Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 8
42 UMFÍ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 Landsmót UMFÍ 2004 haldið á Sauðárkróki LAIMDSMÓT Tuttugasta og fjóröa landsmót UMFÍ verður haldið á Sauðár- króki 8. til 11. júlí 2004. Lands- mót UMFÍ eru þekkt fyrir góða stemningu og fjölbreytni og þykja endurspegla vel starf ungmennafélaganna. Ung- mennasamband Skagafjarðar er mótshaldari að þessu sinni. „Við erum búnir að vinna að undirbúningi mótsins síðan síðla hausts 2002,“ segir Haraidur Þór Jóhannsson, formaður UMSS. „Landsmótsnefnd var skipuð í febrúar á þessu ári og fram- kvæmdastjóri landsmóts ráðinn í maf. Undirbúningur gengur vel og framkvæmdir við íþróttasvæðið á Sauðárkróki eru á góðu róli." ENGUM/tl ii AÐ LEIÐAST: Ómar Bragi Stefánsson,framkvæmdastjóri landsmótsins á Sauðárkróki, segir að það verði mikið lagt upp úr þv( að setningarhátiðin verði sem glæsilegust. BÆTIR ALLA AÐSTÖÐU: Haraldur Þór Jóhannsson, formaður UMSS, segir að það hafi verið ráðist í miklar framkvæmdir á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki í tengslum við landsmótið og að aðstæður til íþróttaiðkana verða afar glæsilegar að loknum framkvæmdum. UMFI og Vest Norden Dagana 26.-27. september komu saman á Suðurlandi fimm ungmenni, frá íslandi, Færeyj- um og Grænlandi, og unnu saman að undirbúningi að menningarlegu samstarfi ungs fólks í þessum löndum. Það er UMFI í samstarfi við félög í Færeyjum og Grænlandi sem vinnur að þessu verkefni í samstarfi við Vest Norden ungmennaráðið. Niðurstaða þessa vinnuhóps var að á næsta ári yrði haldið leiklistar- námskeið í Julianeháb á Grænlandi í lok júlí og auglýst eftir þátttakend- um frá þessum þremur löndum. Þema á námskeiðinu er götuleik- hús, trúðar og látbragðsleikur. Stefnt er að því að fyrirlesarar á námskeiðinu verði margir af fær- ustu leikstjórum og leikurum á þessu sviði á Norðurlöndum. Mikilvægt að haida mótið Á landsmótum UMFI er að jafn- aði keppt í fjölda íþróttagreina og keppendur hátt á þriðja þúsund en gestir á mótunum hafa verið á milli tíu og fimmtán þúsund. Haraldur Þór segir að það skipti Skagfirðinga miklu að halda mótið fyrir norðan. „Það hefur verið ráðist í miklar framkvæmdir á íþróttasvæðinu og aðstæður til íþróttaiðkana verða afar glæsilegar á Sauðárkróki að loknum framkvæmdum. Mótið hleypir einnig miklu lífl í allt starf hjá UMSS og það koma hundruð manna til með að vinna að mótinu, bæði fólk úr Skagafirði og annars staðar af landinu." Haraldur segir að stefnt sé að því að umgjörð mótsins og dagskrá verði öll hin glæsilegasta. „Við munum leggja áherslu á að sam- hliða keppni í íþróttum verði mótið hátíð fjölskyldunnar og að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Dag- skráin verður afar fjölbreytt því auk íþróttaviðburða ætlum við að bjóða upp á margs konar afþrey- ingu, eins og tónlist, dans og aðra skemmtun, þannig að engum ætti að þurfa að leiðast á Króknum meðan á landsmótinu stendur." Glæsileg setningarhátíð og ýmsar nýjar áherslur Ómar Bragi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri landsmótsins, segir TIL í SLAGINN: Ómar Bragi og Gísli Gislason, þjálfari í frjálsum íþróttum á Sauðárkróki, gera sig klára í hundrað metra hlaup á nýlagðri hlaupabraut á íþróttavellinum á Sauðárkróki. Framkvæmdir á íþróttasvæðinu ganga vel og er svæðið afar glæsilegt á að líta. að mikil vinna hafi verið lögð í und- irbúning mótsins. „Það verður mik- ið lagt upp úr því að setningarhá- tíðin og mótsslitin verði glæsileg og eftirminnileg og það ætlum við að gera með fjölbreyttum skemmti- atriðum, tónlist og dansi. Setning mótsins á að vera lífleg og fjörug og skapa þannig góða stemningu fyrir það sem á eftir kemur.“ Að sögn Ómars Braga hefjast skemmtiatriði snemma morguns og standa fram eftir kvöldi alla mótsdagana, en mótið stendur í fjóra daga. „Við höfum átt íviðræð- um við marga góða skemmtikrafta og allir verið jákvæðir að vinna með okkur að landsmótinu. Heima- menn ætla ekki heldur að liggja á liði sínu og setja sinn svip á mótið með ýmsum uppákomum og uppi- standi á mótssvæðinu. Börn og unglingar úr skólunum ætla einnig að taka þátt í dagskránni með margvíslegum hætti." Ómar Bragi segir að keppt verði í á annan tug íþróttagreina og að íþróttirnar séu að sjálfsögðu há- punktur mótsins. Gert er ráð fyrir að margir af bestu íþróttamönnum landsins taki þátt, auk fjölmargra minni spámanna sem reyna sig við hina bestu. „Áherslan á landsmót- um er alltaf sú sama - vera með og gera sitt besta, sýna sig og sjá aðra og taka þátt í stemningunni."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.