Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Síða 12
46 UMFl LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003
Göngum um ísland
LESTARGANGA: Snæfellsjökull í sjónmáli.
Lestarganga á leið á toppinn. Spurning
hvort þau fóru alla leið á topp Snæfellsjök-
uls eða bara upp á hæðina.
Göngum um fsland er landsverk-
efni UMFÍ og er unnið í samstarfi
við ungmennafélög um land allt,
ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög.
ísland hefur að geyma gnótt
gönguleiða og sl. tvö ár hefur ung-
mennafélagshreyfingin unnið að
því að safna saman stuttum, stik-
uðum og aðgengilegum gönguleið-
um. Þessi vinna hefur farið fram í
samvinnu við ferðaþjónustuaðila
og sveitarfélög.
Leiðabók með 240 gönguleiðum
um land allt var gefin út í 50.000
eintökum og fékkst gefins á íþrótta-
miðstöðvum, sundlaugum, upplýs-
ingamiðstöðvum og ESSO-stöðv-
um. Fjölskyldan á fjallið er göngu-
og útivistarverkefni umhverfissviðs
UMFÍ. Síðastliðin tvö sumur hafa
verið settir póstkassar með gesta-
bókum á rúmlega 20 fjöll víðs vegar
um landið en öll þessi íjöll eiga það
sameiginlegt að vera tiltölulega létt
að ganga á. Markmiðið er að fá fjöl-
skyldur í fjallgönguferð og stuðla
þannig að aukinni samveru, útivist
og um leið líkamsrækt innan fjöl-
skyldunnar.
TLrTTUGU OG 7VÖ FJÖLL Ásdís Helga Bjarnadóttir, formaður umhverfissviðs UMF(, á leið
með póstkassa og gestabók á áfangastað á fjalli. Tuttugu og tvö fjöll voru tilnefnd í verk-
efnið Fjölskyldan á fjallið og á sjötta þúsund landsmenn skráðu nöfn sín í bækurnar.
BISKUPSBREKKA: (gönguferðum þarf oft að takast á við ólíkar ástæður og hér þarf að
fikra sig með fram klettum en engum sögum fer af því hvort einhver datt í lækinn.
Menning og listir innan UMFÍ:
Landsmótið á fjalirnar
Margvísleg menning hefur alltaf
verið hluti af starfi ungmennafélag-
anna. Má þar nefna söng, dans,
spila- og skáldakvöld og ekki síst
leiklist því að víða hafa ungmenna-
félög staðið fyrir leiksýningum í
sinni sveit. Eitt þessara félaga er
Ungmennafélagið Efling í Þingeyj-
arsýslu. Efling er eitt af elstu ung-
mennafélögum landsins og leiklist
hefur jafnan skipað stóran sess í
starfi þess. Félagið hefur meðal
annars unnið til leiklistarverðlauna
Þjóðleikhússins fyrir uppsetningu
sína á Síldin kemur, síldin fer. Síð-
astliðinn vetur réðust félagar í Efl-
ingu í það verkefni að semja hand-
rit að leikriti sem ber nafnið Lands-
mótið. Æfingar eru að hefjast um
þessar mundir og sýningar á
Landsmótinu eiga að hefjast í febr-
úar á næsta ári. Arnór Benónýsson
er leikstjóri Landsmótsins.
Spennandi verkefni
„Þetta er ofsalega spennandi
verkefni. Á landsmótum ríkir jafn-
an einstök stemning og við viljum
reyna að fanga og koma til skila
þeirri lífsgleði og þrótti sem jafnan
einkennir mótin," segir Arnór en
hann hefúr verið leikstjóri hjá Efl-
ingu síðastliðin sjö ár samhliða
starfi sínu sem kennari í Fram-
haldsskólanum á Laugum. Þá hefur
hann unnið að leikstjórn hjá Leik-
félagi Húsavfkur.
Arnór segir að leikritið sé sett
upp sem gamanleikur og eigi að
sýna allan þann fjölbreytileika sem
finna megi á landsmótum. „í leik-
ritinu verður keppt í hinum ýmsu
greinum, meðal annars kúluvarpi,
kringlukasti og 800 metra hlaupi.
Þá verður gert mikið úr hlutverki
starfsíþrótta á landsmótum og sér-
stök sena í leikritinu fjallar um
íþróttir þar sem keppninni f að
leggja á borð verður lýst í líkingu
við boxkeppni, án þess að ég sé að
útskýra það nánar."
Með hár niður á herðar
„Það verða á milli 40 og 50 leikar-
ar sem taka þátt í leikritinu." Að
sögn Arnórs er þetta landsmót sem
er haldið fýrir norðan og gerist í
kringum 1960. „Það er eins og
gengur, gestir að koma á mótið írá
öllum landsfjórðungum. Við norð-
anmennimir emm enn með gömlu
góðu klippinguna og hár niður á
herðar en sunnanmenn em komn-
ir lengra í tískunni og meðaf annars
farnir að nota gel í hárið og drekka
kók og nota ýmiss konar smyrsl og
aukabúnað til keppninnar. Þetta
veldur eðlilega töluverðri spennu á
mótinu, samhliða keppni á milli
héraðssambanda."
Sýningar á Landsmótinu hefjast í
febrúar næstkomandi og segir Arn-
ór að gera megi ráð fyrir um tutt-
ugu sýningum. Þá sé einnig hugs-
anlegt að leikritið, eða hluti þess,
verði sýnt á landsmótinu á Sauðár-
króki næsta sumar og þá sé enn
fremur verið að skoða möguleika á
Arnór Benónýsson.
að leikritið verði sýnt í Reykjavík
næsta vor. „Það er allt opið í stöð-
unni og miklir möguleikar að vinna
með þetta leikrit allt fram að
hundrað ára afmæli ungmennafé-
lagshreyfingarinnar."
fl