Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Blaðsíða 13
DV Fréttir MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 13 Michael Jackson er væntanlegur til London á hverri stundu. Margir eru mótfallnir heimsókninni og þrýst er á innanríksisráðherra að beita sér í málinu. Aðdáendur bíða hins vegar spenntir. Hækkun á Héraði Yfirfasteignamatsneftid hefur heimilað 20% hækkun á fasteignamati á Austur- Héraði. Fasteignamat í Fjarðabyggð hækkar jafn mikið. Þetta er mesta hækk- un fasteignamats á landsvísu. Á heimasíðu Austur-Héraðs segir að fasteignamarkaður á Austur-Héraði hafi verið sér- lega líflegur undanfama mánuði ogfasteignaverð þró- ast í takt við eftirspum. Mikið af íbúðarhúsnæði hefúr verið byggt eða er í byggingu. Stjóm íbúðalánasjóðs út- hlutaði nýlega um 4,6 milj- örðum króna í lánsvilyrði til fyrirtækja og sveitarfélaga á Austurlandi, vegna bygginga leiguhúsnæðis á næstu ámm. Þetta er tæplega helmingur af öllum úthlutunum Ibúða- lánasjóðs í ár. taka barna hafa einnig mótmælt íyr- irhugaðri heimsókn og þrýst á inn- anríkisráðherrann, David Blunkett, að beita sér í málinu. Sky-fréttastofan hafði í gær eftir háttsettum starfsmanni stjórnvalda að ólíklegt væri að yfirvöld á Englandi myndu meina söngvaran- um-að heimsækja landið. Á hinn bóginn fengi Englendingur, sem hefði verið ákærður fyrir kynferðisof- beldi gagnvart börnum, ekki að heimsækja Bandaríkin. Peter Saund- ers, formaður Landssambands fórn- arlamba kynferðisofbeldis, var einn margra sem tjáði sig um málið í gær: „Það er ótækt að hleypa manninum inn í landið. Tony Blair ætti að nýta sér vinskap sinn við Bush og stöðva þetta." 300 manns í Neverland Jackson hefur alla tíð átt sér trausta fylgismenn á Englandi. Að- dáendur í London efndu til sam- komu honum til heiðurs í gær og mættu um þúsund manns. Margir aðdáendur bíða spenntir eftir ffegn- um af fyrirhugaðri jólaheimsókn. „Hann veit að baklandið er sterkt í London. Ef hann kemur þá munum við sýna honum stuðning," sagði talsmaður eins af aðdáendaklúbbum Jacksons í London. Jackson hyggst nota tækifærið og kynna nýja safn- plötu sína en hún hefur selst mun betur á Englandi en £ Bandarfkjun- um. Vinir og vandamenn Jacksons heiðruðu hann á búgarði hans, Neverland, um helgina. Um 300 manns komu til jólaveislunnar og var þetta í fyrsta sinn sem Jackson dvelur á búgarði sínum eftir að hann var ákærður. Gestalistinn liggur ekki fyrir en nokkrir gestanna munu hafa hulið andlit sín á leið- Michaei Jackson Aðdáendur söngvarans i London biða spenntir eftir honum. Þingmaður Verkamannaflokksins krefst þess að söngvaranum verið meinaður aðgangur að iandinu. inni inn á búgarðinn. Skoðana- könnun Sky sjónvarpsstöðvarinnar leiðir í ljós að 65% telja að Jackson eigi að halda sig heima. Jackson fékk vegabréf sitt afhent á laugar- dag og ber að skila því á skrifstofu saksóknara á þrettándanum. Hann hefur því ferðafrelsi en óvíst er hvort hann leggur í langferð. Rétt- arhöld í máii Jacksons hefjast 16. janúar næstkomandi og verði hann fundinn sekur um kynferðisofbeldi gagnvart Gavin Arvizon, tólf ára gömlum pilti, getur hann átt átta ára fangelsi yfir höfði sér. Jackson hefur neitað sök í málinu og segist saklaus af öllum ákæruatriðum. arndis@dv.is /// / ///a////j Nú er í gangi sýning a verkum ur bókinni á Borgarbókasafninu, Tryggvagötu 15, ásamt kynningu á bókinni sjálfri. Umsagmr gesta: “Frábærlega fallegarmyndir.” “Fallegar myndir og hæfilegur texti. ” Skemmtileg bók fyrir börnm, þaö er svo margt að sjá á hverri blaðsíöu ©K4£ £ Syningin stendur til 31. des. nk. Búist er við Michael Jackson til London á hverri stundu. Ekki eru all- ir á eitt sáttir um fyirrhugaða heim- sókn Michaels en fregnir herma að söngvarinn hyggist dvelja í London yfir hátíðarnar. Þingmaður Verka- mannaflokksins, Mark Tami, var harðorður vegna málsins um helg- ina. Hann sagði óviðeigandi að hleypa Jackson inn í landið. „Hann hefur verið ákærður fýrir mjög alvar- lega glæpi. Það er með öllu óviðeig- andi að taka á móti honum þar til réttað hefur verið í málinu. Við erum ekki að tala um búðarþjóf heldur mann sem er ákærður fyrir kynferð- islegt ofbeldi gagnvart börnum," sagði Tami. Formenn velferðarsam- „Við erum ekki að tala um búðarþjóf heldur mann sem er ákærður fyrir kynferðislegt of- beldi gagnvart börn- um."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.