Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2003, Blaðsíða 6
Sumarið er komið, prófin eru að klárast og sjálft sumarfríið nálgast óðum. En hvað í ósköpunum eiga
menn að taka sér fyrir hendur í sumarfríinu. Möguleikarnir virðast endalausir og ferðaskrifstofurnar
keppast við að troða ferðabæklingum inn um lúgurnar okkar, þar sem hvert gylliboðið fylgir öðru.
Fókus tekur hér fyrir nokkra staði sem þykja hvað heitastir í sumar.
Taktu frfið með stæl f sumar
London
Það er alltaf klassískt að heimsækja Lundon. Það
er ekki að ástæðalausu að þessi áfangastaður hefur
verið einn sá allra vinsælasti hjá íslendingum um
árabil, enda hefur fargjaldið þangað verið hvað
lægst af þeim áfangastöðum sem boðið er upp á hér
á landi. I borginni sjálfri er ótalmargt að gera og
skoða, næturlífið er ríkt og verslanir og útimarkaðir
í þúsundavís. Þá er einnig sniðugt að nota London
sem miðstöð heimsins alls enda er þaðan hægt að
komast heimshomanna á milli á fáranlega lágu
verði, vilji menn óvissu og ákvarðanatöku með
skömmum fyrirvara.
Kaupmannahöfn
Tengsl Islendinga við Dani eru sterk. Kannski
ekki skrýtið, enda er okkur kennt móðurmálið
þeirra frá unga aldri og hvort sem við viljum viður-
kenna það eða ekki eru Danir stóru bræður okkar
íslendinga. Og hverjum finnst ekki gaman að
heimsækja stóra bróður? Þar er oftast farið vel með
okkur enda hið „ligeglad'1 lfferni þeirra Dana
bráðsmitandi. Á kvöldin er svo 0lið drukkið í kassa-
vís og nóttinni varið á einum af fjöldamörgum
skemmtistöðum borgarinnar. Köben getur einfald-
lega ekki klikkað.
Las Vegas
Fátt er heitara í sumar en að taka road-trip um
vesturströnd Bandarfkjanna og byrja þá í Las Veg-
as. Ljósadýrðin í eyðimörkinni stendur hiklaust
undir nafni og vilji menn komast að nafla hins
öfgakennda bandaríska lífernis eru fáir staðir betri
en Las Vegas. Spilavítin, sjóvin og stelpumar eiga
sér enga hliðstæðu í heiminum og það er skylda
allra þeirra sem vettlingi geta valdið að upplifa
þessa alrómuðu stemningu minnst einu sinni á æv-
inni.
Nýja-Sjáland
Það er engin tilviljun að Ný-Sjálendingurinn
Peter Jackson réðst í kvikmyndum á Hringadrótt-
inssögu á heimaslóðum. Náttúran í þessu afar fjar-
læga landi er stórbrotin og blandast við það
skemmtileg menning hinna fornu Mára og ný-
bylgju hvíta mannsins. Við íslendingar eigum
meira að segja okkar eigin fulltrúa í tónlistarlífinu
í Wellington, hana Heru. Það ætti að vera feikinóg
að finna á þessari eyju í Kyrrahafinu sem gæti dug-
að manni í eitt Iítið sumarævintýri.
INTERRAIL UM EVRÓPU
Það er löngu orðið klassískt að fara í mánaðartúr
um Evrópu vopnaður svokölluðum Interrail-passa.
Sá veitir þér ótakmarkað frelsi til að ferðast með
lestum um þau lönd sem passinn gildir í en hægt
er að velja um mismunandi ferðasvæði til að ein-
beita sér að. Þetta er hámark ffelsisins, þú ferð bara
þangað sem þig listir hverju sinni og gistir þess á
milli á farfuglaheimilum. Þetta er sérstakur lífsstíll
og eitthvað sem allir ættu að láta eftir sér að gera.
Krít
Þessi fomffæga gríska eyja hefur löngum verið
vinsæll áfangastaður sólþyrstra Islendinga. Og eng-
in furða, Krít er kærkomin breyting við sólstranda-
staðina á Spáni og Portúgal, ekki síst vegna þess að
auðvelt er að skoða og upplifa menningu Fom-
Grikkja í bland við að einfaldlega slappa af og flat-
maga á ströndinni. Þá er næturlífið virkt á eyjunni
enda allra þjóða kvikindi sem þar koma saman til
þess eins að skemmta sér til hins ýtrasta.
Búdapest
Búdapest er hin nýja Prag. Hafi einhver evrópsk
borg verið í tísku á 10. áratugnum var það án efa
Prag en nú er óhætt að segja að Búdapest hafi tek-
ið við þeirri nafnbót. Hún er stútfull af menningu
og skemmtanalífið hefúr verið á stöðugri uppleið
sem og tónleikahaldið en nú er svo komið að fáar
stórhljómsveitir sem fara í hljómleikaferð um Evr-
ópu sleppa því að koma við í Búdapest. Viljirðu vera
„inn“ í ár er Búdapest málið.
Tokyo
Vilji menn komast á alvöru djamm hlýtur næt-
urlífið í Tokyo að vera ofarlega á listanum. Hægt er
að hita upp á karaoke-bar og syngja Elvis með
heimamönnum og tjútta síðan ffam á rauða nótt á
einhverjum af nýtfskulegum skemmtistöðum borg-
arinnar sem eru fjölmargir. Á daginn er svo hægt
að kíkja í búðir og koma heim með allra nýjustu
græjumar og vera þannig nokkrum misserum á
undan hinum almenna Islendingi og þannig
laaangflottastur.
San Francisco
Viljirðu vera ofursvalur í ár er San Francisco
málið. Á hverjum degi má finna einhverja tónleika
sem vert er að sjá og djammlífið í borginni er það
ríkt að það hættir í rauninni aldrei. Þar er líka
Alcatraz fangelsið ffæga sem nú er opið almenningi
og þá þykir ekki ónýtt að leigja sér bílskrjóð og
keyra um nágrennið og drekka bandaríska vestur-
strandarmenningu í sig. Sjóbrettamenningin er
einnig sterk þama og það nánast bannað með lög-
um að yfirgefa svæðið án þess að skella sér á bretti.
ÍSLAND
í svona upptalningu má ekki gleyma okkar ást-
kæru fósturjörð. Við vitum öll hvað náttúran er
stórbrotin, vamið tært og jöklamir stórir. Því ekki
að upplifa það sjálf það sem við erum alltaf að heyra
um og taka einn vænan rúnt um landið í sumar.
Passið bara að vera með tjaldið, svefnpokann og
prímusinn með og þið eruð klár í slaginn!
f ó k u s
ó
2. maí2003