Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 Síðast en ekki síst J3V Rétta myndin Hitað upp fyrir jólasteikina viðTryggvagötu. Barði á toppnum á Ítalíu Ha? Barði Jóhannsson er að gera það gott með hljómsveit sína Bang Gang úti í heimi. Myndband hans við lagið Stop in the Name of Love hefur verið í stanslausri spilun á MTV á Italíu undanfarnar vikur og vikuna 21.-27. nóvember var það mest spilaða myndbandið á stöðinni. Alls var myndbandið spilað 53 sinnum þá vikuna. Með þessu skaut Bang Gang stórum nöfnun ref fyrir rass. Á list- anum fyrir neðan Stop in the Name of Love er meðal annars að finna myndbönd við lög með hljómsveit- um á borð við Kings of Leon, The Strokes, The White Stripes, The Thrills, Blur, The Darkness, Suede, Muse, Daft Punk, Red Hot Chili Peppers og The Mars Volta svo þau helstu séu nefnd. Plata Bang Gang, Something Wrong, kom út í Evrópu fyrir skemmstu og hefur víðast hvar hlotið góðar viðtökur. Verður spennandi að fylgjast með næstu skrefum hjá sveitinni úti í löndum. Barði í Bang Gang Átti mestspilaða lagið á itölsku MTV-sjónvarpsstöðinni í lok nóvember. Skaut fjölmörgum stórum nöfnun reffyrirrass. Þýska deilda- keppnin Skák Þýska deildakeppnin hélt áfram um miðjan mánuðinn og þeir Jó- hann Hjartarson og Hannes H. Stef- ánsson tefldu fyrir Bremer SG frá Bremen. Þeim félögum gekk þokka- lega, Jóhann gerði þrjú jafntefli en Hannes gerði eitt jafntefli, vann eina skák og tapaði einni. Héðinn Stein- grímsson sem er við nám í Þýska- landi tefldi fyrir Stuttgart og gerði eitt jafntefli í tveimur skákum. Hér sjáum við meistara Shirov ganga frá félaga þeirra Jóhanns og Hannesar á snyrtilegan hátt. Hvítur á leik! Hvítt: Alexei Shirov (2737) Svart: Etienne Bacrot (2664) Þýska Bundesligan, 14.12.2003 29.BÍ6 Rd6 30.Be7 Hxe7 31.Dxe7 1-0 Síðast en ekki síst • Síðasti þáttur Djúpu laugarinn- ar var á dagskrá Skjás eins á föstu- dagskvöldið. Ákveðið var að taka þáttinn af dagskrá vegna hrapandi vinsælda. Bæði mun hafa verið um áhrif mikilla vinsælda Idols að ræða sem og að þátturinn var ein- faldlega orðinn þreyttur eftir að hafa gengið í hátt í fimm ár á stöð- inni. Þegar mun farið að vinna í nýjum þætti sem gæti tekið við af Djúpu lauginni eftir áramót. Ein hugmynd sem ku hafa verið rædd er þáttur þar sem hljómsveit er fylgt eftir í heila viku, í gegnum æf- ingar, tónleika og í raun allt sem bönd taka sér fyrir hendur. Sú hljómsveit eigi síð- an að skora á aðra hljómsveit sem tekin verði fyrir vikuna á eftir. Tvö nöfn munu vera á teikniborðinu fyrir stjórnendur þátt- arins, þeir Arthur Karlsson sem stjórnaði Djúpu lauginni síðast, og Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður á Rás 2... • Ávefsíðuni www.logs.is kemur fram að tökur hafa staðið yflr á myndinni Allir litir hafsins eru kald- ir, eftir handriti og í leikstjórn önnu Rögnvaldsdóttur. Um er að ræða sakamálasögu úr Reykjavík samtí- mans. Með helstu hlutverk fara Hilmir Snær Guðnason, Þórunn Lárusdóttir og Ey- vindur öm Barða- son... FLUGA7-H ET BÍLL? - NEI JÓL? - NEI ÖABBI? - NEI, HANN SÉR ALVES SJÁLFUR UM GRÍNIÐ ÞESSA DASANA. FLUGVÉL? - NEI... FJA NDAKORNID! ÞAB BARA FÆ&IST AAAAllll EG GETEKKIUNNIÐ UNÖIR SVONA ÁLAGIH HÆTTIÐ At) HORFA Á MIGH FLETTIQ Á NÆSTU SÍW! FLETTIM! Krossgátan Veðrið Hugljúf heimsendasaga Lykla-Pátur en leikinn ai Chuck Norris og Hugh Grant er Jesú Guð er aðalpersónan nýjustu skáldsögu Hallgríms Helgasonar: „Bókin er skrifuð eins og hún væri bandarísk stórmynd og sögu- þráðurinn er því hreinræktaður Hollywood-söguþráður með helgi- spjallaívafl," segir Haligrímur um bókina sem hefur fengið góðar und- irtektir og dóma. Bókin fjallar í stuttu máli um það þegar Guð ákveður að útrýma mannkyninu á Jörðinni vegna þess að manninum hefur tekist að klóna sjálfan sig: „Þetta vekur að sjálfsögðu litla hrifningu meðal þeirra fyrrverandi Jarðarbúa sem búsettir eru í himna- ríki. Þeir deila sín á milli um hvað gera skuli en að lokum tekur foringi þeirra, hinn margendurfæddi Napóleon Nixon, til sinna ráða og ákveður að fara niður til helvítis og reyna að fá Djöfulinn sér til hjálpar," segir Hallgrímur og hann heldur áfram. Lárétt: 1 þjáning, 4 hrella, 7 strekkingsvind- ur, 8 gras, 10 bjálfi, 12 sekt, 13 leikföng, 14 ganga, 15 svifdýr, 16 höf- uðfat, 18 brún, 21 við- kvæmir, 22 skordýr, 23 pár. Lóðrétt: 1 hrúga, 2 smáarða, 3 gjálífur, 4 ósigur, 5 hækkun, 6 spíri, 9 svelginn, 11 sparsöm, 16 rökkur, 17 fataefni, 19 skjóti, 20 gyðja. Lausn á krossgátu •sjp 07 'UQ 6 L 'nej z l 'tung g l 'upXu l i 'eungi 6 '!l? 9 'su S 'juepiejij v 'jnje|sne| £ 'u6o z 'so>| i ujsjqo'j -ssu £z 'jneuj ZZ 'Jiæne L7 'puoj 81 'jjeq 9l 'eje s L 'ejsj Vl J|n6 £ i 'jjgs z L Juse o L 'nujs 8'|JJe6 l'?N Þ'IQA>| l :)jaje*| „í þessa miklu herferð hefur hann með sér gamlan rómverskan skylmingaþræl, Elíban að nafni, og saman lenda þessir gjörólíku menn í ýmsum hrakningum og ævintýrum á götum Vítis. Þetta er því hið klass- íska kvikynda-minni: Einn maður reynir að bjarga mannkyninu. Það er Anthony Hopkins sem leikur Napól- eon Nixon en Elíban er leikinn af Mike Tyson." Aðspurður segir Hallgrímur að bókin sé spennutryllir skrifaður í grallarastíl með trúarlegu ívafi. „Hugljúf heimsendasaga fýrir alla fjölskylduna," eins og hann kemst að orði. Sögupersónur í Herra alheimi eru yfir þrjú hundruð talsins og nán- ast allar framliðnar því sagan gerist að mestu í himnaríki. í þeirra hópi eru því margir þekktir karakterar úr mannkynssögunni. „Þar sem bókin er skrifuð eins og Hollywood-mynd er kastað í hvert Hallgrímur „Hugljúf heimsendasaga fyrir alla fjölskylduna," segir Hallgrimur Helgason rithöfundur hér i viðtal- inu. DV mynd Hari Gola hlutverk sögunnar. Lykla-Pétur er til dæmis leikinn af Chuck Norris, Dustin Hoffman leikur Móður Ter- esu, tónlistarmaðurinn Moby leikur Lee Harvey Oswald, Christina Aguilera leikur Maríu Mey og Hugh Grant er Jesús Kristur. Friedrich Nietzsche er að sjálfsögðu leikinn af Friðriki Þór Friðrikssyni," segir Hali- grímur. Hann segir þessa bók sína ekki vera neinn vísindaskáldskap, né heldur skáldsögu. „Þetta er hrein- ræktuð Hóllywood-stórmynd, ekta big-budget spennutryllir, full af tæknibreilum og áhættuatriðum. Og sennilega ein dýrasta mynd sögunn- ar, því hún var öll tekin í Miðju Al- heimsins, fyrir utan nokkur stutt at- riði sem voru tekin á jörðinni." sigbogi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.