Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2003, Page 15
wm whh ........ 'wmaam................................... whw................................. - 'mmam
W
Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóri Landsbankans.
Oliver Platt
leikari.
Það heitasta sem nú
gengur á Netinu er
slóðin á síðu með mynd-
bandi þar sem íslenska
módelið Chloé Ophelia
Gorbulew kemur fyrir.
A síðunni má finna
myndbönd með fjórum
stúlkum sem spranga
fáklæddar um í mis-
jöfnu umhverfi og segja
frá sjálfum sér og ýmsu
fleira! Síðan er það sem
myndi flokkast sem
„fín“ klámsíða því
stúlkumar fækka allar
fötum í myndböndun-
um, mismikið þó, flest-
ar sýna allt en Chloé
okkar sýnir einungis á
sér barminn. Sam-
kvæmt heimildum
Fókuss mun Chloé ekki
vera sátt við birtingu
myndbandsins á Net-
inu því þegar það var
tekið var henni sagt að
ætti að nota það sem
prufuþátt fyrir raun-
vemleikasjónvarp úti í
heimi. Hægt er að skoða
myndbandið og margt
fleira á síðunni
www.gleam-on.com.
„Kærastinn minn er alveg að rifna úr stolti þessa dagana,“ segir hin nýkrýnda Ungfrú Island.is, Rakel
McMahon. Draumurinn hennar er að komast að í innanhússarkitektanámi í Danmörku en fyrst um sinn
ætlar hún að reyna við fornámið í Myndlistarskólanum í Reykjavík.
ekki annað hægt en að sleppa sér á sviðinu. Þetta
var frekar eins og maður væri kominn í ákveðið
hlutverk. En á heildina litið var voðalega lítið stress
f kringum keppnina. A lokaæfingunni fúrðaði ég
mig til dæmis á því hversu lítið taugastrekkt ég
væri og maður gleymdi þvf alveg að maður væri í
keppni.“
Dansað út í bláinn
„En það kom þó ýmislegt fyrir á lokakvöldinu
sem áhorfendur virtust sem betur fer ekki taka eft-
ir. Ég missti til dæmis beltið mitt í eitt skiptið og
þegar ein stelpan, sem átti að koma fram á sviðið á
eftir mér, kom ekki strax þurfti ég að halda áfram
að dansa eitthvað út í bláinn því sviðið mátti aldrei
vera tómt. En sem betur fer var það ekkert áber-
andi.“
Og skylduspumingin. Kom sigurinnþiér á óvart?
„Þetta kom mér mjög mikið á óvart. Eg hafði ver-
ið valin Maybelline-andlitið og þegar verið var að
tilkynna sigurvegarann var ég sjálf að velta því fyr-
ir mér hver gæti hafa unnið. Auðvitað hafði ég
ákveðnar væntingar fyrir keppnina en ég er
þannig að eðlisfari að ég geri mér ekki miklar von-
ir svo ég verði ekki fyrir vonbrigðum á endanum.
En það var svo auðvitað mjög skemmtilegt að
vinna."
Ertu svo á leiðinni í Miss World?
„Já, eins og er. Keppnin verður haldin í Kína þar
sem HABL-lungnaÉólgufaraldurinn geisar um
þessar mundir þannig að það er aldrei að vita
hvemig það fer. En það eru enn 6 mánuðir í keppn-
ina og ef til þess kemur býst ég frekar við að keppn-
in verði færð en að ég muni þurfa að hætta við þátt-
töku. En ég á reyndar enn eftir að ræða við Kristínu
um þetta allt saman þannig að þetta á allt eftir að
koma betur í ljós síðar.“
Stoltur kærasti
Kærasti Rakelar heitir Magnús Leifsson og er að
klára MH í vor. Svo skemmtilega vill reyndar til að
hann hyggst einnig þreyta inntökupróf í fomámið
í Myndlistarskólanum en hann stefnir á nám í
graffskri hönnun í ffamtfðinni. „Hann er alveg að
rifna úr stolti þessa dagana," segir Rakel. „Hann
tók eiginlega út allan þennan pakka fyrir mig - að
brosa í gegnum tárin og allt það,“ segir hún og
hlær. „Hann og mamma segja reyndar að ég sé
voða mikil prinsessa í mér, sem er kannski rétt að
vissu leyti. Mamma var að segja mér um daginn að
þegar ég var yngri hafi ég ætlað mér að eignast gull-
kórónu. Sama hvað hver sagði - ég ætlaði að verða
fegurðardrottning og fá kórónu. En þegar maður
þroskaðist aðeins breyttist það í að vilja verða
bankastjóri svo maður gæti hreinlega keypt kórón-
una sjálfur," segir Rakel og brosir.
Kórónan bíður þó enn því sigurlaunin í keppn-
inni er silfurhálsmen. „En mér finnst hálsmenið
vera mjög flottur gripur. Það er lfka þægilegra að
vera með hálsmen í svona keppni því það virðist
alltaf taka heila eilífð að koma kórónunni fyrir.“
Á síðasta ári skapaðist mikil umræða f kringum
Ungfrú ísland.is í kjölfar heimildamyndarinnar í
skóm drekans sem Hrönn og Ámi Sveinsböm
gerðu. Hrönn tók þátt í keppninni árið 2000 og
fékk mömmu sína til að mynda allt það helsta í
undirbúningnum og baksviðs meðan á keppninni
sjálfri stóð.
„Jú, ég sá myndina þegar hún var sýnd í bíói,“
segir Rakel. „Mér fannst hún fyndin og hafði gam-
an af henni. En ef það hefði verið stelpa í minni
keppni sem hefði verið að taka myndir og segja að
„Þetta kom mér mjög
mikið á óvart. Ég hafði
verið valin Maybelline-
andlitið og þegar verið
var að tilkynna sigur-
vegarann var ég sjálf að
velta því fyrir mér hver
gæti hafa unnið. En það
var svo auðvitað mjög
skemmtilegt að vinna.“
þetta væri bara fyrir sjálfa sig hefði ég ekki orðið
ánægð með að úr þvf yrði gerð heimildarmynd. En
ég upplifði ekki myndina sem einhverja ádeilu á
keppnina, alls ekki. Maður verður bara að hafa
húmor fyrir þessu, enda var hún mikið að gera grín
að þessu öllu saman.“
Og er Ungfrú ísland.is komin til að vera?
. „Já, ég held það. Eg las að vísu blaðagrein um
daginn með fyrirsögninni „leiðindi.is" þar sem efast
var um að keppnin yrði haldin aftur að ári en ég
vona að það komi ekki til þess. Svona keppnum
hefur fækkað á síðustu árum, þar sem hvorki Ford-
né Elite-keppnin hefur verið haldin lengi, og ég
held að það sé gott að halda smá fjölbreytni í
þessu,“ sagði Rakel að lokum.
2. maf2003 f ó k u s
15