Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2003, Blaðsíða 23
■4
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003
I>V
M,
agasm
Hvað ætlar þú ab gera
um hvítasunnuhelgina?
Eitthvað
út úr
bænum
„Við mæðgurnar ætlum að
reyna að komast eitthvað út úr
bænum um helgina, sérstaklega
þá ef veðrið verður gott. Alltaf er
gaman að fara austur á Þingvöll
eða kannski upp að Reynisvatni
að veiða. Ef við mæðgurnar er-
um í bænum forurn við stundum
í sund eða í bíó. Annars er ég
hreinlega ekki búin að ákveða
hvernig hvitasunnan verður,“
segir Sigríður Ásgeirsdóttir há-
skólanemi.
„En auðvitað væri margt
skemmtilegt hægt að gera. Til
dæmis væri afskaplega gaman að
fara eitthvað vestur, kannski á
Strandirnar eða norður í Djúpu-
.Afskaplega gaman að fara eitthvað vestur," segir
Sigríður Ásgeirsdóttir háskólanemi.
vík. Eða vestur í
Djúp og gista á hót-
elinu í Reykjanesi.
Draumurinn væri
hins vegar að kom-
ast eitthvað í smn-
arhús. Við höfum
aðgang að húsi
norður í landi en þangað er
kannski helst til of langt til að
fara til helgardvalar. Því munum
við mæðgurnar láta okkur líka
að vera hér einhvers staðar í ná-
grenni borgarinnar um þessa
löngu fríhelgi," segir Sigríður en
einnig séu um helgina á dagskrá
ýmsir menningarviðburðir í
Reykjavík sem gaman Væri að
sækja.
Að öðru leyti segir hún að ef til
vil sé best að njóta þess sem borg-
in býður því hún sé hún nú á
leiðinni á heimaslóðir sínar vest-
ur á ísafirði þar sem hún verði
við störf næstu mánuði og ætli
ekki að snúa aftur fyrr en sið-
sumars.
-sbs
„Eg er alæta
Pálmi
i á alla tónlist," segir
1 Gunnarsson.
Tónlistin í hlustunum
Stewart me&
stórsveit
„Síðustu daga hef ég verið að hlusta á Path Methany, sem er einn af
þekktustu djassgítaristum heimsins," segir Pálmi Gunnarsson, söngv-
ari og tónlistarmaður. „Hann er óskaplega fjölhæfur tónlistarmaður og
í hljómsveit hans eru menn víðs vegar úr heiminum. Hver og einn
þeirra leggur til gott eitt í blönduna sem verður óskaplega skemmtileg
í heildina. Mér fmnst alltaf gaman að hlusta á djass og þá ekki síður
svona instrúmental músík.“
Pálmi segist einnig að undanfómu hafa gripið í að hlusta á Rod
Stéwart þar sem hann syngur ýmsa gamla stórsveitastandara með
slikri sveit. „Þarna er gamli Stewart einmitt með stórsveit með sér og
er mjúkur og flottur. Alveg eins og hann gerist allra bestur," segir
Pálmi
Aukinheldur segist Pálmi hafa gaman af því að hlusta á ýmiss kon-
ar íslenska tónlist. „Ég er alæta á alla tónlist, ef hún er á annað borð
góð,“ segir Pálmi. „Þannig var ég um daginn að hlusta á nýjustu afurð-
ina frá Maus sem mér þótti mjög góð og skemmtileg - og yfirleitt flnnst
mér þetta sem nýjar íslenskar sveitir eru að gera í dag koma mjög
skemmtilega út,“ segir Pálmi sem er alltaf í sveitinni Mannakornum
sem er siung og hefur að undanfornu verið að taka upp í hljóðveri ým-
islegt efni sem kemur út í fyllingu tímans. -sbs
Bækurnar á náttborbinu:
Sögur af kappanum KK
„Ég hef nýlokið við KK, ævisögu Kristjáns Kristjánssonar tónlistar-
manns, eftir Einar Kárason," segir Guðrún Helga Sigurðardóttir, blaða-
maður á Frjálsri verslun. „Mér fannst þessi bók skemmtilega skrifuð. Ég
hélt fyrir fram að hann hefði ekki mikið að segja blessaður KK en hafði
heyrt í viðtölum í íjölmiðlum fyrir jólin að það gæti varla verið rétt. Það
kom líka í ljós strax og hún var opnuð að þetta var misskilningur. Ekki
aðeins er bókin afbragðsvel skrifuð, létt og skemmtileg heldur hefur
kappinn lika frá nógu að segja af þvælingi sínum um heiminn og
reynslurikri ævi.“
Bókin Norðanstúlka eftir Guðrúnu Friðgeirsdóttur er önnur bók sem
Guðrún hefur nýlega lesið - og segir hún hana vera sér minnisstæða.
„Það hefur lítiö farið fyrir þessai’i bók en ég er viss um að hún á eftir
að lifa lengi inni í mér því aö ég hef hugsað svo mikið um hana, í þess-
ari bók segir Guðrún frá uppvexti sínúm hjá fátækri móður sinni,
verkakonu, í kreppunni á Húsavík. Hún lýsir vel aðstæðum á Húsavík
á þessuni tíma. Þetta er heilmikil tilfínningabók að vissu leyti og ein-
hvem veginn flnnst mér eftir á að hyggja að sár lífsreynsla hafi skinið
í gegnum textann. Þetta er að minnsta kosti bók sem situr i mér.“
Þá segist Guörún vera sæmilega dugleg aö lesa matreiðslubækur og
bækur um líkamsrækt þegar hún kemst í þær. „Það er því miður alltof
sjaldan en nýlega komst ég í tæri viö bók á ensku um ávaxtahristing af
ýmsu tagi sem mér þykir hrein unun að glugga í og láta mig dreyma,"
segir Guðrún Helga Sigurðardóttir blaðamaður. -sbs
„Viss um að bókln á eftir að lifa lengi
inni í mér,“ segir Guðrún Helga Sig-
urðardóttir. Mynd Gelr Olafsson
23
Mikið úrvai
Heildsöludreifing
A horni Laugavegar og Klapparstígs
af nýjum vörum í frönsku línunni
Mjög hagstætt verð.
Eftirfarandi verslanir
bjóöa þessar vörur:
Blómabúðin Dögg,
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
Blómahafið við Gullinbrú,
Stórhöföa 17, Rvk
Blómahúsið,
Kirkjubraut 14, Akranesi
Sjanghæ
kínverskur veitingastaður
Elsta kínverska veitingahúsið á Islandi
Hlaðborð í hádeginu
Kr. 980 - 6 réttir
Við erum einnig með aðstöðu fyrir allt
að 100 manns, tilvalið fyrir veisluna jbína!
Laugavegi 28 • 101 Reykjavík • Sími: 551 6513
SÖGUSAFNIÐ • PERLAN
Opið 10-18 - sími: 511 1517 / 511 1518
www.sagamuseum.is - netfang: agusta@backman.is
Sögusafnið sýnir stórviðburði
íslandssögunnar frá landnámi til
siðaskipta með einstökum hætti
í einum af hitaveitutönkum Perlunnar. Innifalin er leiðsögn
á geisladiski á nokkrum tungumálum.