Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003
Fréttir TÍV
Hundruð
handtekin
Nokkur hundruð manns
hafa verið handtekin víðs
vegar í írak undanfarna
daga. Bandarískar hersveit-
ir hafa verið með skipu-
lagðar aðgerðir í þessum
efnum og segir talsmaður
hersins að í hópnum séu
nokkrir leiðtogar and-
spyrnumanna. Handtök-
urnar koma í kjölfar hand-
töku Saddams Husseins,
fyrrum forseta landsins, en
við handtökuna komust
hermenn yfir ýmsar upp-
lýsingar sem hafa verið
nýttar við fyrrnefndar að-
gerðir.
Er hækkun
Sjalda í
eilsuaæsl-
unni eðlileg?
Ingi Guðjónsson forstjóri Lyfju hf.
„Það er orðið æ erfiðara fyrir
allan almenning að leita sér
heilbrigðisþjónustu og ill-
mögulegt fyrir þá fátæku.Æ
fleiri óska eftir aðstoð Félags-
þjónustunnar til að greiða fyr-
ir iæknis- og lyfjakostnað.
Þetta er þó ekki hlutverk sveit-
arfélaganna, frekar en öll sú
heilbrigðisþjónusta sem að
Landsspítali - háskólasjúkra-
hús ætlar nú að spara sér og
velta meðal annars yfir á
sveitarfélög í landinu."
Svo virðist sem harðvítugum átökum um SPRON hafi lokið um helgina þegar sam-
komulag náðist á milli stjórnar sparisjóðsins og Kaupþings Búnaðarbanka um að
sá síðarnefndi keypti SPRON. Kaupverðið er á milli átta og níu milljarðar króna.
Spron verður fyrst í stað rekið sem dótturfélag en mögulega sameinað nýja eigand-
anum síðar.
SPRON seldur Kaup
binni Búnaöarbanka
Níu mánaða söluferli Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis er lokið og nú liggur fyrir ákvörðun
um að selja sparisjóðinn Kaupþingi Búnaðar-
banka fyrir á níunda milljarð króna. Komist var að
þessari niðurstöðu um helgina en ákveðið að
kynna málið ekki fyrr en á blaðamannafundi nú í
dag. Lögð var áhersla á það að starfsfólk fengi
fyrstu vitneskju um málið frá stjórn og hafa fund-
ir með starfsfólki verið ákveðnir nú í byrjun
vinnudags. Þar með endar nokkur átakasaga um
framtíð SPRON. Eftir talsverðar deilur var komist
að þeirri niðurstöð á aðalfundi í vor að kanna sölu
á SPRON. „Allt frá aðalfundi í mars hafa að hálfu
SPRON verið kannaðar leiðir til þess að stofnfjár-
eigendur gætu selt bréf sín“, sagði Jón G. Tómas-
son stjórnarformaður SPRON í gærkvöld. „Það er
hægt að fara margar leiðir en ákveðið var að leita
til viðskiptabankanna eftir hugmyndum um sam-
starf eða samruna", segir Jón og vildi það eitt
segja frekar að þær viðræður stæðu yfir. Aðrir
stjórnarmenn SPRON voru þöglir sem gröfin í
gærkvöld. „Það er búið að ræða við ýmsa - að öðru
leyti vil ég ekki tjá mig um málið", sagði Pétur
Blöndal. „Ég vil ekkert tjá mig um málið", sagði
Árni Þór Sigurðsson stjórnarmaður. Ekki náðist í
Guðmund Hauksson, sparisjóðsstjóra SPRON í
gærkvöld en hann var áður stjórnarformaður
Kaupþings og þar
áður forstjóri.
Rekið sem dóttur-
fyriræki
Samkævmt heim-
ildum DV er stefnt að
því að reka SPRON
sem sérstakt dóttur-
fyriræki Kaupþings
Búnaðarbanka, að
minnsta kosti fyrst um
sinn. Það er einnig að
Guðmundur Hauksson, W stefnt að Spron
sparisjóðsstjóri SPRON serhæfi sig t einstak-
lingsþjónstu en helsti
Heimildarmenn DV segja að
samstaða hafi verið um þessa
lendingu innan stjórnar
SPRON
styrkur sparisjóðsins til þessa hefur
einmitt verið þjónusta við ein-
staklinga. SPRON verður ekki g
formlega sameinaður Kaup- !
þingi Búnaðarbanka, enn |lí*
sem komið er enda gæti það J
reynst viðkvæmur ferill. Þær §■’;
hugmyndir verða nánar út- ®
færðar síðar.
Það var klukkan sex á
föstudagskvöld sem opnuð
voru tilboð í Spron og eftir því
sem næst verður komist bárust til-
boð frá öllum viðskiptabönkunum.
Það tifboð sem stjórn SPRON
liugnaðist best var frá Kaupþingi
Búnaðarbanka og hljóðar upp á milli
átta og níu milljarða króna. I kjölfarið
var gengið til viðræðna sem skiluðu
þeirri niðurstöðu sem kynnt verður í dag.
Heimildarmenn DV segja að samstaða hafi
verið um þessa lendingu innan stjórnar
SPRON. Það eru fyrirvarar settir við tilboðið
og samkomulagið sem byggist á þvf enda þarf
Fjármálaeftirlitið að samþykkja gjörninginn
auk þess sem hefðbundnir fýrirvarar em sett-
ir, svo sem um áreiðanleikakönnun.
Forsaga og átök
Nokkur tengsl hafa verið milli Spron og Bún-
aðarbankans í gegnum tíðina. Nefna má að sam-
an áttu sparisjóðirnir og bankinn Kaupþing á sín-
um tíma. Um mánaðamótin júní og júlí árið 2002
gerði Búnaðarbankinn tilraun til að eignast Spron
með því að ná til stofnfjáreigenda í sparisjóðnum
og gera þeim tilboð um kaup á þeirra hlut. Þessi
tilraun gekk ekki upp meðal annars vegna mót-
spyrnu stjórnenda sparisjóðsins. Nú hefur dæmið
hinsvegar snúist við og sameinuðu fjármálafyrir-
tæki Kaupþings-Búnaðarbanka hefúr tekist að
eignast Spron, eftir fmmkvæði kom frá
hinum eftirsótta sparisjóði. Eftir
því sem næst verður komist
var þeim Guðmundi Hauks-
syni, sparisjóðsstjóra
SPRON og Hreiðari Má
| , Sigurðssyni, falið að
kynna þessi viðskipti í
dag.
kristinn@dv.is
Hreiðar Már Sigurðsson,
forstjóri Kaupþings
Búnaðarbanka. Honum
er falið að kynna kaupin i
dag.
Hann segir / Hún segir
„Komugjöld i heilsugæslu eru
nú að hækka um 200 kr. hvert
skipti og fyrir flesta eru það
ekki miklir peningar. Meira
munar um hver koma til sér-
fræðilæknis hækkar úr 2.100
kr. í 2.700 kr. Auðvitað getur
þetta þýtt að þeir efnaminni
fari að spara við sig læknis-
komur og lyfjakaup og auðvit-
að getur það verið dýrt þegar
að öllu er hugað. Fátt er mikil-
vægara en gæta vel að heils-
unni. En geta ber við þessar
breytingar er þó sérstakalega
hugað að endurgreiðslum til
tekjulágra."
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
Félagsmálaráðs Reykjavíkur.
Viðbúnaðarstig Bandaríkjanna ekki verið hærra síðan ll.september.
Kaldar jólakveðjur frá Al Qaeda
Ráðuneyti heimavarna í Banda-
ríkjunum hækkaði í gær viðbúnað-
arástandið upp í „hátt." Tom Ridge,
ráðherra heimavarna sagði að ráðu-
neytinu hefðu borist trúverðugar
upplýsingar um stóraukna hættu á
hryðjuverkaárásum nú um hátíðirn-
ar. Þessar upplýsingar væm fengnar
úr auknum fjölda hótana um
hryðjuverk, vísbendingum um
hugsanlegar árásir og svo ótvíræð-
um vilja hryðjuverkasamtaka, eins
og Al-Queda, til að leika sama leik og
11. september.
Aukið eftirlit
Tom Ridge sagði hættuna á
hryðjuverkaárásum vera meiri í
dag en hún hefur verið síðan A1 Qa-
eda réðst á Tvíburaturnanna 11.
september. Hann kvatti samt fólk
til að halda ró sinni og sagði að
reynslan sýndi að aukið viðvör-
unarástand gæti komið í veg fyrir
hugsanleg hryðjuverk. Þessi
ákvörðun á eftir að hafa gríðarleg
áhrif. öryggiseftirlit á flugvöllum
verður til dæmis stórlega aukið
sem veldur óþægindum fyrir millj-
ónir ferðamanna sem sækja
Bandaríkin yfir hátíðirnar og öll
löggæsla verður aukin til muna.
Skilaboð frá Al Qaeda
Sveitir bandamanna í írak eru
einnig á hærra viðbúnaðarstigi eft-
ir að Saddam Hussein var tekinn
höndum. Á föstudaginn var kynnti
arabíska sjónvarpsstöðin Al-
Jazeera snældu með rödd sem talin
er tilheyra Ayman al-Zawahiri,
nánum samstarfsmanni Osama
bin Laden. „Við munum elta
Bandaríkjamenn og bandamenn
þeirra uppi hvar sem er í heimin-
um,“ voru skilaboðin sem Banda-
ríkjamenn fengu um jólin.
Osama bin Laden „Við munum elta
Bandarikjamenn og bandamenn þeirra
uppi hvarsem eri heiminum", tiíkynnti
samstarfsmaður Osama bin Laden