Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2003, Blaðsíða 16
16
FTMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003
£
M
agasm
Árinu eldri
Vala Á.
Thoroddsen er
82 ára 8. júní.
Hún er dóttir
Ásgeirs forseta
og ekkja Gunn-
ars heitis
Thoroddsens.
Þjóðin þekkir
Völu ekki öðru-
visi en brosandi, svo sem í hlut-
verki borgarstjórafrúar eða eigin-
konu forsætisráðherra. Hún er
vinsæl kona og vel metin í samfé-
laginu.
Jón Krist-
jánsson ráð-
herra er 61 árs
11. júní. Hann
er samvinnu-
skólagenginn
Skagfirðingur
en settist ung-
ur að á Egils-
stöðum. Hann
var kaupfélagsstarfsmaður og rit-
stjóri Austra. Hann var kjörinn á
þing 1985 og hefur verið heilbrigð-
isráðherra síðustu ár og þótt far-
sæll í störfum þar.
Jón Þór
Hannesson,
framkvæmda-
stjóri Saga
Film, er 59 ára
11. júní. Hann
var einn af
þeim vormönn-
um sem
hrundu starf-
semi íslenska sjónvarpsins af stað.
Síðan setti hann af stað rekstur
Saga film sem i dag er orðið stór-
veldi á sviði t.d. kvikmyndagerðar
og auglýsingamynda.
Ingibjörg
Rafnar lög-
fræðingur er
58 ára 6. júní.
Hún starfrækti
lengi lögfræði-
stofu með
systrum sínum
og var í borgar-
stjóm i nokkur
ár. Hún venti svo sínu kvæði í
kross og fylgdi eiginmanni sínum,
Þorsteini Pálssyni, þegar hann
gerðist sendi-
herra. Þau sitja
í Kaupmanna-
höfn.
Eiríkur Tóm-
asson lagapró-
fessor er 53 Ara
8. júní. Hann er
einn virtasti lögspekingur þjóðar-
innar og hefur hreyft við ýmsum
málum sem þýtt hafa réttarbætur.
Hann var aðstoðarmaður ráðherra
fyrr á árum og formaður kjör-
stjórnar í síðustu borgarstjómar-
kosningum.
Úlfar
Hauksson, for-
maður Rauða
kross íslands,
er 51 árs 6.
júní. Hann er
Akureyringur
og stýrir Kaffi-
brennslunni
þar í bæ. Hann
hefur aukinheldur komið að ýms-
um félagsstörfum, var lengi í for-
ystu Rauða krossins nyrðra en síð-
asta ár var hann formaður sam-
takanna á landsvísu.
Bubbi
Morthens tón-
listarmaður
verður 47 ára
6. júní. Hann er
farandverka-
maður sém
gerðist söngv-
ari, byltingar-
maður og box-
ari. Hann er orðuhafi, syngur um
átök og ástir, maður þverstæðna.
En samt er ekki til nema einn
Bubbi. Alltaf samur við sig og sí-
gildur.
Helgi Hjörv-
ar alþingismað-
ur verður 36
ára 9. júní.
Hann vakti
ungur athygli
fýrir skeleggan
málílutning
sem fleytt hefur
honum langt en
þó einnig gert hann umdeildan.
Hann er borgarfulltrúi og nýkjör-
inn þingmaður. Hann hefur verið
formaður og framkvæmdastjóri
Blindrafélagsins i nokkur ár.
Geröur
Kristný Guó-
jónsdóttir, rit-
stjóri Mannlífs,
er 33 ára 10.
júní. Hún er
skáldkona og
hefur ýmislegt
erjað í þeim
garði. Hún er
einnig vel þekkt sem blaðamaður
hjá Fróða, var lengi á Séð og heyrt
en hefur síðari árin ritstýrt Mann-
lffl. .
I>V
db á náttborðinu
Nafn: Eyvindur Ari Pálsson
Aldur: Verð tvítugur i ágúst.
Makl og börn: Óbundinn og
barnlaus og bý á „Hótel
Mömmu“.
Starf: Hef unnið sem þjálfari á
tennisnámskeiðum fyrir krakka.
Menntun og starf: Lauk fyrir
skemmstu stúdentsprófi frá MR.
Stefni á að læra stærðfræði í Há-
skólanum og fara því næst í nám
til útlanda. Vonast til að fá
áhugavert starf að námi loknu.
Bifreið: Ég hef afnot af fjalla-
bílnum Daihatsu Rocky, árgerð
1991.
Fallegasta kona sem þú hef-
ur séð utan maka: Fagurt er
allt, sem litið er ástaraugum.
(Christian Morgenstern)
Helstu áhugamál og hvað
gerir þú í frístundum: Áhuga-
málin eru íþróttir, kvikmyndir,
góðar skáldsögur, ferðalög og ým-
islegt tengt skólanáminu t.d.
stærðfræði. f frístundum spila ég
tennis og á klarínettið mitt, hitti
félagana og ræki áhugamálin.
Uppáhaldsmatur: Ég er hrif-
inn af alls konar fiskréttum enda
er sagt að það sé vit í fiski. Upp-
áhalds hátíðarmatur er hamborg-
arhryggur.
Uppáhaldsdrykkur: íslenskt
vatn.
Fallegasti staður á íslandi:
Veðrið hefur áhrif á fegurð
Meb
„Mér finnst það krydda hvunndaginn að borða góða máltíö með fjölskyld-
unni. Allt sem ég geri í frístundum kryddar líka tilveruna," segir Eyvindur
Ari Pálsson sem dúxaði í Menntaskólanum í Reykjavík og náði
^ einstökum árangri. Magasín-mynd Hari
Ovinafagn-
- segir Eyvindur Ari Pálsson, sem dúxaái í MR
landsins en ætli Þingvellir séu
ekki fallegir hvernig sem viðrar.
Eftirlætisstaður erlendis:
Mér frnnst sá staður sem ég er
staddur á hverju sinni áhuga-
verðastur - núna beinist áhuginn
að Japan en þangað fer ég eftir
rúman mánuð.
Með hvaða liði heldur þú í
íþróttum: Fótboltaliði 6.X vetur-
inn 2002-2003 en það varð einmitt
Krítarmeistari í knattspymu í
ágúst 2002. Þjálfari liðsins er
Kristján Þór Þorvaldsson.
Hvaða bók ertu með á nátt-
borðinu: Óvinafagnað eftir Ein-
ár Kárason.
Eftirlætis rithöfundur: Höf-
undur Njálu.
Eftirlætis tónlistarmaður:
Trommuleikarinn í Ókind, Ólaf-
ur Freyr Frímannsson.
Fylgjandi eða andvígur rík-
isstjórninni: Tek ekki afstöðu.
Hvaða þjóðþrifamál á ís-
landi er brýnast að bæta úr:
Menntamál eru mér efst í huga
og þá einkum endurskoðun á
fyrstu bekkjum grunnskólans.
Hvað ætlaðir þú að gera þeg-
ar þú yrðir stór: Ég tók aldrei
ástfóstri við eina starfsgrein, mér
dugði að stefna að því að veröa
stærri.
Persónuleg markmið fyrir
komandi mánuði: Æfa stift fyr-
ir Ólympíuleikana í stærðfræði í
Japan og gera mitt besta þegar á
hólminn er komið.
Hver eru þín ráð til að
krydda hvunndaginn: Mér
finnst það krydda hvunndaginn
að borða góða máltíð með fjöl-
skyldunni. Allt sem ég geri í frí-
stundum kryddar líka tilveruna.
Lífsspeki: Að gera mitt besta
og horfa á björtu hliðamar.
J
3
Sjáumst í göngugötunni á morgun