Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2003, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2003, Side 13
Úrslit Prix-tónlistarhátíðinnar í Færeyjum voru haldin um síðustu helgi í Norðurlandahúsinu I Þórshöfn. Þá kepptu þær sex hljómsveitir sem efnilegastar þykja þar í landi. Umgjörð keppninn- ar í Norðurlandahúsinu var stórglæsileg og Fær- eyingum til mikils sóma eins og útsendari Fókuss komst að. Goðir Gestir Prix'tónlistarhátíðinni svipar að mörgu leyti til íslensku Músíktil- raunanna en hún er haldin á tveggja ára fresti. Síðast var það Eivör Páls- dóttir og hljómsveitin Clickhaze sem sigraði, en flestir Islendingar ættu að kannast við Eivöru eftir hún söng í Evróvisjón í Háskólabíói í vor. Sigurvegarar keppninnar í ár voru Gestir frá Götu. TÓNLEIKACESTIR FRÁ 16 ÁRA UPP í SJÖTUGT Umgjörð keppninnar í Norður- landahúsinu var stórglæsileg og Færeyingum til mikils sóma, risa- stórt svið þar sem stórar hljómsvéit' ir og stórkostleg sviðsframkoma margra hljómsveitanna fékk svo sannarlega að njóta sín. Viðburður' inn var sýndur í fjögurra og hálfs tíma beinni útsendingu í Færeyska sjónvarpinu, enda vekur þessi keppni gjaman mikla athygli í land- inu sem og vfðar. Þá var dómnefnd- in alþjóðleg, því auk færeyskra með- lima hennar og símaskosningar, voru í henni íslenskir, enskir, sænskir og bandarískir dómarar og það voru fyrst og fremst þeir sem ferðinni fólk á aldrinum 16 ára og upp f sjötugt. Déjá vu oc MC Hár heitar Alls tóku 29 hljómsveitir þátt í keppninni og var þeim skipt upp í fimm hópa sem kepptu með viku millibili í vor. Kosin var besta hljómsveitin í hverjum hópi í úrslit. Til að velja sjöttu hljómsveitina fengu þær sveitir sem voru í öðm sæti annan möguleika til að keppa innbyrðis um lausa sætið. Á þann hátt komust Gestir einmitt í úrslit- in, þar sem þeir urðu í öðru sæti í sín- um hópi og náðu síðan að sigra f aukakeppninni. Fyrir lokakeppnina voru mestar vonir bundnar við Gesti og MC Hár, en það var hins vegar hljómsveitin Déjá vu sem skaut MC Hár ref fyrir rass og varð í öðru sæti aðeins nokkrum stigum á eftir Gestum. Báðum þessum hljómvsveitum hefur verið boðið á tónlistarhátíðir á Norð- urlöndum vegna þessa góða árangurs þeirra. Spenntir fyrir Apparati Aðalsöngvari Gesta er Ólavur gerðu það að verkum að Gestir fóru með sigur af hólmi, enda þama á ferðinni langbesta hljómsveitin þetta kvöldið. Þeir lögðu sig fram um að flytja þá tónlist sem þeir buðu upp á og láta hana raða ferðinni, en á móti varð sviðsífamkoman ekki eins og hjá öðrum hljómsveitum sem hugsuðu meira um hana á kostnað tónlistarinnar. Reyndar lagði hljómsveitin Hatespeech einungis áherslu á sviðsframkomu og söng- ur, ef hann skyldi kalla, mætti af- gangi. Þetta er í þriðja sinn sem hljómsveitin reynir að vinna þessa keppni en í öll skiptin hefur henni mistekist. Það er þó ljóst að hún á marga áhangendur í Færeyjum. Það vakti sérstaka athygli blaða- manns að þeir fjölmörgu sem mættu til að fylgjast með keppn- inni, en uppselt var á hana, voru á öllum aldri og greinilegt að Færey- ingar líta það öðrum augum að skemmta sér með fólki á allt öðrum aldri en það er sjálft. I það minnsta virtist það ekki vera til að skemma fyrir þetta kvöldið að þar væri á Hansen, en hann leikur einnig á gítar. Hinn gítarleikari sveitarinnar er Torfinnur Jákupsson og auk þeirra eru þrír aðrir í sveitinni, Knút H. Eysturstein, Niels Jákúp í Jógvan- stofu á bassa og Jógvan Andrias á Brúnni á trommur en hann er sonur fyrrum menntamálaráðherra í Fær- eyjum, Signar á Brúnni. Gestir hafa ekki komið mikið fram opinberlega, hafa þó leikið á örfáum tónleikum í Götu, en þeir segjast meira hafa setið saman heima og samið. Það er hins vegar ekki fyrr en nýlega sem augu tónlistaráhuga- manna hafa beinst að þeim og það var greinilegt á hátíðinni á laugar- dag að þeir hafa strax náð að ávinna sér stóran hóp aðdáenda sem klædd- ust bolum merktum sveitinni og létu vel í sér heyra á meðan á keppn- inni stóð. Sigursveitin Gestir mun leika á listahátíð þeirra Færeyinga í ágúst næstkomandi, en þar munu þeir meðal annars verða á palli með ís- lensku sveitinni Apparat sem Fær- eyingar segja vera mest spennandi og skapandi hljómsveit á Islandi nú og bíða mjög spenntir eftir komu hennar f ágúst. Mikið um fulltrúa erlendra plötufyrirtækja Það er alveg ljóst að Prix Færeyja- tónlistarhátíðn er eflaust orðin ein besta leiðin fyrir færeyskar hljóm- sveitir að koma sér á ffamfæri, ekki aðeins innanlands heldur einnig er- lendis þar sem forsvarsmönnum keppninnar hefur tekist að draga að fúlltrúa erlendra hljómplötuútgef- enda í auknuin mæli. Sem dæmi um það má nefna að sigurvegari keppn- innar ffá árinu 1997, Teitur Lassen, var að gefa út sína fyrstu hljómplötu undir merkjum Universal Music í Bandaríkjunum. Teitur var sérlegur gestur á laugardag, en hann kom sérstaklega ffá New York til að heiðra samkomuna með nærveru sinni, auk þess sem hann tók nokk- ur lög á meðan dómnefndin var á gera upp hug sinn. Fókusmyndir og texti Pjetur 2. maf 2003 f ó k u s 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.