Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2003, Blaðsíða 13
12 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 13 M agasm I>V M agasm Feðginin Vilhjálmu Ka!m ctX r borgarfulltrúi og Jóhanna sjónvarpskona: peir sio L ustu veroa ryrsiir j Bæöi brosandi. ..Það er ekki til snobb í pabba. Ég man að þegar ég var í Verslunarskólanum fékk ég stundum fína bílinn hans lánaðan en hann var á litlum eldgömlum japönskum bíl sem ég átti. Á góðum stundum á hann fína spretti sem eftirherma og nær vel Gunnari Thoroddsen og Geir Hailgrímssyni, aö ég tali ekki um Alfreð Þorsteinsson." „Á þessum rúmu tuttugu árum sem ég hef verið í borgarmálunum hafa orðið miklar breytingar í þessum málaflokki. Hið sama gildir í sveitar- stjómarmálum almennt. Fólk er farið að gera mun meiri kröfur til kjörinna fulltrúa sinna og er jafnframt meðvit- aðra um rétt sinn og stöðu. Það viil sömuleiðis hafa enn meiri áhrif á sitt nánasta umhverfí en leiðir til að svo megi verða hafa verið opnaðar mikið. Þetta tel ég vera mjög af hinu góða segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi og nýr oddviti sjálfstæð- ismanna í borgarstjóm. DV-Magasín tók hann tali nú í vikunni. Einnig dótt- ur hans Jóhönnu, sem er landsmönn- um að góðu kunn sem annar tveggja umsjónarmanna sjónvarpsþáttarins ís- land í bítið. Berst lítið á Létt var yfir þeim feðginunum þeg- ar við hittum þau á Kjarvalsstöðum á sólbjörtu mánudagseftirmiðdegi. Shmd miili stríða og gat á milli funda hjá Vilhjálmi, sem er annars önnum kafrnn í sliku stússi alla daga. „Ég á því láni að fagna að hlakka til hvers einasta vinnudags,“ segir Vil- hjálmur. Hann er auk þess að vera borgarfuiltrúi formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og hefur jafn- framt ýmis önnur trúnaðarstörf á sinni könnu. Við fáum okkur kaffi og bakkelsi í kaffistofunni í listasetrinu við Klambratún. „Það sem mér frnnst ein- kenna pabba sem stjómmáiamann er ef til viil helst að hann er litiö fyrir að berast á og kynna sig og sitt. Sem menn í hans stöðu þó þurfa. Ef til vill breytir hann því nú þegar hann er kominn í oddvitahlutverkið. En hitt veit ég að hann hefur yfirburðaþekk- ingu á þeim málum sem hann er að sinna, enda vinnuþjarkur,“ segir Jó- hanna. Leibtoginn sé mannasættir „Eigum við ekki að segja að hinir síðustu verði fyrstir," segir Vilhjálmur og hlær þegar hann er spurður hvers vegna hann hafi ekki fyrr orðið leið- togi sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þegar Davíð Oddsson sneri sér að landsmálunum 1991 stóð val um nýjan leiðtoga borgarstjómarflokksins eink- um á milli Vilhjálms og Áma Sigfús- sonar. Þeirri skák lyktaði með því að útvarpsstjórinn Markús Öm Antons- son var sóttur og gerður að borgar- stjóra. Síðar komu sem leiðtogar þau Ámi Sigfússon, þá Inga Jóna Þórðar- dóttir, næst Bjöm Bjamason og nú loks Viihjálmur. Sá síðasti er orðinn fyrstur. „Góður leiðtogi þarf að hafa til að bera bæði lipurð og sveigjanleika. Kunna að treysta fólki og vera manna- sættir," segir Vilhjálmur þegar hann er spurður hvað forystumaður þurfi að hafa til brunns að bera. „Mikilvægt er líka að gefa eftir þeg- ar svo á við. Ríghalda ekki í sína eigin skoðmi og taka tillit til sjónarmiða annarra ef það getur liðkað fyrir mál- um svo þau nái í gegn.“ Valsari úr Hlíðunum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er fædd- ur Reykvíkingur og er 57 ára að aldri. Uppahnn í Hlíðunum....og varð þess vegna Valsari," eins og hann kemst að orði. Þegar kom fram á unglingsárin fór hann í Verslunarskólann og síðar í lagadeild Háskóla íslands. „Á þessum skólaárum fór ég að stússast í pólitík og félagsmálum sem ég held að sé hreinlega í mínu eðli. Hin hefðbundna pólítík var þó sjaldan til umræða á mínu æskuheimili," segir Vilhjálmur. í Versló var hann formaður nem- endamótsnefndar og í háskólanum var hann m.a. ritstjóri Vökublaðsins og ritstjóri Úlfljóts, blaðs laganema“. „Svona þróaðist þetta stig af stigi og fljótt varð ekki aft- ur snúið. Ég hef verið í ýmsu félags- málastarfi allar götur eftir þetta.“ Lærdómsríkur tími Fara verður fljótt yfir sögu þegar ferill Vilhjálms er rakinn en fáum árum eftir að hann lauk lagaprófi réð hann sig til SÁÁ en samtökin voru þá nýlega stofnuð. Þetta var 1978. „Til mín komu menn sem voru í stjóm samtakanna og báðu mig að koma skipulagi á starf samtakanna. Þau voru þá farin af stað með meðferð fyrir áfengissjúklinga, þar sem aðrir sem höfðu glímt við þennan sjúkdóm sem alkóhólisminn er voru ráðgjafar. Þetta var nýmæli i meðferð áfengis- sjúklinga og vissulega umdeiit, svo sem meðal ýmissa lækna. En alit hafð- ist þetta með tímanum og skilningur á starfinu jókst,“ segir Vilhjálmur. Litið til baka segir hann árin hjá SÁÁ hafa verið afskaplega lærdóms- ríkan tima og góðan. „Þama eignaðist ég marga trausta vini. En ekki siður finnst mér ánægjulegt að hafa tekið þátt í þessu starfi sem svo mörgum hefur hjálpað við að lifa heilbrigðu lífi,“ segir Vilhjálmur. Tókumst harkalega á „Ég fann hins vegar fljótt hvar ég átti heima í stjómmálum," heldur Vil- hjálmur áfram. „Þannig fannst mér Sjálfstæðisflokkurinn á minum ung- lingsárum eiga öflugustu forystu- mennina. Bjama Benediktsson sem formann og forsætisráðherra og Geir Hallgrímsson borgarstjóra. Fyrir svo utan að ég vildi frelsi einstaklingsins sem mest og vildi styðja við þau sjón- armið i stjómmálastarfi." Hann fór ungur að starfa með Sjálf- stæðisflokknum en heflti sér hins veg- ar sjáflúr ekki út í slaginn fyrr en árið 1982. í prófkjöri þá náði hann tryggu sæti og í kosningum þetta vor ár vann flokkurinn aftur meirihlutann í borg- inni undir forystu Davíðs Oddssonar. „Það var áfkaflega skemmtilegur tími sem þá fór í hönd, en átakamikill. Við Ingibjörg Sólrún tókumst harka- lega á í málum sem meirihlutinn var að vinna að, þá einkum skipulagsmál- um. Sem formaður skipulagsnefridar tók ég þátt í mörgum stórmálum, svo sem uppbyggingunni í Grafarvogi þar sem í fyrsta sinn gerðist það í borginni að aflir sem vildu byggja fengu lóðir. Það var nýmæli.“ Hughreysting er mikilvæg í síðustu viku, þegar Vilhjálmur tók við forystuhlutverkinu i borgarstjóm- arflokki sjálfstæðismanna, lýsti hann því yfir að hann legði sérstaka áherslu á velferðar- og fiölskyldumál, þá ekki síst félagsþjónustuna i borginni. Hann segir að þau mál hafi afltaf staðið sér nærri hjarta. Fari það kannski að ein- hveiju leyti saman við skapgerð sína og viðhorf. Sjálfur hafi hann þannig Setiö í kaffi meö blómin í baksýn. „Það má vera að ég sé sjálfstæðismaður af gamla skólanum. eins og það er kallað. Sú má nafngiftin vera ef í því felst að halda skuli í gömul og góö gildi og styðja þá sem eiga bágt," segir Vilhjálmur. kostað kapps um að greiða götu þeirra Reykvíkinga sem til sín leiti með slík mál - sem og annað. „Albert Guðmundsson talaði við fólk á hveiju götuhomi og var nefndur fyrirgreiðslupólitíkus. Kannski er ég það líka. En þá fyrst og fremst í þeim skilningi að ég leitast við að leiðbeina fólki og aðstoða við að leita réttar sins í kerfinu sem fyrir venjulegan borgara er oft afar flókið og snúið. Það má vera að ég sé sjálfstæðismaður af gamla skólanum, eins og það er kallað. Sú má nafhgiftin vera ef í því felst að halda skuli í gömul og góð gildi og styðja þá sem eiga bágt,“ segir Vilhjálmur. Allir borgarfufltrúar hafa í dag skipulagða viðtalstíma og leita þangað til kjörinna fufltrúa sinna með ýmis mál, basði stór og smá. „Oft em þetta ' ýmis félagsleg vandamál sem fólk kemur með tfl okkar borgarfufltrú- anna. Húsnæðisleysi, Qárhagsvandi, veikindi bama og fleira slíkt. Maður væri auðvitað tiflinningalaus ef frá- sagnir þessar tækju ekki á mann. Stundum er það lika hlutverk okkar borgarfulltrúa hreinlega að hug- hreysta fólkiö í erfiðri stöðu sinni. Ofl em slík orð það mikilvægasta." Yfirlætislaus eftirherma Sjónvarpskonan Jóhanna, sem landsmönnum er að góðu kunn, er elst þriggja bama Vilhjálms og Önnu Johnsen. Um nokkurra ára skeið var Jóhanna flugfreyja, jafnhliða sem hún stundaði nám í stjómmálafræðum við Háskóla íslands. Sjónvarpsþula var hún um skeið en síðustu vetur hefur hún stýrt morgunþætti Stöðvar 2 ásamt Þórhalli Gunnarssyni. „Ég á ofsalega góðan pabba og taug- in milli okkar er sterk, enda þótt við hittumst kannski ekki mjög oft. En við vitum alltaf mjög vel hvort af hinu,“ segir Jóhanna sem kveðst eiga traust- an vin og ráðgjafa þar sem faðir henn- ar er. Aðspurð um manninn á bak við borgarfufltrúann Vilhjálm segir Jó- hanna hann vera afskaplega yfirlætis- lausan mann. „Það er ekki til snobb í pabba. Ég man að þegar ég var í Versl- unarskólanum fékk ég stundum fína bílinn hans lánaðan en hann var á litl- um eldgömlum japönskum bíl sem ég átti. Stundum hreinlega gleymdi hann að rukka mig um bílinn sinn aftur og hann var á mínum bíl út um allan bæ. Síðan leynir hann líka verulega á sér sem eftirherma. Á góðum stundum á hann fma spretti og nær vel Gunnari Thoroddsen og Geir Haflgrímssyni, að ég tali ekki um Alfreð Þorsteinsson." í samræmi við tíðarandann Um skeið var Jóhanna í stjómmála- starfi, var í stjóm Sambands ungra sjálfstæðismanna, miðstjóm flokksins .. og einhveiju svoleiðis," eins og hún kemst að orði. Hún kveðst síðan hafa fúndið að sig langaði ekki í meira á þessum vettvangi og hafi þá ákveðið að draga sig i hlé, í bili aö minnsta kosti. Hafi hún þá farið að starfa við fjölmiöla og kunni þvi ákaflega vel. „Að mörgu leyti em stjómmálin og fiölmiðlar líkur vettvangur," segir Jó- hanna. „Á báðum stöðum þarf maður að vera fljótur að setja sig inn í mál og geta lesið hvemig straumar og steftiur liggja í þjóðfélaginu. Stjórmálamenn em vissulega að móta þær leikreglur sem samfélagið fer eftir en þeir era líka háðir fiölmiölunum sem endur- spegla viðhorf almennings og það hvemig landið liggur. Ekkert næst fram í stjómmálunum nema það sé í einhveiju samræmi við tíðarandann eins og hann birtist okkur hveiju sinni.“ Ab vera almenningseign Annað sem Jóhanna nefnir sem sammerkt með fiölmiðlum og stjórmál- um er aö þeir sem gefi sig til starfa á þessu sviði séu alltaf almenningseign. „Það er nokkuð sem maður verður að sætta sig við. Vissulega vill maður vera aflra og þá er stundum þreytandi og eiginlega sárt að ftnna að maður skaprauni einhveiju fólki þannig að viðkomandi telji sig hreinlega hafa skotleyfi á mann. En vissulega era dæmi um slikt fá. Sem betur fer,“ seg- ir Jóhanna sem í júni ætlar að taka sér frí frá sjónvarpinu í bili að minnsta kosti. Þá fer hún suður til Barcelona i spænskunám. Útgeislun og kjörþokki Eins og að líkum lætur era feðginin Jóhanna og Vilhjálmur ekki alltaf sammála um hlutina. Þau geta stund- um deilt hressilega, til dæmis um stjómmálin þar sem hvort um sig hef- ur eindregna afstöðu til manna og mál- efna. „Ég er afskaplega stoltur af henni dóttur minni sem hefur gert það gott. Mér finnst morgunþátturinn á Stöð 2 hafa heppnast mjög vel, vera málefna- legur, fiölbreyttur og skemmtilegur og þar stendur Jóhanna sig, að mínum dómi, afar vel. Þar sýnir hún ágætlega þá útgeislun og þann kjörþokka sem hún hefur sem sumir halda fram að ég hafi ekki,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson að síðustu og kímir. -sbs Leiötogakapphlaupið. Vilhjálmur, Katrín Fjeldsted. Magnús L. Sveinsson og Árni Sigfús- son. sem vantar á myndina. sögöust sumariö 1991 öll þess aibúin aö taka viö ieiðtogahlutverki inu embætti borgarstjóra. Niöurstaöan varð hins vegar Markús ðrn. Nú. tólf árum síðar. hefur Viihjálmur tekið viö veldissprotanum. (Úr myndasafni DV)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.