Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Page 22
CC cfNnc rc Qtn^ni uAm.
22 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003
Sport DV
r
Skotsýning hjá Páli Axel
PállAxel Vilbergsson skoraði 25,8 stig að
meðaltali idesember, nýtti 52,6% þriggja
stiga skota sinna og skoraði fimm þrista
að meðaltali i leik.
DV-mynd: E.ÓI.
Topplið Grindavíkur í Intersportdeildinni er orðið einstakt í 25 ára sögu úrvals-
deildar karla í körfubolta eftir að þeir unnu 11. og síðasta leikinn sinn i fyrri
umferð gegn Breiðabliki í Smáranum á laugardaginn.
mf
■
■
Páll Axel Vilbergsson hefur verio
sjóðheitur upp á síðkastið og
skoraði 25,8 stig að meðaltali í
fjórum deildarleikjum í desember.
Tölfræði Páls Axels I vetur:
Meðalskor Páls Axels eftir mán.:
Október (5 leikir/108 stig) 21,6
Nóvember (2/44) 22,0
Desember (4/103) 25,8
Skotnýting eftir mánuðum:
Október(99skot/41 hitt) 41,4%
Nóvember (40/16) 40,0%
Desember (74/39) 52,7%
3ggja stiga körfur eftir mánuðum:
Október 3,6 í leik
Nóvember 4,0 i leik
Desember 5,0 í leik
mrsl
Framlag eftir mánuðum:
Október
Nóvember
Desember
18,8
9.0
mmi
FullkomiO hja
; §#. m
Vítanýting: (7/5)
Fráköst í leik:
Framlag í ieik:
Grindvíkingar fullkomnuðu á
laugardaginn fyrri hluta
Intersportdeildarinnar hjá sér með
því að leggja Breiðablik, 83-72, að
velli í 11. og síðasta deildarleik
liðsins fyrir jól. Með þessum sigri,
þeim 11 í 11 leikjum, varð Grinda-
víkurliðið fyrsta liðið í 25 ára sögu
úrvalsdeildar karla til þess að vinna
alla deildarleiki sína fyrir áramót.
Það höfðu níu liða farið í gegnum
úrvalsdeildina fyrir áramót án þess
að tapa fleiri en einum leik en engu
af þeim liðum hafði tekist að hala
inn fullt hús stiga. Það er því ljóst að
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
liðsins, er enn á ný búinn að mynda
sterkt lið sem líklegt er að koma með
íslandsbikarinn til Grindavíkur f
fyrsta sinn í átta ár.
Fyrirliðinn Páll Axel Vilbergsson
hefur spilað betur og betur með
hverjum mánuðinum eins og sést
vel hér á töflunni til hliðar og þessi
25 ára framherji skoraði 25,8 stig og
hitti úr 52,6% þriggja stiga skota
sinna í desember þar sem liðið
stóðst pressuna á að vera „taplausa-
liðið" og vann fjóra síðustu leiki
sína.
Unnið marga jafnan leiki
Grindvíkingar hafa unnið marga
jafna leiki í vetur og fimm af
sigrunum ellefu eru með fimm
stigum eða minna. Liðið byrjaði
tímabilið á því að spila
tvíframlengdan leik gegn Njarðvík í
Röstinni í Grindavík og unnu einnig
nauma útisigra bæði í Stykkishólmi
og á Króknum í fyrsta mánuði
tímabilisins. Síðan þá hefur liðið
skilið sig frá öðrum liðum á toppi
Intersportdeildarinnar.
Grindavíkurliðið er nú komið
með sex stiga forskot á næstu lið og
eru því komnir í afar góða stöðu á
leið sinni að verja deildarmeistara-
titilinn. Heimavallarrétturinn dugði
reyndar ekki í baráttunni um
íslandsmeistaratitilinn við Keflavík í
úrslitakeppninni í fyrra en liðið er
nú búið að vinna 13 deildarleiki í röð
á heimavelli sem gefur Grind-
víkingum góðar vonir um að hann
dugi kannski í ár.
Erfiðir leikir eftir
Það er samt staðreynd að liðið á
marga erfiða leiki eftir. Liðið á eftir
að fara til bæði Njarðvíkur og
Keflavíkur í seinni umferðinni og sex
af 11 leikjum liðsins eru þá á útivelli,
þar á meðal bæði gegn KR í DHL-
Höllinni sem og gegn KFÍ á ísafirði
sem hefur aldrei þótt vera auðveldur
leikur sama hver staða fsfirðinga er.
Hvernig sem mótið þróast þá
verður það ekki tekið af þessu
Grindavíkurliði að þeir eru búnir að
endurskrifa körfuboltasöguna á
Islandi sem eina ósigraða liðið í
sögu úrvalsdeildar karla fyrir
áramót.
ooj@dv.is
OKTÓBERMÁNUÐUR
Leikir Grindavíkur í okt.:
10. okt. Njarðvík (h) 105-103 (+2)
19. okt. Snæfell (ú) 65-62 (+3)
24. okt. KFl (h) 102-95 (+7)
26. okt. Tindastóll (ú) 83-80 (+3)
31. okt. Haukar (h) 85-67 (+18)
Tölfræði Grindavíkur i okt.:*
Stig skoruð í leik: 88,0 (7.)
Stig fengin á sig í leik: 81,4(3.)
Skotnýting: 44,7% (6.)
Vítanýting: 59,6% (12.)
Hlutfall frákasta: 52,7% (5.)
Tapaðir boltar í leik: 13,8 (3.)
Skotnýting mótherja: 41,5% (1.)
Tapaðir boltar mótherja 16,6 (7.)
3ja stiga körfur í leik: 7,0 (7.)
Flest stig Grindavíkur í okt.:
Darrel Lewis 25,0
Páll Axel Vilbergsson 21,6
DanielTrammel 13,0
Aðrir tölfræðiþættir í okt.:
Fráköst: Guðmundur Bragas. 11,2
Stoðsendingar: Darrel Lewis 5,6
Framlag: Darrel Lewis 22,6
* sæti meðaf liða i deildinni í svlga.
DESEMBERMÁNUÐUR
is
ss m •■■* í
Tölfræði Páls Axels (desember:
Leikir: 4
Mínútur í leik: 35,0
Meðalskor í leik: 25,8
Skotnýting: (74/39) 52,7%
3ja stiga skotnýtring: (38/20) 52,6%
71,4%
5,0 ***
23,0 é
00j@dv.is*t
NÓVEMBERMÁNUÐUR Leikir Grindavíkur í des.: 1. des. Keflavík (h) 92-90 (+2)
Leikir Grindavíkur í nóv.: 4. des. Hamar (ú) 87-79 (+8)
14. nóv. KR (h) 88-83 (+5) 12. des. (R (h) 104-92 (+12)
18. nóv. Þór Þ. (ú) : B6-76 (+10) 20. des. Breiðablik (ú) 83-72(+11)
Tölfræði Grindavíkur í nóv.:* Töifræði Grindavíkur í des.:*
Stig skoruð í leik: 87,0 (6.) Stig skoruð í leik: 91,5 (5.)
Stig fengin á sig í leik: 79,5 (3.) Stig fengin á sig í leik: 83,3 (3.)
Skotnýting: 42,8% (8.) Skotnýting: 44,3% (6.)
Vítanýting: 63,9% (10.) Vítanýting: 74,7% (5.)
Hlutfall frákasta: 51,7% (3.) Hlutfall frákasta: 54,3% (1.)
Tapaðir boltar í leik: 12,0(1.) Tapaðir boltar í leik: 16,0 (6.)
Skotnýting mótherja:; 39,2% (2.) Skotnýting mótherja: 43,7% (5.)
Tapaðir boltar mótherja 14,5 (11.) Tapaðir boltar mótherja 16,5 (6.)
3ja stiga körfur í leik: 7,5 (5.) 3ja stiga körfur í leik: 8,3 (5.)
Flest stig Grindavíkur í okt.: Flest stig Grindavíkur í des.:
Páli Axel Vilbergsson 22,0 Páll Axel Vilbergsson 25,8
DanielTrammel 21,5 Darrel Lewis 25,5
Darrel Lewis 20,0 Helgi Jónas Guðfinnsson 15,3
Aðrir tölfræðiþættir í okt.: Aðrir tölfræðiþættir í des.:
Fráköst: DanielTrammel 12,5 Fráköst: DanielTrammel 13,3
Stoðsendingar: Helgi Jónas 8,0
Framlag: Daniel Trammel 29,5
* sæti meðal liða i deildinni i sviga.
Stoðsendingar:
Framlag:
Helgi Jónas 8,3
Darrel Lewis 28,8
* sæti meðal liða í deildinni í sviga.