Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2003, Qupperneq 2
2
Magasín
Fimmtudagur 18. september 2003
Viðtalið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir:
1. Hugsaðu jákvætt, það er iettara.
2 Hlúðu ab }>ví sem þer þyku var-nt um.
Haltu atram að laera tvo lungi sem þu
Lærðu a< mistökum þinum.
5. Hteyiðu þig dagltfga, þaft lettir
6. Flaektu ekki tff þítt að oþörtu
7. Reyndu að sktlja og hvetja «<
6. Gef&tu ekkí upp, vdgengni í
„Mikilvægt er hins vegar að gera skýran greinarrnun á eðli og upplagi veikinda. Það er jafn mikill munur á kVefi og krabbameini og vægu þunglyndi og geðklofa," segir Dóra Guðrún meðal annars hér í viðtalinu.
Heilbrigt að sveiflast svolítið til
„Það þarf ekki að fara í grafgötur
með að Geðræktarverkefnið hefur
breytt andrúmsloftinu í þjóðfélag-
inu mikið. Fyrir ekki svo mörgum
árum voru fordómar gegn þeim
sem glíma við einhvers konar geð-
raskanir áberandi en í dag eru þeir
á undanhaldi. Samfélagið þurfti á
því að halda að opna umræðu um
geðheilsu því að engin heilsa er án
geðheilsu. Geðrænn vandi kemur
upp í öllum fjölskyldum," segir
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,
verkefnisstjóri Geðræktar."
Gegn fordómum
Þrjú ár eru nú liðin frá stofnun
Geðræktarverkefnisins sem Héð-
inn Unnsteinsson var brautryðj-
andi að. Hann hafði sjálfur glímt
við geðhvörf og var að komast á
beina braut eftir. þau veikindi. í
stað þess að fara með veggjum og
segja fátt um veikindi sín til að
mæta ekki fordómum fór Héðinn
þveröfuga leið og ræddi opinber-
lega um sína reynslu.
Til að vinna frekar að geðrækt
fékk hann ýmsa til liðs við sig í
þeim tilgangi að breyta hugarfar-
inu. Má þar nefna Elínu Ebbu Ás-
mundsdóttur iðjuþjálfa og öddu
Steinu Björnsdóttur sem unnið
hafa ötullega að verkefninu.
Mikilvægur stuðningur
Geðrækt var upphaflega hugsað
sem þriggja ára verkefni, en nú hef-
ur verið ákveðið að framlengja
samstarfssamning um verkefnið.
Geðhjálp, Landlæknisembættið,
Landspítalinn - háskólasjúkrahús
og HeUsugæslan í Reykjavík standa
að verkefninu. Fyrsta árið kom fjár-
magn nær eingöngu frá einkaaðil-
um en eftir að verkefnið fékk að
sanna sig hefúr ríkið stutt við það.
„Það er þó ljóst að ef ekki hefði
komið tU stuðningur frá Delta,
Landsbankanum, ÍE, Skeljungi og
Eimskip þá hefði þetta verkefni
aldrei orðið það sem það er í dag,"
segir Dóra Guðrún.
Fjórðungur ekki fjarri lagi
„Rannsóknir sýna að um fjórð-
ungur fólks glímir einhvem tíma á
lífsleiðinni við geðraskanir. Sjálf tel
ég þessar tölur ekki fjarri lagi,“ seg-
ir Dóra Guðrún. „Mikilvægt er hins
vegar að gera skýran greinarmun á
eðli og upplagi veikinda. Það er jafn
mikill munur á kvefi og krabba-
meini og vægu þunglyndi og geð-
klofa,“ segir hún.
Annars er það sem rauður þráður
í hugmyndafræði Geðrækar að
hvetja fólk til ábyrgðar á eigin geð-
heilsu. „í þessu, eins og öðm, verð-
ur fólk að taka ábyrgð á eigin lífi og
þekkja sjálft sig. Algildar lausnir
duga skammt. Einnig er mikiivægt
að fólk geti öðlast þann styrk að
geta mætt þeim áföllum sem það
verður fyrir og nýti þá reynslu á
uppbyggiiegan hátt.“
Geðrækt er sjálfsögð
Það er gömul saga að þunglyndi í
skammdeginu sé kvilli sem marga
hrjái. Að myrkur færist yfir margra
sinni þegar næturmyrkrið varir
iengur en bjartur dagurinn. Fyrstu
mánuðir hvers árs reynast mörgum
þungir í skauti að þessu leyti.
„Hins vegar sýna rannsóknir
fram á að skammdegisþunglyndi er
ekki meira hér á landi en annars
staðar og hefur því sjónarmiði ver-
ið haldið á lofti að íslendingum hafi
tekist svo vel að aðlaga sig vetrar-
myrkrinu að það bíti minna á okk-
ur en marga aðra,“ segir Dóra Guð-
rún.
„Við höfum sagt að geð-
rækt eigi að vera jafn
sjálfsögð og líkamsrækt.
En í raun tengist þetta
tvennt því um leið og
við ræktum líkamann
stuðlum við að betri
geðheilsu."
„Að mínu mati felst meiri hætta í
lífsgæðakapphlaupinu sem mörg-
um hefúr reynst snúið að taka þátt
í - elta skilaboð allra auglýsinga
sem oft ganga út á að tiltekin vara
veiti okkur velllíðan. Slíkt er þú oft-
ast fjarri lagi. Við verðum að leggja
rækt við sjálf okkur til að líða vel.
Þannig höfum við sagt að geðrækt
eigi að vera jafn sjálfsögð og lík-
amsrækt. En í raun tengist þetta
tvennt. Um leið og við ræktum lík-
amann stuðlum við að betri geð-
heilsu."
Spornum við leiðanum
Allir finna fyrir leiða eða depurð
stöku sinnum. Það er hluti af því að
vera til, segir Dóra Guðrún. Bætir
við að lyf séu aldrei lausn við leiða.
„Það er merki um heilbrigði að
sveiflast svolítið til í andlegri líðan -
vera glaður á góðum stundum og
sorgmæddur þegar það á við. Hins
vegar getur það verið merki um
þunglyndi hjá fólki þegar enginn
hlutur vekur orðið áhuga þess og
það getur ekki glaðst yfir því góða í
tilverunni. Þá er nauðsyn að leita
sér aðstoðar," segir Dóra Guðrún.
Þennan mánuðinn vinnur Geð-
rækt í samstarfi við fleiri aðila að
þemamánuði um geðheilsu eldri
landsmanna. Mörgum reynast efri
árin þung í skauti, þeir tímar þegar
starfsævinni er lokið, margir ást-
vinir fallnir frá og svo framvegis.
„Til þess að sporna við þessu er
mikilvægt að fólk finni sér nýtt
hlutverk, til dæmis í tómstunda-
starfi eða öðru starfi sem vekur
áhuga.“
Hún bætir við að Geðrækt hafi
mörg jám f eldinum. Fram undan
sé geðræktarþing, svo og margs
konar námskeið í fyrirtækjum,
stofnunum, félagasamtökum og
skólum. Undirtektir hafa alls staðar
verið jákvæðar og árangur af starf-
inu góður, ekki síst í skólunum.
Geðorðin tíu
Það var skáldið Þórarinn Eldjárn
sem lagði til hið ágæta nafn, Geð-
rækt, en það er þýðing á því sem á
ensku nefnist „mental health
promotion". Út frá því hefur
spunnið, svo sem í fræðslustarfi
verkefnisins. Þar má nefna Geðorð-
in 10 - en það em tíu atriði sem em
fólki leiðarvísir til að takast á við til-
veruna. Má þar til dæmis nefna
mikilvægi þess að hugsa jákvætt,
læra af mistökum sínum, hlúa að
þeim sem okkur þykir vænt um,
flækja ekki lífið að óþörfu, setja sér
markmið og láta draumana rætast.
í frjóan jarðveg
„Geðorðin tíu hafa fallið í ffjóan %
jarðveg og nú þegar höfum við
dreift um 70 þúsund eintökum af
þeim, auk þess sem þau má nálgast
á vefsetrinu www.ged.is. Ánægju-
legast þykir henni þó að heyra frá
því hvernig hugmyndaríkt fólk hef-
ur notað geðorðin í starfi sínu. f
skólum hefur verið unnið með geð-
orðin sem þemaverkefni fyrir hvern
mánuð, vinnustaðir hafa byrjað
starfsmannafundi á geðorði og
svona mætti áfram telja. Boðskap-
ur Geðræktar hefur því farið víða.
„Fólk hefúr almennt tekið Geð-
rækt með opnum huga og við finn-
um fyrir því að viljinn er fyrir hendi
að koma umræðu um geðheilsu al-
mennt upp á yfirborðið, enda er
það öllum fyrir bestu," segir Dóra
Guðrún að lokum.
sigbogi@dv.is
Magasin
Sfmi: 550 5000 - Útgefandi: Útgáfufélagið DV. - Ábyrgðarmenn: Óli Bjöm Kárason og Jónas Haraldsson - Umsjónarmaðun Stefán Kristjánsson. sk@magasin.is
Blaðamaður: Sigurður Bogi Sævarsson. sigbogi@dv.is - Auglýsingar: Katrín Theódórsdóttir kata@dv.is og Ingibjörg Gísladóttir inga@dv.is - Prentun: Árvakur hf
Upplag: 80 þúsund eintök. - Dreifing: Póstdreifing ehf. - Dreift ókeypis á höfuðborgarsvæðinu, Akureyrí, Akranesi og til áskrífenda DV úti um land