Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Side 25
24 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 25 ENSKA ÚRVALSDEILDIN Úrslit: Blackburn-Aston Villa 0-2 0-1 Stefan Moore (62.), 0-2 Juan Pablo Angel (75.). Bolton-Arsenal 1-1 0-1 Robert Pires (57.), 1-1 Henrik Pederson (83.). Everton-Leicester 3-2 1-0 Steve Howey, sjm (33.), 1-1 Les Ferdinand (45.), 1-2 Jamie Scowcroft (58.), 2-2 Wayne Rooney (71.), 3-2Tomasz Radzinski (78.). Fulham-Chelsea 0-1 0-1 Hernan Crespo (62.). Charlton-Newcastle 0-0 Southampton-Portsmouth 3-0 1-0 Jason Dodd (34.), 2-0 Marian Pahars (67.), 3-0 James Beattie (90.). Tottenham-Man. Utd 1-2 0-1 John O'Shea (15.), 0-2 Ruud Van Nistelrooy (26.), 1-2 Gustavo Poyet (63.). Wolves-Liverpool Frestað Birmimgham-Middlesb. Frestað Staðan: ManUtd 17 13 1 3 34-11 40 Arsenal 17 11 6 0 31-12 39 Chelsea 17 12 3 2 31-12 39 Soton 17 7 5 5 18-12 26 Fulham 17 7 4 6 28-23 25 Newcast. 17 6 7 4 25-20 25 Charlton 17 6 6 5 22-20 24 Birming. 16 6 5 5 14-18 23 Liverp. 16 6 4 6 23-18 22 Bolton 17 5 7 5 17-23 22 Everton 17 5 5 7 20-22 20 M'Boro 16 5 5 6 12-15 20 A. Villa 17 5 5 7 16-23 20 Man City 16 5 4 7 23-22 19 Tonenh. 17 5 3 9 19-26 18 Blackb. 17 5 2 10 23-27 17 Leicester 17 4 4 9 25-28 16 Portsm. 17 4 4 9 18-25 16 Leeds 16 4 3 9 16-36 15 Wolves 16 2 5 9 13-35 11 Markahæstu menn: Alan Shearer, Newcastle 15 Ruud Van Nistelrooy, Man. Utd 13 Thierry Henry, Arsenal 10 Louis Saha, Fulham 10 Nicolas Anelka, Man. City 8 Michael Owen, Liverpool 8 James Beattie, Southampton 8 Freddie Kanoute, Tottenham 7 Mikael Forssell, Birmingham 7 Hernan Crespo, Chelsea 7 Juan Pablo Angel, Aston Villa 7 Jimmy Floyd Hasselbaink, Chels. 6 Teddy Sheringham, Portsmouth 6 Næstu leikir: Mánudagur 22. desember Manchester City-Leeds ||| Föstudagur 26. desember Arsenal-Wolves Fulham-Southampton Charlton-Chelsea Portsmouth-Tottenham Birmingham-Man. City Blackburn-Middlesbrough Leeds-Aston Villa Leicester-Newcastle Liverpool-Bolton Man. Utd-Everton Sunnudagur 28. desember Chelsea-Portsmouth Newcastle-Blackburn „ Allt á floti Þær voru ekki boðlegar aðstæðurnar á Molineux, heimavelli Wolves um helgina. Fresta varð leiknum par sem völlurinn var gjörsamlega á floti. Hér sjáum við einn starfsmanna vallarins reyna að gera völlinn leikhæfan en hann hafði ekki erindi sem erfiði. I I Sport DV DV Sport ÚRVALSDE HETJAN... Henrik Pedersen, Bolton Henrik Pedersen er hetja helgarinnar. Þessi mjög svo seigi Dani kom af bekknum á 75. mínútu fyrir Kevin Nolan og aðeins átta mínútum síðar var hann búinn að skora glæsilegt jöfnunarmark gegn bikarmeisturum Arsenal. Pedersen hefur ekki alltaf átt fast sæti í liði Bolton en hefur reynst liðinu ákaflega vel síðustu ár og hann sannaði enn og aftur um helgina hversu mikilvægur leikmaður hann er þegar hann tryggði Bolton eitt stig en þeir áttu skilin þrjú. ÚRVALSDEILD ...SKÚRKURINN „Mér er alveg sama og ég ætla ekki einu sinni að éta jólasteikina í ár. Ég á eftir að vera þunglyndasti maður sem sést hefur fyrr og síðar á jólum. Ég sver við Guð að jólin í ár eru vart þess virði að halda upp á." nákvæmlega það sem við áttum skilið,“ sagði Souness sem er ekki vanur að skafa utan af hlutunum. Kollegi Souness hjá Aston Villa, David O'Leary, var ívið hressari enda var Villa að vinna sinn fyrsta útileik undir hans stjórn og reyndar sinn fyrsta frá 28. janúar. „Þetta var yndislegt og fullkomlega verðskuldað. Ég var reyndar pínu hræddur í hálfleik þar sem okkur hafði ekki tekist að skora þrátt fyrir mikla yfirburði. Nú þurfum við að byggja á þessum sigri og halda áfram.“ Klaufaskapur Charlton Leikmenn Charlton voru klaufar að taka ekki öll stigin semíboðivoru þegar Newcastle kom í heimsókn. Þeir sköpuðu sér fjölda færa en tókst ekki að nýta eitt einasta og leikurinn endaði með markalausu jafntefli. „Við fengum svo sannarlega færin til að klára leikinn og ég væri að ljúga ef ég segðist ekki vera vonsvikinn," sagði Alan Curbishley, stjóri Charlton, en hann sagði engin vandamál vera á milli sín og Paolo Di Canio sem virtist vera hundfúll með að vera tekinn af velli sjö mínútum fyrir leikslok. „Paolo var ekki ánægður með að koma af velli. Hann vildi ólmur ná sigri í leiknum og því var hann ekki ánægður með það hvernig leikurinn spilaðist. Hann hvatti samt félaga sína áfram af bekknum. Hann veit að allar ákvarðanir eru teknar af heiðarleika. Ef ég tel rétt að taka mann af velli þá geri ég það.“ Sir Bobby Robson, stjóri Newcastle, sagði að úrslitin hefðu verið sanngjörn þótt verulega hefði legið á hans mönnum í leiknum. „Við byrjuðum leikinn frábærlega og Charlton þurfti að bjarga á línu. Ef sá bolti hefði farið í netið hefði leikurinn hugsanlega spilast öðruvísi. Charlton mætti aftur á móti grimmt til leiks og ætlaði sér greinilega að ná sigri. Það er sterkt að ná sigri á útivelli og ég er svona þokkalega sáttur við það," sagði Robson en hann hrósaði Jonathan Fortune, varnarmanni Charlton, í leikslok en hann hélt Alan Shearer algjörlega niðri í leiknum. Redknapp reiður Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, var ekki í miklu jólaskapi eftir að hans menn höfðu gert hressilega í buxurnar gegn Southampton á St. Mary's. Heimamenn voru miklu sterkari aðilinn allan tímann og vann Graeme Souness, Blackburn Henry hundfúll Það var ekki hátt risið á franska snillingnum Thierry Henry í Bolton um helgina. Hann komst hvorki lönd né strönd / leiknum og áttl sinn slakasti leik i búningi Arsenal í langan tima. Reuters Graeme Souness knattspyrnustjóri Blackburn er verðskuldaður skúrkur helgarinnar enda tapaði lið hans enn einum leiknum um helgina og að þessu sinni gegn hinu slaka liði Aston Villa. Souness hefur eytt fúlgum fjár í Qölda sterkra leikmanna en það virðist engu skipta - liðið gerir sífellt í buxurnar. Souness hefur fyrir löngu sýnt það og sannað að hann er arfaslakur framkvæmdastjóri og breytir litlu hvað hann er með í höndunum - aldrei nær hann árangri. Vonandi sér hann ljósið um jólin og segir af sér. Það var mikið fjör í enska boltanum um helgina og veðrið spilaði stóra rullu en tveim leikjum var frestað á laugardag þar sem vellirnir voru á floti. Arsenal gaf eilítið eftir þegar þeir voru heppnir að ná jafntefli gegn Bolton á Reebok-vellinum. Chelsea nýtti sér tækifærið og vann loks leik þegar þeir lögðu Fulham á Loftus Road, 1-0, með marki frá Hernan Crespo. Manchester United mætti síðan Tottenham í gær og vann góðan sigur. Þeir komust um leið í toppsæti deUdarinnar og þeir geta því étið jólasteikina í ár með bros á vör. Ekkert varð af leik Wolves og Liverpool á Molineux sem og leik Birmingham og Middlesbrough þar sem vellirnir voru líkari sundlaug en knattspymuvelli. Man. Utd skaut sér á toppinn í gær með sigri á Spurs á White Hart Lane, 2-1. John O'Shea skoraði fyrst og Van Nistelrooy bætti öðru við áður en Gus Poyet klóraði í bakkann fyrir Spurs. Það er því þungu fargi létt af United sem staðið hefur í ströngu utan vallar síðustu vikur. Rio Ferdinand lék með United þrátt fyrir að hafa verið dæmdur í átta mánaða keppnisbann fyrir helgi. Hann lét það ekki hafa áhrif á sig og átti afbragsgóðan leik. Aðstæður voru ekkert sérstakar á Reebok-vellinum þar sem Bolton og Arsenal gerðu jafntefli. Robert Pires náði forystunni óverðskuldað fyrir Arsenal en Henrik Pedersen jafnaði fyrir Bolton sjö mínútum fyrir leikslok. Bolton fékk nokkur ágæt færi til að klára leikinn en allt kom fyrir ekki. Sam Allardyce, stjóri Bolton var ánægður með sína menn í leikslok. Allardyce sáttur „Ég er virkilega ánægður. Það eru ekki mörg lið sem koma til baka eftir að hafa lent undir gegn Arsenal. Þetta sýnir karakter liðsins og hversu mikið sjálfstraust rnínir leikmenn hafa þessa dagana." Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var nokkuð sáttur við sína menn. „Það var svekkjandi að leggja ekki Leicester þar sem þeir sköpuðu ekkert en við vissum að Bolton yrðu erfiðir. Þeir vom það vissulega en ég er pínu svekktur þar sem við komumst yfir og fengum tækifæri til þess að klára leikinn. Bolton átti engu að síður skilið að minnsta kosti stig þar sem þeir léku vel.“ Duff úr axlarlið Chelsea mun verða án Damiens Duff um jólin en hann fór úr axlarlið í leiknum gegn Fulham sem Chelsea vann, 1-0. „Þetta er mikið áfall þar sem Duff hefur verið lykilmaður hjá okkur en hann kemur til baka eftir 2-3 vikur og við verðum bara að standa okkur án hans. Annars var ég ánægðastur með hugarfar minna manna eftir tvö slæm töp og það var mjög mikilvægt að ná sigri í þessum leik,“ sagði Claudio Ranieri, stjóri Chelsea, en hann var ánægður með Argentínumanninn Hernan Crespo og sagði að hann væri bara rétt að komast í gang. „Crespo getur betur og er að bæta sig. Hann er aðeins að sýna okkur 60-70% af því sem hann getur en restin kemur mjög fljótlega." Chris Coleman, stjóri Fulham, var ekki nógu sáttur við sfna menn sem þó eru enn í toppbaráttu deildarinnar. „Það voru lítil gæði í okkar leik og við fengum slæmt mark á okkur. Leikur okkar í heild var dapur og við spörkuðum boltanum of mikið langt fram í stað þess að spila honum. Engu að síður erum við enn í fjórða sæti og við eigum það skilið þar sem við erum gott lið sem getur meira en það sýndi í þessum leik.“ Rooney reddaði Everton Það var mikið fjör í viðureign kjallaraliðanna Everton og Leicester á Goodison Park. Leicester var í ákjósanlegri stöðu um miðjan síðari hálfleikinn en þá tók Wayne Rooney til sinna ráða, en hann koma af bekknum, og hann var maðurinn á bak við 3-2 sigur Everton. „Það hefur tekið álagið af honum að vera á bekknum í undanförnum leikjum," sagði David Moyes, stjóri Everton, um Rooney. „Hann er núna byrjaður að gera það sem hann gerði svo vel í fyrra og fyrir vikið erum við byrjaðir að sigra á ný. Ég held að það sé augljóst að hann nýtur sín mun meira núna en hann gerði fyrr í vetur." Alan Cork, aðstoðarþjálfari Leicester, svaraði spurningum blaðamanna þar sem stjórinn, Micky Adams, var eitthvað slappur í hálsinum. „Þegar lið skorar tvö mörk á útivelli í þessari deild þá býst maður við sigri. Því eru það mikil vonbrigði að fara heim á leið með tómar hendur. En staðreyndin er sú að aðeins þrír leikmenn hjá okkur léku almennilega og það er ekki vænlegt til árangurs," sagði Cork og hann gat ekki neitað því að Rooney hefði klárað leikinn. „Strákurinn skoraði frábært mark og fékk áhorfendur með liðinu. Hann gerði svo sannarlega gæfumuninn." Souness foxillur Það gengur hvorki né rekur hjá Blackburn þessa dagana og enn eitt tapið leit dagsins ljós á laugardag þegar þeir biðu lægri hlut á heimavelli gegn Aston Villa. Graeme Souness, stjóri liðsins, var alveg foxillur í leikslok. „Þetta var lélegasta frammistaða liðsins þau rúmu þrjú ár sem ég hef verið við stjórnvölinn. Ef ég hefði greitt mig inn á völlinn þá hefði mér liðið eins og ég hefði verið rændur í leikslok. Þarna var á ferðinni andlaust lið sem hafði engan veginn áhuga á því að berjast fyrir stigunum og það er hlutur sem ég sætti mig mjög illa við. Við fengum írinn fagnar Irski landsliðsmaðurinn John O 'Shea fagnar hér fyrsta márki leiksins gegn Tottenham ásamt Rio Ferdinand sem var í byrjunarliði United þrátt fyrir ad hafa verid dæmdur í 8 mánaða keppnisbann á sanngjarnan 3-0 sigur. Leikmenn Southampton geta því farið glaðir inn í jólahátíðina en Portsmouth verður að taka vel á því yfir jólin því þeir eru komnir í botnbaráttuna. „Mér er alveg sama um jólin í ár,“ sagði Redknapp í ritskoðuðu viðtali eftir leikinn. „Mér er bara alveg sama og ég ætla ekki einu sinni að éta jólasteikina í ár. Ég á eftir að vera þunglyndasti maður sem sést hefur fyrr og síðar á jólum. Ég sver við Guð að jólin í ár eru vart þess virði að halda upp á. Við munum æfa alla daga yfir jólin og mér er alveg sama hvað dagurinn heitir." Redknapp lét ekki þar við sitja heldur réðst næst á Boris Zivkovic sem var hálsofandi þegar Pahars gerði annað mark leiksins. „Ég sagði við hann. Horfðirðu á fyrri hálfleikinn eða varstu upptekinn við eitthvað annað? Hann hlýtur að hafa verið sofandi. Það fyrsta sem hann gerði var að leyfa Pahars að skora. Þetta er alveg ótrúlegt." Þessi lið eru grannar og því var sigurinn sérstaklega sætur fyrir Dýrlingana. „Svona leikir skipta miklu máli og ég skil vel af hverju stuðningsmennirnir eru svona kátir," sagði Gordon Strachan, stjóri Southampton. „Við höfum núna nælt í níu stig í síðustu þrem leikjum sem er alveg frábært." henry@dv.is Bestu ummæli hetgarinnar „Þegar ég set Duff ekki í liðið þá segir mamma mín, sem er 84 ára, hvar er Damien? Hún lætur mig heyra það og það er engin lygi/'sagði Claudio Ranieri, þjálfari Chelsea, en mamma hans heldur mikið upp á Damien Duff. Lið helgarinnar 20.-21. desember 2003 nPabloAngel( Wayne Rooney Aston Villa Everton Jay Jay Okocha Ryan Giggs (2) ScottParker Bolton ManUtd Charlton • • Jas

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.