugardaginn.
Fyrirtækið selur vandaðan tískufatnað á
hagstæðu verði og stærir sig af því að leggja
áherslu á margar stærðir. 1 tilefni opnunar-
innar verður slegið upp hátíð fyrir ffaman
nýju verslunina á neðri hæð Smáralindar
milli kl. 13 og 16 á laugardaginn. 1 svört-
um fötum troða upp, Auðunn Blöndal af
Poppttví verður með uppistand og fjöldi til-
boða verður f gangi.
Myndasöcuclucci
Auk þess sem myndasögubækur verða kynntar í bak og fyrir
verður heilmikið um að vera í Nexus þennan daginn. „I raun er
þetta fyrsta íslenska myndasöguráðstefnan,“ segir Pétur. „íslensk-
ir myndasöguhöfundar verða á staðnum til að kynna þau verk
sem þeir hafa gefið út og svo ætla þeir Hugleikur og Ómar að
teikna risastóra myndasögu í gluggann á Nexus á meðan þetta
stendur yfir. Þá ætlar Teiknimyndastúdíó Islands að setja upp
smásýningu í spilasalnum okkar þar sem kynnt verður starfsemi
þess. Nexus er til húsa að Hverfisgötu 103 og dagskráin hefst kl.
15 og stendur til kl. 20.
Myndasöguhöfundarnir Ómar Örn Hauksson og Hug-
leikur Dagsson, ásamt umsjónarmanni myndasögu-
deildar Nexus, Pétri Yngva Yamagata.
og það skemmtilegt að það er ekki hægt annað en að hrífast með,“
segir Pétur brosandi.
Þeir Hugleikur og Ómar hafa ef til vill verið þekktir fyrir allt
annað en myndasögur en þó hafa þeir áður komið nálægt útgáfú
slíkra bóka. Ómar var einn af stofnanda Bleks sem kom út íyrir
nokkrum árum og bæði Hugleikur og Pétur tóku þátt í þeirri út-
gáfu.
„Mann hefur alltaf langað að búa til myndasögu,“ segir Hug-
leikur. „Enda haldast kvikmyndir og myndasögur mikið í hend-
ur,“ Hann hefur verið þekktur fyrir kvikmyndagagnrýni sína, til
að mynda hjá útvarpsþættinum Tvíhöfða forðum. Ein myndasag-
an eftir Hugleik heitir An American Baby og fjallar um lítið
bam sem fæðist með tourette-heilkenni og tekur upp á því að
blóta strax um hálftíma effir fæðingu. „Hann skapar síðan oft
mikinn usla í fjölskyldu sinni,“ segir hann.
„Ein myndasagan mín heitir Two Tubby Bitches og fjallar um
tvo íturvaxna afgreiðslumenn í myndasögubúð,“ segir Ómar og
segir hugmyndina komna frá Clerks sem leikstjórinn Kevin
Smith gerði eitt sinn kvikmynd um sem og myndasögubók.
„Þetta er eiginlega lauslega byggt á starfsmönnum Nexus,“ bæt-
ir Pétur við.
„Þetta byrjaði á því að ég var að teikna sögur fyrir þá í Nexus
sem byggðust upp á hálfgerðum innanhússhúmor,“ segir Ómar.
„Við hengdum þær síðan upp og þær hlutu mjög góðar viðtökur,“
segir Pétur. „Þannig að það er kannski mikið í sögunni sem fólk
fattar ekki alveg en ég reyni samt að hafa grínið í sem víðtækasta
skilningi,“ bætir Ómar við.
En þið skrifið báðir á ensku?
„Já, það er einhvem veginn auðveldara að vera fyndinn á
ensku," segir Hugleikur.
Dngdbrattniitgar eru mikwámt superioiKir sivriar, HjtStaruð tibupu.
alviret á tttr og þurfa ad raka sia eins og metta.
f ó k u s
4
2. maf 2003