Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2003, Blaðsíða 4
4
Magasín
Fimmtudagur 18. september 2003
Undur veraldar
FÍúði tvisvar úr fangelsi
Glæpamaður í Brasilíu flúði úr
sama fangelsinu tvisvar á innan
við 72 klukkustundum. Alisson
]ose de Silvar, sem er 26 ára,
reyndi fyrst að flýja eftir að hafa
verið lokaður inni minna en sól-
arhring. Hann var lokaður inni í
Feira de Santana-fangelsinu í
Salvador.
De Silvar tókst að skríða í gegn-
um op sem var þegar búið að
grafa á loftinu í fangaklefanum
hans. Síðan klifraði hann yfir 20
feta girðingu og flúði. Hann náð-
ist þó aðeins nokkrum klukku-
tímum seinna á rakarastofu úti í
bæ.
Hann flúði sfðan aftur tveimur
dögum seinna með því að pikka
lásinn í klefa sínum með plasti.
Tveir aðrir fangar flúðu með
honum. Blöð í Brasilíu hafa eftir
talsmanni fangelsisins að þessi
atburður sé smán og háðung fyr-
ir það.
Ræningi þykist vera eiginmaður
Veskisþjófur var handtekinn í
Kína fyrir að reyna að ræna veski
af konu með því að þykjast vera
eiginmaður hennar. Maðurinn
labbaði upp að konunni í versl-
unarmiðstöð. Hann gekk að
henni, greip veskið og byrjaði að
öskra: „Af hverju sagðirðu mér
ekki að þú værir að fara að versla
hér, kona?“ Konan spurði um
leið hver hann væri. „Af hverju
læturðu svona, ég er maðurinn
þinn," kallaði hann enn hærra.
Dagblað hefur eftir lögreglu að
fólkið í kring hafi ekki skipt sér af
þessu þar sem það taldi að þarna
væru á ferðinni hjónadeilur. En
hinni einhleypu konu, Wang, og
vinkonu hennar, sem var með
henni, tókst loksins að sannfæra
fólk um að þarna væri ekki eigin-
maður hennar á ferð heldur ræn-
ingi.
öryggisverðir gripu síðan þrf-
tugan mann á hlaupum með
veski konunnar. Hann var færður
í fangageymslur. Hann er ein-
hleypur og verður það líklega um
skeið.
Plataði þjóf og bað um stefnumót
Kínverskri konu tókst að plata
mann sem hafði stolið farsíman-
um hennar með því að fá hann til
að koma á stefnumót. Síminn
hafði verið í veski konunnar sem
var stolið af svölunum í íbúð
hennar í Peking.
Samkvæmt frásögn í China
Daily hringdi konan í símann
sinn nokkrum vikum eftir ránið
og lét á engu bera þegar fullorð-
inn karlmaður svaraði. Eftir að
hafa spjallað við hann byrjaði
hún að daðra við hann með því
að sénda honum sms-skilaboð.
Maðurinn féll fyrir daðrinu og
samþykkti að hitta hana á stefnu-
móti. Konan hringdi því næst í
lögregluna sem handtók hann
þegar á meðan hann beið eftir
henni. Hann sætir nú ákæru fyrir
að stela farsímanum, veskinu og
þeim peningum sem voru í vesk-
inu.
Helgarblað DV
í lagi að
vera lítill
Frank Hojbye Christiansen er
aðeins 138 sentímetrar á hæð.
Hann hefur ekki látið það stöðva
sig í neinu starfi eða áhugamáli
og hefur leikið dverg í sjónvarpi
og auglýsingum. Nú stígur hann
á svið Hafnarfjarðarleikhússins í
nýju leikriti Kristínar Ómarsdótt-
ur, Vinur minn heimsendir.
Frank sagði Helgarblaði DV frá
æsku sinni og viðhorfi til þess að
vera lítill.
Vélmennið mjólkar betur en
maðurinn
Helgarblað DV heimsótti
stærsta fjós landsins í Mildaholti
þar sem vélmenni mjólkar kýrn-
ar og kýrin sem sparkaði í Guðna
Ágústsson í sjónvarpinu er til
heimilis. Nútíminn og tölvan
hafa haldið innreið sína í íslensk-
an landbúnað.
pÓST’
Með draugum í Viðfirði
Helgarblað DV segir frá for-
vitnilegum gönguleiðum og
frægum draugaslóðum í Vöðla-
vík og Viðfirði á Austfjörðum.
Allt sem er gott er óhollt
Súkkulaði, kynlíf, rauðvín og
tóbak. Það mætti halda að allt
sem er gott í þessu jarðlífi sé ann-
aðhvort dónalegt, óhollt eða
ólöglegt. Helgarblað DV rann-
sakar málið ítarlega og kemst að
því hvað er rétt og satt.
Póstdreifing dreifir Magasíni.
„Sem stelpa var ég heilluð af
geitum og langaði mikið til að
eiga slíkar skepnur. Þessi
draumur rættist þó ekki fyrr en
ég var orðin fullorðin og tekin
hér við búskap," segir Jóhanna
Þorvaldsdóttir á Háafelli í Borg-
arfirði.
Það hefur vakið athygli vegfar-
enda um Hvítársíðu í vetur að sjá
myndarlega geitahjörð í heimatún-
um á Háafelli. Um sextíur huðnur,
hafrar og kiðlingar eru í hjörðinni.
Jóhanna elur með sér þann draum
að mögulegt sé að færa út kvíarnar
í þessum búskap á næstu árum
með mjólkursölu.
Blóðblöndun er vandamál
Skyldleiki stendur vexti og við-
gangi ísienska geitastofnsins fyrir
þrifum. Hér er um að ræða íslenska
landnámsstofninn sem lifað hefur
með þjóðinni í ellefu hundruð ár. I
tvígang á síðustu öld fór stofninn
niður fyrir hundrað dýr sem hafði
mikil áhrif á alla blóðblöndun.
„Fyrir fjórum árum tók ég við síð-
ustu kollóttu geitunum á Islandi.
Þetta var gert til að reyna að byggja
þann stofn upp að nýju - og hefur
það gengið ágætlega," sagði Jó-
hanna þegar DV Magasín leit í
heimsólcn um síðastliðna helgi.
Hún og Þorbjörn Oddsson, eigin-
maður hennar, starfa bæði utan
heimilis. Vilja hins vegar vera
heima enda með sex börn. Hún
segist ala með sér þann draum að
geta haft tekjur af geitabúskapnum
og slíkt ætti að geta verið mögulegt,
það er að segja ef tilskilin leyfi til af-
urðasölu fást og nokkrar milljónir
til að koma þessum búskap á góðan
rekspöl.
Hollustudrykkur
Geitamjólk þykir hollustudrykk-
ur, að sögn Jóhönnu. Ýmsir sem
•q
5
1
GEITABÓNDINN: „Höfum við farið í geitarhús að leita ullar og fundið," segir Jó-
hanna Þorvaldsdóttir hér í viðtalinu.
HYRND HUÐNA: Stofninn á Háafelli
samanstendur af hyrndum geitum en
einnig hefur veriö unnið að ræktun
þeirra kollóttu.
hafa óþol fyrir kúamjólk geta yfir-
leitt drukkið hinn hvíta safa geit-
anna eins og ekkert sé enda er hann
auðmeltari; prótíninnihald og fitu-
samsetning önnur en í kúamjólk.
„Ég er með um þrjátíu huðnur en
mjólka ellefu. Hver geit skilar
gjarnan einum til tveimur mjólkur-
„Gætum auðveldlega
komið upp litlu mjólkur-
búi en öðruvísi en geril-
sneydd má mjólk ekki
fara á markað. Þá hefur
einnig komið til tals að
nota hana í ostagerð."
lítrum á dag sem ég hef þá bara til
heimilisnota," segir Jóhanna.
„Ég mjólka geiturnar í fjósinu
hérna en við hættum með kúabú-
skap fyrir fáum árum. Hér gætum
við auðveldlega komið upp litlu
mjólkurbúi en öðruvísi en geril-
sneydd má mjólkin ekki fara á
markað. Þá hefur einnig komið til
tals að nota hana í ostagerð en
magnið er enn það lítið að slíkt
borgar sig ekld,“ segir Jóhanna.
Um mjólkursöluna að öðru leyti
segir hún að Heilsuhúsið haf! sýnt
því áhuga að selja geitamjólk frá sér
- en ekkert hafi orðið af því enn þá.
Eins og mýksta kasmírull
„Hvernig finnst þér bragðið?"
spyr Jóhanna þegar hún sker væna
kjötflís handa blaðamanni. Kjötið
smakkast afar vel og er raunar mjög
líkt lambakjöti. Nú er farið að selja
kiðlingakjöt frá Háafelli og hefur
neytendum líkað það vel.
Jóhanna segist ekki geta svarað
því fullkomlega hvers vegna hana
hafi unga gripið svo sterk löngun til
þess að eignast geitur. „Nema
kannski af því mér þótti bókin
fræga um Heiðu svo skemmtileg.
Sagan af stúlkunni sem ólst upp í
Ölpunum og lifði á geitaafurðum,"
segir hún og brosir. Óhætt er því að
segja að áhrifa ævintýra- og barna-
bóka gæti lengi í sumum sálum.
„Hér höfum við farið í geitarhús
að leita ullar og fundið - því að ull
af íslensku geitunum líkist mýkstu
kasmírull,“ segir Jóhanna Þorvalds-
dóttir að síðustu.
sigbogi@dv.is
GEITAMJÓLK í GLASIÐ: Geitamjólk er
auðmeltari en kúamjólk enda er
prótíOninnihald og fitusamseming
hennar önnur.
Líf Og yndi Geitabóndi í Borgarfirði
Huðnur, hafrar
og Heiðubókin