Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2003, Blaðsíða 2
76 DVSPORT ÞRIÐJUDAGUR 10.JÚN/2003
Henin-Hardenne vann franska meistaramótið
Moreno hættur að dæma
TENNIS: Belgíska stúlkan
Justine Henin-Hardenne vann
sigur á opna franska meistara-
mótinu um helgina. Hún lagði
löndu sína, Kim Clijsters, örugg-
lega í tveim settum, 6-0 og
6-4.Leikurinn stóð aðeins yfir í
68 mínútur enda voru yfirburðir
Henin-Hardenne miklir. Þetta
var í fyrsta skiptið sem belgísk-
ar stúlkur keppa til úrslita á
þessu móti og því voru belgíski
kóngurinn og forsætisráðherr-
ann meðal áhorfenda.
„Þetta er frábær stund fyrir mig.
Ég lagði allt mitt hjarta í þenn-
an leik," sagði Henin-Hardenne
eftir að hún hafði lyft bikarnum
góða. Hún sagðist tileinka sig-
urinn móður sinni sem er látin.
„Ég vil tileinka móður minni
þennan sigur en ég er viss um
að hún horfði á hann frá para-
dís og var mjög stolt af mér. Ég
kom hingað með henni fyrir 11
árum sem áhorfandi og þá
sagði ég við hana að ég myndi
snúa hingað aftur sem kepp-
andi. Ég tel að hún hafi gefið
mér alla þá orku sem ég þurfti í
dag," sagði þessi 21 árs stúlka
að lokum.
henry@dvJs
Justine Henin-Hardenne sigraði á
opna franska meistaramótinu.
KNATTSPYRNA: Umdeildasti
dómari heims, Ekvadorinn
Byron Moreno, hefur lagt flaut-
una á hilluna mörgum til mikill-
ar gleði. Moreno skaut rækilega
fram á sjónarsviðið á HM síð-
asta sumar í leik Suður-Kóreu
og (tala þegar hann rakTotti af
velli og tók mark af ítölunum.
Hann var dæmdur í 20 leikja
bann í heimalandinu í vetur
þegar hann bætti 12 mínútum
við venjulegan leiktíma. Mor-
eno tengdist öðru liðinu sem
skoraði einmitt 2 mörk á þess-
um 12 mínútum. Hann fékk svo
annað bann, eins leiks að þessu
sinni, undir lok tímabilsins fyrir
bága frammistöðu í deildarleik.
Moreno ætlar að leiðbeina öðr-
um dómurum af hliðarlínunni í
framtíðinni. henry@dvJs
íslenska landsliðið í hand-
knattleik tók þátt í Flanders
Cup í Belgíu um helgina. Liðið
spilaði þrjá leiki - vann einn,
gerði eitt jafntefli og tapaði
einum.
Fyrsti leikurinn var gegn Slóven-
um og endaði með jafntefli, 26-26.
Guðjón Valur Sigurðsson var at-
kvæðamestur í íslenska liðinu í
leiknum með 10 mörk og Snorri
Steinn Guðjónsson kom næstur
með 5 mörk. Síðan tapaði liðið fyrir
Serbfu/Svartfjallalandi, 32-31. Þar
lék Einar Örn Jónsson best með 7
mörk og Snorri Steinn var einnig
með 7 mörk. Síðasti leikur mótsins
var síðan gegn Dönum og þar léku
íslensku strákarnir mjög vel og sigr-
uðu, 29-26. Einar Hólmgeirsson átti
stórleik og skoraði 9 mörk og Róbert
Gunnarsson átti einnig mjög góðan
leik og skoraði 8 mörk.
Marga fastamenn vantaði í lands-
„Við tefldum fram mjög
ungu liði og strákarnir
stóðu sig frábærlega"
liðið að þessu sinni og því var þetta
mót gott tækifæri fyrir marga af
ungu og óreyndu mönnunum til að
sanna sig.
„Þetta er mjög viðunandi árangur
og það var fjölmargt jákvætt í
þessu,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari við DV
Sport um helgina.
„Við tefldum fram mjög ungu liði
og strákarnir stóðu sig frábærlega.
Við hefðum átt að vinna Slóvena,
sigruðum Dani og rétt töpuðum
síðan fyrir Serbum sem er fyrrver-
andi landslið Júgóslava og þeir eru
að búa sig undir undankeppni EM
og voru því með mjög öflugt lið. Við
getum vel við unað og við erum
mjög sáttir."
Ungu strákarnir spiluðu mjög vel
í þessum leikjum og til að mynda
var Snorri Steinn með 17 mörk í
þessum þrem leikjum og svo áttu
Einar Hólmgeirsson og Róbert
Gunnarsson stórleik gegn Dönum.
„Við erum að reyna að breikka
leikmannahópinn hjá okkur og gefa
þessum strákum tækifæri og þetta
mót gaf okkur gott tækifæri tii þess.
Það er mjög erfitt fyrir þessa stráka
að taka sín fyrstu skref í alþjóðleg-
um handbolta og það gerist ekkert á
einum degi að þeir verði tilbúnir í
þann slag, en þeir stigu stórt skref
um helgina og þegar á heildina er
litið er ég bara mjög sáttur. Það var
ekki aðalatriðið hjá okkur í þessu
móti í hvaða sæti við myndum
lenda heldur hvernig handbolta við
værum að spila og hvernig þessir
strákar kæmu inn í þetta. Það var
aðalatriðið og ég fékk fullt af svör-
um við ákveðnum spurningum og
strákarnir fengu mikla og dýrmæta
reynslu," sagði Guðmundur Guð-
mundsson, hæstánægður með
helgina. henry@dvJs
-
nn Guðjónsson var einn af
i ungu leikmönnum sem fengu
i með landsliðinu um heigina
Allir stóðu þeir sig mjög vel og ekki
síst Snorri sem skoraði 17 mörk í
þremur leikjum.
Efni DV Sports
Þríðjudaginn lO.júní2003
-
Viðunandi árangur hjá
handboltalandsliðinu
Viðtal við Guðmund
Guðmundsson þjálfara, bls. 16
Vorum miklu betri
Landsliðsþjálfarinn Ásgeir
Sigurvinsson, bls. 17
Tryggvi tryggði sigurinn
Allt um leikinn gegn
Færeyingum, bls. 18-19
Jörundur Áki rekinn frá
Breiðabliki
Blikar unnu sinn fyrsta sigur
í 1. deildinni um helgina, bls.
20-21
Jafnt hjá Þjóðverjum og
Skotum
Allt upp á gátt í 5. riðli
undankeppni EM 2004, bls. 21
KR-stúlkur á toppnum
Hrefna Jóhannesdóttir skoraði
fimm mörk fyrir KR, bls. 22-23
.
Birgir Leifur og Anna
Lísa unnu
- annað stigamótToyota-
mótaraðarinnarfórfram um
helgina bls. 26
Logi í viðræðum við Fram
- Baksíða
Viðunandi árangur
sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari um frammistöðuna á Flanders Cup
Utan vallar
MÍNSK0ÐUN
ÓSKAR HRAFN Þ0RVALDSS0N
íþmttafréttamaður
Það þarf ekki að koma á óvart í
ljósi frétta síðustu daga að Grind-
víkingar skuli kúldrast í kjallara
Landsbankadeildarinnar þrátt fyr-
ir að vera með mannskap sem ætti
að vera að berjast á toppnum í
deildinni.
Undanfarin ár hefur það verið
grunur þess sem þetta skrifar að
stjörnu- og kóngastælar ákveð-
inna leikmanna liðsins hafi staðið
liðinu fyrir þrifum og í síðustu viku
keyrði um þverbak þegar fréttist af
drykkju fjögurra lykilmanna liðs-
ins, á föstudagskvöldið eftir sigur-
leikinn gegn Fram, en aðeins fjór-
um dögum fyrir leikinn gegn ÍBV
sem liðið tapaði með skömm á
heimavelli og gerir það að verkum
að það er í næstneðsta sæti
deildarinnar.
Með þessum fjórum einstak-
Þeir vissu að helgin á
eftir var fríhelgi þar
sem hægt var að sletta
úr klaufunum. Hinir
fjórir fræknu gátu hins
vegar ekki beðið -
þorstinn sótti ofstíft
að þeim.
lingum voru nokkrir afvegaleiddir
ungir leikmenn liðsins en hvort
þeir voru dauðadrukknir eða ekki
skiptir litlu máli. Það eru fjór-
menningarnir sem þurfa að svara
til saka. Þeirra framferði er óafsak-
anlegt en allir eru þeir með reynd-
ari mönnum liðsins.
Þessir menn fá mikla peninga, í
sumum tilfellum ótrúlegar upp-
hæðir, fyrir að spila knattspyrnu
og þeir peningar koma að mestu
leyti frá bæjarbúum sem fara að-
eins fram á að leikmenn leggi sig
fram á knattspyrnuvellinum og
hagi sér skikkanlega utan vallar -
Er til of mikils mælst?
Fjórmenningarnir bera hins
vegar ekki meiri virðingu fyrir
sjálfum sér, liðinu eða bæjarbúum
en það að þeir ákváðu fagna
sigrinum á Fram með því að fá sér
ærlega í glas - hvílíkt virðingar-
leysi! Þeir vissu að helgin á eftir var
fríhelgi þar sem hægt var að sletta
úr klaufunum. Hinir fjórir fræknu
gátu hins vegar ekld beðið - þorst-
inn sótti of stíft að þeim.
Það sem er kannski verst í þessu
er að allt virðist benda til að um-
ræddir fjórmenningar muni
sleppa með að borga aðeins sekt.
Félagið virðist ekki ætla að setja þá
í bann, bann sem þeir verðskulda
fyllilega - og það er sorglegt. Málið
hefur verið til lykta leitt, ef marka
má orð eins af forráðamönnum
liðsins, og það er slæmt.
Vissulega myndi liðið veikjast ef
þeir yrðu settir í bann, leikir
myndu kannski tapast og staðan í
deildinni versna en í staðinn
myndi félagið endurheimta það
sem er dýrmætara en sigrar eða
töp - virðingu bæjarbúa í Grinda-
vík sem eiga annað og betra skilið
eftir frábæran smðning við liðið í
gegnum árin.