Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 4
Ilmur Kristjánsdóttir útskrifaðist ,úr leiklistardeild Listaháskóla ís- 'lands í vor en þangað komst hún inn í fyrstu tilraun. Hún er strax byrjuð að gera það gott sem leik- kona og var búin að fá hlutverk Línu í leikritinu um Línu langsokk áður en hún útskrifaðist. Verkið verður sett upp í Borgarleikhúsinu og frumsýnt þann 14. september næstkomandi. „Ég byrjaði að æfa Línu langsokk áður en ég var búin í skólanum og æfði út júnímánuð. Eftir það hef ég bara verið í sumarfríi. Ég er ættuð frá Grundarfirði og reyni að fara sem oftast vestur - mér finnst mjög gott að koma þangað. Svo fór ég bæði til London og Aþenu, en bróðir minn býr á síðarnefnda staðnum með grískri kærustu sinni. Við fórum líka til tveggja grískra eyja, Sifnos og Milos, sem er eyja ástargyðjunnar Afródítu." GrMfanisí0m^^Ur^ Nei, en mér líkaði mjög vel. Grikkirnir voru reyndar ekkert sér- staklega hrifnir af Norðurlandabú- um, að minnsta kosti ekki eyjar- skeggjarnir. Þeir töluðu aldrei við mann og sýndu því engan áhuga hvaðan maður var. Kannski er þetta bara eitthvað í manni sjálf- um, maður ætlast alltaf til þess að fólk sé ægilega forvitið um hvaðan maður kemur,“ segir Ilmur og skellir upp úr. „Ég fann reyndar fyrir því í fyrsta skipti þarna úti að skammast mín fyrir að vera íslendingur. Það var aðallega út af stuðningi Islendinga við stríðið í írak. Þegar ég var á flugvellinum passaði ég mig meira að segja sérstaklega að vera ekkert að flagga passanum. Það var ótrú- lega skrýtið að upplifa þetta af því að yfirleitt er maður svo stoltur af því að vera íslendingur." Htt sem stum :u einhuer ahimamal buhefuxgeiad aaoifmnu? „Veistu það, ég hef mikið verið að hugsa um að koma mér upp ein- hverju áhugamáli bara til að geta svarað svona spurningum," segir Ilmur og hlær. „En sannléikurinn er sá að þegar ég er í fríi finnst mér best að vera bara í fríi, hanga og gera sem minnst. Reyndar flnnst mér gaman að ganga á fjöll þótt ég hafi ekki gert neitt sérstaklega mik- ið af því. Það hefur reyndar verið nóg að gera í fríinu núna. Við vorum með- al annars að kaupa okkur íbúð á besta stað í miðbænum," segir Ilmur sem er í sambúð með Hall- dóri Erni Óskarssyni. „Við þurftum ekkert að gera fyrir hana, enda hefðum við ekki haft neinn tíma til þess. Við ákváðum þess vegna bara að kaupa íbúð sem við gæt- um flutt inn í strax. En ég sé samt alveg rómantíkina í því að moka öllu út. Halli er öllu raunsærri en ég og tók út fyrir það strax í byrj- un.“ „Mjög vel. Ég er einmitt að fara að taka upp plötu á næstunni með lögunum úr leikritinu. Þetta er skemmtileg uppfærsla. Þau Bergur Þór og Edda Björg leika Önnu og Tomma og Sigrún Edda, sem lék Lfnu fyrir 20 árum, leikur núna frú Prússólfn. Svo eru Geirfuglarnir með tónlistina og þeir hafa verið að poppa þetta upp. Lína kom fram opinberlega í fyrsta skipti á Menningarnótt. Það var mikið stress þar sem leikstjórinn, María Reyndal, var fyrir norðan að elda ofan í hóp fornleifafræðinga. Maður getur alveg bjargað sér en það er alltaf betra að fá samþykki einhvers annars, „þetta er fínt hjá þér“ og klapp á bakið. Svo þurfti ég að syngja í fyrsta skipti opinber- lega en mér finnst miklu erfiðara að syngja en að leika. Kannski af því að ég er búin að læra leiklist en ekki söng. Mér finnst ég einhvern veginn vera að sýna meira af Ilmi þegarég syng.“ , Hvemii framtidal „Ég hef alltaf séð í hillingum að verða gömul og reka lítið gistihús einhvers staðar fyrir utan bæinn, kannski jafnvel fyrir vestan. Um daginn steikti ég fiskibollur og sauð sviðakjamma sama kvöldið, þetta var meira að segja föstudags- kvöld,“ segir Ilmur og skellihlær. „Ég er alin upp við að borða svona sveitamat en mér leið svolítið eins og gamalli konu þegar ég setti fisk- fars, sviðakjamma og mjólk í körf- una í Nóatúni. Þá hugsaði ég með mér: „Nei, Umur. Ertu ekki að flýta þér aðeins of mikið að verða göm- ul?“ Það hefur alltaf búið einhver gömul kona í mér.“ Echoes Fyrir marga var The Rapture hljómsveit síðustu Airwaves-há- tíðar. Fyrsta platan hennar í fullri lengd er væntanleg í sept- ember. Á henni verða mörg af lögunum sem hún var með á dagskrá á Airwaves, t.d. hið al- magnaða House of Jealous Lovers. Búist við ofvirku dans- rokki af béstu gerð. Áætlaður út- gáfudagur: 8. september. Spepnandi fl Pprfprt firrlP StpÚltt plötur Thirteenth Step A Perfect Circle er hin hljóm- sveitin með Máynard James Keenan, söngvara Tool. Síðasta plata hennar, Mer De Noms, sem kom út árið 2000, þótti mik- il snilld. Fyrsta smáskífan af plötunni Weak & Powerless er, að sögn Maynards, ekki lýsandi fyrir efni plötunnar en það má reikna með því að platan verði í þunglyndu og þróuðu deildinni. Áætlaður útgáfttdagur: 15. sept- ember. Silence Is Easy Breska hljómsveitin Starsailor vakti mikla athygli fyrir frum- smfði sfna, Love Is Here, sem mörgum þótti ein af betri plöt- um ársins 2001. Nú er hún mætt með næstu plötu. Tvö laganna á Silence Is Easy eru pródúseruð af snillingnum og ógæfumann- inum Phil Spector. Búist við melódísku popp-rokki. Áætlaður útgáfudagur: 15. september. °°MÍe Reality David Bowie er greinilega í mikl- um ham. Rúmu ári eftir hina ágætu Heathen mætir hann með nýja plötu, Realify. Hún ku vera í ætt við Heathen en svolítið rokk- aðri. Bowie vann plötuna, sem er hans 26. á ferlinum, með upp- tökustjóranum Tony Visconti. Á henni eru 11 lög, þar af þrjú tök- ulög. Áætlaður útgáfudagur 15. september. Hiise flbsolution Það er mikil spenna fyrir nýju Muse-plötunni Absolution sem fylgir eftir hinni ágætu Origin of Symmetry sem kom út fyrir tveimur árum. Ef platan er eitt- hvað í líkingu við fyrstu smáskff- una, The Stockholm Syndrome, þá er hægt að bóka mjög öfluga pjötu sem á eftir að límast á heil- ann á heilu kynslóðunum. Áætl- aðtfr útgáfudagur 22. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.