Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 2
Útgefandl: Útgáfufélagið DV ehf.,
Skaftahlíð 24.
Ábyrgðarmenn: Óli Björn Kárason
og Jónas Haraldsson
Blaðamenn: Höskuldur Daði Magn-
ússon, hdm@fokus.is - Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir, sigrun@fokus.is
Aðrir höfundar efnls: Ágúst
Bogason - Kristinn Jón Arnarson -
Trausti Júlíusson
Auglýsingar: Jóhannes Bachmánn,
joi@dv.is
Ljósmyndir: Ljósmyndadeildin ehf.
Hönnun og umbrot: Tómas Ingi
Ragnarsson
Prentun: Árvakur hf.
fokus@fokus.is
www.fokus.is
Sími: 550-5000
nr. 252 - september 2003
Forsíðumyndina tók Hari af Kristfnu Ýri Bjarnadóttur
000 smokkar og 200 miðar á
Blaðið sem þú heldur á er annað tölu-
blað Fókuss með breyttu sniði. Fyrsta
tölublaðið vakti mikla athygli þegar
það kom út fyrir mánuði síðan og höf-
um við fengið afar jákvæð viðbrögð við
því. Af þessu tilefni erum við í afar
góðu skapi. í dag er Fókus dreift í alla
framhaldsskóla og háskóla á höfuð-
borgarsvæðinu svo að ungt fólk fái ör-
ugglega að kynnast nýja Fókusnum.
Þar að auki gefúm við lesendum okkar í
þessum skólum alls 5.000 smokka svo
þeir fari nú ömggir inn í veturinn. Þá
bjóðum við 200 heppnum lesendum í
skólunum miða á tónleika írafárs á
Nasa í kvöld. Það er því um að gera að
fylgjast vel með f skólanum í dag.
Meðal efnis í blaðinu er annars ítarleg
- úttekt á skemmtistöðunum í miðborg
Reykjavíkúr. Við skoðum hvort það
kostar inn á staðina, hvað þeir rukka
fyrir drykki og gefum þeim svo stjörnur
og umsögn. Forsíðuna prýðir Kristín
Ýr, sem er fótboltastelpa úr Val og
rappari úr hljómsveitinni Igore sem
hefur verið í mikilli spilun á Popptíví.
Við kíkjum á hvað er heitast í tísku-
vöruverslununum og segjum frá vin-
sælustu kokkteilunum á börunum. Þá
er rætt við Opee, nýja rapparann í
Quarashi og Auðun Blöndal á Popptíví
auk þess sem fjallað er um blóðugt
kynlíf - kynlíf þegar kvenfólk er á blæð-
ingum. Þetta er aðeins toppurinn á ís-
jakanum - blaðið er stútfullt af efni
eins og þú kemst örugglega að.