Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2003, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2003, Side 10
Goldfrapp skiptir um cír Nú í vikunni kom út önnur plata Goldfrapp, Ulack Cherry, en hennar hefur verið beðið með miklum spenningi enda þótti fyrri platan, Felt Mountain, sem kom út árið 2000, ein af betri plötum þess árs. Goldfrapp eru þau Alison Goldfrapp söngkona og textasmiður og Will Gregory sem semur flest lögin, spilar á hljóðfærin og forritar. Felt Mountain var sveipuð dularfullri og draumkenndri stemn- ingu. Hún var frekar hæggeng. Nýja platan er öllu hraðari og harðari og að mörgu leyti mjög ólfk þeirri fyrri. Felt Mountain var tekin upp úti ísveit á afskekktum stað en Black Cherry var hljóð- rituð f dimmu stúdfói í Bath. Felt Mountain er þvf náttúruplata á meðan Black Cherry er borgarplata. Nýja platan kemur nokkuð vfða við tónlistarlega og sækir m.a. í elektró-tónlist og diskó auk þess sem einu laganna er lýst sem „ensku vísindaskáldsögu-kán- trf*... Alison segir plötuna meira spontant en þá sfðustu og segir jafnframt að ef hún ætti að nefna áhrifavalda þá væru það „Ennio Morricone og Giorgio Moroder diskó“... Tónustarhátíðir sumarsins taka á sig mynd. Dagskrá nokkurra af helstu tónleikahátíð- um sumarsins cr f arin að skýrast verulega. Eins og kunnugt er verða Metallica, Iron Maiden, Queens Of The Stone Age, Björk og Blur á Hró- arskeldu (26.-29. júnO en líka The Cardigans, Coldplay, The Datsuns, Dirty Vegas, EL-P, Dave Gahan, Gus Gus, Interpol, The Kills, Mr. Lif, Radio 4, Saian Supa Crew og The Streets... Á Gla- stonbury (27.-30. júnO verða m.a. Radiohead, REM, David Gray, Suede, The Strokes, Moby, Prince, Calexico, Mogwai og Dave Gahan og fullt af nöfnum eru óstaðfest enn... Á Reading (22.-24. ágúst) verða m.a. Metallica, Sy- stem of a Down, The White Stripes, Blur, Linkin Park, Beck, Black Rebel Motorcyde Club, The Doves, Electric Six, Elbow, Hot Hot Heat, Interpol, The Libertines, The Mars Volta, Placebo, Primal Scream, The Datsuns, The Music, The Streets og The Yeah Yeah Yeahs. Margar af framvarðasveitum nýju rokkbylgjunnar sem- sagt. Auk þess er talað um nöfn eins og Audioslave, Limp Bizkit, Jay-Z, The Vines og Flaming Lips, en þau eru enn óstaðfest... Á V2003 (I6.-I7. ágúst) verða aðalnöfnin Queens of the Stone Age, Red Hot Chili Peppers, PJ Harvey, Coldplay, Thc Foo Fighters og The Hives... Massive Attack verður aðalnómerið á Creamfields (23. ágúst), Ozzy, Marilyn Manson, Korn, Disturbed og Cradle of Filth verða aðalnúmerin á Ozzfest (13. sept.) ogá danstðnlistarhá- tíðinni Homelands (24. maO verða m.a. Groove Armada, The Streets, De La Soul, Junior Senior, Röyksopp og Audio Bullys... OC LÍKA... Pönkhljómsveitin Buzzcocks frá Manchester cr enn að. Ný- lega kom ót ný plata með henni og heitir einfaldlega Buzzcocks og þann 10. júní kemur út kassi með öllum 14 smáskífunum frá fyrsta skeiði sveitarinnar, allt frá Spiral Scratch ep plötunni sem kom út 1976 til What Do You Know frá 1981... Madonna setti plat útgáfur af lögunum á nýju plútunni, American Life, á Netið. Þeir sem sækja þessar upptðkur fá enga tónlist en í staðinn heyrist Madonna segja:„What the fuck do you think you're doing“... Næsta plata Aliciu Keys kemur út í nóvember... Mute mun gefa út næstu plötu New York-sveitarinnar Liars. Hún hefur fengið nafnið Who Needs S$ When We Got Feathers og kem- ur út í haust... Oasis ætlar að taka sér góðan tíma i næstu plötu. Aflýst hefur verið öllu tónleikahaldi á árinu og einbeita þeir sér að plútunni sem kemur ekki út fyrr en 2005... P Diddy mun leika blús-goðsögnina Robert Johnson ínýrri sjónvarps- mynd sem frumsýnd verður í haust... Kanadíska raf-pönk ótemjan Peaches (mynd) hefur fengið sjálfan Iggy Poptil þess að syngja inn á hennar næstu plðtu. Lagið sem Iggy syngur heitir Kick It en á plötunni verða líka lög eins og Stuff Me Up og Shake Your Dicks... Næsta Muse plata kemur út seint á árinu. Hún mun heita The Smallprint... Hin ódauðlega pönka billy-töffarasveít The Cramps var að senda frá sér nýja plötu. Hún heitir Fiends of Dope Island. Eftir helgina kemur í verslanir sjöunda plata bresku hljómsveitarinnar Blur, Think Tank. Trausti Júllusson hlustaði á gripinn og rifjaði upp sögu sveitarinnar sem á erfitt ár að baki og hefur m.a. séð á eftir ein- um stofnmeðlimanna, gítarleikaranum Graham Coxon. Nyjar aherslur „Fyrsta daginn sem við æduðum að byrja að vinna plötuna mættu Alex, Damon og Dave en Graham var hvergi sjáanleg- ur. Hann hafði ekki gert viðvart og seinna sama dag fréttum við að hann væri upptekinn næstu tvo mánuðina. Þá var þetta spuming um hvort við reyndum að gera eitthvað þrír eða biðum og við ákváðum í okkar bjartsýni að byrja bara og reyna að gera eitthvað þrír. Svo þegar Graham kom aftur þá virkaði það bara ekki,“ segir Damon Albarn um brotthvarf Grahams Coxons úr hljómsveitinni. Og hann bætir við „Það var enginn rekinn eða neitt svoleiðis. Þetta bara þróaðist svona.“ Sjöunda Blur-platan og sú fyrsta eftir að Graham hvarf á brott kemur 1 verslanir eftir helgina. Og þrátt fyrir fjarveru gítarleikarans er hún þegar farin að fá fína dóma í tónlistarpressunni. Skólafélagar í Goldsmiths Hljómsveitin Blur var stofhuð árið 1989 þegar þeir Damon Al- bam söngvari, Alex James bassaleikari og Graham Coxon gít- arleikari voru við nám f Goldsmiths-skólanum í London. Fjórði meðlimurinn var svo trommuleikarinn Dave Rowntree. Damon og Graham höfðu kynnst árið 1980 og sungið saman í skólakór í Stanway-gagnfræðaskólanum í Colchester. Hljómsveitin hét upphaflega Seymour en þegar hún gerði samning við Food- plötufyrirtækið var nafhinu breytt í Blur. Leitað fanca í enskri poppsögu. Fyrsta Blur-platan, Leisure, vakti nokkra athygli. Á henni vom smáskífurnar She’s so High og There’s no Other Way sem náði 8. sæti breska vinsældalistans. Leisure kom út í ágúst 1991 og tæpum tveimur ámm seinna, í maí 1993, kom önnur platan, Modem Life Is Rubbish. Báðar þessar plötur sóttu mikið f enska poppsögu. Á þeim mátti m.a. greina áhrif ffá jafnólíkum tónlist- armönnum og Bítlunum, Pink Floyd, XTC, Julian Cope og My Bloody Valentine. Það var hins vegar þriðja platan, Parklife (apríl 1994), sem gerði Blur að stórstjömum. Á henni vom smellir eins og Girls &. Boys og titillagið sem leikarinn Phil Daniels söng í með ekta Cockney-hreim. Á Parklife vitnaði sveitin enn stíft í breska poppsögu. Þar má t.d. heyra áhrif frá Small Faces, Kinks, Ian Dury, The Jam og Madness. Blur fékk fjögur brit-verðlaun fyrir Parklife. Næsta plata, The Great Escape (september 1995), innihélt m.a. smáskífuna The Country House. Hún kom út sama dag og Roll with It með Oas- is og hrcska pressan magnaði upp keppni um það hvor smáskífan seldist meira fyrstu vikuna. Blur hafði betur en The Great Escape er m.a. af þeim sjálfum talin þeirra lakasta plata. í ÚTLEGÐ Á ÍSLANDI. Eftir útkomu The Great Escape og fjolmiðlafárið í kjölfarið komu meðlimir Blur í hálfgerða útlegð til íslands þar sem þeir hljóðrit- uðu fimmtu plötu Blur (febrúar 1997) að hluta til. Hún var mun rokkaðri en The Great Escape og innhélt m.a. lagið Song 2 sem margir vilja meina að sé samið undir áhrifum frá Botnleðju sem Blur kynntist á íslandi. í kjölfarið fór Botnleðja með þeim í tón- leikaferð í ársbyrjun 1997. Sjötta plata sveitarinnar, 13, kom svo út í mars 1999. Hún var að mestu pródúseruð af William Orbit. Hún er talin undir áhrifum frá tíðum íslandsheimsóknum Damons og ber þess líka merki að hann var nýhættur með kærustunni, Justine Frischman úr Elastica. Eftir útkomu 13 sneri Damon sér að teiknimyndahljómsveitinni Gorillaz oggerði plötu með tónlistarmönnum frá Mali en Graham, sem hafði stofhað sitt eigið plötufyrirtæki, Transcopic, og gefið út sína fyrstu sólóplötu 1998 hélt áfram að einbeita sér að sólóferlinum. Önn- ur platan hans kom síðasta haust um svipað leyti og ljóst var að hann væri hættur í hljómsveitinni. NÝJAR víddir Think Tank er unnin á einu ári. Meginhluti hennar er gerður með pródúsemum Ben Hiller sem áður hefur m.a. unnið með El- bow og Tom McRae. Auk hans koma Norman Cook og Wiili- am Orbit við sögu. Sá fyrmefni pródúserar tvö lög og sá síðar- nefhdi eitt. Platan var m.a. unnin í Marokkó í september og október í fyrra. Sveitin fór þangað með yfir 20 langt komin lög en þar urðu líka til þrjú ný, þ.á m. hið pönkaða Crazy Beat sem Fatboy setur mikinn svip á og Gene By Gene sem minnir mikið á hljómsveitina The Clash. Think Tank inniheldur 13 lög. Það er óhætt að segja að Blur fari á Think Tank á nýjar slóðir tónlist- arlega. Þetta er að vísu alls ekki danstónlistarplata eða heimstón- listarplata eins og sumir gerðu ráð fyrir og platan inniheldur til- tölulega hefðbundnar lagasmíðar en meðferðin á þeim kemur stundum á óvart. Skemmtilegar taktpælingar setja t.d. svip á plötuna. Sums staðar minnir hún kannski á eitthvað af því sem U2 eða Radiohead hafa verið að gera í sínum raftónlistarútúrdúr- um og sums staðar má heyra áhrif firá Can en þetta dæmigerða Blur-rokk kemur alls staðar í gegn og sums staðar er það alveg óblandað. Graham náði að spila inn á eitt lag, lokalagið Battery in Your Leg, áður en hann hvarf út úr myndinni en Damon spil- ar sjálfúr flesta aðra gítara. Gítarinn spilar þ.a.l. minna hlutverk á plötunni heldur en oftast áður. Hann er ekki í aðalhlutverki hér frekar en bassinn eða trommumar. Platan hefur fengið góða dóma og góðar viðtökur hjá flestum öðrum en Graham Coxon sem kall- ar hana rusl. Persónulega finnst mér þetta ein af betri Blur-plöt- unum. Hún fer á nýjar slóðir en heldur lfka í gömlu einkennin sem gera Blur að því sem hún er. Á meðal flottra laga á plötunni er fyrsta lagið Ambulance sem er í hægum og þungum takti, fyrr- nefht Crazy Beat, lagið Jets sem William Orbit pródúserar og sem m.a. skartar ffábæru saxófónsólói, hið fönk-skotna Brothers & Sisters og seinna Norman Cook-lagið Gene by Gene. ' Blur er nú tríó en Simon Tong, fyrrum gítarleikari The JVerve, mun spila með því á tónleikum f sumar. Hljóm- sveitin verður m.a. bæði á Hróarskeldu og Reading 2003. 1F11 a n 1 staðreyndir Flytjandi: Les Nubians Platan: One Step Útgefandi: Virgin/Skífan Lengd: 70:12 mín. Flytjandi: Botnleöja Platan: : ■ ýation Útgefandi: Trust Me Records Lengd: 35:25 mín. Flytjandi: DJ Format Platan: Music for the Útgefandi: PIAS/Smekkleysa Lengd: 45:37 mín. Hér er komin önnur plata systranna Hélene og Céliu Faussart. Þær eru frá Bordeaux í Frakklandi, en eru af frönskum og kamerúnskum ættum, aldar upp bæfii I Frakklandi og Afríku. Fyrri platan Les Princesses Nubiennes vakti mikla athygli og fékk m.a. Soul Train verölaun. One Step Forward inn- heldur m.a. smáskífuna Temperature Rising sem Talib Kweli rappar í. Rmmta plata Botnleðju sem gefin er út af norska útgáfufyrirtækinu Trust Me Records og nær fyrir vikið væntan- lega tll öllu fleiri en síöustu plötur þeirra. Það virðist einmitt vera mark- miðiö því nú syngia þeir á ensku og fengu til liðs við sig upptökustjðrann Swell Mellah sem áður hefur tekið upp plötur með Rdel og Stjörnukisa. Hér er á ferðinni fyrsta platan í fullri lengd frá Brighton-búanum DJ Format. Hann er búinn að spila sem plötu- snúður í yfir 10 ár en hans fýrsta lag kom út árið 1997 og var á safnplöt- unni The Return of the DJ Volume 2. Á meöal gesta hér eru Chali 2na og Akil úr Jurassic 5, kanadíski rapparinn Abdominal og breska hip-hop krúiö Aspects. Les Nubians skilgreinir sig sem „af- ropeans". Tónlistin hér endurspeglar það. Þetta er einhvers konar sam- bland af mjúku r&b, soul og afriskri tónlist með smááhrifum frá hip-hop, reaggie og franskri sönglagahefð. Hest lögin eru sungin á frönsku en hér eru lika lög á ensku og spænsku. Það verður ekki af drengjunum I Botn- leðju tekið að þetta er þrælhress plata hjá þeim, miklu liflegri en sú síðasta. Stærsta breytingin er kannski sú að Halli trommari tekur undir með Heiðari í söngnum og gefur það tónlistinni að mörgu leyti nýja vidd. Hér er enginn rembingur heldur lífleg og velheppnuö rokkplata. Eins og nafniö visar til þá er DJ Format undir miklum áhrifum frá gamla skðF anum f hip-hoppi og grúvi. Hann er krónfskur plötusafnari og samplar grimmt líkt og DJ Shadow sem fékk Format til þess að hita upp fýrir sig á tónleikaferðalagi f fyrra. Þetta er plata týrir þá sem hafa gaman af svölum töktum og flottu rappi. Fyrsta upplagi plötunnar fylgir DVD með heimildarmynd um gerð plötunn- ar, myndbandinu við Temperature Ris- ing og aukalögum. Platan er tekin upp f London, Jamaica, New York og Parfs og í heimildarmyndinni er þeim systr- um fylgt eftir á milli hljöðvera og talað við þær og ýmsa aðra sem vinna að plötunni. Botnleðjumenn ráðast óumbeðnir I kynningu á landi og þjóð fyrir útlendinga inni I bæklingi plötunnar. Þar segja þeir islendinga ekki leyfa innflutning á osti, flestir þeirra fili bíó- myndir og pizzur og þeir séu mjög hreinlátir. Þá segja þeir okkur hafa unnið Þorskastrið ið með litlum bát með vélbyssu og að rúðu- brot séu mjög vinsæl. Fróðleikurinn er sagð ur kominn frá sérfræðingi Daily Mail og manni á Kaffibarnum I september í fyrra... Format er frá Southampton en flutti til Brighton 1997 vegna þess aö það var miklu meira framboð af gömlum vínyF plötum þar. Hann gerði efni meö Aspects strax 1995 en vakti mikla at- hygli meö laginum Viny Overdose af Return of the DJ sem innihélt m.a. samplið .1 Love Hip-Hop Like Madonna Loves Dickl". Eftir smátíma hjá MoWax gerði hann samning viö PIAS. Þó að platan sé tekin upp í London, Jamaica, New York og París og það blandist saman á henni margar teg- undir tónlistar þá skín hinn mjúki og hljómfagri stíll þeirra Faussart-systra alls staðar í gegn og platan virkar alls ekki losaraleg. Þetta eru alvöru tónlist- armenn, engar hálfberar smáfrfðar dúkkur. Langbesta r&b/soul platan f langan tima. trausti júlíusson Eftir að hafa séð ótrúlega kraftmikla tðn- leika Botnleöju á Airwaves voru vænt- ingarnar orðnar talsverðar eftir plötunni. Þess vegna veldur hljómurinn talsverö um vonbrigðum, en hann er frekar lág- stemmdur og söngurinn er falinn langt afturi. Ekki nógu vel farið með gott efni. Þetta nær þó ekki að skyggja á að plat- an er fantagóð - sú besta frá Leðjunni I mörg ár. höskuldur magnússon Þessi plata minnir á frumkvöðla eins og DJ Steinski og eins á mixplötur DJ Shadow og Cut Chemist. Bltin eru flott, ýmsum hljóðum og textabrotum er blandað inn f tónlistina og húmorinn er aldrei langt undan. Ofan á þetta bætist svo rappflæði snillinga eins og Chali 2na... Skemmtilegt þó aö þessi tðnlist sé ekki lengur það ferskasta ! bransanum. trausti júlíusson 10 f ó k u s 2. maí2003

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.